Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 22
22 20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HRÓSIÐ
...fá Heimdellingar fyrir að
benda fáfróðum borgarbúum á að
flugeldasýning á Menningarnótt
sé í raun borguð af okkur sjálf-
um. Ábending Heimdallar um að
einn flugeldur á himni á kostnað
almennings sé einum flugeld of
mikið, er þörf áminning til óupp-
lýstra borgarbúa. Áminning um
að gleði og birta er ávallt á okkar
eigin ábyrgð... og kostnað. Næsta
ár væri kannski sniðugt á hafa
flugeldasýninguna byggða á
frjálsum framlögum Heimdell-
inga.
Pólitískur arkitekt og
félagslyndur prófessor
AFMÆLI
Vel heppnuð menningarnótt erað baki þar sem hver listvið-
burðurinn rak annan. Framkvæmd-
arstjóri Menningarnætur síðastlið-
in tvö ár hefur verið Anna María
Bogadóttir. Aðspurð segist hún afar
ánægð með útkomuna. „Ég tel að
vinsældir Menningarnætur skýrist
meðal annars af því að fólk kemur
að henni úr öllum áttum. Það er
ekki um neina hefðbundna listræna
stjórn að ræða heldur leggjast þátt-
takendur á eitt við að gera hana
sem fjölbreyttasta. Það sem þeir
hafa fram að færa er af ólíkum toga
og alltaf kemur eitthvað nýtt fram
á hverju ári.“
Anna María hefur meðal ann-
ars lagt stund á nám í menningar-
fræðum í Danmörku og lokið BA
prófi í frönsku frá Háskóla Ís-
lands. Fyrir ári síðan lauk hún
námi í menningarstjórnun. Það
nám er ætlað fólki alls staðar að
úr Evrópu sem starfar í menning-
argeiranum. Hópurinn hittist
reglulega og næsti fundur er í
Finnlandi. „Þar munum við bera
saman bækur okkar og fara yfir
stefnur og strauma. Ég geri ráð
fyrir að miðla af reynslu minni
hvað varðar skipulagningu Menn-
ingarnætur.“
FÓLK Í FRÉTTUM
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að utan-
bæjarfólk á gamals aldri þarf hvorki að
vera með kút né kork í æskubrunnum
Sundlaugar Akureyrar.
Leiðrétting
LEIFUR HEPPNI Á HOLTINU
Borgin skartaði sínu fegursta um helgina. Veðurblíðan var sannkallaður sumarauki og þeir sem gáfu sér tíma til að rölta um Reykjavík
fengu sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
Ég var að koma frá Þránd-heimi. Var þar í blíðskapar-
veðri á ráðstefnu um hitaveitu,“
segir Valdimar K. Jónsson, pró-
fessor við verkfræðideild Há-
skóla Íslands. Valdimar er 68 ára
í dag. Hann stjórnaði á sínum
tíma kælingu hraunstraumsins í
Vestmannaeyjagosinu 1973. Í
framhaldi af því tók hann þátt í
að nýta hitann í hrauninu til að
gera hitaveitu fyrir bæjarbúa.
„Það var í framhaldinu af kæl-
ingunni sem okkur datt í hug að
reyna að nýta hitann. Ég var
kannski búinn að kæla þetta full
mikið.“
Valdimar segist stundum gera
að gamni sínu með það að höfnin
í Vestmannaeyjum sé dýrasta
hafnarframkvæmd í heimi.
„Þarna varð líka til besta höfn
sem til er. Hraunið gjörbreytti
höfninni.“
Valdimar er ekki bara áhuga-
maður um verkfræðileg úrlausn-
arefni. Hann hefur verið mjög
virkur í félagsmálum. Hann er
einn af arkitektum Reykjavíkur-
listans. Fulltrúi Framsóknar-
flokksins við mótun hans og til-
urð. Honum finnst vel hafa tekist
til og engan skugga borið á sam-
starf ólíkra stjórnmálaafla. „Ég
er frekar félagslynd vera og hef
gaman af að vinna með fólki.“
Stundum er litið á háskólapró-
fessora sem fólk sem einbeiti sér
að einu afmörkuðu viðfangsefni.
Valdimar er ósammála þessu,
enda viðfangsefni hans í lífinu
æði fjölbreytt. „Ég held að það sé
gott fyrir menn að stunda við-
fangsefni sín í vinnunni, en hafa
önnur verkefni í frítímanum. Ég
held að menn verði voðalegir
sérvitringar ef þeir loka sig inni
og fást við einhæf viðfangsefni.“
Auk trúnaðarstarfa fyrir Fram-
sóknarflokkinn situr Valdimar í
framkvæmdastjórn Neytenda-
samtakanna. Hann er einnig
meðlimur í Lífmassafélagi Ís-
lands. Þar skoða menn leiðir til
að skapa verðmæti úr lífmassa.
„Ég er forvitinn og hef gaman af
að koma víða við.“
Valdimar hefur hlotið ýmsa
upphefð fyrir rannsóknarstörf í
þágu nýtingar á jarðvarma.
Hann er heiðursdoktor við há-
skólann í Lundi. Oft er sagt að
kennarastarfið haldi mönnum
ungum. Valdimar segir skemmti-
legt að vinna með ungu fólki.
„Maður er alltaf að vinna með
fólki um tvítug. Það lyftir andan-
um.“
haflidi@frettabladid.is
VALDIMAR K. JÓNSSON, PRÓFESSOR
Valdimar er búinn að halda upp á afmælið. Konan bauð honum í bæinn og út að
borða á Menningarnótt.
Valdimar K. Jónsson, prófessor í verkfræði er 68 ára í dag. Sérsvið
hans er hitaveita og nýting jarðvarma. Verkfræðileg viðfangsefni eru
langt í frá það eina sem hann stundar. Hann hefur alla tíð látið félags-
og stjórnmál til sín taka.
SAGA DAGSINS
20. ÁGÚST
1898 Veitinga- og gistihúsiðValhöll á Þingvöllum var vígt.
Nafn sitt dregur húsið af búð
Snorra Sturlusona sem stóð forð-
um skammt frá þeim stað sem
húsið var fyrst. Búð Snorra var
nefnd eftir bústað guðanna í
Ásatrú. Valhöll var flutt á núver-
andi stað árið 1930.
1942 Sjö manna áhöfn vélbáts-ins Skaftfellings bjargaði 52
Þjóðverjum af kafbátnum U 464
sem Catalina, herflugvél með
bækistöð í Skerjafirði, hafði
sökkt 175 sjómílur suður af
Hornafirði.
1940 Leon Trotsky, einn leið-toga rússnesku byltingarinn-
ar, var særður til ólífis með ísexi
í Mexikóborg. Trotsky hafði ver-
ið hrakinn í útlegð af Stalín sem
fannst ekki nóg að gert og lét
elta Trotsky uppi og myrða
hann. Hann lést af sárum sínum
degi eftir atlöguna.
TÍMAMÓT
JARÐAFARIR
13.30 Anna Friðriksdóttir, áður til
heimilis að Rauðarárstíg 3,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
13.30 Laufey Þórðardóttir frá Brautar-
holti, verður jarðsungin frá Ás-
kirkju.
13.30 Sigríður Guðmundsdóttir, Reyni-
mel 35, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Neskirkju.
13.30 Eiríkur Axel Jónsson, Bröttukinn
19, Hafnarfirði, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
13.30 Matthildur Guðmundsdóttir frá
Núpi í Fljótshlíð, Háaleitisbraut
40, verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
15.00 Margrét Árnadóttir, áður til
heimilis á Hjarðarhaga 24, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
AFMÆLI
Valdimar K. Jónsson prófessor er 68
ára í dag.
Ólafur Egilsson sendiherra er 66 ára í
dag.
Ívar Ingimarsson, knattspyrnumaður, er
25 ára í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
I
Anna María Bogadóttir hefur verið fram-
kvæmdarstjóri Menningarnætur undan-
farin tvö ár.
Persónan
Miðlar af reynslu
sinni í Finnlandi
ANNA MARÍA BOGADÓTTIR
Anna María er dóttir Boga Nilssonar, ríkis-
saksóknara og Elsu Petersen. Hún ætlar að
halda áfram að læra og búa erlendis sem
hérlendis.
Af hverju borða Hafnfirðingaraldrei kleinuhringi? Þeir vita
ekki hvað þeir eiga að gera við
gatið.
Múrverjinn Stefán Pálsson færútreið hjá Birni Bjarnasyni í
nýlegum pistli þess síðarnefnda.
Ástæðan er grein
sem Stefán skrif-
aði á Múrinn og
gagnrýndi harka-
lega skrif Björns í
Morgunblaðið um
flota Rússa á
Kólaskaga. „Ef
ekki má lýsa þeir-
ri breytingu, sem orðið hefur á
Kólaskaganum síðastliðin ár í til-
efni af því, að hingað kemur rúss-
neskt herskip í þriðja sinn í sög-
unni, án þess að gamlir her-
stöðvaandstæðingar taki gamla
sovéska kippinn, sýnir það aðeins,
að minni breyting hefur orðið á
hugrenningum þessara ágætu
manna á þeim rúma áratug, sem
liðinn er frá hruni Sovétríkjanna,
en mig grunaði,“ segir Björn í
pistli sínum.
Nokkur tími er liðinn síðandómsmálaráðuneytið hafnaði
beiðni Siðmenntar - félags um
borgaralegar athafnir þess efnis
að félagið yrði skráð sem trúfélag.
Forsvarsmenn Siðmenntar töldu að
lífsskoðunarfélög féllu undir sömu
skilgreiningu og trúfélög. Félagið
uppfyllti meira að segja kröfur um
tengsl við trúarbrögð með söguleg-
ar rætur, nefnilega trúna á rök-
hugsun. Þetta tók dómsmálaráðu-
neytið ekki gilt. Málinu mun þó
ekki vera lokið. Stjórn Siðmenntar
ku nú íhuga að fara í dómsmál til
að fá skráninguna í gegn.
Þar sem talið berst að skráningutrúfélaga er ekki úr vegi að
rifja upp félag sem reyndi að fá
skráningu sem trúfélag. Að því
stóðu nokkrir ungir menn í há-
skólanámi sem kváðust hafa öðlast
trú og uppgötvað ný trúarbrögð.
Embættismönnum í dómsmála-
ráðuneytinu þótti hins vegar lítið
til koma. Þóttust vita að helsta
markmiðið væri að komast yfir
sóknargjöld til að standa straum af
kostnaði við skemmtanahald. Í
kjölfarið var lögunum breytt og
gerð krafa um tengsl við rótgróin
trúarbrögð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI