Tíminn - 15.06.1971, Qupperneq 10
10
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 15. júni 1971
ROBERT MARTIN:
BYSSA TIL LZIGU
57
ljómandi gáfnaljós, og stundum
íannst mér ég fremur geta verið
faðir hennar en lögmætur ekta-
maki. En ég ann henni. I
gærkvöldi, eftir ævintýrið á gras-
flötinni, stakk hún af frá mér, og
stuttu síðar sá ég hana laumast á
(brott með Sam. Ég fylgdi þeim
eftir — hingað, heim í mitt eigið
hús. Þau fóru inn, og það var
hvergi kveikt Ijós. Ég beið og beið,
og mér fannst ég hafa elzt um
mörg hundruð ár, þegar Sam
skaut um síðir upp, áberandi
drukknum, — en ég hafði falið mig
á bak við bílskúrinn. Ilann sett-
ist undir stýri og ók á brott, en
ég veitti honum eftirför á mínum
eigin bíl. Sam ók út til golf-
klúbbsins, og ég sá, að hann hafði
haft fataskipti, þegar hann kom
aftur út eftir svolitla stund, með
aðeins eina kylfu í hendinni.
Hann eigraði út á völlinn og reyndi
að slá kúlu, og þetta hefur hann
gert margoft fyrr. Hann fær nefni
lega ærið oft þá hugmynd — það
er að segja, hann fékk þá hug-
mynd — þegar hann var fullur,
að nú væri rétti tíminn fyrir hann
að fara út og leika golf.
— Var orðið bjart? spurði Jim.
— Það get ég ekki sagt um. Það
Lreytir hvort sem er ekki neinu.Ég
tók riffilinn, sem Lily eignar sér,
út úr skápnum, og fór á eftir
honum. Þcgar hann var kominn
að sjöttu holu, kom tækifærið upp
í hendurnar á mér. Sólin var
alveg nýkomin upp, og hann bjó
sig til glæsilegs höggs, á meðan
ég stóð þarna á bak við aspirnar.
Ég skaut, tvívegis, og ég sá hann
vella til jarðar. Ég gekk þangað,
sem hann lá, og gekk úr skugga
um, að hann væri dauður. Það er
langt síðan gleðin hefur náð öðr-
um eins tökum á mér. Getið þér
skilið þetta, Bennett?
— Eí til vill, sagði Jim. — Vor-
uð það þér, sem undirstunguð Ro-
gan mcð að rannsaka bílinn minn
og ferðatöskuna?
— Já, það var ég, svaraði Wint
ers. — Ég gat ekki skilið, hvað
það gæti verið, sem þér og Sam
væruð að bralla saman, og þetta
var áður en allur bærinn vissi, að
þér væruð uppljóstrari. Sam var
samstarfsmaður minn, og ég hafði
á tilfinningunni, að eitthvað væri
bogið við eitt og annað. Þess
vegna lét ég Rogan snuðra í vagni
yðar, ef ske kynni, að það gæti
varpað ljósi á það, sem þér hefð-
uð fyrir stafni. En það eina, sem
hann hafði upp úr krafsinu, var
skammbyssan, þessi hérna.
— Þér hefðuð átt að leita frétta
hjá mér fyrr en nú, þennan herr-
ans morgun, sagði Jim. -— Sam
hafði fellt grun á Lem Fassler,
en hafði jafnframt því slæma sam-
vizku, og hann var alis ekki viss
í sinni sök. Ilann var hálfhræddur
um, að mannvera sú, sem sífellt
var að senda skotin framhjá hon-
um, kynni að vera — að það kynn
uð að vera þér, eða þá einhver
annar kokkálaður eiginmaður, til
dæmis Pete Donato. Menn, sem
storma á eftir konum annarra
manna, sofa ekki vel 'um nætur,
og Sarii Allgood var hræddur, —
þess vegna kallaði hann mig hing-
að, jafnvel þó að það þýddi ekki
annað en það, að ég staðfesti að
það væri Fassler.
Jim þagnaði rétt scm snöggvast,
en hélt síðan áfram.
— Hvers vegna leyfðuð þér ekki
gruninum á hendur Fassler að
haldast áfram, Winters? Það hefði
þó legið ágætlega við. Maðurinn
hefur þó játað að hafa skotið á
eftir Allgood.
Winters andvarpaði.
— Ég hugsaði ekki nægilega
hratt, sagði hann, — og þar á ofan
hafði ég drepið manninn. Ég gat
ekki hugsað mér annað. Þegar ég
var búinn að skjóta hann, sneri
ég heim í klúbb og kom riffli
konunnar fyrir í skápnum, eins
og áður hafði verið frá honum
gengið þar, ók svo heim, fór i
bað, rakaði mig og lagði því næst
af stað til að sækja yður. En núna,
þegar ég yfirvega þetta nánar,
bætti hann við skælbrosandi. — þr.
g» rðist þetta einmitt á ná-
kvæmlega sama stað og hann
stóð á, þegar Fassler var að reyna
að knalla á hann. Ef til vill var
það líka í rauii og veru Fassler,
sem scndi honum dauðaskotið.
Jim hristi höfuðið.
— Of seint. Því hefðuð þér átt
að átta yður á, áður en þér ját-
uðuð.
— Heyrið nú, Bennett, mælti
Winters með ákafa í rómnum, en
jafnframt örvæntingarhreim. —
Mér er rammasta alvara. Ég get
látið Fassler taka á sig sökina, ef
þér viljið hjálpa mér.
— Nei, sagði Jim. — Mér þykir
leitt að þurfa að segja það, en
það er af og frá. Þar að auki hefur
Hector verið áheyrandi að sam-
tali okkar.
— Fimm þúsund, sagði Win-
ters. — Bæði í yðar hlut og Hec-
tors.
— Gerið okkur nú ekki erfið-
ara fyrir en orðið er.
Winters stundi þungan.
Nú, jæja. Tilraun var það og
annað ekki.
Hann benti á vínskápinn. —
Yiljið þið fá ykkur glas í viðbót?
Eg legg af stað nú á stundinni,
sezt upp í bílinn minn og ek burt.
— Nei, sagði Jim.
— Jl, sagði Winters, og ennþá
kinkaði hann kolli. — Ef þið reyn
ið að tefja för mína, þá skýt ég
ykkur báða niður.
Jim gekk nú aftur að borðinu
með símanum. Þar hjá var stóll,
og á meðan Jim tók með annarri
hcndi ofurhægt um símtóiið, greip
rann um stólbakið með henni,
líkt og það væri einhver hugsun-
arlaus hreyfing, en ekki af ásettu
í’áði. Winters horfði hvasst
á hann, en Hector Griffith stóð
óbifanlegur eins og myndastylta.
— Látið þrtla kyrrt, skipaði
Winters öskrandi reiður og iyfti
skammbvssunni um hálft fet eða
svo.
Jim varpaði til hans stólnum,
sem lenti á hnénu, en í sama bili
hljóp skotið af og kúla þaut rétt
við eyrað á Jim. Hann beygði sig
til hálfs og hljóp undir andstæð-
ing sinn, en Hector varð þó fvrri
til. Hann stökk til með undraverð-
um hraða, og langi, granni lík-
aminn þaut sem ör yfir stofugólf-
ið. Hann greip báðum höndum um
hægri handlegg Winters, sem
reyndi þegar að hrista hann af
sér, en Winters hrasaði um stól-
inn, og þá tókst Hectori að af-
vopna hann. Síðan sté hann aftur
á bak eilt skref og beindi byss-
unni að YVinters. Andlitið lýsti
logandi uppnámi, en höndin var
styrk og róleg.
Jim hafði allt þar tii nú, ekki
dirfzt að draga fram skamm-
byssu þá, sem hann geymdi í
brjóstvasanum og Hector Griffith
hafði léð honum til afnota. Nú tók
hann hana fram, hélt laust um
hana og leit niður á Jeff YVint-
ers, sem horfði á móti hörðum,
gneistandi augum.
Hector hristi höfuð’ið með
alvöru og hryggð í svipnum og
beindi byssunni stöðugt að morð-
ingjanum, en Jim stakk sinni byssu
í vasann á ný. Hann heyrði eitt-
hvert þrusk að baki sér.
Katherine Allgood stóð í neðsta
þreki stigans, andlitið var hrím-
fölt og augun hennar brúnu, virt-
ust næstum því svört. Hún starði
tryllingslega á það, sem var að
gerast í stofunni, og ríghélt sér í
handriðið með báðum hönd-
um. Úti fyrir heyrðist b£l-
er þriðjudagurinn T5. júní
— Vítusmessa
Árdegisháflæði í Rvik kl. 11.12.
Tungl í hásuðri kl. 06.51.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan I Borgarspitalan-
um er opln allan sólarhringicn.
SimJ 81212.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fjrr-
Ir Reykjavik og Kópavog simi
11100.
Sjúkrabifreið I Hafnarfirði simi
51336.
Tannlæknavakt er I HeHsuveradar-
stöðinnl, þar sem Slysavarðstot-
an var, og er opln laugardago og
sunnudaga kl. 5—6 e. h. — Siml
22411.
Aimennar npplýsingar um Uekna-
þjónustu í borginnl eni gefnar )
simsvara Læknafélags Reykjavík
ur, slmi 18888.
Fæðingarheimllið I Kópavogi.
EOiðarvegi 40, simi 42644.
Kópavogs Apótek « OP1® virka
ðagb kL 9—19, laugardagB k" 9
—14, helgidaga kL 13—16.
Keflavikur Apótek « opi® vtrka
daga kL 9—19, laugardaga kl
9—14, helgidaga kl 13—16.
Apótek Hafnarfjarðar er opið al1»
virka dag fró kL 9—7, á laugar
dögum kL 9—2 og á stmnudög-
um og öðrum helgidögum er op-
1ð frá kl 2—4
Kvöld- og helgarvörzlu í. Apóteka
i Reykjavík vikuna 12. — 18. júni
annast Austurbæjar-Apótek pg
Lyfjabúð Breiðholts.
Næturvörzlu í Keflavík 15. júní
annast Arnbjörn Ólafsson.
SIGLINGAR
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla fer frá Reykjavík kl. 24,00
á fimmtudagskvöld austur um land
í hringferð. Esja er á Akureyri á
austurleið. Herjólfur fer frá Rvík
kl. 21,00 í kvöld til Vestmanna-
eyja.
FLUGÁÆTLANIR
Loftleiðir hf.
Snorri Þorfinnsson er væntanlegur
frá New York kl. 0700. Fer til Lux-
emborgar kl. 0845. Er væntanlegur
til baka frá Luxemborg kl. 1600.
Fer til New York kl. 1645.
Eiríkur rauði er væntanlegur frá
New York kl. 0800. Fer til Lux-
emborgar kl. 0845. Er væntanlegur
til baka frá Luxemborg kl. 1700.
Fer til New York kl. 1745.
Leifur Eiríksson er væntanlegur
frá New York kl. 1030. Fer til Lux
emborgar kl. 1130. Er væntanleg-
ur til baka frá Luxemborg kl. 0215.
Fer til New York kl. 0315.
Guðríður Þorbjarnardóttir er vænt
anleg frá Osló, Gautaborg og Kaup-
mannahöfn ki. 1500. Fer til New
York kl. 1600.
cÉLAGSLlF
Félagsstarf eldri borgara
í Tónabæ.
A morgun, miðvikudag, verður op-
ið hús frá kl. 1.30 til 5,30 .e. h. Auk
venjulegra dagskrárliða, verður
kvikmyndasýning. Farmiðar í vænt
anlega Akranesferð verða afhentir.
Dansk kvindeklub i Island.
Sommerudflugten er torsdag den
22. juni. Angar fra Tjarnarbúð kl.
9,30 precis. — Deltagerne bedes
melde sig senest den 17. júni. —
Bestyrelsen.
Gróðursetningarferð
í Heiðmörk
í kvöld kl. 20 frá BSÍ (ekið um
Miklubraut). — Ferðafélag íslands.
Ferðafélagsferðir
16. — 20. júní
1. Lálrabjarg (fuglaskoðunarferð).
2. Þórsmerkurferð.
18. — 20.
1. Landinannalaugar — Veiðivötn.
2. Mýrdalur og nágrenni.
19. — 20. júní
Þórsmörk.
Farseðlar seldir í skrifstofunni.
Óldugötu 3, símar 11798 og 19533.
Ferðafélag íslands.
GENGISSKRÁNING
Nr. 66 — 14. júni 1971
1 Bandar. dallar 87.90 88,10
1 Sterlingspund 212,65 213,15
1 Kanadadollar 85,85 86,05
100 Danskar kr. 1.173,34 1.176,00
100 Norskar kr. 1.235,80 1.238,60
100 Sænskar kr. 1.702,20 1.706,06
100 Finnsk mörk 2.102,90 2.107,68
100 Franskir fr. 1.591,50 1.595,10
100 Belg, frankar 177,10 177,50
100 Svissn. fr, 2.151,75 2.156,65
100 Gyliini 2.476,00 2.487,30
100 V.-þýzk mörk 2.505,00 2.516,40
100 Lírur 14,10 14,14
100 Austurr. sch. 352,00 352,80
100 Escudos 309,20 309,90
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reykningskrónur —
Vöruskiptalnd 99,86 100.14
1 Reikningsdollar -
Vöruskiptalönd 87,90 ’8,10
1 Reikningspund -
Vöruskiptalönd 210,95 211,45
ORÐSENDING
Oriof húsmæðra.
Tekið á móti umsóknum í Traðar-
kotssundi 6. 2. hæð, mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 3—5
sími 12617.
Frá Listasafni Einars Jónssonar.
Miklum aðgerðum á húsinu er lok-
ið. og verður safnið aftur opnað
almenningi laugardaginn 1. maL
Frá og með 1. maí og til 15. sept.
verður safnið opið alla daga vik-
unnar kl. 13.30 til kl. 16. Itarleg
skrá yfir listaverkin á þrem tungu-
málum er falin í aðgangseyrinum.
Auk þess má fá í safninu póstkort
og hefta bók með myndum af flest-
um aðalverkum Einars Jónssonar.
— Safnsstjórnin.
— Dádýrshorn, logarnir hafa ekki lirætt hesla þeirra. — Dragið örvar á hoga, fljótir nú! — Hörfið undaii. Notið ckki
örvarnar á okkur. Hlaupið.