Tíminn - 13.06.1971, Side 5
SUSÍN'UDAGUR 13. júní 1971
— A kjördegi hefur yfirkjör
stjórn i Reykjavík aðsetur i
Austurbæjarskólanum og gegn-
ir jafnframt starfi hverfiskjör-
stjómar þar. Við hittumst um
kl. 7 á kjördag og fyrstu verk
okkar eru að kanna forföll og
flokka utankjörstaðaatkvæði
■eftir kjörstöðum og kjördeild-
um svo þau geti venð komin
í rétta (kjördeild í hlutaðeig-
andi borgai-hverfi þegar kjör-
fundur hefst. Undirkjörstjórn-
imar fylgjast síðan með því
hvort kjósendur hafa áður kos-
ið utankjörstaðar og er þá það
atkvæði ógilt. En lög greina
svo á um að ef kjósandi er á
lögheimili á kjördag þá ber
honum að kjósa þar þótt hann
hafi áður kosið utan kjörstað-
ar.
Yfir daginn fæst yfirkjör-
stjórn við að leysa úr ýmsum
vandamálum. Og einnig látum
við kanna kjörsókn í borginni
á klst. fresti. Um kvöldmatar-
leytið er skipt um atkvæða-
kassa í kjördeildunum og þá
drögum við okkur í hlé inn í
leikfimisalinn í Austurbæjar-
barnaskólanum ásamt atkvæða
talningarmönnum, umboðs-
mönnum flokkanna og lögreglu
mönnum og talningin hefst, en
fyrstu atkvæðatölur eru venju-
lega birtar strax upp úr ellefu.
Daginn eftir reiknum viS út
breytta atkvæðaseðla og út-
strikanir, til að athuga hvort
frambjóðendur hafi náð kosn-
ingu eða ekki, eða hvort röð
frambjóðenda á lista hafi
breytzt. Og loks gefur yfir-
kjörstjórn út kjörbréf þing-
manna og vaxamanna þeirra.
— Hve mikil útgjöld hefur
Reykjavíkurborg af alþingis-
kosningunum að þessu sinni?
— Kostnaðurinn er áætlaður
2 milljónir kr. Borgin greiðir
kostnað við húsnæði til kjör-
funda, þóknun undirkjör-
stjórna, laun dyravarða og
kostnað við löggæzlu, mat
handa starfsfólki og áhöld.
Þess má geta hér að síðustu
borgarstjórnarkosningar í
Reykjavík kostuðu 2.090.000.
— Hvað er langt síðan farið
var að greiða undirkjörstjórn-
armönnum þóknun, er starf
þeirra ekki þegnskylduvinna-
— Jú, það er svo, en þeim
hefur verið greidd þóknun síð-
an 1966. Hún er núna 1400 kr.
— Hve margir starfa við
kosningurnar hér í Reykjavík
á vegum ykkar?
— 350 manns fyrir utan
dyraverði og löggæzlumenn.
— Mér finnst kosningarnar
orðnar miklu friðsamari nú en
fyrir nokkrum árum, sagði Páll
Líndal að lokum.
MIKIÐ VERK AÐ SKIPU-
LEGGJA ATKVÆÐA-
SÖFNUN ÚTI Á LANDI
Formaður yfirkjörstjórnar
í Norðurlandskjördæmi eystra
er Ragnar Steinbergsson, en
hann hefur gegnt því starfi í
kosningum síðan 1963. Yfir-
kjörstjórn kjördæmisins hefur
aðsetur sitt í Oddeyrarskóla á
. kjördag.
í viðtali við Tímann sagði
Ragnar:
— Nokkrum vikum fyrir
kjördag höfum við samband
við allar kjördeildir á svæðinu
til að fá að vita hvort allt sé í
lagi, þar séu nógu margir at-
kvæðakassar og pokar utan um
þá, gerðabækur o.s.frv., og fá-
um uppgefið hve margir eru á
kjörskrá. Síðan er hlé þangað
til kjörgögnin koma. Þá aug-
lýsum við eftir framboðslistum
og síðan eru þeir auglýstir.
Síðan tekur við að senda kjör-
seðla, nauðsynleg kjörgögn,
blindraspjöld og eyðublöð hag-
stofunnar til allra kjördeilda í
kjördæminu en þær eru 43. 7
kjördeildir eru á Akureyri.
Undirkjörstjómir leita ráða
og upplýsinga hjá okkur og við
höfum samband við þær.
Eitt mesta verk okkar er að
skipuleggja atkvæðasöfnun en
mikill þrýstingur er frá al-
menningi að fá atkvæðatölur
sem allra fyrst. Við notum
bíla, flugvélar eða skip til að
flytja atkvæðin.
Stundum geta erfiðleikar
komið á daginn eins og t.d. í
forsetakosningunum 1963. Þá
fengum við tilkynningu frá
Grímsey í björtu veðri um 3
leytið á kjördag um að kosn-
ingu þar væri lokið. Þegar
voru gerðar ráðstafanir til að
senda þangað flugvél, en áður
en hún lagði af stað þykknaði
upp svo ekki, var hægt að
fljúga. Atkvæðin frá Grímsey
komu síðan um 10 leytið morg
uninn eftir með varðskipi, en
yfirleitt er búið svo um hnúta
að varðskip séu á kjördag
ekki langt frá þeim stöðum.
sem erfiðleikar geta verið að
koma atkvæðum frá. Við höf-
um einnig leitað til fiskibáta.
Flugvélar eru aldrei notaðar í
tvísýnu veðri, því ef þeim
hlekkist á. væri hætta á að at-
kvæðin glötuðust og kosning-
in yrði ónýt.
Daginn eftir förum við yfir
breytta kjörseðla og útstrik-
anir og skýrslur undirkjör-
stjórnar til hagstofunnar. Það
var lengi vel mikið verk, sem
yfirkjörstjórnin hafði erfiða að
stöðu til, en frágangur þessara
skýrslna hefur batnað mikið
síðustu ár. — S.J.
TÍMINN
r ISkl *
^l&rjneruð
ÍSLENZKT LOSTÆTI-MEÐ ÓTAL MÖGULEIKA!
6
Reynið' þessa sífdarrétti í salati eða á snittur — með ferskum
ávöxtum, a eplum, appelsínum eða vínberjum, ásamt asfum, olífum
og seyddu rúgbrauði.0^^^Enn fremur fara harðsoði,n egg J^einkar
vel með kryddsíldinni.^i.^
Notið hugmyndaflugið.#- ÍSLENZK MATVÆLI HE
Hafnarfirði
Söluumboð: John Lindsay
silderlostasti! Sími 26400
< íy >\
Kosið að Ósum í Vesturhópi í siðustu sveitarstjórnarkosningum. Þarna er kjörkassinn minni en í þétt-
býlinu. (Tímamynd—Gunnar)
Kjörkassar fluttir frá kjörstað í Roykjavik tii talningarstaðar.
T *■’’vV. ■'*■'•
1llillafeÍp§ÍÆ.