Tíminn - 15.06.1971, Síða 5

Tíminn - 15.06.1971, Síða 5
ÞREDJUDAGUR 15. júní 1971 TÍMINN MEÐ MORGUN KAFFINU átti til skamms tíma Sam Bloom field í Kaliforníu. Verðið, sem nú fékkst fyrir fiðluna, er næst um fjórum sinnum meira en það, sem hingað til hefur feng- izt. Á myndinni heldur Hill, sá sem keypti hana, á fiðlunni, og segist hafa keypt hána fyrir gamlan kunningja sinn. — ★ — — Hún er 44 ára gömul og enn þá grennri og unglegri að því er sagt er, en daginn sem hún gifti sig. Hún hefur eignazt fjögur börn, og uppáhaldsmat- urinn hennar er kjúklingur í vínsósu og ítalskt schnitzel, sérlega megrandi matur, Og hverja er svo verið að tala um? Auðvitað Elisabetu Breta- drottningu. Þegar drottningin hefur bætt á sig nokkrum auka- kílóum vindur hún sér af dugn- aði og einurð í að losna við þau strax eftir. Hún borðar þá hálfa greipávöxt í morgunmat, ristað brauð smjörlaust, og svart kaffi. Grillaður kjúkling- ur eða lamb og grænmetissúpa eru hádegismaturinn hennar, og í kvöldmat fær hún kjötseiði, fisk eða grillað kjöt án sósu. Þegar drottningin þarf að vcra í matarkúrum sem þessum, verður fjölskyldan og meira að segja gestir hennar, að láta sér sama fæði nægja. Eiísabeth er viljastyrkurinn uppmálaður. Hún telur hitaeiningarnar í hverjum einasta smábita, sem inn fyrir hennar varir fer, og gleymir engu. Og hvers vegna er hún að svelta sig svona? Hún hefur aldrei verið sérlega feit, aðeins búttuð, eins og það er kallað. Ástæðan ku vera sú, að hún horfir með skelfingu fram til þess að verða eins feit og móðir hennar, og í rauninni er hún að berjast gegn erfðaeig- inleikum, sem eru bæði í móð- ur- og föðurætt hennar, að því er sagt er. — Auðvitað eru þetta skammbyssur. Hélztu, að ég safnaði fiðrild- rna? Bernharð Stefánsson, fyrrum alþingismaður, kom eitt sinn í heimsókn, til Benedikts á Vatnsenda. Benedikt tók honum hið bezta og sagðist eiga ágæta whiskyflösku, en hann ætti því miður engan tappatogara og því engin leið að opna flösk una. Nokkru síðar kom Benedikt í Búnaðarbankann á Akureyri, en þar var Bernharð banka stjóri. Hann vatt sér þá að Benedikt og sagði: — Oft hef ég hugsað um það, Benedikt hve ánægjulegt væri að koma að Vatnsenda, e£ maður hefði með sér tappa- togara! Jón Steffensen prófessor var að kenna læknanemum og bað stúlku úr nemendahópnum um hárlokk til smásjáræfinga. — Hvar á ég að taka hann, spurði stúlkan. —Helzt af höfðinu, svaraði Jón prófessor. Sigurjón Pétursson á Ala- fossi fór eitt sinn á gamla ,,Gull fossi“ til Kaupmannahafnar. Þetta var um hávetur, og þegar suður til Danmerkur kom, voru öll sund lögð þykk- um ísi, svo að skipið sat fast og komst hvergi. Sigurjón tók þá til sinna ráða. Hann steig á hraðhlaupa- skauta, sem hann hafði í far- angri sínum, og brunaði áleiðis til Kaupmannahafnar. Þegar hann kom að landi, voru tollgæziumenn þár fyrir. Þeir spurðu um ferðir lians. Sigurjón sagðist koma frá ís- landi. Ekki vildu þeir trúa því, en Sigurjón sagði þá, að þeir skyldu bara hringja til íslenzka sendiherrans til þess að fá upplýsingar um sig. Tollverðirnir tóku þetta ráð, og eftir símtalið gerðu þeir ekki annað en bukka sig og beygja og störðu steinhissa á eftir þessum kynlega ferðalang. En Sigurjón renndi sér, eins og fara gerði, eftir Kanalnum inn 1 Kaupmannahöfn. DENNI Mikið lilýtur að hafa verið _» , A , . _ hljóðlátt og kyrrt fcjá ykkur, DÆ M A LA U ÍZI I áður en ég fæddist. Þetta er Stradivariusarfiðlan, sem seld var á uppboði í Lond- on fyrir skömmu, fyrir 18—19 milljónir króna. Uppboðið var hjá Sotheby, uppboðshaldaran- um, sem seldi geirfuglinn hér á dögunum. Fiðlan var búin til í Cremona, árið 1721, og hana - ★ - ★ - Snowdon lávarður og Mar- grét prinsessa eru farin að grípa til allróttækra aðgerða gegn ljósmyndurum, sem leggja það í vana sinn að elta þau á röndum og taka af þeim ljósmyndir við ýmis tækifæri. Nú síðast lét lávarðurinn sig hafa það að aka hreint og beint á bíl ljósmyndarans Ray Bellis- ario, sem hafði fylgzt með hjón- unum á skemmtun í þorpi einu í Englandi og myndað þau í bak og fyrir. Reyndar hafði Bellisario einnig ljósmyndað Snowdon í fylgd með Jacque- line Rufus Isaacs, sem blöð hafa mikið skrifað um í sam- bandi við lávarðinn. Snowdon var ekki sérlega hrifinn af myndatökunum og þaut heim í fússi. Bellisario hélt einnig heim á leið, og tók þá allt í einu eftir því, að bíll Snowdons kom akandi beint í átt til hans. Á síðustu stundu gat ljósmynd- arinn sveigt út af veginum, og losnaði þar af leiðandi við að lenda í hörðum árekstri, þótt bílarnir snertu hvor annan. Bellisario telur, að hér hafi ver- ið um hefndarráðstöfun að ræða, en hann hefur tvívegis áður lent í svipuðu, þegar hann 1963 tók myndir af Elísabetu drottningu og Margréti prins- essu á hestbaki, og Margréti við að skipta um sundföt. Hm 23 ara gamla Sarah Ken- nedy, sum er systkinabarn teir kendu Kennedybrpðurnar, er ein spilla fyri sína fínu ætt. Hon hevur spylt hþvuðsleik- lutin í amerikanska porno- leikinum ‘‘Telefonb'ókin” — og tað setir ikki júst nakra glæmu á Kennedyarnar. Svo mörg voru þau orð í færeyska blaðinu 14. septem- ber, og nú getið þið spreytt ykkur á að lesa færeyskuna svona til tilbreytingar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.