Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 16
16 20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? FÉLAGSSTARF 13.30 Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Frjáls spilamennska kl. 13.30 og pútt á Hrafnistuvelli kl. 14.00 til 16.00. ÚTIVIST 20.00 Fjallahjólaklúbburinn hjólar í kvöld að Keldum. Alls er ferðin um 15 kílómetrar. Mæting er við skiptistöð strætó í Mjódd. Allir eru velkomnir en skilyrði er að þátt- takendur séu með hjálm. SKÁK 16.45 Keppni í Landsliðsflokki á Skák- þingi Íslands 2002 hefst í dag. Teflt verður í hátíðarsal Íþrótta- húss Gróttu á Seltjarnarnesi. Tólf af sterkustu virku skákmönnum landsins mæta til leiks. Þeir keppa um Íslandsmeistaratitil og réttinn til að tefla fyrir Íslands hönd á komandi Ólympíumóti. Tefldar verða 11 umferðir, allir við alla, frá 20.- 30. ágúst. Virka daga hefjast umferðir kl. 17:00 en um helgar og þann 30. ágúst kl. 13:00. Beinar útsendingar verða frá öllum skákunum á heimasíðu mótsins TÓNLEIKAR 20.30 Xu Wen sópransöngkona syngur við undirleik Önnu Rúnar Atla- dóttur á Sumartónleikum Lista- safns Sigurjóns Ólafssonar. Á efnisskrá verða Fimm grísk þjóð- lög eftir Ravel, verk eftir Fauré, Sigvalda Kaldalóns og kínversk þjóðlög. Að lokum eru þrjár þekktar óperuaríur; eftir Puccini, Verdi og Gounod. MYNDLIST Rebekka Gunnarsdóttir listakona í Hafnarfirði sýnir í Sjóminjasafni Ís- lands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði. Rebekka sýnir vatnslitamyndir og gler- verk sem hafa að mestu verið unnin á þessu ári. Aðal viðfangsefni myndanna er landslag, götumyndir og hús í Hafnar- firði. Sýningin stendur til 8. september og er opin alla daga frá kl. 13-17 á opn- unartíma safnsins. Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís- lands stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv- arar sýna. Sýningin er fjölbreytt og sýnir þá miklu breidd sem ríkir innan félags- ins sem fagnar 30 ára afmæli sínu. Sýn- ingin stendur til 6. október. Sýning á nýjum verkum hafnfirska mál- arans Jóns Thors Gíslasonar er í Hafn- arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Á sýningunni eru málverk, grafík, vatnslitamyndir og teikningar. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 9. september. Grafiski hönnuðurinn og myndlistarkon- an, Valgerður Einarsdóttir, sýna verk sín á Kaffi Sólon. Sýningin stendur til 6. september. Listamennirnir Guðfinna Mjöll Magn- úsdóttir, Huginn Þór Arason, Hugleik- ur Dagsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Ragnar Jóansson, Pétur Már Gunnars- son, Riel Video, Sólvegi Einarsdóttir og Þormar Melsted sýna í Gallerí Nema hvað, Skólavörðustíg. Sýningin stendur til 25. ágúst. Arnfinnur Amazeen og Bryndís Erla Hjálmarsdóttir sýna í rými undir stigan- um í i8, Klapparstíg 33. Verkið sem þau sýna nefnist „Við erum í svo miklu jafn- vægi“ og er innsetning með ljósmynd og spegli. Sýningin stendur til 6. sept- ember. i8 er opið þriðjudaga til laugar- daga frá kl. 13.00-17.00. Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn G. Harðarson sýna í i8, Klapparstíg 33. Kristinn sýnir vatnslitaverk og útsaumað- ar myndir og Helgi leirskúlptúra. Að auki sýna þeir myndbandsverk sem þeir unnu í sameiningu ásamt söngvaranum Sverri Guðjónssyni sérstaklega fyrir sýn- inguna. Sýningin stendur til 12. október. i8 er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17. Í Apótekaraturninum, Austurstræti 16, stendur samsýningin Turnar í Reykja- vík. Þeir sem sýna eru: Bibbi, Birta Guð- jónsdóttir, Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Helgi Þórsson, Huginn Þór Arason, Hugleikur Dagsson, Ingrafn Steinarsson, Kristín Björk Kristjánsdóttir, Magnús Logi Krist- insson, Orri Jónsson og Pétur Már Gunnarsson. Nú stendur yfir í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 sýningin Úr fórum gengins listamanns. Á sýningunni eru verk Jóhannesar Jóhannessonar (1921- 1998), vatnslitamyndir, pastel og teikn- ingar. Sýningin stendur til 28. ágúst. Í Gerðarsafni standa yfir tvær sýningar, í Austur- og Vestursal er sýning ber heitið Stefnumót. Á henni eru málverk eftir Jóhannes Jóhannesson listmálara og höggmyndir og glergluggar Gerðar Helgadóttur myndhöggvara. Á neðri hæð safnsins stendur sýningin Yfirgrip. Á henni eru eldri og nýrri verk eftir Valgerði Hafstað listmálara. Sýn- ingarnar standa til og með sunnudags- ins 8. september. Listasafn Kópavogs er opið alla daga nema mánudaga frá 11- 17. Listasafns Íslands sýnir tæplega 100 verk í eigu safnsins eftir 36 listamenn. Á henni er gefið breitt yfirlit um íslenska myndlistarsögu á 20. öld, einkum fyrir 1980. Sýningin skiptist í fimm hluta: Upphafsmenn íslenskrar myndlistar á 20. öld; Koma nútímans/módernismans í myndlist á Íslandi; Listamenn 4. ára- tugarins; Abstraktlist; Nýraunsæi áttunda áratugarins. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga. Sýningin stend- ur til 1. september. Listin meðal fólksins er yfirskrift sýningar Listasafns Reykjavíkur í Ásmundarsafni. Á sýningunni eru verk Ásmundar Sveins- sonar myndhöggvara skoðuð út frá þeir- ri hugsjón hans að myndlistin ætti að vera hluti af daglegu umhverfi fólks en ekki lokuð inni á söfnum. Sýningin stendur til ársloka. SÝNINGAR Í Þjóðmenningarhúsinu standa þrjár sýningar. Sýndar eru ljósmyndir úr svo- nefndum Fox-leiðangri sem eru með elstu myndum sem teknar voru á Ís- landi, Grænlandi og í Færeyjum, sýning er á vegum Landsbókasafns á bók- menntum Vestur-Íslendinga og loks er svo Landafundasýningin sem opnuð var árið 2000 og hefur nú verið framlengd. Aðgangur er ókeypis á sunnudögum. Í Grófarsal í Grófarhúsi við Tryggvagötu er sýning á íslenskum blaðaljósmynd- um frá árunum 1965 til 1975. Blaðaljós- myndir eru einn stærsti flokkur myndefnis á Ljósmyndasafni Reykjavík- ur, sem sýnir hér hátt á annað hundrað blaðaljósmyndir. Fjölbreytt myndavalið veitir innsýn í tíðarandann. Opið er frá kl. 12.00-18.00 virka daga og kl. 13.00- 17.00 um helgar. Í sýningarsal Handverks og hönnunar við Aðalstræti er sýning á íslenskum þjóðbúningum. Hún nefnist Með rauð- an skúf. Þar eru sýndir búningar í eigu Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Þjóð- dansafélags Reykjavíkur og Búningaleigu Kolfinnu Sigurvinsdóttur. ÞRIÐJUDAGURINN 20. ÁGÚST BÓKAÚTGÁFA „Hugmyndina að bók- inni átti Björk Bjarnadóttir þjóð- fræðingur, en hún var með sögur sem hún hafði safnað úr íslensku þjóðsögunum og aldrei hafði ver- ið gert neitt við,“ segir Guðrún Tryggvadóttir, myndlistarkona, sem fékk það verkefni að mynd- skreyta sögurnar sem nú eru komnar út hjá bókaforlaginu Sölku, í ritstjórn Hildar Her- móðsdóttur. Bókin heitir Björn eignast börn og segir frá furðu- dýrum í íslenskum þjóðsögum. „Þetta eru kyngimagnaðar sögur. Ég fór í sumarbústað í níu daga í fyrra og vann skyssur að myndunum sem ég hef síðan ver- ið að þróa, þetta er alveg meiri- háttar efni,“ segir Guðrún. „Svo er líka svo gaman að tengja þetta hliðstæðum sögum hvaðanæva úr heiminum, það eru náttúrlega erkitýpur í þessum frásögnum.“ Í bókinni, sem kemur út á ís- lensku, ensku og þýsku, eru 23 sögur af landvættum og kynja- dýrum, eins og til dæmis haf- meyjum sem seiddu sjómenn í hafið, skrýmsli sem byltu sér í sjó og vötnum og landvættum sem vöktu yfir hverjum lands- fjórðungi. Guðrún segir furðu- skepnurnar í bókinni sína eigin hugarsmíð. „Ég lét textann og staðsetningar sagnanna stjórna mér við gerð myndanna, og reyn- di að vera trú efninu. Ég vildi ekki að myndirnar yrðu týpískar myndskreytingar eins og börn eiga að venjast í dag heldur töl- uðu til allra aldurshópa.“ Sýning með frummyndum myndskreytinga Guðrúnar stend- ur nú yfir í Alþjóðahúsinu á Hverfisgötu. Hún verður opin til 6. september.  Kyngimagnaðar kynjasögur Björn eignast börn er bók um furðudýr í íslenskum þjóðsögum. Meiri- háttar efni segir Guðrún Tryggavdóttir, sem myndskreytir bókina. GUÐRÚN TRYGGVADÓTTIR Myndskreytir nýja bók frá Sölku um íslensk furðudýr. Ómar Sverrisson Enga í augnablikinu, en er að byrja á bók um þrjá fíkla sem eru hættir og á réttri leið. TÓNLEIKAR Menningarheimar aust- urs og vesturs mætast á Sumar- tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld. Fram koma Xu Wen sópransöngkona og Anna Rún Atladóttir píanóleikari. Á efnis- skrá verða Fimm grísk þjóðlög eftir Ravel, verk eftir Fauré, Sig- valda Kaldalóns og kínversk þjóð- lög. Að lokum eru þrjár þekktar óperuaríur eftir Puccini, Verdi og Gounod. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Xu Wen nam ung að árum kín- verskan óperusöng, leiklist, dans og skylmingar við Huangmei Óp- eruskólann í Anhui fylki í Kína. Hún var fastráðin við Huangmei óperuna 1986-1988 og hefur sung- ið aðalhlutverk í fjölmörgum kín- verskum óperum. Xu Wen fluttist til Íslands árið 1989 og hóf nám í vestrænum söng við söngdeild Tónlistarskólans í Reykjavík og lauk þaðan einsöngvaraprófi með ágætiseinkunn vorið 1997. Hún stundaði framhaldsnám í London. Sem söngvari hefur hún tekið þátt í óperuuppfærslum og komið fram í sjónvarpi hér heima og í Kína. Anna Rún Atladóttir hóf fiðlu- nám sex ára og píanónám sjö ára. Hún lærði jöfnum höndum á bæði hljóðfærin og vorið 1992 útskrif- aðist hún með fiðlukennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og píanókennarapróf þremur árum síðar. Anna Rún stundaði framhaldsnám í London frá 1994 við Trinity College of Music og The London College of Music and Media.  Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns: Austrið og vestrið mætast ANNA RÚN ATLADÓTTIR Anna Rún starfar nú sem undirleikari hjá Söngskólanum í Reykjavík og sem fiðlu- kennari við Tónmenntaskólann í Reykjavík XU WEN Síðastliðið haust lék Xu Wen hlutverk Wein í kvikmyndinni Maður eins og ég og um svipað leyti lék hún í kvikmyndinni Hafið. 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 MEST SELDU ERLENDU BÆKURNAR HJÁ EYMUNDSSON Patricia Cornwell ISLE OF DOGS Nora Roberts THE VILLA Nora Roberts FACE THE FIRE Catherine Coulter HEMLOCK BAY David Baldacci LAST MAN STANDING Stephen King, Petar Straub BLACK HOUSE Jayne Ann Krentz SUMMER IN ECLIPSE BAY Jonathan Kellerman FLESH AND BLOOD Isabel Allende PORTRAIT IN SEPIA Minette Walters ACID ROW Erlendar bækur: Spenna, ást og hryllingur BÆKUR Listi Eymundsson yfir er- lendar bækur ber þess merki að sumarið sé í hámarki. Afþreying- arsögur ráða þar ríkj- um. Á listanum má finna spennusögur, ást- arsögur, þjóðfélagsá- deilu og hryllingssögu. Bók Patriciu Cornwell trónir á toppnum. Sögunni er lýst sem pólitískum farsa með gamansömu ívafi. Hún segir frá íbúum Tangier sem setja sig upp á móti ríkisstjóranum í Virginíu þeg- ar hann setur ákvæði um hert um- ferðareftirlit sem að stórum hluta fer fram úr lofti. Hóta íbúarnir að segja sig úr ríkjasambandinu og setja á fót sjálfstætt fylki. Halda þeir fram að sjálfstæði þeirra nái aftur til forfeðranna sem komu siglandi frá Isle of Dogs í London og voru með fyrstu landnemum Bandaríkjanna.  BOLLASTAÐAKISI ... stökk hann á manninn og læsti klóm og kjafti í hálsinn á honum. Ekki náðist kött- urinn af hálsi mannsins fyrr en báðir voru dauðir.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Íslenski fjallahjóla- klúbburinn: Hjól- reiðaferð að Keldum ÚTIVIST Íslenski fjallahjólaklúbbur- inn stendur fyrir kvöldferð að Keldum í kvöld. Hjólað er um 15 kílómetra. Að vanda verður brott- för í ferðirnar frá skiptistöð SVR í Mjódd, vestanmegin og verður lagt af stað klukkan 20.00. Ferðirn- ar eru ætlaðar öllum og hraði og vegalengd miðuð við það. Einnig má benda fólki á að fólk getur far- ið inn í kvöldferðirnar og úr þeim þar sem það vill. Aðstandendur kvöldferðanna minna fólk á að setja á sig hjálminn og mæta í skjólgóðum fatnaði. 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.