Fréttablaðið - 27.08.2002, Side 9

Fréttablaðið - 27.08.2002, Side 9
9ÞRIÐJUDAGUR 27. ágúst 2002 SÉRVERSLUN MEÐ INNRÉTTINGAR OG STIGA HAMRABORG 1, 200 KÓPAVOGI, SÍMI 554 4011, NETFANG: innval@innval.is Þekking í þína þágu 30% kjarabót Kr. 38.700, og þú greiðir aðeins Kr. 90.300,- Varanleg kjarabót! Fjölbreytt úrval vandaðra Profil eldhúsinnréttinga er valkostur hinna vandlátu og fjárfesting, sem mælir með sér sjálf. Leitið tilboða – gerið verðsamanburð – það borgar sig. Við rýmum fyrir nýjum vörum. Sýningareldhús 40% afsláttur. www.innval.is HAAG, AP Réttarhöldin í Haag yfir Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hófust á ný í gær eftir að gera þurfti mánaðar- hlé á þeim vegna veikinda sak- borningsins. Fyrsta vitnið eftir réttarhléið var Sadik Xhemajli, sem var sjónarvottur að fjöldamorðum í Kosovo þann 28. mars árið 1999. Hann lýsti því í gær hvernig að minnsta kosti 39 Kosovo-albanir voru ýmist skotn- ir af stuttu færi eða brenndir lif- andi skammt frá þorpinu Izbica. Milosevic, sem sjálfur sér um vörn sína, sagði fráleitt að serbneskir hermenn hefðu framið þessi voðaverk. „Þetta er tóm þvæla,“ sagði hann um framburð vitnisins. Ákærendur hyggjast kalla á þriðja tug vitna fyrir réttinn áður en fyrsta hluta réttarhaldanna lýkur, sem verður í síðasta lagi þann 13. september. Í fyrsta hlut- anum er fjallað um meinta stríðs- glæpi í Kosovo, en í framhaldi af því verða tekin fyrir þau ákæruat- riði sem lúta að stríðsglæpum í Bosníu og Króatíu. Milosevic virtist við góða heil- su í gær eftir réttarhléið.  Kennslanefnd: Rannsakar fót LÖGREGLA Mannsfótur sem kafarar Landhelgisgæslunnar fundu í Reykjavíkurhöfn á laugardaginn hefur verið til rannsóknar hjá kennslanefnd. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er talið líklegast að fótur- inn sé af manni sem féll í höfnina fyrir nokkrum árum. Aðrar lík- amsleifar mannsins hafa áður fundist á svipuðum slóðum í höfn- inni. Kafararnir voru að kafa í höfn- inni í leit að hugsanlegum sprengj- um. Það var hluti af varúðarráð- stöfununum vegna veru herskipa Atlantshafsbandalagsins úti fyrir Reykjavík.  Sigríður Jóhannesdóttir: Gefur kost á sér í Suður- kjördæmi ALÞINGISKOSNINGAR Sigríður Jó- hannesdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í eitt þriggja efstu sætanna á lista flokksins í hinu nýja Suðurkjördæmi. Hún er nú níundi þingmaður Reyknesinga en býður sig fram í Suður- kjördæmi á næsta ári, þar sem hún býr í Kefla- vík. Hún segist vonast til þess að kosn- ingarnar snú- ist fyrst og fremst um lífskjör fólks sem hafi ver- ið sorglega lítið í umræð- unni. Hvað k j ö r d æ m a - skipanina varðar segist hún telja að breytingin hljóti að vera skref í þá átt að gera landið að einu kjördæmi. Kerfið sé svo vitlaust að það geti ekki staðið lengi.  Fólksfjöldi í Tyrklandi hefuraukist um rúma milljón manns á ári síðastliðin tíu ár og er nú orðinn 67,8 milljónir manna. 10 milljónir manna búa í Istanbúl, stærstu borg Tyrklands. 4 milljónir búa hins vegar í Ankara, höfuðborg landsins. Sam- kvæmt opinberum tölum búa 65% Tyrkja í borgum og bæjum. Utanríkisráðherra Qatar segistandvígur hugsanlegum hern- aðaraðgerðum Bandaríkjamanna gegn Írak. Hvetur hann Íraka til að hleypa vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna inn í landið að nýju. Þrjár bandarískar her- stöðvar eru staðsettar í Qatar. Ein þeirra yrði að öllum líkindum notuð ef Bandaríkjamenn myndu ráðast á Írak. Svissneski matar- og drykkja-framleiðandinn Nestlé hefur boðið um 980 milljarða króna í stærsta sælgætisframleiðanda Bandaríkjanna, Hersey Foods, að því er fram kom í blaðinu USA Today í gær. Stjórnendur fyrir- tækjanna vildu ekki staðfesta fregnirnar. Alríkislögregla Bandaríkjanna,FBI, ætlar að hefja að nýju rannsókn á húsnæði fjölmiðlafyr- irtækisins American Media Inc, þar sem einn starfsmaður lést af völdum miltisbrands á síðasta ári. Um verður að ræða fyrstu rannsóknina á húsnæðinu síðan í nóvember. ERLENT SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR Fer fram í Suðurkjör- dæmi ásamt Lúðvík Bergvinssyni og Mar- gréti Frímannsdóttur. Réttarhöld yfir Milosevic: Hafin á ný eftir veikindahlé SLOBODAN MILOSEVIC Fyrsta hluta réttarhaldanna af þremur á að ljúka innan tveggja vikna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.