Fréttablaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 19
NÚTÍMASAGA Enn á ný kemur fram
fullyrðing um að Anastasia Roma-
nova, yngsta dóttir Roma-
novs Rússakeisara, sé á
lífi, rúmlega hundrað ára
gömul. Þessu heldur rúss-
neski sagnfræðingurinn
Vladelen Sirotkin fram, að
því er fram kemur í frétt
frá rússnesku fréttastof-
unni Izvestiya.
Sirotkin segir að sér-
fræðingar í Japan og
Þýskalandi hafi komist að
því að háöldruð kona í
Abkasíu, Natalia Pelikhodze að
nafni, sé engin önnur en Anastasía.
Bæði erfðafræðingar og rithanda-
sérfræðingar hafi staðfest þetta.
Sirotkin heldur því fram að
Anastasía hafi sloppið þegar fjöl-
skylda hennar var myrt í bylt-
ingunni árið 1918. Guðfaðir
Anastasíu, Verkhovsky að
nafni sem starfaði í hinni ill-
ræmdu leyniþjónustu bylting-
arstjórnarinnar í Rússlandi,
hafi laumað henni út úr hús-
inu, þar sem fjölskyldan var í
haldi, kvöldið áður en aftakan
fór fram.
Samkvæmt Sirotkin gátu
þau falið sig í Jekaterínborg
og héldu síðar suður á bóginn.
Þau hafi allar götur síðan dvalist í
Abkasíu, sem nú er sjálfstjórnarlýð-
veldi í Georgíu við strendur Svarta-
hafs.
FÖSTUDAGUR 11. október 2002
1.190 kr./m2
Lamella parket
Eik Country Verð 2.890 kr./m2
Beyki Standard Verð 2.990 kr./m2
Merbau Classic Verð 3.995 kr./m2
Heimilisdúkar
Verð frá 1.150 kr./m2
Vegg og gólfflísar
á eldhús og bað.
Dublin
1.690 kr./m2
Verð áður: 1.990 kr.
Verð áður: 1.690 kr.
1.290 kr./m2
Verð áður: 1.695 kr.
Mikið úrval af filtteppum.
Ný sending af
gegnheilum gólfflísum.
Tilvalið fyrir þvottahús,
bílskúra og svalir.
Verð 299 kr./m2
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
18
79
0
0
9/
20
02
Gólfefnadagar
25-40% afsláttur
Imre Kertész hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels:
Hversdagslíf í
hryllingi sögunnar
BÓKMENNTIR Ungverski rithöfund-
urinn Imre Kertész hlýtur
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum
þetta árið. Norska Nóbelsverð-
launanefndin segir að hann fái
verðlaunin fyrir að „verja brot-
hætta reynslu einstaklingsins
gegn tilviljunarkenndri villi-
mennsku sögunnar.“
Fyrsta skáldsaga hans kom út
árið 1975 og heitir Sorstalanság,
sem gæti þýtt 'maður án örlaga'.
Hún fjallar um mann sem lendir í
útrýmingarbúðum nasista en líð-
ur þar ekki illa heldur tekur
hversdagslegum hryllingi þeirra
sem nokkuð sjálfsögðum hlut.
Kertész er fæddur 9. nóvem-
ber árið 1929. Hann er sjálfur af
gyðingaættum og lenti í útrým-
ingarbúðunum í Auschwitz og
Buchenwald.
Í tilkynningu sænsku Nóbels-
nefndarinnar segir að stíll hins
ungverska rithöfundar minni
helst á „þykkt þyrnigerði“, hann
sé „þéttur og þyrnum stráður fyr-
ir grunlausa gesti.“ Hins vegar
íþyngi hann lesendum ekki með
„tilfinningakvöð“ heldur veiti
þeim „einstakt frelsi til að hugsa.“
Að venju verða Nóbelsverð-
launin afhent 10. desember.
Rússneskur sagnfræðingur vekur upp gamlan draug:
Anastasía sögð á lífi
ANASTASIA
ROMANOV
Ótal sögur hafa
komist á kreik um
að hún hafi kom-
ist undan.
IMRE KERTÉSZ
Hann segist aldrei skrifa bók án þess að
hugsa um reynslu sína í útrýmingarbúðum
nasista.
Í dag – föstudag kl. 16-19
Gengið inn að utan baka til við hliðina á Flugleiðum
Kringlunni
Lagersala
Allt að
90%
afsláttur