Fréttablaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 9
Starfsmenn Ísafjarðarbæjar,sem nú vinna að því að koma fyrir niðurfallsrörum milli Hamraborgar og Neistahússins, fundu viðarbita sem talið er að séu leifar af gömlu bæjarbryggj- unni sem rifin var fyrir nokkrum áratugum. Ósennilegt er að um sé að ræða fornminjar sem þurfi að friða. bb.is Meðal dagskrárliða á Fjórð-ungsþingi Vestfirðinga, sem haldið verður í Bolungarvík dag- ana 30. og 31. ágúst, er umræða um byggðaáætlun fyrir Vestfirði. Áætlun þessi var unnin í vetur, eftir að gleymdist að minnast á Vestfirði í byggðaáætlun ríkis- stjórnarinnar. bb.is Byrjað er að prufukeyra nýjaskolphreinsistöð fyrir Hvera- gerðisbæ, sem staðsett er í landi Vorsabæjar við vesturbakka Varmár. Samhliða byggingunni hafa verið gerðar endurbætur á holræsakerfi bæjarins fyrir um 100 milljónir króna. Dagskráin. Nokkrir íbúar á Selfossi hafakvartað vegna hrossaskíts á göngustígnum yfir Ölfusárbrú. Ástandið mun aldrei hafa verið verra en í sumar og samkvæmt þessum íbúum skíta hrossin nær undantekningarlaust á stíginn „enda oftast dauðhrædd með stórfljótið undir sér.“ Dagskráin. 9MIÐVIKUDAGUR 21. ágúst 2002 INNLENT MENGUN Heilbrigðiseftirlit Suður- nesja telur ekki ástæðu til að að- hafast neitt vegna leyfislausrar losunar Svínabúsins á Vatnsleysu- strönd á úrgangi í sjó. Þar er litið svo á að um rekstrarörðugleika hafi verið að ræða við uppsetn- ingu á hreinsibúnaði. Sá búnaður sé kominn upp og í fulla vinnslu. Því verði úrgangur ekki framar losaður í sjó. „Það var snigill í þeim búnaði sem var verið að setja upp sem var of lítill. Hann réði ekki við það sem verið var að gera. Það varð til þess að búnaðurinn virkaði ekki og þeir þurftu að hleypa þessu út í sjóinn,“ sagði Bergur Sigurðsson hjá Heilbrigðiseftirliti Suður- nesja í gær eftir að hafa farið í eftirlitsferð í svínabúið. Bergur segir að búnaðurinn virki núna. Hann hafi verið hannaður í sam- ráði við Heilbrigðiseftirlitið og rekstraröryggi hans sé töluvert nú þegar menn hafi gengið frá búnaðinum og séu komnir yfir byrjunarörðugleika.  Losun úrgangs í sjó: Ekki ástæða til að aðhafast SVÍNABÚIÐ Á VATNSLEYSUSTRÖND Hreinsistöðin er hvíta húsið efst í húsaþyrpingunni. Hún á að tryggja að óunnin úrgangur verði ekki framar losaður í sjó. UMHVERFISMÁL Stjórn Fuglavernd- arfélags Íslands harmar mjög úr- skurð Skipulagsstofnunar um stífl- un Þjórsár við Norðlingaöldu. Auk þess telur stjórnin margt í matsskýrslu Landsvirkjunar, sem úrskurðurinn byggir á, vera grundvallað á röngum forsendum. Norðlingaöldulón myndi ná að hjarta friðlandsins í Þjórsárver- um, breyta mjög ásýnd landsins, sökkva gróðurlendum og spilla bú- svæðum fugla langt út fyrir bakka lónsins. Gera megi ráð fyrir að bú- svæðum um 15 þúsund heiðagæsa- varppara verði raskað og allt að 5 þúsund hreiðrum yrði sökkt. Sér- staklega átelur stjórnin þau vinnu- brögð, að fjalla ekki um íslenska heiðagæsastofninn í heild sinni í mati og úrskurði, en áætlað er að saxa á kjörlendi hans með fram- kvæmdum víða um land, svo sem við Kárahnjúka, í Arnardal við Jökulsá á Fjöllum og í Þjórsárver- um. Við gerð Norðlingaöldulóns mundu tapast mikilvæg beitar- svæði heiðagæsanna, alls 7,2 km2. Í ályktun Fuglaverndarfélags Íslands segir að Þjórsárver séu mikilvægasta varpsvæði heiða- gæsa í heiminum og alþjóðlegar skuldbindingar því umtalsverð- ar.  Þjórsárver: Mikilvægasta varp- svæði heiðagæsa HEIÐAGÆSAHJÓN MEÐ UNGA Fuglaverndarfélag Íslands telur að við gerð Norðlingaöldulóns mundu tapast mikilvæg beitarsvæði heiðagæsanna, alls 7,2 km2 FERÐAÞJÓNUSTA Sundlaugar Reykja- víkur njóta mestrar hylli erlendra ferðamanna sem eru almennt mjög ánægðir með borgina sem áfangastað. Þetta kemur fram í ár- legri viðhorfskönnun Ferðamála- ráðs Íslands sem gerð var meðal útlendra ferðamanna sem voru að fara úr landi frá Leifsstöð á tíma- bilinu september 2001 - maí 2002. Fjöldi svarenda var 2408 og sá Gallup um úrvinnslu gagna. 79% aðspurðra sögðu upplifun sína af Reykjavík hafa verið góða en að- eins 4% sögðu borgina í heild „slæma“. Bandaríkjamenn, Aust- urríkismenn, Svisslendingar og Finnar voru ánægðastir en Bretar, Írar og Norðmenn fylgdu í kjölfar- ið. Borgin fékk að jafnaði einkunn- ina 4,0 á skalanum 1- 5. Sundlaugar borgarinnar fengu hæstu einkunn allra einstakra þátta en í heild voru 78% ferða- manna ánægðir með laugarnar og af þeim reyndust 47,2% mjög ánægðir. 72% aðspurðra kváðust einnig ánægðir með framboð og gæði ferðaupplýsingaefnis í Reykjavík. Fjörugt næturlíf Reykjavíkur hefur verið mikið í sviðsljósi er- lendra fjölmiðla og er orðið mikil- vægur þáttur fyrir ímynd borgar- innar. Samkvæmt könnuninni telja 61% að næturlíf í Reykjavík sé gott og 64% að veitingastaðir séu góðir. Á kvarðanum 1 - 5 fengu veitingastaðir einkunnina 3,8 en næturlífið 3,7. Verslun og söfn í Reykjavík hlutu lægstu einkunn af þeim þátt- um sem spurt var um og munaði þar mestu um það háa hlutfall sem þótti þessir þættir í meðallagi. Þannig kváðust 47% telja söfn í Reykjavík góð en 39% í meðallagi. 45% töldu verslun í Reykjavík góða, 39% gáfu meðaleinkunn og 16% taldi hana slæma. Könnunin tók ekki til mögulegra skýringa á afstöðu ferðamanna en líklegt þyk- ir að þættir eins og opnunartímar og verðlag spili inn í afstöðu til verslunar og framboð og fjöl- breytni safna og sýningarefnis inn í afstöðu til þess þáttar. Ljóst er að langvarandi lokun Þjóðminjasafns Íslands hefur jafnframt sitt að segja í þessu sambandi.  Útlendingar ánægðir með Reykjavík Viðhorf ferðamanna til Reykjavíkur er almennt mjög gott. Aðeins 4% telja borgina slæma. Sund- laugarnar vega þyngst en 78% útlendra ferðamanna eru ánægðir með þær. Veitingastaðir þykja einnig góðir og hið margrómaða næturlíf stendur undir væntingum. SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR Sundlaugar höfuðborgarinnar falla erlendum ferðamönnum vel í geð og þeir taka þær fram yfir söfn, veitingastaði og næturlífið. Reykjavík: 25 bílar í árekstri LÖGREGLUMÁL 25 bíla árekstrar urðu í umferðinni í Reykjavík til klukkan fjögur í gærdag. Í einu til- fella rákust sex bílar saman á mót- um Miklubrautar og Skeiðarvogs. Engin alvarleg meiðsli urðu. Þá varð þriggja bíla árekstur á mót- um Lönguhlíðar og Miklubrautar. Á sama tíma var ekið aftan á mót- orhjól á Sæbraut. Ökumaður þess kvartaði yfir eymslum í kviði og var hann fluttur á slysadeild. Í gærmorgun var harður árekstur á Suðurlandsbraut. Öku- maður annarar bifreiðarinnar hlaut mikið höfuðhögg og var flutt- ur á slysadeild.  Norrænusiglingar til Ameríku: Opna ýmsa möguleika í ferða- þjónustu SAMGÖNGUR Vestnorræna ráðið, sem er skipað þingmönnum frá Ís- landi, Færeyjum og Grænlandi, samþykki á fundi sínum á Stykk- ishólmi um síðustu helgi að láta fara fram athugun á hagkvæmni ferjusiglinga milli Íslands og Am- eríku með viðkomu á Grænlandi. Það er Færeyingurinn Thomas Arabo sem á hugmyndina að sigl- ingunum en hann er einmitt hug- myndafræðingurinn að baki sigl- ingum Norrænu. Hjálmar Árna- son, alþingismaður, segir Arabo hafa verið talinn létt-geggjaðan þegar hann kom fram með hug- myndina að Norrænu. Ferjan hafi svo heldur betur sannað sig og því sé mikill áhugi fyrir því að kanna hvort endurtaka megi leikinn á annarri leið. Hjálmar segir ferjuna geta haft mikið að segja fyrir Grænlendinga sem búa við mikla einangrun og einokun í flugi. Þá telur hann ferju af þessu tagi geta stóraukið straum Bandaríkjamanna til Ís- lands. Þeir leiti nú öruggari við- komustaða eftir atburðina 11. sept- ember og gætu komið hingað, með bíla sína, og haldið svo áfram með Norrænu til meginlands Evrópu. 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.