Fréttablaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 6
6 1. október 2002 ÞRIÐJUDAGURSPURNING DAGSINS Notar þú strætó? Alltaf en ég kaupa aldrei Græna kortið út af heimsku og er því alltaf að tapa. Guðný Erla „Grrr“ Guðnadóttir. 16 ára. Nemi. INNLENT FJÁRSÖFNUN Rauði kross Íslands fer af stað með fjársöfnun laug- ardaginn 5. október til hjálpar- starfs í sunnanverðri Afríku þar sem mikil hungursneyð ógnar nú lífi næstum fimmtán milljóna manna. Yfirskrift söfnunarinnar er Göngum til góðs og óskar Rauði krossinn eftir tvö þúsund sjálfboðaliðum til að leggja mál- inu lið með stuttri heilsubótar- göngu hús úr húsi. Talið er að sjálfboðaliði sem gengur í tvo tíma geti safnað um 10.000 krón- um sem dugar til að gefa fimm manna fjölskyldu mat sem end- ist í tvo mánuði. Úlfar Hauks- son, formaður RKÍ, segir tak- markið að safna 20 milljónum króna. Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, er verndari söfnun- arinnar. Á fundi sem haldinn var í gær hvatti hann landsmenn til að taka þátt í söfnuninni. Ekki síst til að sýna það í verki að Ís- lendingar viti af ástandinu og að þeim standi ekki á sama. Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri RKÍ, er nýkomin frá Malaví þar sem hún fylgdist með matarúthlutun Rauða kross- ins, sem þegar er hafin. Hún segir að lögð sér áhersla á að að- stoða munaðarlaus börn, aldraða og fjölskyldur sem eiga erfitt uppdráttar vegna alnæmis. Í dag er þriðji hver maður í Afríku smitaður af HIV-veirunni.  Fjársöfnun til hjálparstarfs í Afríku: Óska eftir tvö þúsund sjálfboðaliðum GÖNGUM TIL GÓÐS Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Ellert Schram með söfnunarbauka. Ísland á iði, afmælisverkefni Íþrótta- og Ólympíu- sambands Íslands, er sérstakur samstarfs- aðili Rauða krossins við söfnunina. Ellert hvetur íþróttafélög sem og aðra til að legg- ja söfnuninni lið. Falsarar í Danmörku: Duglegri en nokkru sinni fyrr DANMÖRK Fleiri falsaðir peninga- seðlar eru nú í umferð í Dan- mörku en áður. Að því er fram kemur í frétt Berlingske tidende hefur fölsuðum seðlum sem gerð- ir eru upptækir fjölgað úr 40 í yfir 800 á síðustu tuttugu árum. Í ár hafa 872 verið gerðir upptæk- ir. Á sama tíma hafa gæði fals- aðra seðla batnað svo mikið að nær ómögulegt er að sjá mun á þeim og venjulegum seðlum. Þetta er haft eftir Niels Jørgen Abildgaard, rannsóknar- lögregluþjóni í Kaupmannahöfn. Seðlarnir uppgötvast yfirleitt ekki fyrr en þeir enda í Seðla- bankanum þar sem seðlar eru skoðaðir sérstaklega vel. Þá er illmögulegt að rekja þá aftur til þess sem setti þá í umferð. Peningafölsun var áður fyrr sérgrein misyndismanna sem áttu viðamikinn búnað sem til þurfti. Það hefur breyst á síðustu tíu árum, með tölvutækninni sem gerir peningafölsun auðveldari segir í fréttinni.  Slátrun hjá Sláturfélaginu Búaá Höfn hófst í síðustu viku. Þegar hefur um 3.700 dilkum verið slátrað. Einar Karlsson sláturhússtjóri segist reikna með að slátra 21 þúsund fjár á þessu hausti en það er heldur færra en í fyrra. horn.is Flugskólinn Flugsýn hyggsthafa vél á Ísafirði í vetur og bjóða Vestfirðingum upp á einkaflugmannsnám. bb.is Bæjarráð Akraness og Borg-arbyggðar héldu sameigin- legan fund á Akranesi í síðustu viku. Á fundinum voru rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál og reifaðir möguleikar á frekara samstarfi sveitarfélaganna. skessuhorn.is SKIPULAG Samkeppni um skipulag á Mýrargötusvæðinu hefur verið frestað fram yfir áramót, en upp- haflega átti hún að vera í haust. Margrét Þormar, hverfisstjóri hjá skipulagsfulltrúa, sagði að þrjár tillögur um breytingu á Mýrargötu hefðu verið lagðar fram á hug- myndaþingi fyrir skömmu. Engin þeirra hefði verið formlega sam- þykkt og ekki ljóst hvort tillögurn- ar yrðu hafðar sem forsenda í skipulagssamkeppninni. Skipulagssvæðið nær frá fyrir- huguðu tónlistar- og ráðstefnuhúsi við Faxagarð og vestur að Granda. Auk þess að færa og tvöfalda Mýr- argötu er gert ráð fyrir íbúða- byggð á svæðinu. Margrét sagði að samfara aukinni íbúðauppbygg- ingu væri hugsunin sú að láta hafnarstarfsemina njóta sín áfram. Margrét sagði að hvorki væri búið að ákveða hversu mörg hús yrðu rifin né hvaða. Óljóst væri hvort slippfélagshúsið og hrað- frystistöðin myndu standa. Reynd- ar hefði verið óskað eftir því að breyta hraðfrystistöðinni í íbúðar- húsnæði, en ekkert væri búið að ákveða í þeim efnum. Það yrði ekki gert fyrr en farið yrði út í sam- keppnina. Reiknað er með því að framkvæmdir við Mýrargötu hefj- ist á tímabilinu 2007 til 2010.  Uppbygging á Mýrargötusvæðinu gæti hafist árið 2007: Samkeppni frestað fram yfir áramót HRAÐFRYSTISTÖÐIN Margrét Þormar, hverfisstjóri hjá skipulags- fulltrúa, sagði að óljóst væri hvort slippfé- lagshúsið og hraðfrystistöðin myndu stan- da. Reyndar hefði verið óskað eftir því að breyta hraðfrystistöðinni í íbúðarhúsnæði. LANDBÚNAÐUR „Við höfum undan- farin ár þreifað fyrir okkur er- lendis með misjöfnum árangri. Við höfum meðal annars beint sjón- um okkar að versl- anakeðjum sem borga hátt verð og það lofar góðu. Þetta eru dýrar búðir og íslenska lambakjötið er selt sem hágæða- vara á mjög góðu verði,“ segir Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Landssamtaka sauðfjár- bænda. Hann segir að markvisst hafi verið unnið með Whole foods verslanakeðjunni í Bandaríkjun- um síðustu fimm ár og það sé að skila sér. „Þetta er góður stígandi, það hefur verið 50 til 80% aukning milli ára. Það sem háir okkur er að afkastagetan í vinnslu er ekki nægileg hér heima. Þeir vilja meira. Við gætum selt meira en við gerum í dag en þetta er þrösk- uldur sem við erum að vinna á.“ Árið 2000 fóru 18 tonn út til Whole foods, í fyrra voru tonnin 50 og á þessu ári er stefnt að því að flytja út 80 til 90 tonn. „Þeirra plön miða að því að á næstu fimm til sjö árum verði magnið komið í 700 tonn. Þetta lætur nærri að vera 10% af heild- arsölu kindakjöts,“ segir Özur. Hann segir viðtökurnar hafa verið feiknarlega góðar. Verðið sé það besta sem hingað til hafi feng- ist. Út úr verslun Whole Foods kostar íslenskur lambahryggur rúmlega 3.000 krónur kílóið og kílóið af læri kostar 2.000 til 2.500 krónur. „Þetta er spennandi markaður í Bandaríkjunum. Við munum virkja sláturleyfishafa til sam- stöðu en það hefur kannski skort á að þeir hafi unnið nógu vel saman að útflutningsmálum. Við vonum að menn sjái að sér,“ segir Özur. Þá segir hann fréttir frá Fær- eyjum mjög góðar en nú er mögu- legt að flytja lambakjötið beint þangað. Áður þurfti að flytja gegnum Kaupmannahöfn. „Færeyjamarkaður er okkur mjög mikilvægur. Þeir borga mjög gott verð og taka mikið magn. Að undanförnu hafa farið rúm 400 tonn til Færeyja gegnum Danmörku en það mun aukast núna. Færeyingar vilja fá meira íslenskt lambakjöt og eru hrifnir af því,“ segir Özur. Hann segir útflutninginn vaxt- arbrodd sauðfjárræktarinnar, ekkert bendi til þess að neysla lambakjöts aukist svo neinu nemi hér heima. the@frettabladid.is Sóknarfæri í lambakjöti Margra ára markaðsstarf að skila árangri. Tæp hundrað tonn kindakjöts flutt til Bandaríkjanna í ár. Vonir um að 700 tonn verði flutt út innan fimm til sjö ára. Ársframleiðsla kindakjöts er tæp 7.000 tonn. Kílóið af íslenskum lambahrygg kostar allt að 3.000 krónur út úr búð í Bandaríkjunum. Þetta er góður stígandi, það hefur verið 50-80% aukn- ing milli ára. LAMBAKJÖT Reiknað er með auknum útflutningi. ÖZUR LÁRUSSON Útflutningurinn er eini vaxtarbroddur sauðfjárræktarinnar. Það hefur kannski skort á samstöðu meðal sláturleyfishafa þegar kemur að útflutningsmálum en menn sjá von- andi að sér. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 86.79 -0.32% Sterlingspund 135.71 0.16% Dönsk króna 11.51 0.38% Evra 85.48 0.36% Gengisvístala krónu 127,97 -0,47% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 254 Velta 6.184 m ICEX-15 1.296 -0,19% Mestu viðskipti Búnaðarbanki Íslands hf. 1.812.847.410 Fjárf. Straumur hf. 504.485.121 Pharmaco hf. 462.807.273 Mesta hækkun SR-Mjöl hf. 13,33% Haraldur Böðvarsson hf. 12,04% Ker hf. 4,35% Mesta lækkun Íslenskir aðalverktakar hf. -2,86% Íslandssími hf. -2,41% Opin kerfi hf. -2,22% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7548,8 -2,00% Nsdaq*: 1171,8 -2,30% FTSE: 3721,8 -4,80% DAX: 2778,5 -4,80% Nikkei: 9383,3 -1,50% S&P*: 811,2 -2,00% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Seðlabankinn innkallar: Aurarnir ekki gjald- gengir GJALDMIÐILL Hér eftir munu við- skipti fara fram í heilum krónum. Forsætisráðherra hefur að tillögu Seðlabankans undirritað tvær reglugerðir sem útrýma aurum í íslensku viðskiptalífi. Nýju regl- urnar þýða að greitt verð verður í heilum krónum, en áfram er heimilt að nota brot úr krónum við útreikning verðs. Bönkum verður skylt að taka við aurum og gefa til baka sam- svarandi verðmæti í krónum til 1. október 2003. Eftir þann tíma þýð- ir ekki lengur að spara aurinn.  SPRON færir út kvíarnar: Kaupir Frjálsa fjár- festingar- bankann VIÐSKIPTI Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis keypti í gær alla hluti Kaupþings í Frjálsa fjárfest- ingarbankanum. Verðmæti við- skiptanna er 3,8 milljarðar króna. Stjórn SPRON telur að rekstur Frjálsa fjár- festingarbank- ans falli vel að rekstri spari- s j ó ð s i n s . Stjórnendur sparisjóðsins hættu við hlutafélagavæðingu bankans í kjölfar yfirtöktilboðs Búnaðar- bankans. Þeir hafa því leitað ann- arra leiða til að efla sparisjóðinn og auka þjónustu. Kaupin nú eru liður í þeirri viðleitni. 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.