Fréttablaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 24
Gamalt slagorð sem aldrei heyristnema þá kannski helst á súlu-
stöðum borgarinnar. Rauðsokkurnar
eru sumar horfnar og einhverjar
sestar í helga steininn. Kynslóðin
sem kom á eftir virðist ekki hafa
haft tíma til að taka við kyndlinum
og málið fjaraði út eins og svo mörg
önnur þjóðþrifamál sem kafna ofan í
pappakassa á einhvers háalofti.
„Stelpur horfum bálreiðar um öxl“
bergmálar upp úr kassanum. En þarf
að horfa um öxl?
LAUNAMISMUNUR kynjanna er
á sínum stað þennan þriðjudag eins
og aðra. Um allt land eru konur í tvö-
faldri vinnu, innan og utan heimilis.
Ísland á sér ungar dætur sem sitja
dolfallnar yfir brengluðum fyrir-
myndum úr draumkenndri veröld
sjónvarps. Yfir þær dynja skilaboð
frá fáklæddum gyðjum - skilaboð um
að kvenlíkaminn sé söluvara og heil-
steyptar hugsanir valdi hrukkum og
ótímabærri öldrun. Í auglýsingu frá
stéttarfélagi setur ung kona á sig
varalit og æfir sig við spegil áður en
hún fer til yfirmannsins að betla
launahækkun. Varaliturinn gerir
vonandi gæfumuninn.
EINSTÆÐAR MÆÐUR taka þátt
í landsmóti harðjaxla þar sem sigur-
vegarar eru sárafáir. Þeim er gert
nánast ókleift að sinna börnum og
vinnu með reisn. Allt árið leita konur
til Mæðrastyrksnefndar og presta. Í
þeim hópi eru konur sem sinna af
natni bæði starfi og heimili - heimili
sem þær geta jafnvel aldrei eignast.
Kona ein sótti um launahækkun og
benti á launamun á milli kynja á sín-
um vinnustað. Svar yfirmannsins
var: En, elsku dúllan mín, strákarnir
eru fyrirvinnur og bera ábyrgð á
heimilum.
SVO ERU ÞAÐ hjálparhrópin utan
úr heimi. Síðast kom kall á netinu frá
Nígeríukonunni Amínu sem verður
grýtt til bana fyrir að eiga barn í
lausaleik, en aðeins þegar hún er
búin að brjóstfæða barn sitt og skila
því af sér. Þótt við skrifum undir
bænaskjal svo þyrma megi lífi
Amínu er vert að halda áfram að
taka til heima fyrir. Það er nefnilega
ekki nóg að þrífa einu sinni. Rykið
heldur áfram að falla og skíturinn
safnast út í hornin. Kannski væri ráð
að kalla vaskar tiltektarkonur á
rauðum sokkum út úr helga steinin-
um. Eða hvað? Kannski er þetta bara
ágætt svona. Til að ljá bænaskjali
Amínu nafn sitt má fara inn á heima-
síðu: http://www.mertonai.org/am-
ina/openletter.htm.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Athugun á:
• Olíu á gírkassa, drifum og vökvastýri
• Loftsíu
• Olíusíu
• Ísvara á rúðusprautu
• Vökvahæð í forðabúri hemla og kúplingar
• Ástandi (rakastigi) hemlavökva
• Þurrkublöðum
• Ljósaperum
• Hjólbörðum – mældur loftþrýstingur
• Viftureim
• Rafgeymi – álagsmæling, hleðsla
• Pústkerfi
Að auki:
• Hurðalamir og læsingar smurðar
• Þéttikantar á hurðum og farangursrými sílikonbornir
Verð fyrir fólksbíl: 1.950 kr. – 3.250 kr. með smurningu.
Verð miðast við 4 strokka japanska og evrópska bíla.
Innifalin vinna og olía, 10w40 ultra.
Tilboðið gildir til 31/10 2002.
Afgreiðslutími
í smurstöð Geirsgötu:
Frá 8 til 18 alla virka daga.
Sími 551 1968.
Vertu tímanlega í því!
A
B
X
/
S
ÍA
9
0
2
1
4
2
7
Viltu a› bíllinn flinn haldi
betur út veturinn? Komdu
flá me› hann í vetrarsko›un
hjá fijónustustö› ESSO
vi› Geirsgötu
– í hjarta mi›bæjarins.
Áfram stelpur!
Opi› alla daga
frá 10.00 til 17.00
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur