Fréttablaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 6
6 27. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURSPURNING DAGSINS Ertu búinn að kaupa þér lík- amsræktarkort fyrir veturinn? Nei, nei, nei, alveg örugglega ekki, og stendur ekki til. Páll Tryggvi Karlsson, ræstir. HLUTABRÉF Gaumur, eignahaldsfélag Bónusfjölskyldunnar keypti á föstudaginn 8,71% hlut í Flugleið- um fyrir ríflega 700 milljónir króna. Með þessum kaupum varð Gaumur næststærsti hluthafinn í fyrirtækinu. Burðarás, dótturfélag Eimskipafélagsins, og félög þeim tengd eru með ráðandi hlut í fyrir- tækinu. Jóhannes Jónsson segir að þessi kaup séu eins og hver önnur fjárfesting. „Við fjárfestum í gegn- um þetta eignarhaldsfélag, þar sem við teljum að séu góðar fjárfesting- ar.“ Jóhannes segir að ekki sé verið að seilast til áhrifa í félaginu. Mikil viðskipti hafa verið með bréf Flugleiða í kjölfar uppgjörs sem kom fjárfestum þægilega á óvart. Bréf fyrirtækisins hafa hækkað skart. Tilkynning um kaup Gaums í félaginu dró ekki úr fjör- inu í kauphöllinni. Bréf Flugleiða voru lengi afar lágt metin. Munur- inn á hæsta og lægsta verði bréf- anna undanfarið ár er 216%. Lægst fóru bréfin í 1,25, en hæsta verð undanfarna daga er 3,95.  Hækkun og mikil viðskipti í Flugleiðum: Bónusfjölskyldan orðin næststærst MIKIL VIÐSKIPTI Flugleiðir hafa tekið mikinn kipp á markaði að undanförnu. Eignarhaldsfélag Bónusfjöl- skyldunnar er orðið næst-stærsti hluthafinn í félaginu. ÞINGVELLIR Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holti og Kirkju- þingsmaður á Suðurlandi, segir þolinmæði þjóðkirkjumanna gagnvart ríkisvaldinu vera að bresta. Þó samið hafi verið um það árið 1997 að ríkið fengi kirkjujarðir gegn því að greiða laun tiltekins fjölda starfsmanna kirkjunnar séu málefni varðandi prestssetur ófrágengin. Það sner- ti ekki síst Þingvallajörðina. „Þingvellir með því sem jörð- inni tilheyrir eru eign kirkjunnar. Þó lögin frá 1928 segi að Þingvell- ir séu ævinlega eign íslensku þjóðarinnar verður ríkið, til þess að það verði, að taka jörðina eign- arnámi eða semja við kirkjuna. Það hefur ekki verið gert þrátt fyrir meira en tveggja áratuga umleitanir,“ segir Halldór. Að sögn Halldórs hafa kirkj- unnar menn fram til þessa ekki viljað ræða opinberlega um mál- efni Þingvallajarðarinnar. „Umfjöllun Fréttablaðsins kallar hins vegar á það að við för- um að tjá okkur öðru vísi en að tala um rétt prests til að tjalda á eign kirkjunnar. Þingvallabærinn var reistur að tveimur þriðju hluta fyrir framlag úr kirkju- jarðasjóði sem óumdeilanlega var sjóður kirkjunnar. Þess vegna er Þingvallabærinn að meirihluta í eign kirkjunnar,“ segir Halldór. Halldór telur yfirlýsingar full- trúa ríkisvaldsins um að ríkið hafi kostað viðhald Þingvallabæjarins og kirkjunnar engu breyta. „Það er lág leiga. Ef til vill væri rétt að miða leiguna til dæmis hlutfalls- lega við reglur Þingvallanefndar um lóðaleigu á Þingvallajörðinni. Ef þessi mál fara ekki að skýrast hlýtur það að vera svar kirkjunn- ar að krefjast sambærilegrar leigu af ríkinu fyrir Þingvöll,“ segir hann. Halldór segir lög kveða á um að prestssetur sé á Þingvöllum. Einnig hafi verið samþykkt á Kirkjuþingi árið 2000 að svo verði. Málið hafi hins vegar verið í biðstöðu frá því að forsætisráðu- neytið skrifaði biskupi bréf eftir lát séra Heimis Steinssonar, þjóð- garðsvarðar og prests á Þingvöll- um, á árinu 2000. „Forsætisráðu- neytið óskaði eftir því að embætt- ið yrði ekki auglýst á meðan fram færu viðræður um framtíð staðar- ins. Það mál hefur ekkert skýrst,“ segir hann. Þingvallajörðin er ekki eina áhyggjuefni þjóðkirkjumanna. „Landbúnaðarráðuneytið virðist ekki hafa skilning á því að hjáleig- ur prestssetra tilheyra prestssetr- unum. Þær er ekki hægt að með- höndla eins og kirkjujarðirnar. Lög um prestssetur kveða á um að sala prestssetra sé háð samþykki Kirkjuþings og Alþingis. Sala landbúnaðarráðuneytis á þessum jörðum er ekki bindandi fyrir að- ila nema Kirkjuþing hafi veitt samþykki sitt,“ segir Halldór. gar@frettabladid.is Kirkjan segist eiga Þingvelli Meðlimur prestssetursnefndar segir Þingvallajörðina og Þingvallabæinn vera eign þjóðkirkjunnar. Ríkið verði að semja við kirkjuna eða taka jörðina eignarnámi. Áratuga viðræður hafi verið árang- urslausar. Skýrist málin ekki fljótt muni kirkjan krefjast leigu af ríkinu fyrir Þingvelli. JÓHANNESARBORG, SUÐUR-AFRÍKU, AP Thabo Mbeki, forseti Suður-Afr- íku, flutti í gær opnunarræðuna á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um sjálfbæra þróun, sem standa mun yfir í 10 daga í Jó- hannesarborg. Varaði Mbeki við því að alþjóðavætt samfélag sem líkja mætti við ríkar eyjur innan um haf fátæktar, stæðist ekki til lengdar. „Við samþykkjum ekki að lifa í samfélagi sem byggist á hinni frumstæðu hugmynd um að hinir hæfustu muni lifa af,“ sagði Mbeki. Bætti hann því við að í fyrsta sinn í sögu mannkyns hefði samfélagið getu, þekkingu og bjargir til að útrýma fátækt í heiminum. Fulltrúar á ráðstefnunni munu ræða um stór álitamál í samskipt- um ríkra og fátækra þjóða. Eitt aðalmarkmið ráðstefnunnar er að ná samkomulagi um hvernig megi draga úr fátækt í þróunarríkjun- um á umhverfisvænan hátt. Um 40 þúsund fulltrúar frá yfir 100 ríkjum verða viðstaddir ráðstefnuna. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, stærsta efnahagsríkis og jafnframt stærsta mengunarvalds í heimin- um verður ekki viðstaddur ráð- stefnuna.  ÞINGVELLIR Þjóðkirkjumenn segja kirkjuna eiga Þingvallajörðina og allt það sem henni tilheyrir, þar með talinn meirihluta í Þingvallabænum. Ráðstefna SÞ um sjálfbæra þróun sett: Geta og þekking til að útrýma fátækt MBEKI Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, faðmar ungan dreng eftir tónleika sem haldnir voru í Jóhannesarborg í Suður Afríku í tilefni af setningu heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Hundruð manns hafa sýkst íbænum Topola í Júgóslavíu, að því er virðist af bakteríu af gerðinni E. coli. Meira en tvö hundruð manns eru á sjúkrahúsi. Stjórnvöld sögðu bæjarbúum í gær að hætta að drekka krana- vatn. Vladimir Pútín Rússlandsforsetisagði liðsmönnum rússneska sjóhersins á sunnudag að stjórn- völd hyggðust gera sitt besta til að bæta aðbúnað þeirra. Fjárhags- vandræði hafa plagað sjóherinn eins og aðrar greinar rússneska hersins og liðsandi meðal her- manna er lélegur af þeim sökum. Miklir þurrkar hafa verið íÁstralíu undanfarnar vikur. Bændur standa frammi fyrir upp- skerubresti og miklu fjártapi ef útflutningstekjur bregðast. Stjórnvöld í Nepal hafa boriðkennsl á bandarískan ferða- mann sem fórst með kanadískri flugvél þar í síðustu viku. Upplýs- ingar frá tannlækni mannsins dugðu til að kennsl voru borin á hann. Vonast er til að með sömu aðferð megi bera kennsl á aðra sem fórust með vélinni. Tugþúsundir stuðningsmannaHugo Chavez, forseta Venesú- ela, héldu út á götur Caracas á laugardag til að sýna forsetanum stuðning sinn. Þátttakendur mót- mæltu úrskurði hæstaréttar sem sýknaði fjóra herforingja af valda- ránstilraun í apríl síðastliðnum. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 86.81 0.28% Sterlingspund 132.1 0.48% Dönsk króna 11.35 0.54% Evra 84.32 0.55% Gengisvístala krónu 127,91 0,46% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 293 Velta 3.835 m ICEX-15 1.269 -0,65% Mestu viðskipti Flugleiðir hf. 328.330.344 Þormóður rammi-S. hf. 35.190.000 Kaupþing banki hf. 29.602.510 Mesta hækkun Marel hf. 2,63% Opin kerfi hf. 2,63% Skýrr hf. 1,82% Mesta lækkun Þróunarfélag Íslands hf. -9,09% SR-Mjöl hf. -7,89% Íslandssími hf. -5,56% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 8799,2 -0,80% Nsdaq: 1375,9 -0,30% FTSE: 4389,8 -1,00% DAX: 3775,7 -1,40% Nikkei: 10067,7 2,00% S&P: 934,9 -0,60% ERLENT Landsbankinn seldi 10% hluta-fjár síns í Vátryggingafélagi Ís- lands. Aðrir stærstu hluthafar fé- lagsins, fyrirtæki sem tengjast Samvinnuhreyfingunni, seldu ein- nig á bilinu 6 og upp í 9% af sínum hlut. Landsbankinn hefur eftir sem áður ráðandi hlut í félaginu. VÍS er skráð á tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands. Líklegt er að sala bréfana tengist skráningu félagsins á aðall- ista Kauphallarinnar. Kaupandi hefur ekki fengist uppgefinn. Verðmæti viðskiptanna var tæpur milljarður króna. VIÐSKIPTI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.