Fréttablaðið - 27.08.2002, Qupperneq 10
OREGON CITY, OREGON, AP Fulltrúar
bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, sem leitað hafa að tveimur
13 ára stúlkum í Oregon-fylki í
Bandaríkjunum, fundu í gær lík-
amsleifar sem talið er að séu af
annarri stúlkunni. Líkamsleif-
arnar fundust í bakgarði heimilis
Ward Weaver, sem grunaður er
um að hafa myrt stúlkurnar.
Fundust leifarnar í tunnu sem
sementi hafði verið sturtað yfir.
Lík hinnar stúlkunnar fannst á
laugardag í bakhúsi Weaver.
Staðfest hefur verið að það lík sé
af Miröndu Garris, sem týnd hef-
ur verið síðan 8. mars. Hin stúlk-
an, Ashley Pond, sást síðast þann
9. janúar er hún var á leið í skól-
ann. Báðar áttu þær heima í sama
fjölbýlishúsi í Oregon-borg suður
af Portland, skammt frá heimili
Weaver.
Ward Weaver, sem er 39 ára
gamall, var handtekinn þann 13.
ágúst ákærður fyrir að hafa
nauðgað 19 ára gamalli kærustu
sonar síns. Hann er nú grunaður
um morðið á stúlkunum tveimur.
Hefur hann lýst yfir sakleysi
sínu.
Þess má geta að faðir Weaver
er á dauðadeild í fangelsi í Kali-
forníu fyrir að hafa myrt konu og
grafið lík hennar í garðinum sín-
um.
10 27. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili
á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hvarf tveggja 13 ára stúlkna í Bandaríkjunum:
Líkamsleifar fundust
Björninn út með bæjum fer
bugaður og hokinn
en - Davíð kóngur ennþá er
ekkert nema hrokinn!
MIRANDA
Lík Miröndu Garris fannst á laugardag í
bakhúsi Ward Weaver. Hún sást síðast á
heimili sínu þann 8. mars er hún var að
leggja af stað í skólann.
AP
/M
YN
D
Japanskir þingmenn:
Kynna sér
íslenskt
atvinnulíf
HEIMSÓKN Átta japanskir þing-
menn úr vináttufélagi Japans og
Íslands á japanska þinginu sóttu
Alþingi heim í gær. Þingmennirn-
ir eru komnir hingað til lands
ásamt aðstoðarmönnum sínum í
boði utanríkisráðuneytisins. Þeir
hyggjast kynna sér íslenskt efna-
hags- og atvinnulíf og samskipti
við Japan á þeim sviðum.
Meðan á heimsókn þingmann-
anna stendur ræða þeir við ís-
lenska ráðamenn og kynna sér
starfsemi nokkurra fyrirtækja.
KOSNINGABARÁTTAN Í ÞÝSKALANDI
Tæplega fjórar vikur eru þangað
til kosið verður til þings í Þýska-
landi. Kanslaraefni tveggja
stærstu flokkanna,
þeir Gerhard
Schröder og Ed-
mund Stoiber,
þykja hafa komið
nokkuð jafnir út úr
fyrra sjónvarps-
einvígi sínu af
tveimur, sem háð var á sunnu-
dagskvöld. Þeir eiga að mætast
aftur í sjónvarpi eftir tvær vikur,
þann 8. september.
Flóðin í Saxelfi undanfarnar
vikur nánast kaffærðu kosninga-
baráttuna um skeið, en hún virð-
ist nú vera að komast aftur í
gang, enda flóðin að mestu geng-
in yfir. Í þýskum fjölmiðlum voru
þau sögð „vatn á myllu
Schröders“.
Sósíaldemókratinn Schröder
hefur bráðum verið kanslari
Þýskalands í eitt kjörtímabil og
naut vinsælda framan af. Þær
hafa þó minnkað jafnt og þétt og
stóð hann höllum fæti í skoðana-
könnunum þangað til flóðin
hófust. Viðbrögð hans sem kansl-
ara við flóðunum féllu í góðan
jarðveg og hann náði forskoti
sínu á nýjan leik, þótt óvíst sé að
það dugi honum þær vikur sem
eftir eru til kosninga.
Stoiber, sem er kanslaraefni
hægri manna, þótti framan af í
kosningabaráttunni gera ýmis
klaufaleg mistök. Hann naut þess
þó að hafa staðið sig vel í efna-
hagsmálum í Bæjarlandi, þar
sem hann er forsætisráðherra. Í
einvíginu á sunnudaginn þótti
greinilegt að hann hefði gengist
undir stífa þjálfun í sjónvarps-
framkomu og það skilaði sér til
áhorfenda.
Í skoðanakönnunum sögðu
Þjóðverjar að þeir Schröder og
Stoiber hefðu báðir staðið sig vel.
Þeir virðast því standa nokkuð
jafnt að vígi nú, fjórum vikum
fyrir kosningar.
Guido Westerwelle, sem er
kanslaraefni Frjálslyndra
demókrata, sagði reyndar í dag-
blaðinu Bild að af einvígið hafi
fyrst og fremst staðfest að ekki
sé mikill munur á þeim Schröder
og Stoiber. Þeir hafi „keppst um
að líkjast hvor öðrum“ sem mest.
Þýska vikuritið Der Spiegel
minnir á að Stoiber var aðstoðar
maður hins umdeilda þýska
stjórnmálamanns Franz Josef
Strauss í kosningabaráttunni árið
1980. Þá tapaði Strauss fyrir
kanslaraefni jafnaðarmanna. Að-
stoðarmanninum gæti þó nú tek-
ist að ná þeim árangri sem læri-
föður hans mistókst árið 1980, að
verða kanslari Þýskalands.
Kosningabaráttan
aftur komin á skrið
Jafnræði með Schröder og Stoiber fjórum vikum fyrir kosningar. Áhrif flóðanna á kosninga-
baráttuna í rénun. Þriðja kanslaraefnið segir Schröder og Stoiber keppast um að líkjast hvor öðrum.
Þeir hafi
„keppst um
að líkjast hvor
öðrum“ sem
mest.
KANSLARAEFNIN EDMUND STOIBER OG GERHARD SCHRÖDER
Stoiber er forsætisráðherra Bæjaralands, leiðtogi hægriflokksins CSU og kanslaraefni systurflokkanna tveggja, CSU og CDU. Schröder er
leiðtogi Sósíaldemókrata og kanslari í samsteypustjórn með Græningjum. Hann var áður forsætisráðherra í Neðra-Saxlandi.
Davíð og
Björn
Lýður Ægisson sendi vísu:
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.
LESENDABRÉF
Háskaleikur í
Bolungarvík:
Unglingar
sniffa gas
LÖGREGLA Lögreglan í Bolungar-
vík segir gassniff færast í vöxt
meðal bolvískra unglinga. Þetta
kom fram á fréttavefnum bb.is í
gær.
Að sögn Daða Þorkelssonar,
lögreglumanns í Bolungarvík,
hafa borist ábendingar varðandi
gassniff upp á síðkastið.
„Eftir því sem við heyrum
virðist sem kjarni 15 til 17 ára
gamalla barna hér í bæ hafi tek-
ið upp á því að sniffa bútangas af
grill- og Primuskútum, sem og
kveikjurum. Þetta veldur okkur
miklum áhyggjum, enda sanna
fjöldamörg dæmi að þessi
neysla er stórvarasöm og bein-
línis lífshættuleg,“ sagði Daði í
samtali við bb.is
Landsíma-
vitleysa
María Sigurðardóttir hringdi
Ég get ekki orða bundist út afLandsímanum. Þetta fyrirtæki
er orðið stórskuldugt og nú bitnar
það á notendum. Ef maður velur
númer og það er á tali þá kemur
karlmannsrödd sem segir manni
það. Það hlýtur að vera tekið eitt-
hvað fyrir þessa nýjung, sem mér
finnst alveg óþörf. Síminn hefur
líka verið að nota Ingva Hrafn til
að auglýsa 118, ekki veitir af, það
er svo dýrt að hringja þangað.