Fréttablaðið - 16.10.2002, Qupperneq 7
7MIÐVIKUDAGUR 16. október 2002
Nánari upplýsingar á söluskrifstofum Icelandair
og á www.icelandair.is
Þakkargjörðarhátíð
í Boston 28. nóv. - 1. des. 2002
Boston er ekki bara
fæðingarstaður Benjamins
Franklins. Í þessari frægu
borg er að finna sögu,
menningu, íþróttir og
margs konar afþreyingu. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting á Tremont House í 3 nætur, þakkargjörðarkvöldverður á
The Bennigans, íslensk fararstjórn og rútuferðir til
og frá flugvelli í Boston.
71.220 kr. í einbýli
Misstu ekki af einstöku tækifæri til að upplifa
þakkargjörðarhátíð og annað sem Boston
hefur að bjóða.
Fararstjórar: Einar Bollason og Karl Aspelund.
Heimsæktu www.boston.com
og fáðu nánari upplýsingar.
Hafið samband við söluskrif-
stofur eða Fjarsöludeild
Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud.-föstud. kl 8-20,
laugard. kl. 9-17 og
sunnud. kl 10-16)
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
19
06
3
1
0/
20
02
Verð frá 59.220kr.
á mann í tvíbýli
Takmarkaður sætafjöldi!
Þessi ferð gefur 4.200 ferðapunkta
FÍKNIEFNI FUNDUST Lögreglan í
Keflavík hafði afskipti af manni
sem ók um Fitjar í Njarðvík í
fyrrinótt. Við leit í bílnum fund-
ust fíkniefni. Lögreglan handtók
manninn og yfirheyrði.
RÁÐIST Á MANN Tveir menn
réðust á mann á Ingólfstorgi í
fyrrinótt og rændu. Maðurinn
var fluttur á slysadeild. Lögregl-
an hafði ekki hendur í hári árás-
armannanna en hefur grun um
hverjir þeir eru.
TEKINN Á 123 KM HRAÐA Öku-
maður var tekinn á 123 kílómetra
hraða á Reykjanesbraut þar sem
hámarkshraði er 90 km. Á hann
yfir höfði sér dágóða sekt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SJÁVARÚTVEGUR „Ég hélt satt að
segja að með því að berjast fyrir
því að fá yfirráð yfir okkar fisk-
veiðilögsögu væri vandinn leyst-
ur. En það er nú eitthvað annað,
mér sýnist vandinn hafa aukist.
Ég segi fyrir mig að ég hefði ekki
staðið í þessari baráttu öll þessi ár
ef ég hefði getað ímyndað mér að
staðan yrði svona nokkrum árum
síðar,“ segir Guðmundur Kjærne-
sted fyrrverandi skipherra hjá
Landhelgisgæslunni í viðtali við
Ægi, tímarit um sjávarútvegsmál.
Guðmundur stóð í eldlínunni í
þremur þorskastríðum sem Ís-
lendingar háðu við Breta þegar
landhelgin var færð út, fyrst í 12
mílur, síðar í 50 og loks í 200 míl-
ur.
Hann segist síður en svo sáttur
við núgildandi fiskveiðistjórnun-
arkerfi, telur að það hafi orðið til
þess að aflaheimildirnar hafi
færst á hendur nokkurra útgerða
og litlu sjávarplássin standi eftir
meira og minna kvótalaus.
„Mér rennur til rifja að horfa
upp á blómleg þorp koðna niður.
Mér finnst hafa verið haldið illa á
málum, 30 ára umráðaréttur virð-
ist engu hafa skilað. Það hlýtur að
vera eitthvað mikið að og ég vil fá
svör frá vísindamönnum um hvað
gerst hafi. Aflaheimildirnar hafa
verið að minnka undanfarin ár,
þótt nú berist fréttir af einhverj-
um bata. Ég er á því að þessi
stóru, öflugu skip og öll tæknin
sem þeim fylgir, eigi bara ekkert
erindi á grunnslóðinni. Færeying-
ar banna til að mynda verksmiðju-
togarana á grunnslóð. Þeir hafa
grunnflota, djúpflota og loks út-
hafsflota. Við ættum að líta til
þeirra,“ segir Guðmundur
Kjærnested.
Guðmundur Kjærnested:
Ósáttur við kvótakerfið
GUÐMUNDUR KJÆRNESTED
Óskar eftir svörum frá vísindamönnum um
ástæður síminnkandi aflaheimilda.
Fossberg skiptir
um forstjóra:
Sá fjórði
á 75 árum
FYRIRTÆKI Þórður Mar Sigurðsson
hefur verið ráðinn forstjóri versl-
unarinnar Fossberg. Hann er
fjórði forstjóri fyrirtækisins í 75
ára sögu fyrirtækisins. Þórður
tekur við af Einari Erni Thorlaci-
us sem gegnt hefur starfinu í
þrettán ár. Einar hefur unnið hjá
Fossberg í nítján ár. Hann hverf-
ur nú til sveitarstjórastarfa í
Reykhólahreppi á Barðaströnd.
Fossberg á langa sögu í verslun
með tæki og vörur fyrir iðnaðar-
menn. Stefna stjórnenda fyrir-
tækisins er að efla það enn frekar
sem stórmarkað iðnaðarmanns-
ins.
BRUTUST INN HJÁ SLÖKKVILIÐ-
INU Tveir piltar voru handteknir
um eittleytið í fyrrinótt eftir að
hafa brotist inn í nýbyggingu
slökkviliðsins við Skógarhlíð í
Reykjavík. Piltarnir tóku borvél-
ar og önnur verkfæri til að
brjótast inn í eldri byggingu
slökkviliðsins. Voru þeir með tól-
in í bakpoka þegar lögregla sem
var á vakt í fjarskiptamiðstöð
Neyðarlínunnar gómaði mennina
í slökkvistöðinni. Við nánari leit
fundust í fórum piltanna fíkni-
efni og sprautur.
TEKNIR MEÐ FÍKNIEFNI Fíkniefni
fundust á þremur piltum eftir að
bíll sem þeir ferðuðust í var
stöðvaður við Bygggarða á Sel-
tjarnarnesi á öðrum tímanum í
fyrrinótt. Fíkniefnahundur lög-
reglunnar var kallaður til og var
hann látinn þefa í bílnum.
Fannst þá meira magn af fíkni-
efnum sem höfðu verið falin.
Lögreglan handtók mennina og
gista þeir nú fangageymslur lög-
reglu.
Karlmenn eldri en 35 ára:
Eiga erfiðara
með að
geta börn
HEILSA Líkurnar á því að karlmenn
geti börn minnka við 35 ára aldur.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn vísindamanna við háskólann
í Washington í Seattle, sem greint
var frá á fréttavef BBC. Þar kem-
ur fram að skemmdir á erfðaefn-
inu sem hefur að geyma sæðis-
frumur eykst eftir því sem menn
eldist. Ólíkt öðrum frumum lík-
amans lagast sæðisfrumur ekki
eftir slíkar skemmdir. Auk þess
komust vísindamennirnir að því
að eftir því sem menn eldast tapa
þeir getu sinni til að vinsa út
óheilbrigðar sæðisfrumur. Lík-
urnar á því að skemmd sæðis-
fruma frjóvgi egg aukast því til
muna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI