Fréttablaðið - 01.10.2002, Qupperneq 11
11ÞRIÐJUDAGUR 1. október 2002
INNLENT
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUFRÉTTIR
VIÐSKIPTI Íslensk fyrirtæki sem
hafa ráðist í útrás á erlendum
mörkuðum hafa dregið vagninn í
vexti íslenskra
fyrirtækja. Ár-
mann Þorvaldsson,
f r a m k v æ m d a -
stjóri fyrirtækja-
sviðs Kaupþings,
bar saman hagnað
og markaðsvirði
fyrirtækja sem
eru á heimamark-
aði annars vegar
og útrásarfyrirtækja hins vegar.
Niðurstaðan er sú að útrásarfyr-
irtækin hafa margfaldast að um-
fangi, meðan hin hafa staðið í
stað. Þetta er meðal þess sem
kom fram á fundi Félags við-
skipta- og hagfræðinga um útrás
fyrirtækja.
Meðal fyrirlesara var Davíð
Scheving Thorsteinsson sem er
einn þeirra frumkvöðla sem
reynt hafa fyrir sér á erlendri
grund. Davíð miðlaði af reynslu
sinni og varaði við ofmati á eigin
ágæti. „Það er enginn skortur á
snilli í heiminum og það er held-
ur enginn skortur á óheiðarlegu
fólki.“ Sindri Sindrason, forstjóri
Pharmaco, rakti kaup fyrirtækis-
ins á Balkanpharma og þeim fjöl-
þættu og flóknu verkefnum sem
biðu nýrra eigenda.
Ármann gerði grein fyrir sam-
anburði á fyrirtækjum í úrvals-
vísitölu Kauphallar Íslands og
flokkaði þau í heimafyrirtæki og
útrásarfyrirtæki. Markaðsverð-
mæti heimafyrirtækjanna var 67
milljarðar í janúar 2001 en mark-
aðsvirði útrásarfyrirtækja var
um 40 milljarðar. Í dag er mark-
aðsvirði útrásarfyrirtækjanna
123 milljarðar en 69 milljarðar
hjá heimafyrirtækjunum. Á
tímabilinu hefur því markaðs-
verðmæti heimafyrirtækja auk-
ist um tvo milljarða en um 80
milljarða hjá útrásarfyrirtækj-
unum. Þegar horft er til hagnað-
ar er munurinn hlutfallslega
meiri útrásarfyrirtækjunum í
hag.
Ármann sagði að kaflaskipti
hefðu orðið í útrás fyrirtækja frá
árinu 2000, fram að þeim tíma
hefðu menn keypt fyrirtæki sem
voru í erfiðleikum og á útsölu. Sú
útrás hefði ekki skilað jafn miklu
og útrás síðustu ára sem hefði oft
og tíðum beinst að fyrirtækjum í
góðum rekstri. Ármann sagði að
fyrirtæki væru í dag mun dug-
legri við að leita ráðgjafar og
kanna áreiðanleika viðskipta.
Kostnaður við fyrirtækjakaup
hefði vaxið, en á móti kæmi að
betri árangur hefði náðst.
haflidi@frettabladid.is
BAGDAÐ, AP Nokkrir bandarískir
þingmenn, sem staddir eru í Írak,
hvetja bæði írösk og bandarísk
stjórnvöld til þess að trufla ekki
starfsemi vopnaeftirlits Samein-
uðu þjóðanna.
„Það er til leið til þess að leysa
þessa deilu án stríðs. Hún er sú að
Írakar trufli ekki og að Bandarík-
in trufli ekki vopnaeftirlitið,“
sagði David Bonior, demókrati frá
Michigan í Bandaríkjunum.
Flokksbróðir hans frá Was-
hington, Jim McDermott, tekur
undir þetta og segir að George W.
Bush forseti ætti að láta eiga sig
að reyna að steypa Saddam
Hussein af stóli. Nær væri að ein-
beita sér að því að Írakar afvopn-
ist.
„Að skipta um stjórn krefst
stríðs. Afvopnun er hægt að koma
í kring eftir diplómatískum leið-
um,“ sagði McDermott.
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna hittu fulltrúa Íraks í
Austurríki í gær til þess að ræða
við þá um framkvæmd vopnaeft-
irlitsins, sem vonast er til að geti
hafist á ný innan tíðar. Vopnaeftir-
litið krefst þess að fá óheftan að-
gang að öllum stöðum í Írak sem
þörf þykir krefja.
Bandarískir ráðamenn reyna
ákaft að fá Frakka, Rússa og Kín-
verja til þess að samþykkja álykt-
un í Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna, sem heimilar hernað gegn
Írak ef vopnaeftirlitið fær ekki að
athafna sig þar.
Viðgerðir við Reykjanes-bryggju í Ísafjarðardjúpi
hófust í gær, en steypa á utan á
allan landvegginn. Bryggjan í
Reykjanesi var um margra ára-
tuga skeið fastur viðkomustaður
Djúpbátsins Fagraness. bb.is
Rækjutogarinn Framnes varðfyrir vélarbilun í fyrradag er
skipið var að veiðum á svokölluð-
um Norðurkanti, um 50 sjómílur
norður af Horni. Togarinn Andey
dró skipið til hafnar á Ísafirði.
bb.is
Landsmót fuglaskoðara verðurhaldið á Hótel Höfn og í Pakk-
húsinu hefur verið sett upp sýn-
ingin Fuglar. Von er á fuglaskoð-
urum af öllu landinu á landsmót-
ið. horn.is
Sturla Böðvarsson samgöngu-ráðherra, og þingmenn Vest-
fjarða voru saman komnir á
Kleifaheiði milli Patreksfjarðar
og Barðastrandar er nýr vegur
var opnaður á föstudag. Við þetta
tækifæri sagði ráðherra að helst
þyrfti að hraða vegaframkvæmd-
um á Barðaströnd og allt til Gils-
fjarðar. bb.is
FJÖLMIÐLAR „Það eru miklar vænt-
ingar í gangi og við erum þess
fullvissir að hér sé um góða hug-
mynd að ræða,“ segir Þorsteinn
Gunnar Aðalsteinsson, einn að-
standenda nýs tímarits sem dreift
verður ókeypis í hvert hús í Hafn-
arfirði áður en langt um líður ef
alla áætlanir ganga eftir.
Með Þorsteini starfar Jakob
Bjarnar Grétarsson blaðamaður
og hann hefur þegar unnið tölu-
vert efni fyrir nýja tímaritið sem
kennt er við bókstafinn I og kem-
ur til með að heita það:
„Meðal efnis í fyrsta tölublað-
inu verður könnun sem gerð hefur
verið meðal bæjarbúa um hver sé
frægasti Hafnfirðingur allra
tíma,“ segir Jakob Bjarnar, en
neitar að gefa upp hver hreppi tit-
ilinn. Björgvin Halldórsson mun
vera heitur og Laddi líka.
Í næstu viku verður kynning-
arbæklingur sendur í hvert hús í
Hafnarfirði þar sem tímaritið
verður kynnt.
SENDINEFND ÍRAKS
Amir Al Sadi, fyrir miðri mynd, er yfirmaður sendinefndar Íraka sem ræðir nú við fulltrúa
vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Austurríki. Vopnaeftirlitsmennirnir eru að kanna vilja
Íraka til þess að heimila þeim aðgang að landinu.
Bandarískir þingmenn í Írak:
Ekki trufla
vopnaeftirlitið
AP
/R
U
D
I B
LA
H
A
NÝJA TÍMARITIÐ
Góð hugmynd - miklar væntingar
segja útgefendur.
Hafnarfjörður:
Tímarit á teikniborðinu
ÚTRÁS FYRIRTÆKJA
Davíð Scheving Thorsteinsson miðlaði af reynslu sinni við að ná tökum á erlendum mörkuðum á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær. Hann auglýsti eftir rómantískum stórhug
íslenskra fyrirtækja í sókn á erlenda markaði, en benti á að mörg ljón væru í veginum.
Útrásin dregur vagn-
inn í vexti markaðarins
Fyrirtæki sem hafa tekið áhættu og fjárfest í útlöndum hafa margfaldast að markaðsvirði
á undanförnum árum. Fyrirtæki eins og Össur, Pharmaco, Baugur og Bakkavör hafa vaxið
mikið. Rótgróin fyrirtæki á heimamarkaði eins og Eimskip, Skeljungur, Sjóvá-Almennar og
Ker hafa því sem næst staðið í stað.
Í dag er mark-
aðsvirði útrás-
arfyrirtækjanna
123 milljarðar
en 69 milljarð-
ar hjá heima-
fyrirtækjunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Vígin falla:
Ný lög í
reykmettuðu
Grikklandi
AÞENA, AP Grikkir eru einhver
mesta reykingaþjóð Evrópu og
reykja hvar sem þeim sýnist. Ný-
ar lög munu taka gildi þar í landi
á morgun sem banna reykingar á
ýmsum stöðum, allt frá biðstofum
til veitingahúsa. Veitingastöðum
verður gert að hafa helming hús-
næðisins reyklausan. Nætur-
klúbbar og kaffihús verða undan-
þegin reglunum.
Flestir spá því að erfitt verði að
innleiða nýju lögin. „Hjólin snúast
ekki í Grikklandi án reykinga. Fólk
mun ekki samþykkja þessi lög,“ er
haft eftir starfsmanni á ferðaskrif-
stofu, þar sem öskubakki er á
hverju skrifborði.
Ítvígang þurfti lögreglan íHafnarfirði að hafa afskipti af
tæplega tvítugum ungmennum
um helgina. Við leit í bílum
þeirra fannst lítilsháttar af fíkni-
efnum auk þess sem áhöld fund-
ust til neyslu þeirra.
Fimmtán ára ökumaður varstöðvaður af lögreglunni í
Hafnarfirði á sunnudagsmorgun.
Með í för var 14 ára vinkona
hans. Í ljós kom að bílnum hafði
verið stolið við Köldukinn í Hafn-
arfirði nóttina áður. Kveikjulás-
lyklar höfðu verið skildir eftir í
bílnum og hurðir ólæstar. Var því
greiður aðgangur fyrir ungmenn-
in.
Viðskiptavinur veitingahúss í mið-borginni reyndi að koma sér
undan að borga fyrir kvöldverðinn.
Kallað var eftir aðstoð lögreglu. Að
lokum sættist maðurinn á að greiða
reikninginn en þá tók lögreglumaður
eftir því að myndin á greiðslukort-
inu var gjörólík manninum með
veskið. Maðurinn, sem var ölvaður,
gat með engu móti útskýrt hvernig
stæði á því að umrætt kort væri
komið í hans vörslu. Gisti hann
fangageymslu um nóttina.
Sömu menn kveiktu í tvisvar sinn-um í fyrrinótt. Fyrst í bílhræi
sem stóð við hús í iðnaðarhverfi í
Hafnarfirði. Mátti litlu muna að eld-
urinn bærist í húsið. Þá var kveikt í
skreiðarhjalla í hrauninu við Krísu-
víkurveg. Þeir sem voru að verki
hafa ekki náðst.
Móðir eins árs gamals
bandarísks drengs:
Vill leyfa hon-
um að deyja
ORANGE, KALIFORNÍU, AP Móðir eins
árs gamals bandarísks drengs,
sem haldið er á lífi í öndunarvél,
vill að hann verði aftengdur vél-
inni og leyft að deyja. Faðir
drengsins, sem sakaður er um að
hafa hrist drenginn með þeim af-
leiðingum að hann fór í dá, vill
hins vegar halda í vonina um að
hann nái sér. Látist drengurinn,
sem heitir Christopher, eru líkur á
því að faðirinn verði ákærður fyr-
ir morð. Christopher hefur legið
hreyfingarlaus í öndunarvélinni
síðan 17. desember á síðasta ári.