Fréttablaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 1
bls. 10
TÍMAMÓT
Kominn heim
til að læra
íslensku
bls. 22
ÞRIÐJUDAGUR
bls. 16
159. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 27. ágúst 2002
Tónlist 14
Leikhús 16
Myndlist 16
Skemmtanir 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
Útvarp 21
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Atvinnumál
á Suðurnesjum
FUNDUR Atvinnumálin á Suðurnesj-
um verða til umræðu á opnum
fundi sem þingflokkur Samfylking-
arinnar hefur boðað til. Fundurinn
verður í Víkinni, Hafnargötu 80,
Reykjanesbæ. Hann hefst klukkan
20.
Þrír leikir
í Símadeild
FÓTBOLTI Þrír leikir eru í Símadeild
kvenna í kvöld. Breiðablik tekur á
móti Vali á Kópavogsvelli, ÍBV á
móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í
Vestmannaeyjum og loks sækja
Grindvíkingar KR-inga heim á KR-
völlinn. Leikirnir hefjast klukkan
18.30.
Ljóð í Listasafni
TÓNLEIKAR Hrólfur Sæmundsson
barítónsöngvari syngur á tónleik-
um í Listasafni Sigurjóns. Hann
syngur lög eftir Hugo Wolf við ljóð
eftir F. W. von Göthe og Eduard
Mörike við undirleik Steinunnar
Birnu Ragnarsdóttur. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.30
Djass og tangó á
Hverfisbarnum
TÓNLEIKAR Kvartett Oliviers Mano-
ury leikur á Hverfisbarnum. Kvar-
tettinn leikur tónlist eftir Astor Pi-
azolla, Dizzy Gillespie, Milton
Nascimento auk annarra tangóa,
bóleróa og klassískra djasslaga.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00
ÞÝSKALAND
Kosninga-
baráttan
komin á skrið
MÁLNOTKUN
Óskiljanleg
íslenska?
KOSTAR MINNA
Engar rjúpur verður að finna ámatardiskum landsmanna um
næstu jól ef farið verður að til-
lögum Náttúrufræðistofnunar.
bls. 2
Karlar í stjórnunarstöðum hjáAkureyrarbæ fá greidd
hærri laun en konur í svipuðum
störfum. bls. 4
Prestur í prestssetursnefndsegir þolinmæði þjóðkirkju-
manna gagnvart ríkinu vera að
bresta. bls. 6
Jón Hjaltalín Magnússon er íKína til að ræða við þarlenda
um að setja upp súrálsverk-
smiðju hérlendis. bls. 8
ÍÞRÓTTIR
Meiri orka
sett í
luftgítar
SÍÐA 22
Niðurlægði
Guðjón
SÍÐA 12
AFMÆLI
VIÐSKIPTI Flugleiðir keyptu eigin
bréf á markaði í gær. Nafnverð
bréfanna var ríflega 29 milljónir
króna á genginu 3,75. Heildar-
verðmæti viðskiptanna voru ríf-
lega 100 milljónir
króna. Flugleiðir
eiga nú bréf að
nafnvirði tæpleg 89
milljóna. Mark-
aðsvirði þess hlutar
miðað við lokagengi
í gær er um 312
milljónir króna.
Gengi bréfa félags-
ins hefur verið að hækka að unda-
förnu. Algengast er að hlutafélög
kaupi í sjálfum sér þegar bréf
hafa lækkað. Með því eru send
skilaboð til markaðarins um að
reksturinn standi undir mun
hærra gengi. Önnur ástæða kaupa
er sú að félag eygi sameiningar-
kost eða kaup á félagi og safni
bréfum sem skiptimynt í slíkum
kaupum. Í slíkum tilvikum er mat
stjórnar að bréfin séu á góðu
verði.
Þriðja mögulega ástæðan fyrir
slíkum kaupum er að styrkja ríkj-
andi valdahlutföll í hluthafahópn-
um. Eimskipafélagið á rífleg 31%
í félaginu. Ekki er ljóst hver
ástæðan fyrir kaupunum er, en
markaðsaðilar sem rætt var við
telja líklegt að ríkjandi eigendur
vilji hafa vaðið fyrir neðan sig.
Hins vegar var félaginu óheimilt
að eiga viðskipti með eigin bréf
skömmu fyrir uppgjör. Ekki náð-
ist í stjórnendur Flugleiða.
Viðskipti með bréf í félaginu
hafa verið fjörug. Mikil velta hef-
ur verið með bréf félagsins eftir
að uppgjörið birtist. Markaðsvirði
félagsins hefur hækkað úr 5,5
milljörðum í rúma 8 milljarða á
einni viku. Verðmætið hefur því
aukist um 2,5 milljarða. Frá því að
gengi félagsins fór lægst á síðasta
ári hefur virði þess vaxið um
rúma 5 milljarða. Síðustu tvo daga
hafa bréf skipt um hendur fyrir
rúman milljarð. Þetta eru meiri
viðskipti en allt árið þar á undan
en fyrir síðustu tvo viðskiptadaga
höfðu bréf fyrir ríflega 800 millj-
ónir skipt um hendur á heilu ári.
Hækkun á gengi bréfanna er rak-
in til jákvæðra frétta af rekstrin-
um og ásælni stærri fjárfesta í
bréf félagsins.
haflidi@frettabladid.is
RAUÐU ÖRVARNAR Liðsmenn Rauðu örvanna, listflugsveitar breska flughersins, flugu yfir Reykjavíkurborg í gær. Þrátt fyrir leiðinlegt
veður fylgdist fjöldi flugáhugamanna með þegar sveitin flaug yfir Reykjavík. Hópurinn kom við á Íslandi á leið sinni til Norður-Ameríku.
Ferðinni þangað verður haldið áfram í dag.
ÞETTA HELST
Markaðsvirði
félagsins hefur
hækkað úr 5,5
milljörðum í
rúma 8 millj-
arða á einni
viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
DÓMSMÁL Ákæra yfir fjórum karl-
mönnum fyrir aðild að smygli á 30
kílóum af hassi frá Danmörku var
í gær þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Í ákæru ríkissak-
sóknara kemur fram að hassið var
sent með skipi til landsins í mars
sl. sem vörusending til fyrirtækis
í eigu eins af fjórmenningunum.
Glæpurinn hafði verið undirbúinn
frá því seint á árinu 2001.
Lögregla fann hassið í sending-
unni. Það var tekið og öðru skað-
lausu efni komið fyrir í staðinn.
Fyrirtækjaeigandinn sótti það
sem hann taldi vera feng sinn og
var síðar handtekinn. Mennirnir
eru á aldrinum 26 til 47 ára.
Verjandi meints höfuðpaurs í
málinu krafðist þess í gær að mál-
inu yrði vísað frá dómi vegna van-
hæfis tiltekins lögreglumanns til
að koma að rannsókn málsins. Það
sé vegna þess að fulltrúinn hafi
skipt við lögfræðistofu sem sá um
vörn annars sakbornings í málinu.
Sá hafi borið sakir á hinn meinta
höfuðpaur.
Fjórmenningar:
Ákærðir fyrir smygl
á 30 kílóum af hassi
BENSÍNSTÖÐ SKELJUNGS
Fyrsta vetnisstöðin opnar næsta vor. Hún
verður opin almenningi ólíkt öðrum lönd-
um sem taka þátt í verkefninu.
Vetnisnýting á Íslandi:
Fyrsta
vetnisstöðin
opnar í vor
VETNI „Þróunarverkefnið stendur í
tvö ár en við erum að byggja til
framtíðar. Við ætlum ekki að
starfrækja þetta í tvö ár og hætta
síðan,“ segir Margrét Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs Skeljungs. Fyrirtækið
opnar vetnisstöð í Reykjavík
næsta vor.
Stöðin er hluti af evrópsku
verkefni á vetnissviði sem stend-
ur í tvö ár. Hún er reist með það í
huga að þjónusta strætisvagna
sem verða fluttir hingað til lands
á næsta ári. Hún verður einnig
opin almenningi. Þannig að þeir
sem festa kaup á vetnisbílum geta
leitað þangað eftir orku. Slíkt hef-
ur ekki verið gert annars staðar.
Stöðin hér verður því fyrsta vetn-
isstöð í heimi til að vera opin al-
menningi. Margrét segir mark-
miðið vera að byggja vetnisstöð
sem lúti sömu lögmálum og bens-
ínstöðvar. Ekki sé vitað hve mikið
verði um að almenningur nýti sér
þjónustuna. Það ráðist af því
hversu hratt bílaframleiðendur
ráðast í framleiðslu vetnisbíla.
Samhliða því að gerðar verði
tilraunir með vetnisnotkun verða
gerðar lýðrannsóknir á áhrifum
stöðvarinnar á mannlíf og stoð-
kerfi.
Flugleiðir kaupa
í sjálfum sér
Kaup félaga í sjálfum sér venjulega yfirlýsing um að verð bréfa sé lágt.
Talið hugsanlegt að ríkjandi hluthafar vilji tryggja hlut sinn. Markaðs-
verðmæti félagsins hefur vaxið um 2,5 milljarða á nokkrum dögum og
um fimm milljarða frá því sem það var lægst.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 39
ára á þriðjudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
18,4%
D
V
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á þriðju-
dögum?
51,5%
64,5%
REYKJAVÍK Suðvestan 5-10
m/s, skýjað með köflum og
úrkomulítið. Hiti 8 til 13 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Þurrt 8
Akureyri 5-10 Þurrt 9
Egilsstaðir 3-8 Þurrt 11
Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 8
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜