Fréttablaðið - 29.10.2002, Síða 2

Fréttablaðið - 29.10.2002, Síða 2
2 29. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR SAO PAOLO, AP Þúsundir manna fylk- tu liði á götum Sao Paolo í Brasilíu á sunnudagskvöld til að fagna nýj- um forseta, Luiz Inacio Lula da Silva. Margir veifuðu rauðum fán- um Verkamannaflokksins, skotið var upp flugeldum og dúndrandi tónlist var leikin í risahátölurum. „Til þessa hefur þetta verið auð- velt,“ sagði Lula, eins og hinn ný- kjörni forseti er kallaður í Brasilíu. „Nú hefst erfiði hlutinn. Við munum vinna myrkrana á milli til þess að uppfylla kosningaloforðin.“ Lula da Silva hlaut rúmlega 61 prósent í seinni umferð forseta- kosninganna á sunnudaginn. Jose Serra, frambjóðandi núverandi stjórnarflokks, hlaut tæplega 39 prósent. Þetta er í fjórða sinn sem da Silva býður sig fram í forsetakosn- ingum. Hann tekur við embætti um áramótin og verður þá fyrsti vinstrimaðurinn sem gegnir for- setaembættinu í Brasilíu í fjóra áratugi. Da Silva bíður ekki auðvelt verk. Hann verður að taka á honum stóra sínum til þess að draga úr fátækt í landinu og bjarga hagkerfinu frá kreppu. Draga þarf úr atvinnuleysi, styrkja heilbrigðisþjónustuna og menntakerfið en sýna um leið ábyrgð í peningamálum og ávinna sér traust fjárfesta og lántakenda. Fyrir rúmum áratug hvatti da Silva þáverandi stjórn til þess að hætta að borga af gífurlegum skuldum landsins erlendis. Hann hefur þó heldur dregið úr yfirlýs- ingagleði sinni með árunum.  Nýr forseti Brasilíu: Lofar að vinna myrkranna á milli NÝKJÖRINN FORSETI FAGNAR SIGRI Luiz Inacio Lula da Silva veifar mannfjöldanum. AP /E R AL D O P ER ES ALLIR ÞURFA ÞAK YFIR HÖFUÐIÐ Það bárust umsóknir frá 109 barnlausum hjónum um viðbótarlán til íbúðarkaupa. Viðbótarlán til íbúðarkaupa: Einhleypir í meirihluta HÚSNÆÐISMÁL Einhleypir voru í meirihluta þeirra sem sóttu um viðbótarlán til íbúðarkaupa á vegum Reykjavíkurborgar árið 2001. Þeir sem sóttu um viðbótar- lán voru alls 916 og þar af voru einhleypir 303 eða 33,1 prósent. Frá barnlausum hjónum í sam- búð voru 109 umsóknir og 216 frá hjónum með börn. Einstæðir for- eldrar voru 288 eða 31,4 prósent. Flestir voru á aldrinum 20-29 ára en fæstir 67 ára og eldri. Reykjavíkurborg samþykkti að veita lán til 93,9 prósent þeir- ra sem sóttu um en viðbótarlánin eru veitt þeim sem uppfylla ákveðin skilyrði um greiðslugetu og tekju- og eignarmörk. Þau geta numið allt að 25 prósent af íbúðarverði en heildarlánveiting Íbúðarlánasjóðs má þó aldrei fara yfir 90 prósent af heildar- verði íbúðar.  MIÐBÆRINN Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri í Reykjavík, hef- ur sett af stað vinnu sem miðar að því að kortleggja hugsanlegar brunagildrur í íbúðabyggð í miðbæ Reykjavíkur. Verður sjónum eink- anlega beint að Þingholtunum og allri byggð í miðbænum yfir Laugaveg, Hverfisgötu og niður að sjó. Hefur slökkviliðsstjóri fundað með borgarráði vegna þessa en verkið verður unnið í samráði við byggingarfulltrúa Reykjavíkur- borgar. „Þetta er bæði flókin vinna og viðkvæm,“ segir Hrólfur Jónsson. „Við getum ekki rokið til og rifið hús sem lengi hafa staðið. Reynum frekar að einskorða okkur við hús sem reist hafa verið í leyfisleysi og sérstaklega munum við skoða alla bakhúsabyggð á þessu svæði. Við vitum ekki hvernig ástandið er víða því við höfum ekki leyfi til að fara inn í íbúðir fólks til nema það bjóði okkur. Við skoðum eingöngu hjá fyrirtækjum,“ segir hann. Slökkviliðsstjóri hefur falið Óskari Þorsteinssyni, sviðsstjóra í forvarnardeild Slökkviliðsins, að leiða verkið og hefur hann þegar hafið kortlagningu svæðisins. Í framhaldinu verður svo gripið til ráðstafana til að fyrirbyggja að eldsvoði, eins og sá sem geisaði á Laugavegi um þarsíðustu helgi, endurtaki sig.  Aðgerðir eftir brunann á Laugavegi: Brunagildrur kortlagðar BRUNINN Á LAUGAVEGI Miðbærinn undir smásjá slökkviliðsmanna og byggingafulltrúa. HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæslulækn- ar á Suðurnesjum hafa flestir ráð- ið sig í aðra vinnu. Síðasti vinnu- dagur þeirra er á fimmtudag. María Ólafsdóttir, yfirlæknir á Heilsugæslustöð- inni í Reykjanes- bæ, segir að þrátt fyrir að heilbrigð- isráherra bjóði fram lausn á rétt- indabaráttu lækn- anna þá muni ófremdarástand skapast þegar á föstudag. „Það eru sex mánuðir síðan við sögðum upp störfum og á ekki að koma á óvart að flestir læknar skuli vera búnir að ráða sig í aðra vinnu. Menn geta ekki rift þeim samningum sem þeir hafa gert við aðra vinnuveitendur,“ segir Mar- ía. Hún segir að gefi ráðherra grænt ljós á að réttindi þeirra verði tryggð muni læknarnir endur- skoða uppsagnir. „Við höfum ekki ráðið okkur innan heilsugæslukerf- isins nema í verk- takavinnu þar sem mikill skort- ur er á læknum eða til útlanda.“ Elsa Friðfinns- dóttir, aðstoðarmanneskja heil- brigðisráherra, segir að rætt verði við lækanna í vikunni. „Við gerum okkur grein fyrir að stutt- ur tími er til stefnu.“ Hún telur líklegt að ráðherra hafi þegar mótað tillögur til lausnar. „Það er ljóst að við munum gera ráðstaf- anir til að halda uppi nauðsynlegri læknisþjónustu. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa áhyggjur. „Við höfum lýst yfir vilja til að leysa þetta mál. Mín skoðun er að mjög mikilvægt sé að heilsugæslulæknar sitji við sama borð og aðrir sérfræðingar og verði frjálst að reka sínar eigin stofur,“ sagði Árni Sigfússon bæj- arstjóri. Hann segir það koma sér þægi- leg á óvart að finna hve margir taki undir þá skoðun. „Það er al- varlegt ef Suðurnesjabúar þurfa að leita til Reykjavíkur eftir læknisþjónustu og ég treysti heil- brigðisráherra til að koma í veg fyrir það.“  Læknar búnir að ráða sig annað Heilsugæslulæknar á Suðurnesjum hætta störfum á fimmtudag. Þeir verða kallaðir til ráðherra áður. Vonast er til að lausn finnist. „Ég treysti heilbrigðisráð- herra til að koma í veg fyrir að Suður- nesjabúar þurfi að leita annað eftir læknisþjón- ustu.“ REYKJANESBÆR Heilsugæslulæknar á Heilsugæslustöðinni í Reykjanesbæ hafa flestir ráðið sig annað. Ungir framsóknarmenn: Ósáttir við Guðjón STJÓRNMÁL Ungir framsóknar- menn í Reykjavíkurkjördæmi suður kunna Guðjóni Ólafi Jóns- syni, formanni kjördæmisráðs Framsóknar, litlar þakkir fyrir framgöngu hans á aðalfundi fé- lagsins. Guðjón smalaði inn fólki sem hafði skráð sig í félagið daginn sem fundurinn var haldinn og réði lögum og lofum um sam- þykktir fundarins og val á full- trúum á kjördæmisþing, þvert á vilja fráfarandi stjórnar. Stjórnarmenn segja að brotið hafi verið gegn lögum félagsins þar sem menn þurfi að hafa ver- ið viku í flokknum til að hafa at- kvæðisrétt en ekki var gerð at- hugasemd við það á fundinum.  53 MILLJÓNA STYRKIR Tvö til- raunaverkefni undir íslenskri stjórn hlutu styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Styrkirnir nema samtals 53 milljónum króna. FRJÁLSLYNDIR OPNA SKRIFSTOFU Frjálslyndi flokkurinn hefur opn- að flokksskrifstofu og félags- heimili í Aðalstræti 9 þar sem kosningaskrifstofa F-listans var fyrir síðustu borgarstjórnarkosn- ingar. Þar verður kosningamið- stöð fyrir næstu kosningar. INNLENT UMFERÐAMERKJAÞJÓFAR Lög- reglan í Króatíu hefur kært tvo menn fyrir að stela umferðar- merkjum, sem þeir hafa síðan selt. Þjófnaður umferðarmerkja hefur valdið lögreglunni í Króa- tíu miklum heilabrotum undan- farna sjö mánuði. ERLENT ERLENT LEIÐTOGI SEGIR AF SÉR Mart Laar, fyrrverandi forsætisráð- herra Eistlands, sagði um helgina af sér leiðtogaembætti í flokki sínum, sem náði litlum árangri í sveitarstjórnarkosningum fyrir skömmu. Teflir KR fram mörgum liðum næsta sumar? Það er víst ekki um neitt að ræða nema stilla fram einu liði. Annars er ekki skrýtið að fjölgi í KR. Ástæðan er að það vilja allir vera í Vesturbænum. Willum Þór Þórsson er þjálfari Íslandsmeistara KR. Félagið hefur bætt við sig fjórum leikmönnum frá lokum keppnistímabilsins. SPURNING DAGSINS ÁRNI SIGFÚSSON Bæjarstjórinn vill að heilsugæs- lulæknar fái að reka sínar eigin stofur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.