Fréttablaðið - 27.08.2002, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. ágúst 2002
FÓTBOLTI Samkvæmt spænskum
fjölmiðlum hófu stjórnir
Barcelona og Chelsea samninga-
viðræður um kaup á hollenska
framherjanum Jimmy Floyd
Hasselbaink í gær. Katalóníulið-
ið er sagt tilbúið að borga 6
milljónir evra, andvirði um 500
milljónum íslenskra króna, fyrir
hinn þrítuga framherja.
Spænska dagblaðið Mundo
Deportivo segir Chelsea enn
skulda Barcelona um tíu milljón-
ir evra fyrir kaupin á Emmanuel
Petit og Boudjewin Zenden í
fyrra. Hasselbaink er sagður
eiga að ganga upp í þá skuld.
Einnig er talið að Louis Van
Gaal, knattspyrnustjóri Bör-
sunga, vilji kaupa framherja
áður en leikmannamarkaðurinn
lokar þann 31. ágúst næstkom-
andi. Van Gaal er hollenskur líkt
og Hasselbaink. Sá síðarnefndi
spilaði á Spáni tímabilið 1999-
2000 með Atletico Madrid.
Jimmy Floyd Hasselbaink:
Á leið til
Barcelona?
JIMMY FLOYD HASSELBAINK
Fór mikinn með liði Chelsea í fyrra og var
með markahæstu mönnum í ensku úrvals-
deildinni.
FÓTBOLTI Roy Keane, fyrirliði
Manchester United, lýsir enn og
aftur yfir áhuga sínum á því að
gerast þjálfari í knattspyrnu í ævi-
sögu sinni sem kemur út innan
skamms. Keane hefur væntanlega
leikið sinn síðasta landsleik eftir
deilur við Mick McCarthy, lands-
liðsþjálfara Íra. Hann hyggst nýta
þann tíma sem áður fór í landsleiki
til að sækja þjálfaranámskeið.
„Ég er að verða 31 árs og á um
fjögur ár eftir af ferlinum. Ég
væri meira en til í að taka að mér
þjálfun þegar ég legg skóna á hill-
una. Þar sem ég leik ekki landsleik
á næstunni hef ég nægan tíma til
að sækja þjálfaranámskeið,“ segir
Keane meðal annars í bókinni.
Hann segist hafa lært ýmislegt á
ferli sínum, bæði gott og vont.
Keane er þekktur vandræða-
gemsi. Nú hefur breskur þingmað-
ur, Bob Russell, farið þess á leit við
lögregluna að hún rannsaki fólsku-
legt brot Keane á norska landsliðs-
manninum Alf-Inge Haaland sem
átti sér stað í fyrra.
Roy Keane:
Vill taka að sér þjálfun
ROY KEANE
Núverandi fyrirliði Manchester United og fyrrverandi landsliðsfyrirliði Írlands.
FÓTBOLTI Norskir fjölmiðlar fjalla
mikið um stórleik Ríkharðs
Daðasonar sem skoraði þrjú
mörk fyrir Lilleström gegn Guð-
jóni Þórðarsyni og lærisveinum í
Start í norsku úrvalsdeildinni um
helgina. Lilleström vann leikinn
með sjö mörkum gegn engu. Í
fjölmiðlunum kemur fram að
Ríkharður hafi ekki fengið mörg
tækifæri undir stjórn Guðjóns
þegar þeir voru báðir hjá Stoke
City.
„Guðjón Þórðarson var niður-
lægður af Lilleström og Ríkharði
Daðasyni, sem hann taldi ekki
nægilega góðan til að spila í ensku
2. deildinni,“ segir meðal annars í
norska dagblaðinu Verdens Gang.
Þar kemur þó fram að Ríkharður
hafi ekki verið að ná sér niður á
fyrrverandi lærimeistara. Í sömu
grein segir Guðjón að Ríkharður
hafi átt erfitt með að aðlaga sig
enskri knattspyrnu og að töluverð-
ur munur sé á henni og norskri
knattspyrnu. „Það er miklu meiri
hraði í ensku 2. deildinni. Norska
úrvalsdeildin er eins og fótbolti
sem leikinn er á skólalóð í saman-
burði við hana.“
Í Aftenposten kemur fram að
Ríkharður sé ekki enn búinn að ná
sínu fyrra formi, þótt hann hafi
skorað þrjú mörk gegn Start og tvö
fyrir íslenska landsliðið gegn And-
orra í síðustu viku. Þar segir
einnig að hann hafi upphaflega
ekki átt að vera í byrjunarliðinu
gegn Start. Uwe Rösler samherji
hans fékk hins vegar rautt spjald í
umferðinni á undan, og þar af leið-
andi leikbann, og því fékk Ríkharð-
ur tækifæri í byrjunarliðinu.
RÍKHARÐUR DAÐASON
Skoraði þrjú mörk fyrir Lilleström gegn Start um helgina og tvö mörk fyrir íslenska lands-
liðið gegn Andorra. Hann hefur skorað 51 mark í norsku úrvalsdeildinni.
Norskir fjölmiðlar:
Ríkharður
niðurlægði
Guðjón