Fréttablaðið - 11.10.2002, Qupperneq 22
22 11. október 2002 FÖSTUDAGUR
VEÐUR
Það er alger óþarfi að láta rign-ingu slá sig út af laginu um
helgina. Betra er að nota tækifær-
ið og velta sér upp úr vatni. Fara
út að ganga í rigningu til dæmis,
ganga jafnvel í næstu sundlaug og
fá sér sundsprett. Drekka vatn á
meðan horft er á landsleikinn.
Leigja síðan snilldarmyndina
Singing in the Rain. Njóta sumsé
lífsins í helgarrigningunni.
Ástæðan fyrir því að við erumsamankomnir enn og aftur er
útgáfa fimmtíu laga geisladisks,
„Það skánar ekki úr þessu,“ segir
Helgi Pétursson sem er eins og
kunnugt er einn meðlima Ríó tríó
sem stofnað var árið 1967 og hefur
verið eitt ástsælasta tríó landsins.
Í tilefni útgáfunnar verða haldnir
tónleikar í Salnum í Kópavogi í
kvöld og á morgun.
Í Kópavogi eru einmitt æsku-
slóðir hans og Ólafs Þórðarsonar.
„Leiðir okkar Óla lágu saman þeg-
ar við voru níu ára og hann flutti í
húsið við hliðina á mér. Óli var
alltaf gutlandi á gítar og saman
hlutstuðum við á Kanann og Radíó
Lúxemborg. Við vorum ófeimnir
við að syngja og rödduðum. Svo
sungu mæður okkar mikið og
kenndu okkur alls konar lög.“ Þeg-
ar komið var í framhaldsskóla seg-
ir Helgi hlutina hafa tekið á sig
aðra mynd. „Óli var alltaf að draga
að sér menn og spila. Það var meiri
tilviljun að ég lenti í þessu og end-
aði með því að ég keypti mér
kontrabassa. Þótti ómögulegt að
standa bara og syngja. Fyrir þann
tíma hafði ég aldrei leikið á hljóð-
færi og er spilamennska mín í
besta falli umdeild. En einhvern
veginn hefur mér tekist að hanga
með,“ segir Helgi og hlær.
Helgi segir að með geisladiskn-
um fylgi mikill fróðleikur og
myndir sem bæði hafi birst opin-
berlega og úr einkasafni. Þeir fé-
lagar hafi síðan rifjað upp tilurð
laganna og minningarbrot tengd-
um þeim. „Ein sagan sem við rifj-
uðum upp var í kringum laga-
syrpuna Ástarsaga. Þetta er sjö
mínútna löng syrpa sem hefst á
„Hann var á leiðinni á ball...“.
Yfirbragð tónleikanna verður
einfalt segir Helgi. Leikin verði í
kringum þrjátíu lög og kappkostað
að ná upp gamalli stemmingu.
Helgi Pétursson stígur á stokk í
Salnum í kvöld og annað kvöld ásamt
félögum sínum í Ríó tríó.
Persónan
Það skánar ekki úr þessu
Rannveig Guðmundsdóttir á íharðri baráttu við Guðmund
Árna Stefánsson um efsta sætið á
lista Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæminu. Hún hefur verið
talsmaður Samfylkingarinnar í
umræðum um tillögu flokksins um
að kanna ástæður þess að matar-
verð er 70% dýrara hér en í lönd-
um ESB. Fá mál hafa vakið eins
mikla athygli í upphafi þings. Fyr-
ir bragðið hefur Rannveig verið
mjög áberandi í öllum fjölmiðlum.
Guðmundur Árni mun hins vegar
hafa talið sig svo öruggan að hann
fór í síðbúið frí með eiginkonu
sinni, forseta bæjarstjórnar í
Hafnarfirði. Stuðningsmenn Rann-
veigar hrósa happi og segja ferða-
lag Guðmundar alvarlegan mis-
reikning á stöðunni og framganga
Rannveigar í matarverðsmálinu
hafi gjörbreytt stöðu hennar til
hins betra.
Heiðnar konur verða áberandi ínóvemberhefti Mannlífs ása-
trúarmönnum og -konum til mikill-
ar ánægju. Rætt verður við val-
kyrjurnar Jónínu Kristínu Berg,
allsherjargoða, Láru Jónu Þor-
steinsdóttur, leikskóla- og sérkenn-
ara, Guðrúnu Magnúsdóttur, lista-
konu og skáld, Grétu Hauksdóttur,
nema í hönnun og Heiðrúnu Bergs-
dóttur nema í þjóðfræði. Blaðakon-
an galvaska Jóhanna Harðardóttir
tók viðtölin við heiðnu konurnar
sem lýsa viðhorfum sínum til lífs-
ins í fjörugu spjalli. Ásatrúarfólk
hefur hingað til ekki lagt sig fram
um að halda trú sinni og lífsskoð-
unum að öðrum en í fréttabréfi fé-
lags þeirra er heiðingjum bent á að
láta blaðið ekki fram hjá sér fara
og „endilega að láta það liggja
frammi fyrir sem flestra augum
því þessar konur séu skrautfjöður
í hatt heiðni á Íslandi.“
JARÐARFARIR
13.30 Ásdís Þóra Kolbeinsdóttir, Dals-
byggð 4, Garðabæ, verður jarð-
sungin frá Garðakirkju.
13.30 Guðný Magnúsdóttir, Bergstaða-
stræti 65, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Hallgrímskirkju.
13.30 Jóhann Benediktsson, Eyrarlandi,
Eyjafjarðarsveit, verður jarðsung-
inn frá Kaupangskirkju.
13.30 Jón Már Þorvaldsson, prentari,
verður jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju.
13.30 Martina Erna Sigfriedsdóttir,
Hamrabergi 24, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju.
14.00 Sigríður Ingibjörnsdóttir frá
Flankastöðum, Sandgerði, verður
jarðsungin frá Útskálakirkju.
15.00 Anna Ingadóttir, Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
15.00 Kristján Albertsson, Jófríðar-
staðavegi 10, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn fá Hafnarfjarðarkirkju.
15.00 Sveinbjörg Sverrisdóttir, Brekku-
stíg 33, Njarðvík verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
ANDLÁT
Kjartan Þórir Elíasson, Suðurbraut 8,
Hafnarfirði, lést 4. október. Útförin hefur
farið fram.
FÓLK Í FRÉTTUM TÍMAMÓT
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
læknar hyggjast ekki hætta að
ávísa hormónum til kvenna.
Friðsælt verður því enn um sinn.
Leiðrétting
Allt í gildi!
ekkert
brudl-
afsláttur við kassann
Úrbeinaðar ferskar
kjúklingabringur
Verð nú
Merkt verð 2025
1316kr.kg
kr.
Ferskir kjúklingaleggir
Verð nú
Merkt verð
519kr.kg
kr.799
T
ilb
oð
in
gi
ld
a
í
da
g,
fö
st
ud
ag
eð
a
á
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
L
a
n
d
lis
t
Kjúklingar á góðu verði!
Opnum
klukkan
tíu!
Opið til hálf átta í kvöld
SAGA DAGSINS
11. OKTÓBER
Leiðtogafundurinn í Höfða hófstárið 1986. Hann stóð í tvo daga.
Þar ræddu Ronald Reagan, Banda-
ríkjaforseti, og Mikhail Gorbatsjov,
leiðtogi Sovétríkjanna, um afvopn-
unarmál. Margir telja að fundurinn
hafi valdið straumhvörfum í samn-
ingum um fækkun kjarnorkuvopna.
Við forsetakjör í Sameinuðuþingi árið 1988 gerðist það í
fyrsta skipti í 1000 ára sögu Alþing-
is að kona var kosin forseti þess.
Það var Guðrún Helgadóttir. Sal-
ome Þorkelsdóttir og Valgerður
Sverrisdóttir voru kjörnar varafor-
setar.
Þetta er búið núna,“ segir Guð-mundur Jónsson, gítarleikari
Sálarinnar, og er greinilega í besta
skapi því hláturinn hans lifir vel og
lengi. „Ég ætla að halda upp á af-
mæli mitt í fyrsta skipti síðan ég
var lítill strákur. Ég hef aldrei
haldið upp á stórafmæli áður. Ég
ætlaði heldur ekki að gera það
núna en svo var lagt hart að mér
þannig að ég ákvað að prófa. Ég
ætla að bjóða vinum, fjölskyldu og
bransanum.“
Þótt ótrúlegt megi virðast segir
Guðmundur aðal ástæðu þess að
hann hafi ekki haldið afmælisveisl-
ur hingað til vera að honum finnist
óþægilegt að vera miðpunktur at-
hyglinnar. Hann segir að síðasta
veisla honum til heiðurs hafi verið
fermingarveislan hans. „Það er
kannski skrítið miðað við að maður
vinnur við að standa uppi á sviði
fyrir framan fleiri hundruð manns
og spila. Ég myndi bjarga mér
óæfður uppi á sviði með gítar. En
þegar þrír menn koma saman og
ég er í „fókusnum“ fer mér að líða
illa. Það stendur svo vel á núna að
mig langaði til þess að halda veislu.
Ég vona bara að einhver mæti.“
Veislustjóri verður Jakob Frí-
mann Magnússon og útilokar Guð-
mundur ekki að hann endi uppi á
sviði, eins og venjulega. Eða eins
og hann orðar það sjálfur; „Það
verður allt morandi í tónlistarfólki
þarna. Þegar menn eru komnir
með í annan fótinn þá kitlar í
spilafingurna.“
Það er hvorki að sjá né heyra á
Guðmundi að honum finnist aldur-
inn sem lóð á herðum sér. „Mér líð-
ur miklu betur núna en þegar ég
varð þrítugur. Ég held að ég hafi
sjaldan verið eins kraftmikill,
hress andlega og líkamlega og
núna.“
Hann hefur líka fulla ástæðu til
þess að brosa sínu breiðasta. Sálin
er líklegast á hátindi síns ferils, ef
miðað er við stærðargráðu þeirra
verkefna sem sveitin tekst nú á
við. Sveitin leikur með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands dagana 22. og
23. október. Borgarleikhúsið frum-
sýnir síðan söngleikinn „Sól &
Mána“ sem byggður er á tveimur
síðustu breiðskífum þeirra. „Mað-
ur heldur bara þessari ákveðni
eins og þegar maður var ungur
maður. Svo er vonandi kominn
reynsla og þroski í spilin líka. Ég
reyni að feta þessa mjóu línu. Það
er bara gaman að lifa,“ segir Guð-
mundur Jónsson, afmælisbarn
dagsins, brosandi út að eyrum.
biggi@frettabladid.is
AFMÆLI
Fyrsta afmælisveislan í langan tíma
Guðmundur Jónsson gítarleikari og aðallagahöfundur Sálarinnar hans Jóns míns er fertugur
í dag. Hann ætlar að bregða af áralöngum vana og halda afmælisveislu í kvöld.
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Getur ekki falið sig á bak við Stefán Hilmarsson söngvara í kvöld.
Af hverju varð ljóskan svonaglöð þegar hún gat klárað
púsluspilið sitt á sex mánuðum?
Það stóð „2-4 ára“ á kassanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
HELGI PÉTURSSON
Helgi segir þá Ríó-menn alla tíð
hafa lagt áherslu á að fá gott efni.
Þeir hafi verið sérstaklega lánsam-
ir og umvafnir góðu fólki.