Fréttablaðið - 20.08.2002, Side 24
Magnað hvað það er auðvelt aðsnúa upp á nefið á mörlandan-
um, teyma hann skælbrosandi á nasa-
hárunum, draga hann á asnaeyrum og
láta hann dansa við tónlist sem eng-
inn annar heyrir. Pappírspésar með
plasthjálma breiða út stórar teikning-
ar af stíflum og lónum, tala fjálglega
um arðsemi og gróða - tala, tala, tala
þar til mörlandinn sest, heilsar og
veltir sér með dollaramerki í augun-
um. Engu máli skiptir þótt sérfróðir
hafi reiknað út bullandi tap - tap fyrir
land og lýð. Þótt margumtalaðir
norskir frændur hafi látið sig hverfa
hið snarasta og sjái ekki ljósið. Nei,
hitt lagið er miklu skemmtilegra.
Hlustum á það.
HVORT VILTU missa stofuna, eld-
húsið eða svefnherbergið? Helst
myndi ég vilja hafa þessi herbergi í
friði svo ég geti notað þau þegar ég
þarf. Mig munar um hvert og eitt
þeirra þótt ég gæti að sjálfsögðu
komist af án þeirra og synjað mér um
lúxusinn. Eyjabakkar, Kárahnjúkar,
Þjórsárver. Úllen dúllen doff. Ef þú
ert búin að útiloka eitt ertu búinn með
óskirnar þínar. Þú færð ekki fleiri.
Kannski var þetta kænskubragð? Lát-
um þetta lið eyða orkunni í að bjarga
einu svæði. Þá getur það ekki verið
með múður, verður að miðla málum.
Slóttug og skammsýn tíkargjóla sér
um að smala hjörðinni- sjálf pólitíkin.
HINN FRAMSÝNI og framsækni
flokkur gerir tíu ára langtímaplan.
Hverjum dettur í hug að horfa
lengra? Andstæðingum skal drekkt í
hyl skýrslugerða og nefndaálita. Að
lokum hljóta raddirnar að hljaðna.
Það þarf að halda þétt um asnaeyrun
og spila lagið hátt og snjallt, að
minnsta kosti fram yfir kosningar.
Það er líka mikilvægt að veifa pen-
ingum framan í þá sem ekki eiga þá
til. Það hefur alltaf virkað svo vel.
SVO ER UM AÐ GERA að gæta
þess að þeir haldi að peningarnir skili
sér í byggðalögin- að mörlandinn sjái
fyrir sér glaðbeitt ungmenni sem
flykkjast syngjandi í álverin líkt og
sovésk alþýða í myndum Stalíns á
miðri síðustu öld. Það verður að gæta
þess að enginn setji hitt lagið á fón-
inn. Lagið um fiskinn í sjónum sem
greifarnir stálu - þetta leiðinlega lag
um kvótann sem hvarf með aðstoð
sjónhverfingarráðherra framsækna
flokksins. Nei, nú er nýtt kortatímabil
að hefjast. Við mætum fyrst og förum
síðast - eins og alltaf.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Á asnaeyrum
BÓN
ÞVOTTUR
&
Vatnagörðum 16 • Sími: 553 9988
Grensásvegi 11 • Sími: 553 8988
(Bak við Dominos)
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Flotefni • Málning
Múrviðgerðarefni
Verkfæri og fl.
Súðarvogur 14
www.golflagnir.is
S: 5641740