Fréttablaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 16. október 2002 Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður verður haldið miðvikudaginn 30. október 2002 kl. 19.30 á Grand Hotel við Sigtún í Reykjavík Dagskrá: 1. Setning. Guðjón Ólafur Jónsson, formaður KFRS. 2. Kosning starfsmanna þingsins. 3. Ávörp gesta. 4. Skýrsla stjórnar: a. formanns. b. gjaldkeri flytur skýrslu um fjárhag kjördæmissambands- ins og leggur fram endurskoðaða reikninga. c. formanns launþegaráðs. 5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. 6. Reikningar bornir upp til samþykktar. 7. Lagabreytingar. 8. Kosningar: 9. Formaður kjördæmissambandsins. a. Fjórir fulltrúar í stjórn kjördæmissambandsins og tveir til vara. b. Fulltrúar kjördæmissambandsins í miðstjórn Framsókn- arflokksins. c. Þrír fulltrúar í sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins og þrír til vara. d. Formaður launþegaráðs og tveir fulltrúar í ráðið. e. Tveir skoðunarmenn reikninga kjördæmissambandsins. 10. Aðferð við val á frambjóðendum fyrir alþingiskosningar 2003. 11. Önnur mál Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi norður verður haldið miðvikudaginn 30. október 2002 kl. 19.30 á Grand Hotel við Sigtún í Reykjavík Dagskrá: 1. Setning. Þorlákur Björnsson, formaður KFRN. 2. Kosning starfsmanna þingsins. 3. Ávörp gesta. 4. Skýrsla stjórnar: a. formanns. b. gjaldkeri flytur skýrslu um fjárhag kjördæmissambands- ins og leggur fram endurskoðaða reikninga. c. formanns launþegaráðs. 5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. 6. Reikningar bornir upp til samþykktar. 7. Lagabreytingar. 8. Kosningar: 9. Formaður kjördæmissambandsins. a. Fjórir fulltrúar í stjórn kjördæmissambandsins og tveir til vara. b. Fulltrúar kjördæmissambandsins í miðstjórn Framsókn- arflokksins. c. Þrír fulltrúar í sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins og þrír til vara. d. Formaður launþegaráðs og tveir fulltrúar í ráðið. e. Tveir skoðunarmenn reikninga kjördæmissambandsins. 10. Aðferð við val á frambjóðendum fyrir alþingiskosningar 2003. 11. Önnur mál DÓMUR Þýski tennisleikarinn Boris Becker, sem sigraði Wimbledon mótið í þrígang og kom oftar en ekki fyrir á myndum í Bravo blöð- unum, þarf væntanlega að borga 2.5 milljónir evra í sekt og fær tveggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir að svíkja undan skatti. Mál Beckers hefur verið í þýskum dómstólum að undanförnu og svo fór að kappinn játaði sig sekan í gær. Því var málið fellt niður en hann þarf að standa skil á skattin- um. Ef hann hefði ekki játað en fundinn sekur um skattsvik hefði hann verið dæmdur í fangelsis- vist. Skattsvikin áttu sér stað á ár- unum 1991-1993 þegar Becker var með lögheimili í furstaríkinu Mónakó. Becker eyddi hins vegar stærstum hluta í Þýskalandi og því hefði hann átt að standa skil á sköttum þar í landi.  HÁHYRNINGUR Aðstandendur ís- lenska háhyrningsins Keikó hafa loks fundið vetrarheimili fyrir hann eftir margra vikna leit. Keikó mun dvelja í Korsnes firði í Halsa-héraðinu. „Þetta tók sinn tíma,“ sagði Lars Olav Lilleboe, einn þeirra sem hefur tekið á móti þúsundum gesta í viku hverri sem vilja berja háhyrninginn augum. „Þetta er kjörnar aðstæður fyrir hann.“ Keikó synti 1.400 kílómetra leið frá Íslandsströndum í júlí til Skálavíkur í Noregi þar sem hann hefur dvalið. Heimamenn urðu yfir sig hrifnir af Íslendingum og léku við hann þar til hann gafst upp úr þreytu. Þá þurfti að meina aðdáendum aðgang að honum. Colin Baird, þjálfari Keikós, segist búast við flutningum í næstu viku. Þeir munu nota fisk til að tæla hann á milli staða. Keikó hefur ekki liðið vel í Noregi. Hann hefur lést mikið síðustu vikur og að undanförnu hefur hann fengið allt að 80 kíló af fiski á dag. „Við erum enn að gefa honum,“ sagði Baird. „Hann er latur, eins og við öll. Hann segir ekki nei við ókeypis máltíð.“ Að sögn þjálfarans er nýi stað- urinn kjörinn. Fjörðurinn er mjög djúpur, þar er nóg af fiski og góð- ur líkur á því að hann hitti sína líka þar. Keikó var veiddur við Íslands- strendur þegar hann var tveggja ára. Hann dvaldi í Sædýrasafninu í Hafnarfirði um tíma og gekk þá undir nafninu Siggi. Hann hefur komið víða við á ferðum sínum og skemmti meðal annars í Mexíkó og Bandaríkjunum auk þess að leika aðalhlutverkið í kvikmynd- unum um háhyrninginn Willy.  FÓTBOLTI Ulrika Jonsson, fyrrver- andi veðurfréttakona, er ekki búin að gleyma ástarævintýri sínu með Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfara Englands í knattspyrnu. Segist hún enn hafa taugar til hans. Þrátt fyrir það segir hún að það hafi verið rétt ákvörðun að binda enda á sam- bandið eftir þrjá mánuði. Í sjálfsævisögu hennar kemur fram að henni þyki vænt um hinn sænska þjálfara. „Samband okkar var aðeins nýbyrjað og náði aldrei að komast fyrir alvöru í gang. Samt sem áður fékk ég þrjá og hálfan mánuð með honum og fékk að njóta ástúðar og örlætis frá manni sem ég virði afar mikið,“ sagði í bókinni. Um leið og fregnir af sambandi þeirra komust í fjölmiðlana breyttist viðhorf Eriksson. „Hann virtist hunsa mig algjörlega og reyna að gera sem minnst úr sam- bandi okkar,“ sagði Jonsson.  PAR Á FRUMSÝNINGU Hér sést kærustuparið Salma Hayek og Ed- ward Norton mæta á frumsýningu mynd- arinnar „Frida“. Myndin var gæluverkefni Sölmu og fékk hún kærasta sinn til þess að leika og hjálpa til við handritaskrif. BORIS BECKER Gladdi hjörtu ungra kvenna á myndum í Bravo blöðunum. Hann hefur einnig afrekað að geta barn inni í kústaskáp. Boris Becker: Dæmdur í tveggja ára skilorðs- bundið fangelsi KEIKÓ Sædýragarður í Miami hefur lýst yfir áhuga á að taka Keikó að sér en bæði norsk og bandarísk yfirvöld hafa hafnað beiðninni. Háhyrningurinn Keikó: Flytur á nýjan stað fyrir veturinn ERIKSSON Sven Göran Eriksson, talar við Cherie Blair (til hægri) ásamt vinkonu sinni Nancy Dell’Olio í matarboði í Downingstræti 10 þar sem enska landsliðið mætti í heimsókn. Ulrika Jonsson: Hefur enn taugar til Eriksson AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.