Fréttablaðið - 27.08.2002, Síða 19

Fréttablaðið - 27.08.2002, Síða 19
19ÞRIÐJUDAGUR 27. ágúst 2002 Stanislas Bohic Garðhönnuður 898 4332 Sumir velja gæði, en þú? Hringdu. SÝNING Ástsælustu grínarar þjóð- arinnar þeir Halli og Laddi eiga 30 ára starfsafmæli um þessar mundir. Af því tilefni hefur verið ákveðið að efna til stórsýningar í Loftkastalanum í haust þar sem bræðurnir munu stikla á stóru og sýna valin atriði af löngum og lit- ríkum ferli. Eins og flestir vita hófu Halli og Laddi feril sinn sem raddir fyr- ir Glám og Skrám í RÚV fyrir um 30 árum eða nánar til tekið í Stundinni okkar árið 1972. Þá voru bræðurnir reyndar í felum á bak við Glám og Skrám en seinna það ár komu þeir fram með Spike Jones-atriði sem var lokaatriði í þættinum Ugla sat á Kvisti. Upp frá því hafa þeir skemmt þjóðinni bæði sundur og saman, ef svo mætti að orði komast, og svo virð- ist sem hún fái aldrei nóg af þess- um einstökum bræðrum.  LONDON Tæplega tvær milljónir manna tóku þátt í Notting Hill- karnivalinu í London um síðast- liðna helgi. Hátíðin, sem er stærs- ta karnival í Evrópu, og er að kar- abískri fyrirmynd, var nú haldið í 37. skipti. Stuðið stóð í tvo daga, sunnudag og mánudag, en fyrri dagurinn var tileinkaður börnun- um sem mættu í búningum sínum og léku listir á götunum við trumbuslátt og lúðrablástur. Rign- ing setti örlítið strik í reikninginn á sunnudeginum, en á mánudegin- um, sem var frídagur í Bretlandi, braust sólin í gegn og gífurlegur mannfjöldi dansaði og söng á göt- um úti, fólk af ólíku þjóðerni setti upp veitingatjöld og bauð upp á framandi rétti, og gleðin var alls- ráðandi. Tíu þúsund lögreglu- menn stóðu vaktina í Notting Hill- hverfinu, en árið 2000 var talsvert um ofbeldi og tveir voru myrtir. Í fyrra, og í ár, gekk allt vel fyrir sig en 34 voru þó handteknir fyrir minniháttar pústra.  BRETLAND Gæsin Kerry, sem búin var 3.000 punda senditæki til að fulltrúar frá Wildfowl and Wetlands Trust, sem láta sig mál- efni fugla og votlendis varða, gætu fylgst með ferðum hennar, fannst í gær með aðstoð gervi- hnattar í frystikistu eskimóa nokkurs á Grænlandi. Kerry var ein sex gæsa sem var merkt í Gloucesterskíri á Englandi og ætluðu aðstandendur að fylgjast með 7.245 kílómetra ferðalagi hennar frá Stangford Lough á Norður-Írlandi til Íslands og það- an til norðurhéraða í Kanada, þar sem gæsirnar para sig og verpa. Þær halda svo aftur til baka í ágúst eða september. „Þetta er einhver merkilegasta farfuglateg- und sem um getur,“ segir dr. James Robinson, einn rannsókn- armannanna. „Gæsirnar þurfa að lifa af slæmt veður, fara yfir 3.000 metra háa jökla á Grænlandi og forðast rándýr á ferð sinni til og frá varpstöðum.“ Kerry hafði ekki heppnina með sér og eskimó- inn sem skaut hana var nokkuð hissa og í vörn þegar bankað var upp á hjá honum og hann beðinn að opna frystikistuna. Þar lá ves- alings Kerry, með högl í skrokkn- um og enn með tækið í bakinu sem gaf frá sér merkin. Grunur leikur á að önnur af gæsunum sex, steggurinn Arnthor, hafi verið skotinn, en merkjasendingar frá honum hættu skyndilega yfir Disco-eyju á Grænlandi. Sú þrið- ja, Oscar, fannst dauð á Hjörsey við Ísland, segir á BBC. Hinar gæsirnar eru á áfangastað í norð- urhéruðum Kanada og hægt er að ættleiða þær fyrir 75 punda fram- lag til rannsóknarinnar.  Viðey: Grösugir kúmenakrar GANGA Farið verður í hina árlega kúmentínslu í Viðey í kvöld. Þetta er gert í staðinn fyrir hina venju- bundnu göngu. Leiðsögumaður mun fara með hópinn á grösuga kúmenakra og segja stuttlega frá staðháttum í leiðinni. Fólk er beðið um að koma með skæri og poka fyrir fenginn. Viðeyjarferjan legg- ur af stað frá Sundahöfn kl. 19.30 og er ferjugjaldið 250 krónur fyrir börn og 500 krónur fyrir fullorðna. Áætlað er að tínslan taki rúman klukkutíma. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta í kvöld er bent á að leiðsögumaður verður í Viðeyjar- stofu á milli kl. 13.00-16.00 fram á næstkomandi laugardag.  GÆS SÖMU TEGUNDAR OG KERRY Lagði á sig tæplega átta þúsund km. ferðalag en var skotin á leiðinni og verður brátt étin. Tilraunagæsin Kerry: Fannst dauð í frystikistu á Grænlandi HALLI OG LADDI Á sýningunni í Loftkastalanum verða sérstakir gestir þeir Eiríkur Fjalar, Roy Rogers, Þórður húsvörður, Tóti tölvukall, Skríplarnir, Glámur og Skrámur og fjöldi landsþekktra andlita. Bræðurnir Halli og Laddi: Haldið upp á þrjátíu ára starfsferil SHOSANNA, 9 ÁRA Mætti uppábúin ásamt vinkonum sínum til að taka þátt í barnahátíðinni á sunnudag. Notting Hill-karnival í London: Tvær milljónir manna dönsuðu á götum úti STÆRSTA GÖTUPARTÝ Í EVRÓPU Gífurlegur mannfjöldi safnaðist saman á götunum í Notting Hill og ýmist fylgdist með göngunni eða tók þátt af lífi og sál. Skólabyrjun í Flash Gallabuxur 20% afsl. Bolir frá 1.000 kr. Peysur áður 4.990 kr. Nú 3.490 kr. Allar nýjar vörur með afslætti Reiðnámskeið Byrjendareiðnámskeið fyrir konur og karla á öllum aldri hefjast á næstunni í Hestamiðst. Hindisvík í Mosfellsbæ. Frábær undirbúningur fyrir komandi vetur. Kennt bæði inni og úti, útvegum hesta og reiðtygi. Upplýsingar: Ástmundur 691 2388 og Guðrún 695 8766, 568 0771 Húseigendur athugið! Móðuhreinsun glerja 3.000 kr. afsláttur gegn afhendingu þessarar auglýsingar GT-sögun ehf. Sími 860 1180 Reiðtúr og grill í Mosfellsbæ Frábær skemmtun fyrir stóra sem smáa hópa. Farið er í ca. 2 tíma reiðtúr um nágrenni Mosfellsbæjar Á eftir er slegið upp grillveislu. Mjög hagstætt verð. s. 691-2388 og 695-8766

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.