Tíminn - 15.06.1971, Qupperneq 12

Tíminn - 15.06.1971, Qupperneq 12
ÞRIÐJUDAGUR 15. júni 1 ÍÞRÓTTIR ISLENZKUR KNATTSPYRNU- MAÐUR TIL SUDUR-AFRfKU Hinn kunni knattspyrnumað- ur úr Val, Jóhannes Eðvaldsson, liélt í morgun áleiðis til Höfða- borgar í Suður-Afríku, þar sem hann mun næstu dagana æfa og leika með atvinnumannalíðinu Cape Town City, en lionum hef- ur boðizt að gerast atvinnumað- ur með því liði. Framkvæmdastjóri liðsins, Frank Lord, kynntist Jóhannesi sl. haust á þjálfaranámskeiði hjá enska knattspyrnusamband- inu, og hreifst mjög af honum. Bauð hann Jóhannesi skömmu síðar að koma til Höfðaborgar og gerast atvinnumaður þar. Hann vildi fá Jóhannes til að æfa og leika stöðu miðherja, en með sínu liði hefur hann að undanförnu leikið stöðu tengi- liðs, með góðum árangri, eins og flestum er kunnugt. Jóhannes hefur gengið með tilboðið í vasanum síðan um jól, en ekki tekið ákvörðun fyrr en nú í síðustu viku — og mun- aði þar mestu, að hann var settur út úr landsliðinu í leiknum gegn Frakklandi, sem fram fer í París á morgun. Hanrt vcröur þó samferða því utan, því hann á farseðil með sömu vél. Síðari hiuti keþþnisthhábils- ins í Suður-Afríku er -nú að. hefjast — enda haust á þeim slóðum. Jóhannes mun æfa og leika með liðinu næstu daga og sjá til, hvernig honum líkar. En hann hefur einnig farseðil heim frá félaginu, ef honum lízt ekki á að gerast atvinnumaður hjá því. Ef hann tekur tilboði um að gerast atvinnumaður, verður hann að skrifa undir a. m. k. eins árs samning, en um það er liann þó sjálfráður, enda áhugamaður. Jóhannes Eðvaldsson, einn af betri knattspyrnumönnum Is- lands, heldur til SuSur-Afríku í dag og mun leika þar knatt- spyrnu með innfæddum og ö'ðr- um erlendum knattspyrnumönn- um, Með Cape Town City leika margir góðir atvinnumenn víða að úr heiminum, og einnig leika með því atvinnumenn frá Eng- landi, bæði fyrrverandi og nú- verandi. Meðal þeirra er t. d. Francis Lee, Manchester City sem ensku blöðin sögðu fyrir skömmu, að myndi leika með Cape Town City í 'sumar og um leið aðstoða við þjúHun-þess. Jóhannes fær þarna gott tæki færi til að kynnast heiminum, enda ekki á hverjum dcgi, sem íslenzkum knattspyrnumanni er boðiö alla leið til Afríku. Elcki er að efa, að Jóhannes stendur sig vel, ef hann ákveður að ger- ast atvinnumaður þar, enda áhugasamur og viljasterkur. Er mikill missii; að honum úr ís- lenzkri knattspyrnu, en sjálf- sagt íáum við þó að sjá hann leika aftur á íslenzkri grund, þótt sú afríska fái að njóta þess á næstunni. —klp.— STRIGASKOR í öllum stærðum ÆFINGABUNINGAR í öllum stærðum Enskir og íslenzkir félagsbúningar í miklu úrvali Fótboltastrigaskór — Adidastöskur Æfingatöskur og pokar með íslenzkum og enskurn félagsmerkjum 7 tegundir af fótboltum * ^vöruv^ Ingólfs Óskarssonar Klapparstís* 44 — sími 11783 POSTSENDUM 60 mefra mark í Keflavík — En það var eina mark Breiðabliks, sem tapaði fyrir ÍBK 4:1 J—Keflavík—klp—Reykjavík. Nýliðarnir í 1. dcild, Breiðablik, komu Keflvíkingum mikið á óvart í leiknuin á laugardaginn. Þeir léku ekki síðri knattspyrnu en heimamenn og voru ákveðnir og harðir í horn að taka. Eini mun- urinn á liðunum var sá, að Kefl- víkingar gátu skorað fleiri mörk og áttu fleiri tækifæri, og síðast en ekki sízt var heppnin þeim hlið hollari við markiþ. Þeir byrjuðu á því að skora á 5. mín leiksins. Gísli Torfason tók eitt af sínum löngu innköst- um inn á vítateig Breiðabliks, þar sem Guðni Kjartansson skall aði knöttinn fyrir fætur Steinars Jóhannessonar, sem kom honum rétta boðleið í markið. Kópavogsmenn jöfnuðu um miðjan hálfleikinn með einu því furðulegasta en jafnframt klaufa- legasta marki, sem lengi hefur sézt — og þó er úr mörgum að velja. — Guðmundur H. Jónsson, miðframvörður Breiðabliks, tók aukaspyrnu eina 60 metra frá marki ÍBK og sendi knöttinn í átt að marki ÍBK. Hann kom niður í vítateignum, þar sem hann hopp- aði fram hjá varnarmönnum og sóknarmönnum Breiðabliks og beina leið í mark. Þetta mun vera fyrsta markið, sem Guðmundur skorar á sínum langa knattspyrnu- ferli, en félagar hans segja að hann skori ekki einu sinni mark á æfingu, og því fögnuðu þeir inni lega. En Adam var ekki lengi í Pfira- dís. Staðan var 1:1 i hálfieik. en þegar á 2. mín. komst ÍBK yfir. Magnús Torfason skaut að' fnarki; en markvörður Breiðabliks sló knöttinn vitlaust, og hann fór aft- ur fyrir hann, þar sem Ólafur Júlíusson kom aðvífandi og renndi honum í netið. Þetta var fyrsti 1. deildarleikur Ólafs, sem ,er bróðir Rúnars Júlíussonar, fyrr um leikmanns með ÍBK, og ætlar hann ekki að verða síðri bróður sínum á knattspyrnusviðinu, eða við að skora — eftir þessum leik að dæma. Steinar Jóhannesson átti skömmu síðar ,,hjólhestaspyrnu“ að marki Breiðabliks, en einn varnarmanna sló knöttinn frá marki með hendi og dæmdi dómar inn þegár vítaspyrnu, sem Magnús Torfason skora'ði úr. Síðasta mark leiksins skoraði svo Steinar, eftir mistök og rugling í vörn Breiða- bliks, og urðu því lokatölurrtar 4:1, sem er heldur stór sigur. Breiðabliksmenn áttu að geta skor að 1—2 mörk, t.d. átti Guðmundur Þórðarson tvö gullin tækifæri með stuttu millibili, en honum mis- tókst herfilega í báðum tilfellum. Karl Hermannsson átti mjög góðan leik með Keflavíkurliðinu í fyrri hálfleik, en lítið bar á hon- um í þeim síðari. Ólafur Júlíus- son var bezti maður liðsins, og á hann trúlega eftir að ylja mörg- um varnarmanninum í framtíð- inni, og um leið hjörtum áhorf- enda. Þeir Guðni og Einar, „sí- amstvíburarnir" í vöminni, hafa oft verið betri en í þessum leik — sérstaklega Guðni. Breiðabliksliðið er jafnt og þar bar enginn af öðrum í þessum leik. Með smáheppni hefðu úr- slitin ekki þurft að verða svona slæm fyrir liðið, en hún var ekki fyrir hendi í þetta sinn. Guðmund- ur Þórðarson var þeirra hættu- legastur í framlínunni, en jafn- framt ólöglegastur á vellinum, Hann er farinn að temja sér slátt og olnbogaskot í tíma og ótíma, og gerir þetta á svo klaufalegan hátt, að allir sjá, enda slapp hann ekki við að fá oft dæmt á sig af ágætum dómara þessa leiks, Bjama Pálmasyni. Jafntefli á Akureyri Fram náði öðru stiginu á elleftu stundu Álngm.-Akureyri — klp.-Rvík. Akureyrarliðið var fyrsta liðið til að skora meira en eitt mark lijá hinni margumtöluðu vörn Fram í leiknum milli liðanna í 1. deild á laugardaginn. Leikurinn bar mikinn keim af veðrinu, sem háði leikmönnum á margan hátt, en 5 til 6 vindstig voru meðan leikurinn fór fram og stóð vindur beint á annað markið. Akureyringar léku undan vindi í íjrr!' háfflcik ög' skoruðu þá tvö mö.rk — ejnu meira en nokkru öðru iiði liefur tekizt að skora hjá Fram það sem af er þessu ári. Fyrsta markið kom á 13. mín. leiksins, en það má að nolckru skrifa á Þorberg Atlason, sem ekki hélt knettinum og hann skoppaði fyrir fætur Kára Árna sonar, sem ekki var seinn að nota sér boðið og sendi knöttinn í net- i'ð. Síðara markið kom skömmu síð ar, Kári fékk knöttinn rétt fyrir utan vítateig og smeygði sér á milli varnarmanna Fram í átt að markinu. Þegar hann var kom inn nokkuð innarlega bjuggust all ir við að hann myndi senda knött- Feðgarnir Bjarni Konrá'ðsson og Konráð Bjarnason urðu báðir verðlauna- hafar í Pierre Robert-keppninni i golfi, sem fram fór um helgina hjá Golf- klúbbi Ness. Konráð varð sigurvegari I 1. flokki, en Bjarni annar í 2. fiokki, og eru þet+a fyrstu verðlaunin, sem hann hlýtur í golfkeppni, en Konráð hefur oft orðið verðlaunahafi áður. í keppninni tóku þátt 115 manns, sem er einn mesti fjöldi, sem hefur tekið þátt í opinni golfkeppni hér á landi. Ótfar Yngvason varð sigurvegari i; meistaraflokki; lék á 70 höggum, sem er parið á Nessvcllinum. Nánar vcrður sagt frá þessari kcppni í blaðinu á morgun. inn fyrir markið, og meðal þeirra var Þorbergur, sem gekk út úr markinu og hugðist taka sending una, en þar misreiknaði hann sig eins og fleiri — því Kári gaf ekki fyrir, heldur skaut á markið og knötturinn lá í netinu. Framarar voru sterkari aðilinn í leiknum, en heidur urðu menn fyrir vonbrigðum með þá, því allir bjuggust við að sjá eitthvað stór- kostlegt til þessa umtalaða liðs. Þegar síðari hálfleikurinn hófst og þeir með vindinn í bakið, byrj uðu þeir þegar að pressa stíft á mark ÍBA, sem dró sitt lið aftur í vörn, enda með 2 mörk yfir. Á 6. mín. hálfleiksins tókst Fram að minnka bilið um 1 mark og var þar að verki Arnar Guðlaugs son, með hörku skoti, sem lenti upp undir þverslá og niður. Var þetta mark ekki ósvipað liinu fræga marki Englands í úrslita- leiknum gegn Vestur- Þýzkalandi á HM-1966. Framarar liéldu áfram að pressa en er á leið losnaði um Akureyr ingana og þeir áttu eitt og eitt upphlaup á milli. Ekki tókst þeim að skora fleiri mörk, en heldur voru þeir samt nær því en Fram arar. Þegar rétt 5 mín. voru til leiksloka tókst Fram þó að jafna. Kristinn Jörundsson náði að skalla knöttinn úr þröngri stöðu út til Sigurbergs Sigsteinssonar, sem skallaði hann rétta leið í markið. Þetta urðu úrslit leijcsins, og telja má þau nokkuð sanngjörn. Framarar voru betri aðilinn, en Akureyringar voru hættulegri og nær því að skora fleiri mörk. Bald ur Scheving var tvímælalaust bezti maður Fram í þessum leik, gafst aldrei upp og barðist eins og ljón allan tímann. Kári Árna son var ógnvaldur Fram og var hann það ekki síður í fyrri hálfleik en í þeim síðari, þó þá hefði hann vindinn í fangið. f sí'ðari hálfleik þegar Framar ar léku undan vindi, gerðist það að varamenn Fram stilltu sér upp fyrir aftan mark Akureyringa og hugðust þannig flýta fyrir því að félagar þeirra gætu skorað, með því að sækja knöttinn þegar hann fór aftur fyrir markið. Hinum ágætu dómara leiksins Guðjóni Finnbogasyni, fannst þeir vera farnir að verða full aðgangsharð ir og bað því vallarstarfsmenn um að láta þá fara frá markinu, en því neituðu Framararnir. Varð þarna mikið strögl, sem var ná lægt því að kosta handalögmál, en tii þess kom þó ekki, sem betur fer fyrir alla aðila.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.