Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 6

Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 6
6 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGURSPURNING DAGSINS Ætlar þú í berjamó? Já, á Hvalfjarðarströndinni. Hólmfríður Haraldsdóttir, viðskiptafræðingur. ERLENT Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaida samtakanna, varaði við því nokkrum vikum áður en hryðjuverkamenn sprengdu sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og í Tansaníu, að í vændum væri verkefni sem fælist í því að „drepa Bandaríkjamenn og losna við þá.“ Þetta kom fram í frétt CNN, sem undanfarið hefur sagt frá myndböndum al-Qaida liða, sem fundust í Afganistan. Léleg samvinna á milli lögregl-unnar í New York og slökkviðs borgarinnar leiddi til fjölmargra vandamála eftir að hryðjuverkamenn réðust á tví- buraturnana í World Trade Cent- er þann 11. september, að því er kemur fram í nýrri skýrslu. Slökkviliðsmenn fengu m.a. eng- ar aðvaranir frá lögregluþyrlum sem svifu um loftin blá um að tvíburaturnarnir gætu hrunið. Pervez Musharraf, forsetiPakistans, sagði í gær að hætta væri á því að liðsmenn al- Qaida samtakanna væru aftur farnir að safnast saman í Afganistan vegna vanmáttar bráðabirgðarstjórnar landsins. Rashid Qureshi, talsmaður hers Pakistans, vísaði í fyrradag á bug ásökunum Bandaríkjamanna um að allt að 1000 al-Qaida liðar væru hugsanlega í Afganistan. MannréttindaráðunautarSameinuðu þjóðanna sögð- ust í gær óttast að Kínverjar notfærðu sér stríðið gegn hryðjuverkum í heiminum sem afsökun fyrir því að ráðast gegn múslimskum minnihlutahópum og meðlimum Falun Gong, trúar- hreyfingarinnar. Undanfarið ár hafa ný lög verið samþykkt í landinu sem virðast auka vald stjórnvalda til að handtaka fólk og setja það í gæsluvarðhald. UMFERÐ Sigurður Gíslason öku- kennari segir mikla mildi að hann og konan hans skyldu ekki hafa stórslasast á laugardaginn þegar bíll þeirra valt á Kjósaskarðsvegi milli Þingvalla og Hvalfjarðar. Hann sagði að vegurinn hefði verið mjög slæm- ur á þeim kafla sem hann hefði velt en engin skilti hefðu verið til að vara ökumenn við því. Hann sagðist vera að íhuga að kæra Vegagerðina vegna þessa og lögfræðingur hans væri að skoða málið. „Þetta er malarvegur, þar sem hámarkshraðinn er 80 ef hann er góður,“ sagði Sigurður. „Vegur- inn virkar mjög góður og er harð- ur og engin lausamöl á honum, en þegar maður er búinn að keyra svona einn til tvo kílómetra þá koma allt upp í 15 til 20 sentí- metra djúpar holur án þess að nokkuð sé merkt eða varað við þeim. Bíllinn bara þoldi það ekki. Hann lyftist upp að aftan í einni holunni og þá missti ég hann út í kant. Við það affelgaðist hann að aftan og það dugði til þess að hann valt eina og hálfa veltu á veginum. Bíllinn er gjörónýtur og við vorum heppin að stórslasast ekki eða þaðan af verra.“ Sigurður sagðist hafa átt far- sælan feril sem ökumaður. Hann hefði kennt á bíl í 25 ár og verið með meiraprófsskóla. „Menn virðast ekki hafa neinn áhuga á að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir slys. Manni blöskrar að menn skuli geta kom- ist upp með þetta. Ég ætla að láta reyna á það hvort það standist lög að það séu lagðar svona gildr- ur fyrir ökumenn. Mér finnst þetta ansi alvarlegt mál.“ Sigurður sagðist hafa fregnir af því að viku áður en hann hefði velt bílnum hefði annar bíll velt á nákvæmlega sama stað. Þrátt fyrir það hefði þessi slæmi veg- kafli ekkert verið merktur. „Þarna átti að vera merki um að vegurinn væri ósléttur og há- markshraðinn 30 km/klst. Yfir- völd þurfa að vera á verði og merkja svona lagað.“ trausti@frettabladid.is „Við vorum heppin að stórslasast ekki“ Sigurður Gíslason ökukennari velti jeppa á Kjósaskarðsvegi. Gagnrýnir að engar merkingar um slæman vegkafla skyldu hafa verið á veginum. Íhugar að kæra Vegagerðina. Hann lyftist upp að aftan í einni holunni og þá missti ég hann út í kant. GJÖRÓNÝTUR EFTIR VELTU Sigurður Gíslason ökukennari segir mikla mildi að hann og konan hans skyldu ekki hafa stórslasast í bílveltu á Kjósaskarðsvegi. SAKAMÁL Frestur lögreglunnar í Bretlandi til að yfirheyra Ian Huntley og Maxine Carr, sem grunuð eru um að hafa numið á brott og myrt stúlkurnar Hollý Wells og Jessicu Chapman, átti að renna út klukkan fimm í nótt. Fyrir þann tíma þurfti lögreglan að setja fram kæru á hendur parinu eða sleppa því lausu. Krufning á líkunum tveimur sem talið er að séu af stúlkunum stóð yfir í fimm klukkustundir í gær. Hvorki tókst að skera úr um dánarorsök stúlknanna á þeim tíma, né bera ótvíræð kennsl á líkin. Fleiri rannsóknir á líkun- um eru fyrirhugaðar á næstunni. Gætu þær tekið nokkrar vikur til viðbótar. Því er ljóst að jarð- arför stúlknanna verður ekki haldin á næstu dögum, eins og fyrirhugað var. Þúsundir manns víðsvegar að úr heiminum hafa sent samúðar- kveðjur til fjölskyldna Hollý og Jessicu undanfarna daga. Hafa rúmlega 8 þúsund kveðjur verið sendar á vefsíðu tileinkaða stúlkunum þar sem hægt er að minnast þeirra.  Morðið á bresku stúlkunum Hollý og Jessicu: Óvíst um dánarorsök FINGRAFARA LEITAÐ Sérfræðingar á vegum lögreglunnar gera fingrafararannsókn fyrir utan heimili Kevin Huntley, föður Ian Huntley, í Littleport á Englandi. Lík stúlknanna fundust skammt frá heimilinu. AP /M YN D vefsvæðið born.is: Rekstri hætt vegna fjárhagserf- iðleika NETMIÐLAR Rekstri vefsvæðisins born.is hefur verið hætt vegna fjárhagserfiðleika. „Staðan á auglýsingamarkaði netmiðla hefur verið döpur. Þá brást samningur sem við gerðum við nýja eigendur visir.is um aug- lýsingasölu. Þar með voru rekstr- arforsendur vefsins brostnar,“ segir Sigurður Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri born.is. „Ég leitaði til nokkuð margra um aðkomu að rekstrinum en áhuginn var enginn. Leynist áhugasamir aðilar þarna úti þá er vefurinn falur,“ segir Sigurður Ragnarsson.  SAMGÖNGUR „Það skýrist um eða upp úr næstu mánaðamótum hvaða fimm verktakahópar verða valdir til þátttöku í útboði jarð- ganga milli Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar annars vegar og Ólafsfjarðar og Siglufjarðar hins vegar,“ segir Jón Rögnvaldsson, aðstoðarvegamálastjóri. Skilafresti vegna forvals jarð- ganga lauk fyrir nokkru og bárust gögn frá sjö verktakahópum sem lýstu áhuga á þátttöku í útboðinu. Sjö íslensk verktakafyrirtæki sendu inn gögn, auk sænskra, norskra, danskra, enskra og kín- verskra verktaka. „Það liggur ekki fyrir hvernig staðið verður að útboði verkanna, hvort þau verða boðin út saman eða sitt í hvoru lagi. Það er póli- tísk ákvörðun. Þó útboð fari fram nú á haustdögum er ólíklegt að það verði byrjað af krafti á þessu ári,“ segir Jón Rögnvaldsson.  JARÐGÖNG Það hyllir undir jarðagöng á Austurlandi og á Norðurlandi. Jarðgangagerð: Stutt í útboð fyrir norðan og austan FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Búnaðarbankinn: Opnar útibú í Lúxemborg VIÐSKIPTI Búnaðarbankinn hyggst opna útibú í Lúxemborg um næstu áramót. Bankinn hefur rekið fjárstýringu í Lúxemborg undir nafni dótturfyrirtækisins Bunadarbanki Int. S.A. Það verð- ur nú rekið undir nafni móður- bankans og er útibúinu ætlað að efla starfsemi Búnaðarbankans og undirfyrirtækja þess á pen- ingamarkaði og gjaldeyrismark- aði. Þorsteinn Þorsteinsson, sem hefur starfað sem bankastjóri dótturbankans mun einnig gegna stöðu útibússtjóra.  GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 85.78 0.42% Sterlingspund 130.71 -0.49% Dönsk króna 11.29 0.08% Evra 83.84 0.07% Gengisvístala krónu* 126,36 0,12% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 195 Velta 6.379 m ICEX-15 1.268 -0,62% Mestu viðskipti Fjárfestingarf. Straumur hf. 377.106.657 Samherji hf. 301.713.933 Síldarvinnslan hf. 296.411.654 Mesta hækkun Flugleiðir hf. 4,17% Þormóður rammi-Sæberg hf. 2,22% Opin kerfi hf. 2,12% Mesta lækkun Skýrr hf. -5,17% Hampiðjan hf. -2,33% Íslandsbanki hf. -1,86% ERLENDAR VÍSITÖLUR** DJ: 8851,6 -1,60% Nsdaq: 1376,3 -1,30% FTSE: 4368,9 -1,30% DAX: 3777,4 -1,60% Nikkei: 9620,7 0,20% S&P: 935,8 -1,60% *Gengi Seðlabanka Íslands kl. 11.00 **Erlendar vísitölur kl. 18.00

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.