Fréttablaðið - 27.08.2002, Page 24

Fréttablaðið - 27.08.2002, Page 24
Það er ekki oft sem ástralskir fjöl-miðlar ýta við manni. Þó má líta athygliverða grein í dagblaðinu, The West Australian, frá miðju sumri sem hugsanlega vekur einhvern til um- hugsunar um stundarsakir. Þar segir frá skaðlegri mengun frá álveri Alcoa í Wagerup í vesturhluta Ástral- íu. Wagerup er ekki staður sem fang- ar athygli heimspressunnar, en þar á bæ er fjölgun krabbameinstilfella umræðuefni á þorpssamkomum. Alcoa hefur heitið níu starfsmönnum álversins þriggja milljóna dollara bótum fyrir heilsubrest sem þeir telja sig hafa orðið fyrir. FYRRUM SKRIFSTOFUMÆR ál- versins kvartaði undan astma og var henni afhent gríma til að vinna með við skrifborð sitt, segir í greininni. Fyrir fjórum árum voru Alcoamenn í Ástralíu varaðir við því að mengunar- búnaður stæðist ekki bandarískar reglugerðir, en skollaeyrum var skellt við því enda menn staddir í Ástralíu. Nú efast umhverfisráðherra Ástralíu stórlega um að hann veiti leyfi fyrir stækkun álversins. Meng- un í lofti og vatni heimila í Wagerup hefur fundist í allt að sex kílómetra fjarlægð frá álveri Alcoa. SJÁLFSAGT segja frómir menn að besti fáanlegi hreinsibúnaður verði notaður fyrir austan. En eru þetta vangaveltur sem við kærum okkur um? Ástralskar fréttir varða okkur kannski engu. Líkt og fregnir af fjár- hagslegri óráðsíu sem felst í þeim framkvæmdum sem ana á út í fyrir austan á okkar kostnað. Líkt og tíð- indi af náttúrulegum verðmætum sem glatast að eilífu. Í húsinu við Austurvöll situr her manns sem vill þjóð sinni vel - sveit sem vill veg Ís- lendinga sem mestan og bestan. ÞAR Á BÆ hafa margir hverjir hins vegar ekki náð að fanga hljóm nýrra tíma, nýjan tón inn í nýja öld. Úldin og krumpuð hugmyndafræði liggur á allra borðum, grunnur sem menn nýttu sér á síðustu og þarsíðustu öld. Framtíðin er enn í stóriðju og ofur- virkjunum fallvatna, lengra sjá ekki góðviljuðustu menn þar sem þeir sitja fastir í köngulóarvef fortíðar- innar. Landsvirkjun er nú félagsmið- stöð þar sem fjölskyldan getur varið öllum helgum í fokdýru sýningar- og skemmtiprógrammi - risi sem stikar nú hálendið í mikilmennsku sinni. Norðlingaalda er næst. Klukkan tólf í dag mæta Íslandsvinir aftur á Aust- urvöll og sýna öræfunum samstöðu. Láttu sjá þig. SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur 57.000 kr. á mánuði í eitt ár Pajero Sport er stórglæsilegur og fallegur hágæðajeppi sem opnar þér nýja og spennandi heima. Hann er vandlega búinn og býr yfir aksturseiginleikum sem eiga engan sinn líka. Og nú býðst þér að njóta þessa frábæra jeppa fyrir aðeins 57.000 kr. á mánuði í eitt ár* með rekstrarleigusamningi. Komdu og reynsluaktu því þetta er tækifæri sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara. 20 Mitsubishi Pajero Sport fást nú á rekstrarleigu í 12 mánuði, kr. 57.000 á mánuði. Fyrstur kemur fyrstur fær. *Aðeins fyrir fyrirtæki. Laugavegur 170 - 174 // Sími 590 5000 // Heimasíða www.hekla.is // Netfang hekla@hekla.is A B X / S ÍA www.hekla. is Hinn ljúfi blær stóriðju Sandtex V 10 lítrar TILBOÐ kr. 6.490.- ÚTIMÁLNING Flotefni • Málning Múrviðgerðarefni Verkfæri og fl. Súðarvogur 14 www.golflagnir.is S: 5641740

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.