Fréttablaðið - 01.10.2002, Side 4

Fréttablaðið - 01.10.2002, Side 4
4 1. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR STJÓRNMÁL ERLENT AFPLÁNUN Enginn þeirra ósakhæfu afbrotamanna sem dæmdir hafa verið til vistunar á Sogni og þaðan útskrifaðir hafa framið brot eftir útskrift, að sögn Magnúsar Skúla- sonar, yfirlæknis á Sogni. Hann segir afskaplega vel hafa tekist til með þá afbrotamenn sem dæmdir hafa verið ósakhæfir. „Eftir að þessir menn útskrifast frá okkur er ákveðin eftirfylgni af okkar hálfu sem þeir gangast undir. Mér er ekki kunnugt um að neinn þeir- ra hafi brotið af sér eftir að henni lýkur. Þvert á móti finnst mér þeir sýna deildinni á Sogni mikla holl- ustu eftir að þeir hverfa frá okkur. Þeir koma gjarnan í heimsókn og halda tengslum að eigin frum- kvæði.“ Magnús segir að menn rugli gjarnan saman þeim geðfötluðu af- brotamönnum sem dæmdir eru óskahæfir við hina sem séu sak- hæfir en eigi að síður mjög veikir. „Við höfum haft þá til meðferðar hjá okkur en höfum enga lögsögu yfir þeim eins og hinum. Því er það oft að eftir að afplánun lýkur fara þeir frá okkur, burtséð frá því hvort þeir eru hæfir til þess eða ekki. Vissulega reynum við allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þeim og koma þannig í veg fyrir að þeir fari frá okkur í slæmu ástandi en Fangelsismálastofnun hefur lögsögu yfir þeim og eftir að dómi lýkur eru þeir frjálsir ferða sinna.“ Steinn Ármann Stefánsson, sem grunaður er um að hafa orðið Braga Ólafssyni að bana, var vistaður um tíma á Sogni en hafði verið fluttur aftur í almennt fangelsi áður en honum var sleppt. Steinn Ármann var talinn sakhæfur.  Réttargæsludeildin á Sogni: Enginn framið brot eftir meðferð MAGNÚS SKÚLASON Hann segir að þegar sakhæfir afbrota- menn fari frá Sogni eftir að afplánun þeirra ljúki séu þeir í sumum tilfellum alls ekki hæfir til að takast á við lífið og sama hringrásin hefjist því miður að nýju. Ekki sé við Sogn að sakast því þeir hafi ekki lögsögu yfir sakhæfum afbrotarmönnum. Kvenkyns stjórnendur: Oftar einhleypir DANMÖRK 20% danskra kvenna í stjórnunarstöðu eru einhleypar en eingöngu 6% karla. Þetta kemur fram í nýrri danskri rannsókn sem gerð var fyrir tímaritið Lederne eða stjórnend- urnir. Karen Schultz, atvinnu- lífssálfræðingur, segir að hluti skýringarinnar sé sú hefð að konur giftast heldur mönnum sem hafa meiri menntun en þær og eru í betri stöðu. Karlar vilji hins vegar alveg giftast konum sem eru minna menntaðar en þeir. Langur vinnutími sjái ein- nig til þess að færri konur endi í stjórnunarstöðu, þær beri nefni- lega enn meginábyrgð á heimil- inu og geti því ekki unnið jafn mikið og karlarnir.  LÖGREGLUFRÉTTIR Þorgerður Þorgilsdóttir hefurtilkynnt þátttöku í prófkjöri Samfylkingar í Norðausturkjör- dæmi. Þorgerður er sjúkraliði og hefur verið formaður Norður- landsdeildar SÁÁ um árabil. Jóhann Geirdal, oddviti Sam-fylkingarinnar í Reykjanes- bæ, sækist eftir 2. sæti í próf- kjöri Samfylkingar í Suðurkjör- dæmi. Lára Stefánsdóttir gefur kost ásér í prófkjöri Samfylkingar í Norðausturkjördæmi. Lára hef- ur unnið við upplýsingatækni um langt skeið, meðal annars í Menntaskólanum á Akureyri. BYGGINGAR Byggingarkostnaður við hvern fermetra í nývígðum alþingisskála við Alþingishúsið er 330 þúsund krónur en alls er byggingin 2.460 fermetrar og kostaði rúmar 800 milljónir króna. Hluti byggingarinnar er neðanjarðar í formi bílageymslu, alls 1.310 fermetrar, og að mati sérfræðinga er kostnaður þar á hvern fermetra mun lægri en of- anjarðar; slá byggingameistarar á 100 þúsund krónur á fermetra. Að því gefnu er byggingarkostn- aður á hvern fermetra í alþingis- skálanum 590 þúsund krónur. Til samanburðar má geta þess að í vönduðu íbúðarhúsi er reiknað með að hver fermetri kosti um 150 þúsund krónur í byggingu. „Það er ekki hægt að bera þessa byggingu saman við annað hús sem stendur upp á holti. Í bílageymslu gætir flóðs og fjöru og við bygginguna þurfti að taka tilliti til hugsanlegra fornminja,“ segir Halldór Blöndal, forseti Al- þingis. „Samanburðurinn er því út í hött. Það var vandað vel til þessa húss án þess að vera með óhóf. Skálinn fellur vel að virðu- legu Alþingishúsinu sem margir telja fallegasta hús á Íslandi vegna þeirra tilfinninga sem fólk ber til þess,“ segir forseti Al- þingis.  Viðbyggingin við Alþingishúsið: Fermetrinn á 330 þúsund krónur - og jafnvel meira HALLDÓR BLÖNDAL Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP VIÐ VÍGSLU ALÞINGISSKÁLANS Ekki hægt að bera saman við annað hús sem stendur upp á holti. Flóðs og fjöru gætir í kjallara. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI JERÚSALEM, RAMALLAH, AP Ísraelskir fjölmiðlar og ráðherrar í stjórn Ariels Sharons gagnrýndu í gær tíu daga langt umsátur ísraelska hersins um höfuðstöðvar Jassers Arafats í Ramallah. Gagnrýnin beindist þó einkum að því að Shar- on hefði vanmetið andstöðu Bandaríkjanna við þessar aðgerð- ir. Mikill þrýstingur frá Banda- ríkjunum varð til þess að Sharon aflétti umsátrinu á sunnudags- kvöldið. „Við tókum ekki með í reikn- inginn hve langt Bandaríkin voru komin af stað með að telja niður í árásina á Írak,“ sagði Natan Sharansky, húsnæðismálaráð- herra í stjórn Sharons. „Ákvörð- unin var tekin í flýti, og þetta er útkoman.“ Sharon sjálfur hélt á sunnu- dagskvöld í þriggja daga heim- sókn til Rússlands strax eftir að hann hafði skýrt frá því að um- sátrinu yrði aflétt. Ísraelski herinn lagði í rúst nánast allar byggingar á stjórnar- lóð Palestínumanna í Ramallah. Aðeins ein bygging stóð að hluta til uppi. Þar dvaldist Arafat ásamt um það bil 200 manns meðan á umsátrinu stóð. Í gær drápu ísraelskir her- menn 13 ára palestínskan dreng í bænum Nablus á Vesturbakkan- um. Tíu önnur börn særðust, flest á leiðinni í eða úr skóla. Algengt er að palestínsk börn brjóti gegn útgöngubanni ísraelska hersins til þess að komast í og úr skóla. Tvö ár eru liðin frá því uppreisn Palestínumanna hófst. Linnulítil átök Ísraelsmanna og Palestínu- manna síðan þá hafa kostað á ann- að þúsund manns lífið. Í nýrri skýrslu frá mannrétt- indasamtökunum Amnesty International segir að í átökum Ísraelsmanna og Palestínumana síðustu tvö ár hafi meira en 250 palestínsk börn og 72 ísraelsk börn týnt lífinu. Samtökin segja að bæði ísra- elsk og palestínsk stjórnvöld beri ábyrgð á því, hve mörg börn hafa látið lífið í þessum átökum. Ísra- elsk stjórnvöld hafa ekki látið rannsaka misgerðir eigin her- manna og leiðtogar Palestínu- manna hafi hvorki komið í veg fyrir árásir á Ísraelsmenn né látið draga fyrir dóm þá sem bera ábyrgðina.  Sharon gagn- rýndur í Ísrael Umsátrið um höfuðstöðvar Arafats sagt vanhugsað. Meira en 300 börn hafa látist í átökum Ísraelsmanna og Palestínumanna. Tvö ár frá því uppreisn Palestínumanna hófst. KOMIÐ ÚT ÚR RÚSTUNUM Nokkrir Palestínumenn sjást þarna koma út úr rústunum af höfuðstöðvum Jassers Arafats í Ramallah. Ísraelsher gjöreyðilagði í síðustu viku flestar byggingar á stjórnarlóðinni. AP /N AS SE R N AS SE R Tuttugu og sjö ökumenn vorustöðvaðir fyrir hraðakstur í Reykjavík um helgina. Athygli vakti að langflestir þeirra voru undir tvítugu og nokkrir nýkomn- ir með bílpróf. 17 ára stúlka var meðal þeirra sem var stöðvuð. Hafði hún mælst aka eftir Sæ- braut á 101 km hraða. Þá ók 17 ára piltur fram úr lögreglubifreið á 120 km hraða á Vesturlandsvegi í Ártúnsbrekku. Kvaðst hann ekki hafa tekið eftir því að það var lögreglubifreið sem hann ók fram úr. Tími nagladekkja er ekki runn-inn upp. Lögreglan í Reykja- vík þurfti að hafa afskipti af tveimur ökumönnum um helgina sem vildu vera klárir í tíma fyrir veturinn. Nokkrir ungir menn gerðu til-raun til að svíkja út vörur með stolnu greiðslukorti í sölu- skála Shell á Selfossi um helgina. Athugull starfsmaður veitti því athygli að kortið tilheyrði þeim ekki. Þegar mönnunum varð ljóst að þeir fengu ekki afgreiðslu með þessum hætti höfðu þeir sig á brott hið snarasta. Fjölskylda Steins Ármanns: Ráðuneyti vinni að úrræðum fyrir geð- sjúka YFIRLÝSING Fjölskylda Steins Ár- manns Stefánssonar, sem grun- aður er um morðið á Braga Ólafssyni, hefur sent frá sér yf- irlýsingu þar sem hún harmar þá skelfilegu atburði sem áttu sér stað að kvöldi fimmtudagsins 26. september. Telur fjölskyldan að ekki verði hjá því komist að benda á aðgerðarleysi stjórn- valda og heilbrigðisyfirvalda í málum hins grunaða. Jafnframt segir: „Við fjöl- skylda Steins höfum í nær 25 ár gengið frá Pontíusi til Pílatusar í þeirri von að einhverjar úr- lausnir finnist á málum hans, en árangurinn er sá sem alþjóð veit. Krafa okkar er að öll ráðu- neyti taki höndum saman og vinni að úrræðum sem duga fyr- ir það ógæfusama fólk sem greinist geðsjúkt. Enginn ræður sínum skapadómi. Ísland er að flestu gott samfélag en aðstæður geðsjúkra eru smánarblettur sem verður að eyða. Geðsjúkir eiga ekki að liggja utangarðs í velferðarsamfélaginu forsmáðir og fyrirlitnir. Og að lokum. Er eðlilegt að maður með lögheimili á Réttar- geðdeildinni á Sogni skuli á sama tíma vera í haldi lögreglu grunaður um morð?“  KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is 54,4% Nei 45,6% Fylgist þú með Íslenskum handbolta ? Spurning dagsins í dag: Finnst þér Alþingi starfa of stuttan tíma, hæfilega lengi eða of lengi ? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is Já HANDBOLTI Rúmur helmingur segist fylgjast með Íslenskum handbolta. Sextán lík hafa fundist eftir að snjó- og aurskriða gekk yfir í suðurhluta Rússlands fyrir ellefu dögum. 132 manna er enn saknað.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.