Tíminn - 03.07.1971, Side 9
»AUGARDAGUR 3. júlí 1971
TÍMINN
9
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURtNN
rramkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsaon (áb), Jón Helgason, IndriBi G. Þorsteinsson og
Tómas Karlsson. Auglýsingastjdri: Steingrímur Gíslason Rit
■tjómarskrifstofur i Edduhúsinu, simar 18300 — 18306. Skrif-
stofur Bankastræti 7. — Afgreiðslusimi 12323. Auglýsingasiml:
19623. ABrar skrifstofur simi 18300. Áskriftargjald kr 195,00
á bmanlands. f lausasölu kr. 12,00 elnt. — Prentsm. .
Edda hf.
Dreifing mennta-
stofnana
Fyrir síðasta Alþingi lá tillaga frá þingmönnum Fram
sóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, þar sem
lagt var til að þingið lýsti þeim vilja sínum, að stefnt
skuli að eðlilegri dreifingu skóla og hvers kyns mennta-
og menningarstofnana um landið. Sérstaklega skuli svo
stefnt að því að efla Akureyri sem skólabæ og miðstöð
mennta og vísinda utan Reykjavíkur.
í greinargerð tillögunnar sagði, að með mennta- og
menningarstofnun sé að sjálfsögðu átt við skóla og aðrar
fræðslustofnanir, söfn, s. s. bókasöfn, náttúrugripasöfn,
listasöfn, minja- og þjóðfræðasöfn, leiklistar- og tónlistar-
starfsemi og aðra listastarfsemi. í ýmsum tilvikum yrði
framkvæmd þess stefnuatriðis, sem fjallar um dreifingu
mennta- og menningarstofnana um landið, fólgin í stuðn-
ingi við stofnanir, sem þegar eru fyrir hendi, en þurfa efl-
ingar við á einn eða annan hátt. Þannig eru víða til bóka-
söfn, en flest þarf að efía, minjasöfn eru einnig víða, en
áreiðanlega þarfnast þau eflingar flest hver, og
æskilegt væri, að sum minjasöfn a.m.k. efldust svo, að
þau mættu með réttu kallast þjóðfræðasöfn, e.t.v. stað-
bundin og takmörkuð, en eigi að síður fræðilegar stofn-
anir, en ekki aðeins varðveizlu- og sýningarstaðir.
Þá vöktu flutningsmenn athygli á því, að fyrir nokkr-
irm árum skipaði norska ríkisstjórnin nefnd, sem hafði
það hlutverk að kanna möguleika á dreifingu ríkisstofn-
ana þar í landi. Ein meginniðurstaða nefndarinnar var
sú, að lítil sem engih vandkvæði væru á því að velja
sérgreinaskólum stað utan höfuðborgarinnar. Sérgreina-
skólar væru að öðru jöfnu eins vel staðsettir utan höfuð-
borgarinnar sem innan hennar. Hins vegar væri heppi-
leg lausn í staðsetningarmálum skólanna að koma upp
„skólamiðstöðvum11, þar sem væru fleiri skólar en einn.
M.a. nýttust kennslukraftar bezt við slíkar aðstæður.
Flutningsmenn segja, að fyrir þeim vaki, að Akureyri
verði slík skólamiðstöð.
Flutningsmenn rifjuðu upp þá aðstöðu, sem nú er
fyrir hendi til vísindaiðkana á Akureyri, t.d. gott bóka-
safn, góður grasgarður, náttúrugripasafn o.fl. Þetta sé
að vísu aðeins mjór vísir þess, sem orðið gæti, ef mark-
víst og skipulega væri unnið að eflingu rannsókna- bg
vísindastarfs á Akureyri. Hins vegar er hér um grund-
völl að ræða, sem byggja mætti ofan á. í fyllingu tímans
mun engum þykja goðgá, þótt akademisk fræðsla í meira
eða minna mæli verði upp tekin á Akureyri, enda ber að
stefna að henni sem sérstöku markmiði.
Hér er vissulega um mál að ræða, sem getur átt drjúg-
an þátt í því að treysta jafnvægi í byggð landsins, ef
rétt er á haldið.
e
Athyglisvert fordæmi
Nýlega var skýrt frá því hér í blaðinu, að aðalfundur
Kaupfélags Suðurnesja hefði samþykkt að gefa starfs-
mannafélagi kaupfélagsins og hraðfrystihúss þess kost á
að hafa fulltrúa með málfrelsi og tillögurétti á stjórnar-
fundum kaupfélagsins.
Hér er tvímælalaust um athyglisverða nýbreytni að
ræða. Víða erlendis hefur verið farið inn á þessa braut
og oftast með góðum árangri. Þetta fordæmi kaupfélags-
Suðurnesja er tvímæ1 alaust til fyrirmyndar.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Kjósendur í Bandaríkjunum eru
samsekir stjórnmálamönnunum
Þeir kröfðust þess, a3 útþensla kommúnismans yrði stöðvuð
EINN eftirminnilegasti fund
ur, sem höfundur þessarar
greinar hefur sótt, var útifund
ur hjá republikönum í Boston
haustið 1952, skömmu fyrir for
setakosningarnar. Þar mættu
Nixon, sem þá var varaforseta-
efni republikana, og Cabot
Lodge, sem sótti þá um endur-
kjör, sem öldungadeildarþing-
maður fyrir Massachusetts.
Nixon hélt aðalræðuna. Höf-
uðefni hennar var það, að sá
heimssögulegi atburður hefði
gerzt í stjórna:tíð Trumans,
þáv. Bandaríkjaforseta, að
Kína hefði komizt undir yfir-
ráð kommúnista. Þettá hefði
gerzt hægt og hljóðalítið, án
minnstu mótspyrnu af hálfu
Bandaríkjanna. Þannig myndi
öll Asía færast smám saman
undir yfirráð kommúnista, ef
demókratar fengju að ráða
áfram. Eitt landið af öðru yrði
innlimað í veldi kommúnista.
Gegn þessari öfugþróun yrði að
ris8<.«g^Þí>ð' yrði bezt ,g$pt í
næstu forsetakosningum með
því að hafna demókrötum og
kjósa-. Etríðshotj una . EisenhoWr
er, sem forseta Bandaríkjanna.
Svo fór líka, að Eisenhower
sigraði með miklum yfirburð-
um. Lodge náði hins vegar ekki
endurkosningu, því að gegn
honum sótti þá ein dáðasta
stríðshetja Bandaríkjanna,
John F. Kennedy. Hann var þá
enn lítt reyndur sem stjóm-
málamaður. En hann var stríðs-
hetja. Þá voru stríðshetjur sig-
urvænlegastar allra manna í
kosningum í Bandaríkjunum.
áÍÐAN amerísku blöðin hófu
birtingu leyniskýrslunnar um
Vietnamstyrjöldina, hefur að
sjálfsögðu verið mjög rætt um
ástæður og orsakir þess, að
Bandaríkin drógust inn í styrj-
öldina í Vietnam. Enginn hef-
ur skýrt meginástæðuna öllu
betur en Daniel Ellsberg, sem
liggur undir þeirri ákæru, að
hafa látið blöðin fá skýrsluna.
f grein, sem ha i birti nýlega,
lýsir hann því glögglega, að
engri bandarískri stjórn, sem
ætlaði ekki að tapa í næstu
kosningum, hafi verið mögu-
legt að láta undan síga með
þeim afleiðingum, að komm-
únistar fengju völdin f Viet-
nam. Það var krafa mikils
meirihluta bandarískra kjós-
enda, að útþensla kommúnis-
mans yrði stöðvuð. Jafnframt
lifðu menn í þeirri trú, að
næðu kommúnistar yfirráðum
í einhverju landi, væri ná-
grannalöndum hætt. Þess
vegna var sagt, að tilgangur
inn með stríðsþátttökunni i
Vietnam væri ekki eingöngu
sá, að hindra yfirráð komm-
únista þar, heldur jafnframt
að koma í veg fyrir, að komm-
únisminn flæddi yfir alla Asíu.
Persónulega getur Ellsberg
vel vitnað um þetta, því að
jyn
ELLSBERG og kona hans
Mynd þessi er tekin á blaðamannafundi siðastliðinn mánudag.
hann var um skeið í hópi
ákveðnustu haukanna.
LEYNISKÝRSLAN leiðir
það í ljós, að bæði Kennedy
og Johnson og ráðgjafar þeirra
hafa hlotið að gera sér ljóst
þá áhættu, sem fylgdi vaxandi
stríðsþátttöku í Vietnam. Þeir
fengu svo margar aðvaranir
um það. Bersýnilegt er einnig,
að báðir hafa þeir reynt að
draga aukna herflutninga og
auknar hernaðaraðgerðir eins
mikið á langinn og ráðunautar
þeirra töldu frekast fært, ef
styrjöldin ætti ekki alveg að
tapast. Af hálfu þeirra var
styrjöldin háð fyrst og fremst
sem varnarstyrjöld í falskri
von um, að einhverjar leiðir
fyndust til útgöngu, án fullra
yfirráða kommúnist., í Viet-
nam. En það varð að forðast,
ef næstu kosningar í Banda-
rikjunum áttu ekki að tapast.
Eins og Ellsberg segir í grein
sinni: Boðorðið, sem fyrst og
fremst réði, var þetta: Misstu
ekki það, sem eftir er af Viet-
nam í hendur kommúnista fyr-
ir næstu kosningait Þetta
mætti eins orða á þessa leið:
Þetta er óhagstætt ár fyrir mig
til að missa Vietnam undir
yfirráð kommúnrta.
MJÖG hefur verið deilt á
Johnson eftir að birting leyni-
skýrslunnar hófst, og hann m
a. sakaður um að hafa gefið
þjóðinni villandi upplýsingar.
Full sannað er þó ekki. að
hann hafi verið búinn
að ákveða loftárásir á
Norður-Vietnam fyrir kosning-
arnar 1964, en í kosningabar-
áttunni þá lýsti hann sig þeim
andvígur. Skýrslan sýnir, að
áætlun um þetta hafi verið
fyrir hendi fyrir kosningarnar,
en Johnson til afsökunar hefur
verið bent á, að áætlun sé ekki
sama og ákvörðun. Ýmsar
heimildir telja, að Johnson
hafi ekki tekið endanlega
ákvörðun um loftárásir fyrr
en allmörgum mánpðum eftir
kosningar. Skýrslan sýnir líka,
að Johnson dregur yfirleitt
auknar aðgerðir á langinn og
grípur yfirleitt ekki til þeirra
fyrr en styrjöldin virðist alveg
vera að tapast. Þá virðist
Johnson mjög hafa treyst á
ráðgjafana, sem hann erfði frá
Kennedy, ekki sízt þá McNam-
ara og Rusk. McNamara virð-
ist sorglegt dæmi um, hve
hættulegt er að láta slyngan
tölvumann koma nálægt stjóm
málum. Tölvan gafst honum
vel hjá Ford, en jafn illa í
Pentagon. Tölvan sýndi honum.
að með þessum og þessum lið-
styrk, ætti þessi og þessi ár-
angur að geta náðst, en hún
felldi hina mannlegu eigin-
leika út úr útreikningum sín-
um. eins og þióðernistilfinn-
ingu og þolgæði Vietnama.
Þess vegna var McNamara
mjög bjartsýnn lengi vel og
gaf meira að segja eitt sinn
til kynna, að stríðið yrði búið fyr
ir næstu jól. Fræg er sú saga, að
einn af vfirmönnum leyniþjón-
ustunnar hafi í viðtali við Mc
Namara lát'” i ljós skoðanir,
er stönguðust á við útreikninga
tölvunnar. McNamara spurði:
Á hvaða tölum byggirðu þetta?
Maðurinn svaraði bví. að hann
Framhald á bls. 13.