Fréttablaðið - 11.10.2002, Qupperneq 16
11. október 2002 FÖSTUDAGUR
LEIKHÚS Hafnarfjarðarleikhúsið
frumsýnir leikritið Grettissaga -
saga Grettis, annað kvöld. Það er
enginn hægðarleikur að gera
leikrit upp úr Íslendingasögu en
Hafnarfjarðaleikhúsið tók
áskoruninni og setti sér það
markmið að koma ekki sögunni
til skila, ásamt ríkulegu orðfæri,
siðferði og pólitík sögutímans.
Hilmar Jónsson leikstýrir verk-
inu en hann hefur lengi gengið
með þann draum að koma
Grettlu á fjalirnar. „Þetta er
leikrit en ekki leikgerð Grettis-
sögu. Við köllum leikritið Grett-
issaga - saga Grettis af kurteisi
við þá sem eiga þessa miklu bók
í hjarta sínu. Það er auðvitað
aldrei hægt að gera Grettissögu
fullkomin skil og við þjöppum
persónugalleríinu saman og
reynum að gera þetta aðgengi-
legt en höldum flestu því til haga
sem hann lendir í. Þetta er sem
sagt leikrit sem er byggt á Grett-
issögu.“
Hilmar leitast við að fylgja
Gretti eftir jafnt í ógöngum hans
sem sigrum og þó Grettla sé á
vissan hátt harmsaga telja Hafn-
firðingarnir margt í henni bein-
línis kalla á gamansama úr-
vinnslu. Þeir sem sáu Birting og
Síðasta bæinn í dalnum vita því
væntanlega hvað klukkan slær
en það er sama listafólkið sem
kemur að þessari sýningu með
Hilmar í broddi fylkingar.
Það gengur mikið á hjá Gretti
og Hilmar segir öllum meðulum
leikhússins beitt til að koma
stemningunni til skila. „Það er
valinn maður í hverju rúmi og
við lítum svo á að við séum að
búa til leiksýningar en ekki að
setja upp leikrit.“
Hilmar verður leyndardóms-
fullur þegar talið berst að
draugnum Glámi. „Glámur er
draugur og því ekki í mannlegri
mynd. Hann er því bæði andlegs-
og líkamlegs eðlis í sýningunni og
það er leynigestur sem bregður
sér í hlutverk hans.“
Hilmar telur litla hættu á því
að sýningin muni fara fyrir
brjóstið á einlægum aðdáendum
sögunnar. „Fjöldi listamanna hef-
ur sótt innblástur í Grettissögu.
Verk þeirra koma auðvitað aldrei
í staðinn fyrir söguna og ég vona
bara að sem flestir gleðjist yfir
því að leikhúsið gangi til þessa
mikla verks og nálgist það með
opnum hug og hjarta. Við erum
öll mjög stolt af verkefninu, fyrir
utan það að það er bara svo gam-
an að geta boðið upp á alvöru ís-
lenska klassík árið 2002.“
thorarinn@frettabladid.is
Gæfa, gjörvuleiki
og bölvað ólán
Hafnarfjarðarleikhúsið setur upp leikrit um hetjuna og ógæfumann-
inn Gretti Ásmundarson. Hilmar Örn Hilmarsson semur tónlistina í
verkinu og Hilmar Jónsson leikstýrir.
SAGA GRETTIS
Gunnar Helgason, Björk Jakobsdóttir, Erling Jóhannesson og Jón Páll Eyjólfsson leika í
sýningunni ásamt hinum nýútskrifuðu Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur og Gísla Pétri Hinriks-
syni sem fer með hlutverk Grettis.
LEIKHÚS
20.00 Kvöldsýning á gamansöngleikn-
um Honk! Ljóti andarunginn.
Sýndur á stóra sviði Borgarleik-
hússins.
20.00 Gesturinn eftir Eric Emmanuel
Schmitt sýnt á litla sviði Borgar-
leikhússins. Síðustu sýningar.
20.00 Splatterleikritið Jón og Hólmfríð-
ur, frekar erótískt leikrit, sýnt á
Nýja sviði Borgarleikhússins
20.00 Fullkomið brúðkaup, samstarfs-
sýning framhaldsskólanna, sýnt í
Loftkastalanum.
20.00 Arthúr Björgvin Bollason stýrir
rangeyskum bændum í söng-
leiknum Gunnari á Hlíðarenda.
Sýndur í Ketilshúsinu á Akureyri.
Uppselt er á sýningu Halla og Ladda,
Hætt-a-telja, sem sýnd er í Loftkastal-
anum.
21.00 og 23.00 Bráðfyndnar Beyglur
með öllu eru sýndar í Iðnó.
SKEMMTANIR
22.00 Harmonikkuball í Ásgarði,
Glæsibæ. Félagar úr Harmonikku-
félagi Reykjavíkur og Ragnheiður
Hauksdóttir leika fyrir dansi.
Liz Gammon leikur á píanó og syngur
fyrir gesti á öllum aldri föstudags- og
laugardagskvöld á Ara í Ögri.
Sniglabandið leikur á Barnum, áður Ve-
gas.
DJ Kári og DJ Benni spila á Cafe 22.
Léttir Sprettir hefja leikinn á Kringlu-
kránni og spila fram á nótt.
Rokksveitin Fjandakornið öðru nafni
EXIST leikur á Cafe Amsterdam.
Dj Andrea Jónsdóttir sér um stuðið á
Café Dillon.
Andy Wells spilar fyrir gesti á Cafe
Romance.
Gammel Dansk leikur á Catalínu.
Ómar Hlynsson frá Siglufirði leikur á
Celtic Cross.
Fídel + Kimono leika á Grandrokk.
Sixties spilar á Kaffi Reykjavík.
Stórsveit Ásgeirs Páls leikur á Gullöld-
inni.
Helgi Björns og félagar í SSSÓL leika á
Players-sport bar.
Hljómsveitin Sín leikur á Ránni í
Reykjanesbæ.
Djúpulaugarbandið Mát leikur á Kaffi
Duus, Keflavík.
Dj Skuggabaldur leikur á Gunnukaffi,
Hvammstanga.
Hljómsveit Friðjóns Jóhannssonar
skemmtir á Odd-vitanum Akureyri.
Hljómsveitin Einn & sjötíu skemmtir á
staðnum Við pollinn á Akureyri.
Hljómsveitin Spútnik með Kristján Gísla
í fararbroddi heldur uppi fjörinu á Kaffi
Krók, Sauðárkróki.
Buff spila á Félagsheimilinu Bolungar-
vík.
Í svörtum fötum spilar á Gauk á
stöng.
Írafár leikur á Herðubreið, Seyðisfirði.
SÝNINGAR
Agóra, fagsýning þekkingariðnaðarins,
stendur yfir í Laugardalshöll. Í dag er
sýningin ætluð stjórnendum og sérfræð-
ingum úr atvinnulífinu. Á morgun verður
hún opin almenningi.
Kristján Logason stendur fyrir ljós-
myndasýningunni Stórt skref í salnum
Íslensk grafík. Sýningin stendur til 20.
október og er opin fimmtudaga til
sunnudaga frá klukkan 14.00-18.00.
Svava Björnsdóttir sýnir verk á mynd-
vegg Maríellu að Skólavörðustíg 12. Sýn-
ingin stendur til 9. nóvember.
Sýning á myndskreytingum úr nýútgefnu
ritsafni Snorra Sturlusonar stendur yfir í
Skála við Alþingishúsið. Sýningin er opin
frá klukkan 10 til 12 og 13 til 16 alla
virka daga og stendur til 18. október.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð
Pizza 67 Austurveri
Háaleitisbraut 68 sími 800 6767
16“ pizza m/2 áleggs-
tegundum á 990 kr.
frítt hvítlauksbrauð fylgir með.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI