Fréttablaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 4
WASHINGTON, AP Tveggja manna er leitað í tengslum við morð sem framið var á miðvikudagskvöld á bensínstöð í Virginíuríki, um það bil 50 kílómetra vestur af Was- hington í Bandaríkjunum. Menn- irnir tveir sáust aka á brott í hvítri bifreið af gerðinni Dodge Caravan eftir morðið á bensínstöðinni. Grunur leikur á því að þarna séu sömu menn að verki og skotið hafa á átta aðra undanfarna daga í Was- hington og nágrenni. Sex þeirra lét- ust en tvö voru flutt á sjúkrahús. Maðurinn, sem myrtur var á miðvikudaginn, var nýbúinn að borga fyrir bensín á bílinn sinn þegar hann varð fyrir skoti. Eins og í hin skiptin var skotið á hann úr töluverðri fjarlægð. Kona, sem varð fyrir skoti á föstudag, var útskrifuð af sjúkra- húsi á miðvikudaginn. Þrettán ára drengur, sem varð fyrir skoti á mánudaginn, liggur hins vegar enn þungt haldinn á sjúkrahúsi. Morðinginn virðist hafa skilið eftir sig skilaboð á mánudaginn. Tarotspil fannst á vettvangi skammt frá tómu skothylki. Á spil- inu stóðu þessi orð: „Kæri lögreglu- þjónn, ég er Guð.“ Charles Moose, lögreglustjóri í Montgomerysýslu, gaf í skyn í gær heldur reiðilega að upplýsingum um þessi skilaboð hefði verið lekið til fjölmiðla án heimildar frá lög- reglunni. Í gær skýrði dagblaðið Was- hington Post frá því að fyrir neðan þessi skilaboð hefði verið hand- skrifuð beiðni um að fjölmiðlum verði ekki sagt frá spilinu. Lögregl- an virðist hafa gert sér vonir um, að morðinginn hefði haft samband aftur ef upplýsingunum hefði ekki verið lekið til fjölmiðla. Ekki er óþekkt að fjöldamorð- ingjar skilji eftir sig skilaboð af ýmsu tagi. Hinn alræmdi banda- ríski morðingi David Berkovitz, sem myrti sex manns á árunum 1976-77, lét lögregluna finna eftir sig skilaboð, þar sem á stóð: „Ég er skrýmsli. Ég er sonur Sáms.“ Þessi orð komust fljótlega í fjölmiðla og gengur Berkovitz enn undir nafn- inu Sonur Sáms. „Hann sagði að sér þætti örvan- di að sjá bréfin sín í blöðunum,“ segir Robert K. Ressler, fyrrver- andi starfsmaður bandarísku alrík- islögreglunnar, sem yfirheyrði Berkovitz á sínum tíma. „Jafnvel þótt hann einn viti það, þá veitir al- ræmd frægðin misheppnuðum manni vissa fullnægju. Þetta er að- ferð til að hafa völd og áhrif í þjóð- félaginu.“  4 11. október 2002 FÖSTUDAGUR SJÁVARÚTVEGUR ALÞINGI LEIÐRÉTT ALÞINGI „Það er mjög alvarlegt mál, og væri það í öllum þjóðþing- um, þegar forsetar þinga láta frá sér ummæli af þessu tagi,“ sagði Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingu, við upphaf þingfundar í gær. Hann gerði athugasemd við um- mæli Halldórs Blöndals, forseta Alþingis, þess efnis að forstöðumaður sam- keppnissviðs Samkeppnis- stofnunar hefði farið með rangt mál og brugðist emb- ættisskyldum sínum. Lúðvík sagði að svo virt- ist sem karaktereinkenni þingforsetans yllu því að hann kæmist upp með ummæli sem enginn annar kæmist upp með. Með þessu hefði Halldór op- inberað vanþekkingu sína á því máli sem hann hefði verið að ræða. Lúðvík kvaðst harma um- mæli þingforsetans en sagði Halldór sem betur fer mest megnis starfa á ábyrgð þingmeirihlutans. Halldór var ekki við um- ræðuna. Hann lagði hins vegar fram fyrirspurn til viðskiptaráðherra. Þar spurði hann hvað forstöðu- maðurinn hefði átt við í við- tali í DV þegar hann sagði að stefnubreyting hafi orðið hjá stóru keðjunum á mat- vælamarkaði í samskiptum við birgja.  Ekki stendur til að tengja fyrir-huguð gatnamót Reykjanes- brautar og Stekkjarbakka við Sundabraut, eins og sagði í Fréttablaðinu á þriðjudag. Ólafur Bjarnason, yfirverkfræðingur borgarverkfræðings, sagði hins vegar að mögulega yrði hægt að tengja þau göngum undir Foss- voginn. Flugumferðarstjórar: Við stjórn í Pristina ALÞJÓÐASTARF Átta íslenskir flug- umferðarstjórar eru farnir til Kosovo. Þeir taka við flugumferð- arstjórn flugvallarins í Pristina úr höndum ítalska flughersins. Flug- umferðarstjórarnir fara á vegum Íslensku friðargæslunnar. Flug- umferðarstjórnin í Pristina er hluti af starfi alþjóðaliðs Atlants- hafsbandalagsins. Auk þess að flugumferðar- stjórnar verður unnið að öflun tækja og búnaðar sem eru nauð- synleg fyrir rekstur flugvallarins. Þá verða innlendir starfsmenn þjálfaðir til að taka við yfirstjórn flugvallarins þegar fram í sækir.  VARAMAÐUR TEKUR SÆTI Ólafía Ingólfsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suður- landskjördæmi, hefur tekið sæti á Alþingi. Hún kemur inn í stað Ís- ólfs Gylfa Pálmasonar. MEÐFERÐARDEILD GEÐSJÚKRA AFBROTAMANNA Ísólfur Gylfi Pálmason hefur lagt fram þingsá- lyktunartillögu um að hafin verði undirbúningur að uppbyggingu meðferðardeildar fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn. Hún verði í tengslum við Litla-Hraun, réttar- geðdeildina að Sogni og Heilbrigð- isstofnun Selfoss. GRÆNLAND Fyrrverandi íbúar í Qa- anaaq á Grænlandi, sem fyrir nærri hálfri öld voru fluttir þaðan nauðungarflutningum til þess að bandaríski herinn fengi nægilegt athafnasvigrúm í herstöðinni Thule, vilja fara með mál sitt fyrir hæstarétt í Danmörku. Ekki er þó útlit fyrir að þeim takist það. Íbúarnir brottfluttu fór fram á að danska ríkið felldi niður málskostnað í þessu máli, en því var hafnað. Til þess að málið geti farið fyrir hæstarétt verður því að reiða fram 6,3 milljónir danskra króna, eða nærri 73 milljónir ís- lenskra króna. Þessa upphæð ræð- ur fólkið frá Qaanaaq engan veginn við að greiða. Þeir hafa þó ekki enn gefist upp og fara nú fram á að Jon- athan Motzfeld, formaður græn- lensku landstjórnarinnar, ræði málið við Dani. Frá þessu er skýrt á grænlenska fréttavegnum Atagu. Þar segir ein- nig að Motzfeld líti svo á að þetta mál komi honum ekkert við. Það sé eingöngu á milli íbúanna frá Qa- anaaq og danska ríkisins.  Tveggja manna leitað Morðtilræði skyttunnar í Bandaríkjunum orðin níu. Tveir menn sáust aka brott á hvítum bíl. Morðinginn vildi ekki að skilaboð sín til lögreglunnar rötuðu í fjölmiðla. AP /E D B ET Z LEIFAR BANDARÍSKA HERSINS Á GRÆNLANDI Fyrir nærri hálfri öld voru íbúar í Qaanaaq fluttir nauðungarflutningum til þess að hliðra til fyrir bandaríska hernum. Þeir eru enn að leita réttar síns. Thulefólkið á Grænlandi: Gengur illa að leita réttar síns FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G Ó HALLDÓR BLÖNDAL Vill að viðskiptaráðherra skýri hvað liggur að baki orðum starfsmanns Samkeppnis- stofnunar. LÚÐVÍK BERGVINSSON Gagnrýndi Halldór Blöndal fyrir ásakanir hans í garð starfsmanns Samkeppnis- stofnunar. Þingforseti atyrtur úr ræðustól: Kemst upp með meira en aðrir LÖGREGLAN Á VETTVANGI MORÐS Lögreglan í bænum Manassas í Virginíuríki, skammt frá Washington, leitaði ákaft að vísbendingum á bensínstöðinni þar sem maður var myrtur í fyrrakvöld. Sprengingin í Jemen: Líklega hryðjuverk AL MUKALLA, JEMEN, AP Stjórnvöld í Jemen útiloka ekki lengur að sprengingin í franska olíuskipinu Limburg hafi verið hryðjuverk. Bæði Frakkar og Jemenar vinna að rannsókn málsins. Báðar þjóðir hafa samþykkt að starfa saman að öllum þáttum rannsókn- arinnar. „Við höldum öllum dyrum opn- um og erum að leita sannleikans,“ sagði Saeed Yafaei, samgönguráð- herra í Jemen, sem fer með yfir- stjórn rannsóknarinnar. Stjórn- völd í Jemen vilja hrista af sér það orð, að landið sé gróðrarstía hryðjuverka. Þau segjast standa af heilum hug með Bandaríkjun- um í stríðinu gegn hryðjuverkum. Í gær kom fram í arabískum fjölmiðlum yfirlýsing frá Aden- Abyan, sem eru samtök herskárra múslima í Jemen. Samtökin segj- ast bera ábyrgð á sprengingunni í skipinu síðastliðinn sunnudag. Hubert Ardillon, skipstjóri á Limburg, hefur frá upphafi sagst sannfærður um að þetta hafi ver- ið vísvitandi gert. Hann sagði að sést hefði til báts sem nálgaðist skipið skömmu áður en spreng- ingin varð. Bernard Valero, talsmaður franska utanríkisráðuneytisins, ítrekaði þó í gær þá afstöðu fran- skra stjórnvalda að enn væri of snemmt að slá neinu föstu um or- sakir sprengingarinnar. Rann- sóknin væri enn of skammt á veg komin.  GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 87.19 -0.18% Sterlingspund 136.39 0.60% Dönsk króna 11.61 0.72% Evra 86.26 0.72% Gengisvístala krónu 129,63 KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 366 Velta 9,3 m ICEX-15 1.310 -0,23% Mestu viðskipti Pharmaco hf. 397.077.000 Búnaðarbankinn hf. 101.098.000 Landsbankinn hf. 75.888.000 Mesta hækkun Skýrr hf. 4,76% Kögun hf. 4.59% Landsbankinn hf. 2,17% Mesta lækkun Hraðfrystihús Eskifjarðar -6,10% Össur hf. -2.94% Búnaðarbankinn hf. -1.02% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7533,8 3,40% Nsdaq*: 1163,5 4,43% FTSE: 3777,3 0,90% DAX: 2733,2 5,20% Nikkei: 8439,6 -1,20% S&P*: 801,4 3,20% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 BARÐI KOMINN HEIM Barði, nýr skuttogari Síldarvinnslunnar er kominn til heimahafnar. Barði var upphaflega gerður út af Skipa- kletti og hét þá Snæfugl. Síðar var hann gerður út undir nafninu Norma Mary í Skotlandi. svn.is KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is 72,4% Eru miklar líkur á því að ríkisstjórnin klofni fyrir kosningar? Spurning dagsins í dag: Hvernig fer leikur Íslands og Skotlands? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is Nei 27,6%Já RÍKISSTJÓRNIN HELDUR Mikill meirihluta kjósenda á frett.is telur ekki miklar líkur á því að ríkisstjórn Íslands klofni fyrir kosningar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.