Fréttablaðið - 16.10.2002, Side 24

Fréttablaðið - 16.10.2002, Side 24
Fyrst og fremst eigum við hinumbragðgóða hænsnfugli rjúpunni það að þakka að vopnaburður skuli ekki hafa aflagst með öllu hér á þessu friðsama landi þar sem blóðsúthellingar þekkjast orðið varla nema þá sem ómissandi liður í fjölbreyttu skemmtanalífi þjóðar- innar. Nú bergmálar glaðleg hagla- byssuskothríð um fjöll og dal og rjúpan fær enn einu sinni að sjá eft- ir því að hafa ekki nennt að vaða eld fyrir Maríu Guðsmóður. Eða eins og segir í hinni alkunnu „Sigmars rímu og skotveiðimanna“ eftir skáldið og öryrkjann Benjamín Steinbergsson: Ég fugla himinsins freta á glaður á frostköldum heiðum míns Ísalands. Með byssu í hönd verð ég meiri maður og míg standandi, sómi þessa lands. HUGRÚN Rósinkarsdóttir kona Benjamíns orti hins vegar hina al- þekktu vísu um ófullnægðu konuna eftir að maður hennar hafði orðið fyrir voðaskoti og má mikið vera ef sú vísa ratar ekki fyrr en síðar í skólaljóðin: Eru tólin öll óstinn. Ógn var það er Benni minn hugðist hlaða hólkinn sinn og hlunkaði af sér miðfótinn. OG VÍST ER UM ÞAÐ að mörg veiðimannskonan þekkir þá tilfinn- ingu að sitja heima í hlýju og nota- legu einbýlishúsi með sérríglas í hendi við arineld og vita eiginmann- inn rammvilltan uppi á reginfjöllum með haglabyssu í annarri hendi og GPS-tæki í hinni hafandi gleymt leiðarvísinum í bílskúrnum heima. Björgunarmenn nú basla á heiðum og berjast við fannirnar djúpu í leit að þeim sem villtust á veiðum í von um að sálga rjúpu. EN ALLAR ÁHYGGJUR og sorg- ir gufa þó upp eins og dögg fyrir sólu þegar síminn hringir og það fréttist að veiðimaðurinn sé á heim- leið í þyrlu Landhelgisgæslunnar kalinn á fingrum, tám og nefi, en þó ekkert umfram það sem góður lýta- læknir getur lagfært og eiginkonan fær sér aftur í sérríglasið og kemst í jólaskap við tilhugsunina um að fá að klæða hina langþráðu jólarjúpu úr blóðugum fiðurhamnum.  SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Jólarjúpan Bakþankar Þráins Bertelssonar Grensásvegi 12 • Sími: 533 2200 FRÁBÆR PIZZA Á FRÁBÆRU VERÐI!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.