Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 7
Öflugur heimamarkaður á vefnum Smáauglýsingadeild Fréttablaðsins Þverholti 9, 105 Reykjavík. Sími 515 7500 Netfang: smaar@frettabladid.is Veffang: frett.is Athugið: Upplýsingar um lestur eru fengnar úr fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002. Miðað er við meðallestur á tölublað í hverjum aldurshópi. Upplýsingar um verð eru fengnar úr verðskrám blaðanna á frett.is og dv.is og er miðað við lægstu uppgefin verð í báðum tilfellum. Þegar þú kaupir eggjabakka er einfalt mál að kanna hvort hann sé fullur af eggjum. Þú lyftir einfaldlega lokinu og kannar málið. Þess vegna dettur engum eggjaframleiðanda í hug að setja aðeins 5 egg í bakka fyrir 12 egg. Kaup á auglýsingum í dagblöðum ættu að lúta sömu lögmálum. Gallinn er hins vegar sá að það sést ekki á einu eintaki af dagblaði hversu margir lesendur lesa blaðið. Þess vegna standa auglýsendur og dagblöð fyrir lestrarkönnunum til að mæla hversu margir lesendur eru á bak við blöðin. Nýjasta lestrarkönnun Gallups, sem gerð er fyrir fjölmiðlana, Samtök auglýsenda og Samband íslenskra auglýsingastofa, sýnir að á bak við hvert tölublað af Fréttablaðinu eru á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali 86.000 manns á aldrinum 12 til 80 ára. Á bak við hvert tölublað af DV eru á höfuðborgarsvæðinu aðeins 38.000 manns á sama aldri. Með öðrum orðum er 125 prósent fleiri lesendur eru á bak við Fréttablaðið en DV. Þrátt fyrir það er hver birting í smáauglýsingum DV 75 prósent dýrari en smáauglýsing í Fréttablaðinu. Lestrarkannanir sýna því að hjá Fréttablaðinu færðu miklu meira fyrir miklu minna. sími smáauglýsingadeildar: 515 7500 Nokkur atriði úr handbók auglýsandans: Úr 4. hluta: Lestrarkannanir. smáauglýsingar Smáauglýsing Einingarverð (kr.) 995,- Fjöldi lesenda 86.000 Snertiverð (aurar) 1,15 Innihaldslýsing: Lestur eftir aldurshópum 12–24 ára 49% 25–49 ára 65% 50–80 ára 79% Athugar þú hvað er verið að selja þér? Smáauglýsing Einingarverð (kr.) 1.766,- Fjöldi lesenda 38.000 Snertiverð (aurar) 4,65 Innihaldslýsing: Lestur eftir aldurshópum 12–24 ára 27% 25–49 ára 26% 50–80 ára 36% Þegar fólk kaupir matvöru ætlast það til að seljandinn gefi upp innihald vörunnar. Það sama gerir hinn hagsýni auglýsandi. Hann spyr hvað hann sé að kaupa. Smáauglýsingar Fréttablaðsins birtast einnig á frett.is 995,- 1.766,-

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.