Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2002, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 27.08.2002, Qupperneq 4
4 27. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURSVONA ERUM VIÐ MISJÖFN ÚTGJALDAAUKNING Útgjöld ríkissjóðs fyrstu sjö mánuði ársins voru 10,7% hærri en á sama tíma en á síðasta ári. Aukningin var þó misjafnlega mikil eftir málaflokkum. INNLENT PARÍS, PRAG, AP Nú þegar flóðin í Þýskalandi og víðar í Mið-Evrópu eru í rénun er röðin komin að Ítal- íu og suðurhluta Frakklands, þar sem úrhellisrigning var í gær. Björgunarfólk vann hörðum höndum að því að koma ferðafólki af tjaldstæðum í Suður-Frakk- landi á sunnudag og mánudag, skammt frá landamærum Spánar. Mikið hvassviðri hefur einnig geisað á þessum sömu slóðum. Tré hafa fokið upp með rótum og skemmdir orðið á byggingum, en ekki hafa borist fregnir af mann- tjóni. Í bænum Neratovice í Tékk- landi var lýst yfir hættuástandi í gær þegar reynt var að dæla klór- gasi úr tanki, sem farið hafði á kaf í flóðunum þar. Almenningsvagn- ar voru til taks ef flytja þyrfti íbúa bæjarins á brott. Á laugar- daginn láku allt að 500 kíló af klórgasi úr tanknum. Sams konar leki varð þar þann 15. ágúst síð- astliðinn. Í gær fundust lík tveggja manna, sem urðu flóðunum í Tékklandi að bráð. Þar með var tala látinna af völdum flóðanna þar í landi komin upp í sextán.  Ekkert lát á hamförum í Evrópu: Flóð í Suður- Evrópu FLÓÐ Á ÍTALÍU Berfætt fólk leitar skjóls á aðalgötu í Pisa á Ítalíu í gær. Flóð var á öllum helstu götum borgarinnar og búist er við leiðindaveðri áfram á Ítalíu næstu daga. AP / FA B IO M U ZZ I Morð á Grettisgötu: Konan ákærð DÓMSMÁL Tæplega fertug kona hefur verið ákærð fyrir að bana sambýlismanni sínum með þrem- ur hnífsstungum í íbúð við Grett- isgötu í mars síðastliðnum. Við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær bar konan að hún myndi ekki eftir atburðum kvöldið sem voðaverkið var unnið. Hún benti hins vegar á þann framburð vitna í málinu að hún hefði ekki ein handleikið hníf á heimilinu umrætt kvöld. Maðurinn var stunginn í brjóst og kvið. Hann lést af sárum sínum átján dögum eftir að honum voru veittir áverkarnir.  Yfir 30% aukning varð á heim-sóknum ferðalanga að Hótel Bjarkalundi í Reykhólahreppi í júnímánuði miðað við sama tíma á síðasta ári að sögn Einars Sveinbjörnssonar, annars tveggja hótelstjóra. bb.is Í vor hugðist danska björgunar-bátafyrirtækið Viking Lifesav- ing Equipment A/S afturkalla skoðunarleyfi Gúmmíbátaþjón- ustunnar á Ísafirði og fleiri stöð- va víða um land. Nú hefur sam- gönguráðuneytið breytt reglu- gerð sem tekur af allan vafa. bb.is Ráðgert er að stækkuð Þverár-virkjun í Steingrímsfirði verði vígð og formlega tekin í notkun í október. Heildarfrágangi vegna stækkunarinnar lýkur á næstunni og er ráðgert að raf- orkuframleiðsla þar hefjist í vik- unni. Þverárvirkjun getur skilað 2,2 megavöttum eftir stækkun- ina, sem er um eins megawatts aukning frá því sem áður var. bb.is Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu var settur í gærmorgun í Nýheimum, en hús- næðið var formlega opnað um helgina. Skólinn var stofnaður 1987 og hefur til þessa verið í bráðabirgðahúsnæði. horn.is Kosnir hafa verið tveir stjórn-armenn í eitt stjórnarsæti Grundartangahafnar. Héraðs- nefnd Borgarfjarðarsýslu og Héraðsnefnd Mýrasýslu eiga saman 25% hlut í höfninni sem er óskipt sameign. Tilraunir hafa verið gerðar til að ganga frá skiptum á eignarhlut sýslnanna en ekki náðst samkomulag um skiptin. Héraðsnefnd Mýrasýslu gerði þá kröfu að skipt yrði á grundvelli höfðatölu og Mýra- sýsla myndi þá eiga 18% í höfn- inni en Borgarfjarðarsýsla 7%. Héraðsnefnd Borgarfjarðarsýslu gerði hinsvegar kröfu um slétt skipti þannig að hvor sýsla um sig ætti 12,5%. Málið fór fyrir dóm og féll dómur í héraðsdómi Vesturlands í vetur sem leið Mýr- arsýslu í vil. Héraðsnefnd Borg- arfjarðarsýslu hefur hinsvegar skotið málinu til hæstaréttar. skessuhorn.is JAFNRÉTTI Kynjabundinn launamun- ur æðstu stjórnenda hjá Akureyr- arbæ er 19% samkvæmt könnun sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri gerði á launum 27 æðstu stjórnenda hjá bænum. Af þessum 27 stjórnendum eru konur aðeins átta. Staða kvenna í stjórn- unarstöðum hjá bænum er því öllu verri en hjá Reykjavík en nýleg könnun á kjörum 43 æðstu stjórn- enda hjá borginni sýnir að konur fá greidd 87% af öllum heildar- greiðslum til karla. Kynbundinn launamismunur stjórnenda mælist því 13% hjá borginni. Í þessum hópi eru 22 karlar og 21 kona. Vegna smæðar þessa hóps er um brúttómun að ræða þar sem ekki hefur verið tekið tillit til starfsald- urs, vinnutíma og annarra sam- bærilegra þátta. Elín Antonsdóttir, jafnréttisfull- trúi Akureyrarbæjar, segir það útilokað að bera könnunina saman við tölurnar sem liggja fyrir frá Reykjavík þar sem hún taki tillit til fleiri launatengdra þátta. Það sé þó greinilegt að Akureyri standi Reykjavík að baki hvað kynjahlut- fall stjórnenda varðar. Hún á von á nokkuð snörpum viðbrögðum við niðurstöðunum en telur þó ekki rétt að ræða þær nánar fyrr en þær hafa verið kynntar æðstu stjórnendum bæjarins. Könnunin hefur verið send bæjarráði og verður væntanlega tekin fyrir þann 5. september þegar bæjar- stjóri og fleiri koma aftur úr fríi. Þegar laun alls starfsfólks Reykjavíkur eru skoðuð mælist kynbundinn launamunur 7% og hjá félögum í BHM, sem starfa hjá borginni, er hann 10%. Þessar töl- ur taka til skýringarþátta á borð við starfsaldur. Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur- borgar, telur kannanirnar að baki þessum tölum ekki sambærilegar við könnunina á Akureyri, hvorki hvað aðferðafræði eða úrtak varð- ar. Þá varar hún við að mikið sé al- hæft út frá þessum tölum og ekki sé til dæmis hægt að fullyrða að launamismunurinn stangist á við jafnréttislög. thorarinn@frettabladid.is AKUREYRI Á langt í land með að ná Reykjavík hvað kynjahlutfall æðstu stjórnenda varðar. Af þeim 27 stjórnendum sem ný könnun tekur til eru að- eins 8 konur. Í hópi æðstu stjórnenda Reykjavíkurborgar er nær helmingurinn konur. Karlar í stjórnunarstöðu fá betur borgað en konur Konur eru í miklum minnihluta æðstu stjórnenda á Akureyri og kynbundinn launamunur virðist umtalsverður. Staða kvenna í Reykjavík er mun sterkari. Bæjarráð Akureyrar mun fjalla um málið í september. Búist er við að launakönnunin veki snörp viðbrögð. Almenn mál 12,9% Félagsmál 12,7% Atvinnumál 5,9% Vaxtagjöld 7,8% Önnur útgjöld 4,0% BLAÐAÚTGÁFA Fréttablaðið hefur dregið umtalsvert úr áskrift að hinum dagblöðunum á höfuð- borgarsvæðinu. Mest eru áhrifin á áskrift ungs fólks. Þannig eru nú 30 prósent færri höfuðborg- arbúar á aldrinum 25 til 34 ára áskrifendur að Morgunblaðinu en áður en Fréttablaðið hóf göngu sína. Samdráttur í áskrift sama hóps að DV nemur 36 prósentum. Þetta kemur fram þeg- ar fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2001 er borin saman við nýja könnun sem Gallup gerði fyrir Fréttablaðið í ágúst. Sú könnun staðfestir samdrátt í dagblaðaáskrift á höfuðborgar- svæðinu sem komið hefur fram í öðrum könnunum. Í mars 2001 sögðust 72,5 prósent höf- uðborgarbúa vera áskrif- endur að Morgunblaðinu. Þetta hlutfall var komið niður í 66,2 prósent ári síð- ar og mælist nú 61,0 pró- sent. Samdráttur í áskrift að Morgunblaðinu mælist því rétt tæplega fimmt- ungur eða 19 prósent. Mestur samdráttur er hjá yngstu kynslóðunum. Í mars 2001 voru 63,6 pró- sent fólks á aldrinum 25 til 34 ára áskrifendur að Morgunblaðinu en mælast nú 44,7 prósent. Morgunblaðið hefur því misst 30 prósent áskrifenda sinna á þessum aldri. Hjá næsta aldurshópi fyrir ofan er fallið svipað; úr 76,2 prósent- um í 60,7 prósent; eða 20 prósent áskrifenda á þessum aldri. Í könnun Gallup í ágúst var spurt hvort fólk væri með fulla áskrift að Morgunblaðinu eða að- eins helgaráskrift. Helgaráskrift er algengust meðal ungs fólks. Þannig eru aðeins 32,6 prósent fólks á aldrinum 25 til 34 ára með fulla áskrift og 48,0 prósent fólks á aldrinum 35 til 44 ára. DV hefur misst 24 prósent af áskrifendum sínum á tæplega einu og hálfu ári. Í mars 2001 voru 18,9 prósent íbúa á höfuð- borgarsvæðinu áskrifendur að DV en mælast nú 14,3 prósent. Mestu munar um brottfall yngra fólks. 36 prósent áskrifenda á aldrinum 25 til 34 ára hefur sagt upp blaðinu og 41 prósent áskrif- enda á aldrinum 35 til 44 ára. „Fréttablaðið hefur aukið mjög dagblaðalestur á höfuð- borgarsvæðinu og ekki síst með- al ungs fólks. Það eru góðu frétt- irnar því öllum er hollt að lesa blöðin,“ segir Gunnar Smári Eg- ilsson, ritstjóri Fréttablaðsins. „En auðvitað verður eitthvað undan að láta. Áskrift að Morg- unblaðinu og DV mun halda áfram að dragast saman næstu misserin eftir því sem Frétta- blaðið festir sig enn betur í sessi. En aðalatriðið er að dagblöðin sem heild eru nú veigameiri þáttur í daglegu lífi fólks en áður.“  Fréttablaðið hefur aukið lestur á dagblöðum en dregið mikið úr áskrift: Unga fólkið segir frekar upp áskrift Þannig eru nú 30 prósent færri höfuð- borgarbúar á aldrinum 25 til 34 ára áskrifendur að Morgunblað- inu en áður en Fréttablað- ið hóf göngu sína.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.