Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2002, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 27.08.2002, Qupperneq 16
16 27. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA? FUNDUR 20.00 Atvinnumálin á Suðurnesjum verða til umræðu á opnum fundi sem þingflokkur Samfylkingar- innar boðar til í kvöld. Fundurinn verður í Víkinni, Hafnargötu 80, Reykjanesbæ. GANGA 19.30 Í stað venjubundinnar göngu verður farið í hina árlegu kúmen- tínslu í Viðey. Leiðsögumaður fer með hópinn á grösuga kúm- enakra og segir stuttlega frá stað- háttum í leiðinni. Fólk er beðið um að koma með skæri og poka fyrir fenginn. Viðeyjarferjan leggur af stað frá Sundahöfn kl. 19.30 og er ferjugjaldið 250 krónur fyrir börn og 500 krónur fyrir full- orðna. TÓNLEIKAR 20.30 Hrólfur Sæmundsson barítón- söngvari syngur á tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar við undirleik Steinunnar Birnu Ragn- arsdóttur. Flutt verða lög eftir Hugo Wolf við ljóð eftir F. W. von Göthe og Eduard Mörike. 22.00 Kvartett franska bandoneonleikar- ans Oliviers Manoury leikur í kvöld á Hverfisbarnum, Hverfis- götu 20. FÉLAGSSTARF 13.30 Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Brids og frjáls spilamennska,. kl 13.30 og pútt á Hrafnistuvelli Kl. 14.00 til 16.00. MYNDLIST Jón Sæmundur Auðarson hefur opnað sýningu í Gallerí Hlemmi. Sýningin stendur til 15. september og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl 14-18. Bandaríski listamaðurinn Holly Hughes heldur ljósmyndasýningu í kjallara Gall- erí Skugga, Hverfisgötu. Sýningin ber yf- irskriftina Choices. Á sýningunni eru ljós- myndum af samstarfsverkefnum Holly með bæjarbúum í íslenskum byggðar- lögum. Sýningin stendur til 8. septem- ber. Gallerí Skuggi er opið alla daga nema mánudaga kl. 13 -17 og er að- gangur ókeypis. Berglind Björnsdóttir ljósmyndari sýnir í aðalsal Gallerí Skugga á Hverfisgötu. Sýningin nefnist Trufluð tilvera. Sýningin stendur til 8. september. Opnunartími Gallerí Skugga er kl. 13-17 alla daga nema mánudaga. Ókeypis aðgangur. Rebekka Gunnarsdóttir sýnir í Sjó- minjasafni Íslands, Vesturgötu 8, Hafn- arfirði. Rebekka sýnir vatnslitamyndir og glerverk sem að mestu eru unnin á þessu ári. Aðal viðfangsefni myndanna er landslag, götumyndir og hús í Hafnar- firði. Sýningin stendur til 8. september og er opin alla daga frá kl. 13-17 á opn- unartíma safnsins. Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís- lands stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv- arar sýna. Sýningin er fjölbreytt og sýnir þá miklu breidd sem ríkir innan félags- ins sem fagnar 30 ára afmæli sínu. Sýn- ingin stendur til 6. október. Sýning á nýjum verkum hafnfirska mál- arans Jóns Thors Gíslasonar er í Hafn- arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Á sýningunni eru málverk, grafík, vatnslitamyndir og teikningar. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 9. september. Grafíski hönnuðurinn og myndlistarkon- an, Valgerður Einarsdóttir, sýnir verk sín á Kaffi Sólon. Sýningin stendur til 6. september. Arnfinnur Amazeen og Bryndís Erla ÞRIÐJUDAGURINN 27. ÁGÚST ÍSLENSKA Eiga Íslendingar orðið í vandræðum með að skilja hver annan, nema þeir sem lifa og hrærast í sömu samfélagshópun- um? Ari Páll Kristjánsson hjá Ís- lenskri málstöð telur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af þróun tungumálsins. „Það er all- staðar þannig í margbrotnum samfélögum að þar eru ótal sér- svið. Galdurinn er auðvitað sá að þeir sem eru á sérsviðum tjái sig þannig að almenningur skilji. En þróunin hér er ekkert öðruvísi en annarstaðar.“ Ari Páll segir orð verða til af nauðsyn. „Það er augljóst að ákveðnar sérgreinar koma oftar við sögu í daglega líf- inu. Viðtöl við sérfræðinga úr viðskiptalífinu, þar sem notuð eru hugtök sem er ekki augljóst að almenningur skilji, eru mun algengari en viðtöl við járnsmið- inn, sem notar þó orð yfir tól og tæki á sínu sviði sem ég myndi ekki skilja.“ Ari Páll segist ekki hafa áhyggjur af málfari unglinga, þeir noti eðlilega tungumálið til að skilgreina sig. „Það hafa ung- lingar alltaf gert og mér finnst meginmálið að íslenskir ungling- ar velja að nota íslensku. Orða- forði kemur með tímanum, en við erum að bæta við hann alla ævi“. En hvað með landlæga þágufallssýki? „Þágufallssýki er „vinsæl málfræðivilla“,“ segir Ari Páll, og þar slær hjarta þjóð- arinnar í málfarsefnum. Það er bara eðlilegt að þeir sem eru ást- fangnir af íslenskunni skrifi heilsíðugreinar í dagblöð um þágufallssýki, sem endurspeglar bara anga af ástinni á íslenskri tungu. Stundum gera ástfangnir menn ekki greinarmun á aukaat- riðum og aðalatriðum. En auðvit- að er þágufallssýki dæmi um óvandaða íslensku.“ Höskuldur Þráinsson, pró- fessor í íslenskri málfræði við HÍ, er ekki heldur uggandi um tungumálið. Hann segir unglinga frjóa og nota málið skemmtilega. Þá segir hann menn oft vanda mál sitt sem geti þó líka farið út í öfgar. „Einum útvarpsmanni man ég eftir sem segir alltaf at- hyglivert, trúlega hefur einhver sagt honum að þarna eigi ekki að vera s og hann leggur sig því all- an fram um að sleppa því. Sami maður myndi væntanlega ekki segja að einhver væri keppni- maður,“ segir Höskuldur. edda@frettabladid.is Jákvæður viðsnún- ingur gengismunar Lesist: Gengistap hefur snúist í hagnað. Íslenskan er stundum snúin og illskiljanleg venjulegi fólki. Eðlileg þróun, en nauðsynlegt að brúa bilið frá sérgreinum yfir til hinna. ARI PÁLL KRISTJÁNSSON Þágufallssýki „vinsæl málvilla“ en hann telur ekki ástæðu til að örvænta um íslenska tungu. Jóhanna Hlíf Magnúsdóttir Enga í augnablikinu. Hjálmarsdóttir sýna í rými undir stigan- um í i8, Klapparstíg 33. Verkið sem þau sýna nefnist „Við erum í svo miklu jafnvægi“ og er innsetning með ljós- mynd og spegli. Sýningin stendur til 6. september. i8 er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13.00-17.00. Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn G. Harðarson sýna í i8, Klapparstíg 33. Kristinn sýnir vatnslitaverk og útsaum- aðar myndir og Helgi leirskúlptúra. Að auki sýna þeir myndbandsverk sem þeir unnu í sameiningu ásamt söngvaranum Sverri Guðjónssyni sérstaklega fyrir sýninguna. Sýningin stendur til 12. október. i8 er opið þriðjudaga til laugar- daga frá kl. 13-17. Nú stendur yfir í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 sýningin Úr fórum gengins listamanns. Á sýningunni eru verk Jóhannesar Jóhannessonar (1921-1998), vatnslitamyndir, pastel og teikningar. Sýningin stendur til 28. ágúst. Í Gerðarsafni standa yfir tvær sýning- ar, í Austur- og Vestursal er sýning ber heitið Stefnumót. Á henni eru mál- verk eftir Jóhannes Jóhannesson list- málara og höggmyndir og glergluggar Gerðar Helgadóttur myndhöggvara. Á neðri hæð safnsins stendur sýningin Yfirgrip. Á henni eru eldri og nýrri verk eftir Valgerði Hafstað listmálara. Sýn- ingarnar standa til og með sunnudags- ins 8. september. Listasafn Kópavogs er opið alla daga nema mánudaga frá 11-17. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LIMetsölulisti Eymundsson: Ber keim af upphafi skólaárs BÆKUR Skólarnir eru komnir á fullt og íslenski aðallisti Eymundsson ber þess merki. Orðabækur eru áberandi á listanum. Þá er bókin sem skipar þriðja sætið, Ýmislegt um risafurur og tímann eftir Jón Kalman Stefánsson, kennd í fram- haldsskólum. Hann fékk á síðasta ári tilnefningu til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs fyrir aðra bókina í sveitatrílógíu sinni Skurðir í rigningu, Sumarið bak við Brekkuna og Birtan á fjöllun- um. Nú hefur Jón fært sögusvið sitt til útlanda og segir sagan frá tíu ára strák sem fer utan í vist hjá ættingjum.  Sir David Attenborough: Gagnrýnir BBC fyrir lítið menn- ingarefni BRETLAND Hinn gamalreyndi sjón- varpsmaður, Sir David Atten- borough, hefur gagnrýnt bresku sjónvarpsstöðina BBC fyrir að hafa algjörlega vanrækt efni tengt menningu og listum. Hann sagði í viðtali við The Times að BBC hefði svikið skuldbindingar sínar við listaheiminn. „Það hefur verið slagsíða á pendúlnum. Ég vona að fljótlega verði gerð brag- arbót á. Það eru margir á þeirri skoðun að BBC sé ekki í neinum tengslum við áhorfendur sína,“ sagði Attenborough. Talsmaður stöðvarinnar segir þessar ásakan- ir tilhæfulausar og vísar í haust- dagskrá sem hann segir segja allt sem segja þarf.  TÓNLEIKAR Dizzy Gillespie, Milton Nascimento og Astor Piazolla eru meðal lagahöfunda sem kvartett franska bandoneonleikarans Oli- viers Manoury setur á oddinn á tónleikum í kvöld á Hverfisbarn- um. Auk þessa leikur kvartettinn tangóa, bóleróa og klassísk djass- lög. Olivier býr í París, leikur á bandoneon og semur einnig tón- list fyrir leikhús, ballet og kvik- myndir. Hann hefur spilað víða um heim og með sínum íslensku félögum hefur hann leikið af og til síðasta áratuginn. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 22.  KVARTETT OLIVIERS MANOURY Olivier Manoury, Kjartan Valdimarsson, Tómas R. Einarsson og Matthías M. D. Hemstock skipa kvartettinn sem leikur á Hverfisbarnum í kvöld. Kvartett Oliviers Manoury: Tangó, bóleró og klassísk djasslög TÓNLEIKAR Hrólfur Sæmundsson barítónsöngvari syngur í kvöld klukkan 20.30 á Sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Hrólfur syngur við undirleik Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur lög eftir Hugo Wolf við ljóð eftir F.W. von Göthe og Eduard Möri- ke. Hrólfur Sæmundsson barítón- söngvari lauk meistaragráðu í einsöng við New England Conservatory í Boston í fyrra með hæstu einkunn. Hann hefur verið einsöngvari í kirkjuverkum í Bandaríkjunum, meðal annars sem fastráðinn einsöngvari við First Parish Church í Boston. Hrólfur er stofnandi Sumaróperu Reykjavíkur sem setti nýverið upp óperuna Dido & Eneas í Borgarleikhúsinu. Hann mun í vetur meðal annars syngja í Rak- aranum í Sevilla í Íslensku Óper- unni. Steinunn Birna Ragnarsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún lauk meistaragráðu frá New England Conservatory of Music í Boston árið 1987. Steinunn starfaði um tíma á Spáni sem einleikari og lék í ýmsum kammerhópum. Steinunn Birna starfar nú við tónlistarflutning og einnig við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún hefur verið listrænn stjórn- andi Reykholtshátíðar frá stofn- un hennar, 1997.  HRÓLFUR SÆMUNDSSON OG STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR Á tónleikunum flytja þau Hrólfur og Steinunn Birna lög eftir Hugo Wolf við ljóð eftir F. W. von Göthe og Eduard Mörike. Sumartónleikar Listasafns Sigurjóns: Lög Wolf við ljóð Göthe og Mörike 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 METSÖLULISTI EYMUNDSSON YFIR ÍSLENSKAR BÆKUR Sigurgeir Sigurgeirsson LOST IN ICELAND Guðrún Eva Mínervudóttir ALBÚM-SKÁLDSAGA Jón Kalman ÝMISLEGT UM RISAFURUR ... Vilborg Davíðsdóttir KORKUSAGA Orðabókaútgáfan DÖNSK-ÍSL/ÍSLENSK Orðabókaútgáfan ENSK-ÍSL/ÍSLENSK Mál og menning DÖNSK-ÍSLENSK Arnaldur Indriðason GRAFARÞÖGN - KILJA Almenna bókafélagið ÍSLENSK STAFSETNINGA ... Oprah Winfrey og Bob Green LÍFIÐ Í JAFNVÆGI - KILJA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.