Fréttablaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 2
2 11. október 2002 FÖSTUDAGUR
ERLENT
fordmondeo
Keyrðu ...
og upplifðu
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • brimborg.is
Pantaðu núna.
Nýr Ford Mondeo kostar frá 1.995.000 kr.
Komdu og keyrðu nýjan Ford Mondeo.
Vertu undir það búinn að vilja ekki láta hann frá þér.
ÖNGÞVEITI Í SVÍÞJÓÐ Enn á ný
slitnaði upp úr stjórnarmyndun-
arviðræðum Jafnaðarmanna og
Umhverfisflokksins í Svíþjóð.
Umhverfisflokkurinn hafnaði á
miðvikudag lokatilboði Jafnaðar-
flokksins, sem vill stuðning Um-
hverfisflokks og Vinstriflokks
fyrir minnihlutastjórn sína.
LÖGMAÐUR REKINN Hollenski
lögmaðurinn Michael Vladimiroff
var rekinn frá stríðsglæpadóm-
stól Sameinuðu þjóðanna í Haag.
Vladimiroff átti að gæta hags-
muna Slobodans Milosevic, fyrr-
verandi forseta Júgóslavíu, en
sagðist telja víst að Milosevic
fengi dóm.
FRAMBOÐ Kristján Pálsson, alþing-
ismaður mun skipa fyrsta sætið á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi, samkvæmt þeim hug-
myndum sem uppstillingarnefnd
kjördæmisráðs flokksins ræðir
nú. Uppstillingarnefndin þingaði í
gærkvöld þar sem tillögur að
skipan fjögurra efstu sæta listans
voru settar fram. Samkvæmt
þeim mun Drífa Hjartardóttir, al-
þingismaður skipa annað sætið,
Guðjón Hjörleifsson, fyrrverandi
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
það þriðja og Árni Ragnar Árna-
son, alþingismaður það fjórða. At-
hygli vekur að Kjartan Ólafsson
alþingismaður, er ekki meðal fjög-
urra efstu manna samkvæmt
þessum hugmyndum.
Heimildir blaðsins herma að
uppstillingarnefnd reyni að vinna
þessum tillögum fylgi. Ef menn
telja að sterkari leiðtogi en Krist-
ján Pálssson finnist fyrir flokkinn
í Suðurkjördæmi er hugmyndin
sú að hann færist niður um sæti,
ásamt þeim Drífu og Árna Ragn-
ari. Guðjón Hjörleifsson mun eft-
ir sem áður skipa þriðja sæti list-
ans.
Mjög skiptar skoðanir eru um
hvort þörf sé á stekari leiðtoga
eins og það er orðað en margir
hafa að undanförnu verið nefndir.
Þeirra á meðal Geir H. Haarde,
Þorsteinn Pálsson, Einar Oddur
Kristjánsson, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og Árni M.
Mathiesen. Öll hafa hins vegar
hafnað hugmyndinni.
KRISTJÁN
PÁLSSON
Líklegur til
að vera í
fyrsta sæti.
Uppstilling sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi:
Tillaga um Kristján
Pálsson í fyrsta sætið
Bankasalan:
Fundi frestað
STJÓRNMÁL Halldór Blöndal, for-
seti Alþingis, sagði í viðtali á
Stöð 2 að skoðun Ríkisendurskoð-
unar á störfum einkavæðingar-
nefndar eigi ekki að hafa áhrif á
væntanlega sölu á stórum hlut í
Landsbankanum. Það er þvert á
það sem Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra sagði á Al-
þingi. Össur Skarphéðinsson
gekk á Valgerði og svaraði hún
því til að engin sala yrði fyrr en
að Ríkisendurskoðun ljúki sinni
vinnu.
Heimildir blaðsins herma að
samningaviðræðum um söluna
hafi verið frestað fram í næstu
viku vegna ágreinings sem uppi
er um framgang hennar.
Vátryggingamiðlun:
Ísvá á barmi
gjaldþrots
VIÐSKIPTI Vátryggingamiðlunin
Ísvá rambar á barmi gjaldþrots,
en talið er að skuldir fyrirtæks-
ins séu á annað hundrað milljónir
króna. Í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu segir að núverandi
stjórn og framkvæmdastjóri hafi
fundað sleitulaust undanfarna
mánuði til að reyna að koma
rekstrinum í rétt horf.
Boðaður hefur verið hluthafa-
fundur í fyrirtækinu í næstu
viku, þar sem ákvarðanir um
framtíð félagsins verða teknar.
Ísvá hefur lagt leyfi sitt til vá-
tryggingamiðlunar inn til við-
skiptaráðuneytisins. Í fréttatil-
kynningunni segir að það hafi
engin áhrif á þá viðskiptasamn-
inga sem Ísvá hf. hefur miðlað og
haft milligöngu um. Stjórn Ísvá
hf. hefur gert tímabundið sam-
komulag við Tryggingu og ráð-
gjöf hf. um þjónustu við við-
skiptavini Ísvár.
VERÐKÖNNUN Bónus var í 24 tilvik-
um af 27 með lægsta grænmetis-
verðið samkvæmt nýrri könnun
verðlagseftirlits ASÍ. Í tveimur
tilvikum fékkst ekki viðkomandi
vara hjá Bónus. Munurinn á
hæsta og lægsta verði var í 13 til-
fellum meiri en 100% og þar af í
sex tilvikum meiri en 150% og
mestur á blaðlauk eða 354%. Ell-
efu-ellefu var oftast með hæsta
verðið eða í 13 tilvikum, Tíu-ell-
efu og Strax komu næst, en í 6 til-
vikum var verðið hæst hjá þeim.
ASÍ kannaði grænmetisverð í
12 verslunum á höfuðborgar-
svæðinu þann 2. október. Minnst-
ur er munur á hæsta og lægsta
verði 9% á hótellauk og aðeins í 7
tilvikum af 27 er munurinn undir
50%.
Síðasta grænmetiskönnun
sambandsins var framkvæmd 19.
júní. Þegar hver verslun fyrir sig
er skoðuð og niðurstaðan frá 19.
júní borin saman við nýju könnun-
ina kemur í ljós að verðið hefur
breyst í flestum verslunum. Mis-
jafnt er milli tegunda og verslana
hvort verð hefur hækkað eða
lækkað frá síðustu könnun.
MIKILL VERÐMUNUR
Munurinn á hæsta og lægsta grænmetis-
verði var í 13 tilfellum meiri en 100%
samkvæmt könnun ASÍ.
Allt að 354% verðmunur á grænmeti:
Verslun Bónus ódýrust
Eyrarbakki og Stokkseyri:
Pósturinn
hættir
Bæjarstjórn Árborgar segir Ís-
landspóst ætla að leggja af póst-
þjónustu á Eyrarbakka og Stokks-
eyri. Bæjarstjórnin segist munu
beita sér gegn þessu af fremsta
megni.
„Samkvæmt upplýsingum sem
bæjarstjórn hefur undir höndum
stendur til af hálfu Íslandspósts
að gera breytingar á póstþjónust-
unni á Eyrarbakka og Stokkseyri
frá og með næstu áramótum.
Einnig er staðan sú að starfsmað-
ur Íslandspósts á Stokkseyri læt-
ur af störfum vegna aldurs og
ekki stendur til að ráða nýjan
starfsmann,“ segir í bókun bæjar-
stjórnarinnar frá í gær.
Utanríkisráðherra:
Braut ekki
jafnréttislög
DÓMUR Utanríkisráðherra braut
ekki jafnréttislög þegar hann
skipaði Jóhann R. Benediktsson í
embætti sýslumanns á Keflavík-
urflugvelli. Þetta er niðurstaða
Hæstaréttar sem hnekkti þar með
dómi undirréttar. Kolbrún Sæv-
arsdóttir, sem líka sótti um, stefn-
di ríkinu og voru henni dæmdar
2,3 miljónir króna í bætur.
Meirihluti hæstaréttar, þrír
dómarar af fimm, taldi að sjónar-
mið utanríkisráðherra við veit-
ingu embættisins hefðu verið eðli-
leg og málefnaleg, umsækjendum
hefði ekki verið mismunað eftir
kynferði. Ríkið var því sýknað af
kröfum Kolbrúnar. Minnihluti
hæstaréttar áleit að skipa hefði
átt Kolbrúnu í starfið enda fáar
konur í stétt sýslumanna.
BYRGIÐ Mikil óvissa ríkir um fram-
tíð Byrgisins, meðferðarheimili,
sem starfrækt hefur verið í
Rockville við Sandgerði. Guð-
mundur Jónsson, forstöðumaður
Byrgisins, segir að í upphafi hafi
verið gerður tveggja ára leigu-
samningur við utanríkisráðuneyt-
ið um aðstöðuna. Fimmtán millj-
ónir króna áttu að duga til að
standsetja húsin og gera þau hæf
til stafseminnar.
„Við vorum varla komnir inn
þegar við þurftum að setja 20
milljónir í rafmagn og hitaveitu.
Þá þurfti að láta teikna húsnæði
upp á nýtt því þau þóttu ekki sam-
ræmast íslenskum reglugerðum.
Fyrr en varði var ég kominn í
byggingarframkvæmdir upp á 80
milljónir krónur.“ Guðmundur
segist hafa verið samningslaus í
tvö ár. Hann fái engin svör frá ut-
anríkisráðuneytinu nema að yfir-
vofandi sé að þeir þurfi jafnvel að
fara frá Rockville.
Byrgið hefur, samkvæmt upp-
lýsingum frá félagsmálaráðuneyt-
inu, ekki verið með þjónustu-
samning vegna óvissu um framtíð
rekstursins í Sandgerði. Fram til
þessa hefur verið gert ráð fyrir
fjárframlögum úr fjárlögum auk
viðbótafjárupphæðar úr fjárauka-
lögum, í kringum 20 milljónir
króna.
Kristján Pálsson alþingismað-
ur kom með fyrirspurn á Alþingi
um stöðu Byrgisins og hverjir
væru ábyrgir fyrir skuldasöfnun
meðferðarheimilisins. „Það mátti
skilja orð utanríkisráðuneytisins
þannig að framtíð Byrgisins yrði í
Rockville. Verði svo ekki verður
ráðuneytið að koma að lausn máls-
ins,“ sagði Kristján í samtali við
Fréttablaðið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Agli Heiðari Traustasyni, aðstoð-
armanni utanríkisráðherra, hefur
verið skipaður samráðshópur um
framtíð Byrgisins. Hann á sæti í
þeim hópi ásamt fulltrúa frá fé-
lagsmála- og heilbrigðisráðuneyt-
inu. Hann segir enga niðurstöðu
komna í málið. Hann viðurkenndi
að kappkostað yrði að starfsemi
Byrgisins héldi áfram þó svo að
flytja þurfi frá Rockville. Stefnt
væri að því að samráðshópurinn
kæmi saman sem fyrst svo hægt
verði að fá lausn mála.
kolbrun@frettabladid.is
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Guðmundur segir að af þeim fjárupphæðum sem komið hafi frá ríkinu frá því árið 1996
hafi 2,5 milljónir farið í beinan rekstur. Tugir milljóna hafi endað í byggingarframkvæmd-
um. Enn berist kröfur frá utanríkisráðuneytinu um hinar ýmsu lagfæringar þrátt fyrir óvissu
um framtíð Byrgisins á Rockville-svæðinu.
Óvissa ríkir um
framtíð Byrgisins
Óvissuástand ríkir um hvort Byrgið verði áfram í Sandgerði.
Guðmundur Jónsson segir 80 milljónir krónur hafa farið í viðhald
og lagfæringar á húsnæðum. Enginn þjónustusamningur gerður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Sjávarútvegsfyrirtæki
borga best:
Um 680.000
í meðallaun
VIÐSKIPTI Sjávarútvegsfyrirtækið
Bergur-Huginn ehf. í Vestmanna-
eyjum borgar hæstu launin að
meðaltali eða um 680 þúsund
krónur að meðaltali á mánuði,
samkvæmt úttekt Frjálsrar versl-
unar. Gullberg ehf. á Seyðisfirði
kemur þar næst, en þar eru launin
um 610 þúsund á mánuði.
Alls eru átta af þeim tíu fyrir-
tækjum sem borga hæstu launin
sjávarútvegsfyrirtæki. Hin tvö
eru Eignarhaldsfélag Alþýðu-
bankans ehf. sem borgar að með-
altali 495 þúsund krónur í laun og
Kaupþing banki hf. sem borgar
um 435 þúsund.
BANDARÍKJAÞING
Bush má beita hervaldi gegn Írak.
Bandaríkin:
Þingið leyfir
hervald
STRÍÐ Fulltrúadeild bandaríska
þingsins samþykkti í gær að veita
George W. Bush forseta leyfi til
að beita hervaldi í Írak. Leyfið er
háð því að Sameinuðu þjóðunum
mistakist að fá Íraka til að afvopn-
ast.
Alls samþykktu 296 ályktun-
ina, en 133 greiddu atkvæði gegn
henni. Sex repúblíkanar greiddu
atkvæði gegn tillögunni en 215
með henni. Hins vegar greiddu
126 demókratar atkvæði gegn til-
lögunni en 81 með henni.