Fréttablaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 2
2 16. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI
STJÓRNSÝSLA Íslensk erfðagreining
(ÍE) áskilur sér fébætur vegna
tafa sem orðið hafi á að Persónu-
vernd veiti heimild til að hefja
rekstur miðlægs gagnagrunns á
heilbrigðissviði.
Þrjú ár eru síðan ÍE fékk
rekstrarleyfi heilbrigðisráðuneyt-
isins fyrir gagnagrunninum.
Í bréfi ÍE til Persónuverndar er
þess krafist að lögð verði fram ná-
kvæm og raunhæf tímaáætlun um
það hvernig ljúka megi öryggisút-
tekt á gagnagrunninum.
Í mars síðastliðnum sendi Per-
sónuvernd heilbrigðisráðuneytinu
bréf með ósk um að ráðuneytið
skæri úr um hvort tilteknar tækni-
lausnir tengdar gagnagrunninum
stæðust löggjöf um grunninn.
Ráðuneytið taldi það hins vegar
vera hlutverk Persónuverndar
sjálfrar. Það álit ítrekaði ráðuneyt-
ið í september eftir að Persónu-
vernd hafði aftur beðið það um úr-
skurð í málinu. Niðurstaða Per-
sónuverndar liggur enn ekki fyrir.
Óþreyju er farið að gæta hjá ÍE
og hefur fyrirtækið hætt viðræð-
um um gagnagrunninn við heil-
brigðisstofnanir.
Páll Magnússon, upplýsinga-
fulltrúi ÍE segir starfsmenn fyr-
irtækisins ekkert vilja láta hafa
eftir sér um þetta mál að svo
stöddu.
MIKILVÆGI KVENNA Í LANDBÚN-
AÐI Arnbjörg Sveinsdóttir,
Sjálfstæðisflokki, fagnaði því
við upphaf þingfundar að
Bændasamtökin skyldu taka þátt
í alþjóðadegi kvenna í landbún-
aði. Hún sagði þó ástæðu til að
gera átak til að bæta stöðu kven-
na. Í þeim byggi mikill
mannauður sem íslenskur land-
búnaður þyrfti á að halda.
SKATTFRJÁLST MEÐLAG Fimm
þingmenn Samfylkingar hafa
lagt fram lagafrumvarp þess
efnis að allar meðlagsgreiðslur
verði skattfrjálsar. Innheimtu-
stofnun sveitarfélaga verði ein-
nig skylt að innheimta aukameð-
lagsgreiðslur verði þess óskað.
Tuttugu og níu hafa látist
í umferðarslysum á árinu:
Aldrei fleiri
banaslys á
sama árstíma
UMFERÐARSLYS Árið í ár stefnir í að
verða eitt það sorglegasta hvað
varðar umferðarslys hér á landi.
Fleiri hafa látist í umferðinni
fyrstu tíu mánuði þessa árs en
dæmi eru um áður. Frá áramótum
hafa tuttugu og níu látist, fjórtán
karlar, einn drengur, tíu konur og
fjórar stúlkur. Á öllu árinu í fyrra
létust tuttugu og fjórir vegna um-
ferðarslysa, þrjátíu og tveir árið
2000, tuttugu og einn árið 1999 og
tuttugu og sjö árið 1998. Flest
banaslys urðu árið 1977 en á því
ári létust þrjátíu og sjö.
Einungis tvö slysanna urðu í
þéttbýli. Árekstrar eru í lang-
flestum tilfellum orsök
banaslysa, síðan koma slys vegna
útafaksturs og bílvelta. Þegar
banaslys urðu vegna áreksturs
tveggja bíla skullu oftast saman
jeppi og fólksbíll.
FYRIRHUGUÐ BYGGING
Nágrannarnir eru ósáttir við turnana.
Nýbygging við
Grand Hótel:
Um 100 íbú-
ar mótmæla
SKIPULAGSMÁL Íbúar við Sigtún af-
hentu borgaryfirvöldum og úr-
skurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingarmála undirskriftarlista með
nöfnum 100 íbúa, þar sem bygg-
ingu tveggja 13 hæða háhýsa við
Grand Hótel er mótmælt.
Íbúarnir telja að mikill skuggi
muni fylgja háhýsunum og að þau
séu í hróplegu ósamræmi við alla
aðra byggð í hverfinu. Þá telja
þeir að tillagan hafi verið illa
kynnt.
Skipulags- og byggingarnefnd
samþykkti byggingu háhýsanna í
síðasta mánuði með 6 atkvæðum
gegn einu atkvæði formanns
nefndarinnar. Forsvarsmenn hót-
elsins hafa mótmælt því að
skuggavarp vegna háhýsanna
muni hafa áhrif á hús í grennd-
inni.
FÍKNIEFNI Lögregla hefur komið í
veg fyrir fíkniefnadreifingu á
Vestfjörðum. Síðustu daga hefur
verið rannsakað mál vegna gruns
um sölu og dreifingu fíkniefna á
Ísafirði og nágrenni.
Lögregla komst á sporið eftir
að hafa stöðvað fimm unga menn
í Vestfjarðargöngunum á sunnu-
dag. Þeim var haldið meðan leit-
að var í vistaverum þeirra.
Snemma varð ljóst að tveir þeir-
ra áttu ekki hlut að máli og var
þeim sleppt. Hinum þremur var
haldið eftir meðan frekari rann-
sókn fór fram.
Í ljós kom að einn þeirra hafði
á föstudeginum tekið á móti 20
grömmum af kanabisefnum og
dreift meirihluta þess á norðan-
verðum Vestfjörðum.
Við leit fundust rúmlega fimm
grömm, áhöld til fíkniefnaneyslu
og dreifingar auk peningaseðla
sem taldir eru vera tekjur af
fíkniefnasölu. Mönnunum hefur
nú verið sleppt en rannsókn
málsins heldur áfram.
DÝRAHALD Fréttir frá Kaupmanna-
höfn herma að starfsmenn dýra-
garðsins þar í borg séu farnir að
gefa dýrunum í garðinum lífrænt
ræktað grænmeri og ávexti. Svip-
að er upp á teningnum í Húsdýra-
garðinum í Reykjavík en þar stef-
na menn að því að gera garðinn
lífrænan á næstu árum:
„Þetta er langtímamarkmið en
við erum þegar farnir að senda
fólk á námskeið í þessu skyni,“
segir Tómas Óskar Guðjónsson,
forstöðumaður Húsdýragarðsins.
„Þessu fylgir að við verðum að
vera með lífrænt ræktað fóður og
hugsa meira og öðruvísi um um-
hverfismál en hingað til,“ segir
hann.
VIÐSKIPTI Helstu hreyfingar á
hlutabréfamarkaði að undanförnu
tengjast stöðubaráttu úti á mark-
aðnum. Slíkar hreyfingar sjást
alltaf öðru hverju, en óvanalega
mikið hefur verið með þær að
undanförnu. Margt bendir til þess
að sterkustu viðskiptablokkirnar
séu að skoða stöðu sína í ljósi
breytinga í íslensku viðskiptalífi.
Undanfarna daga hafa Burða-
rás, eignarhaldsfélag Eimskipafé-
lagsins og S-hópurinn verið að
auka við eign sína í Sölusambandi
íslenskra fiskframleiðenda. Sjó-
vá-Almennar sem er hluti Eim-
skipafélagsblokkarinnar hefur
verið að auka hlut sinn í Fjárfest-
ingarfélaginu Straumi sem aftur
hefur verið að kaupa bréf í
SÍF. Kaupþing og Eim-
skipafélagsblokkin hafa
verið að bítast um bréf í
Skeljungi. Eimskipafélagið
keypti óvænt Harald Böðv-
arsson. Gaumur, eignar-
haldsfélag Bónusfeðga
keyptu stóran hlut í Flug-
leiðum sem varð til þess að
félagið keypti eigin bréf.
Þá hefur hópur fjárfesta
tengdir fjárfestingafélag-
inu Gildingu verið að auka
verulega hlut sinn í Búnað-
arbankanum.
Þessi viðskipti hafa öll leitt til
hækkunar bréfa þeirra fé-
laga sem bitist er um. Al-
mennt er fjárfestum sem
ekki eiga í valdabaráttunni
ráðlagt að selja bréf sín við
þessar kringumstæður.
Sérfræðingar benda á að
líklegt sé að þegar kapp-
hlaupinu lýkur lækki verð
bréfanna.
Jónas Gauti Friðþjófs-
son, hjá greiningardeild
Landsbréfa, segir að slíkar
stöðutökur séu af ýmsum
toga. „Þeir sem sækja sjá
stundum hagræðingartækifæri og
vilja koma að stjórn fyrirtækj-
anna. Þeir sem fyrir eru reyna að
verja stöðu sína.“
Niðurstaða slíkar stórra stöðu-
taka hefur stundum orðið til þess
að þeim sem telur sér ógnað kaup-
ir ógnvaldinn út úr fyrirtækinu.
Eimskipafélagið keypti einmitt
Kaupþing út úr slíkri sókn á tæp-
lega þreföldu gengi dagsins í dag.
Áhættan felst í því að lokast inni
með eignarhlut sem keyptur er á
yfirverði. Slík staða gæti einmitt
verið að koma upp með eignarhlut
Kaupþings í Skeljungi.
haflidi@frettabladid.is
Margir að veiðum:
Rjúpnaveiðin
komin í gang
VEIÐAR Rjúpuveiðitímabilið hófst í
gær. Fjölmargar rjúpnaskyttur
lögðu land undir fót og héldu til
veiða. Lögreglumenn sem höfðu
eftirlit með veiðunum sögðu að al-
mennt væru menn með sitt á
hreinu. Lögreglan á Húsavík hafði
þó gert fjórar byssur upptækar í
gærkvöldi. Eina vegna þess að
skyttuna skorti skotvopnaleyfi,
hinar vegna þess að þær tóku of
mörg skot í magasín.
Veiðin var misjöfn. Margir
voru með 15 til 20 rjúpur fyrir
norðan. Eitthvað veiddist fyrir
vestan en lítið fyrir austan.
I HÚSDÝRAGARÐINUM
Stefnt að því að gera hann lífrænan.
Langtímamarkmið:
Lífrænn Húsdýragarður
Vestfirðir:
Fíkniefna-
dreifing
stöðvuð
Þeir sem
sækja sjá
stundum hag-
ræðingartæki-
færi og vilja
koma að
stjórn fyrir-
tækjanna. Þeir
sem fyrir eru
reyna að verja
stöðu sína.
BLOKKIRNAR KAUPA
Nokkuð hefur borið á kaupum í fyrirtækjum sem rætur eiga að rekja til baráttu um áhrif. Stórir hluthafar hafa verið að auka við eign sína í Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda.
Viðskiptablokkirnar
bítast um bréfin
Óvenju mikið hefur verið um hreyfingar á hlutabréfum sem tengjast valdabaráttu innan þeirra.
Gengi bréfanna hefur að þessum sökum hækkað. Við slíkar aðstæður getur verið skynsamlegt
fyrir venjulega fjárfesta að selja bréf sín. Algengt að bréfin lækki þegar baráttunni lýkur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
ÍE krefst þess að Persónuvernd leggi fram
nákvæma og raunhæfa tímaáætlun um
það hvernig ljúka megi öryggisúttekt á
gagnagrunninum.
Óþreyja hjá ÍE vegna meints seinagangs Persónuverndar:
Tafir sagðar baka skaðabótaskyldu