Fréttablaðið - 29.10.2002, Qupperneq 4
4 29. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
INNLENT
EVRÓPUSAMBANDIÐ Drög að efnis-
legri grind fyrir stjórnarskrá
Evrópusambandsins hafa verið
birt. Þar er meðal annars gert ráð
fyrir því, að ríki geti gengið úr
sambandinu ef þau vilja. Sömu-
leiðis verði mögulegt að vísa ríkj-
um úr Evrópusambandinu.
Einnig er hugmyndin að kosinn
verði forseti Evrópusambandsins,
sem geti undirritað samninga fyr-
ir hönd Evrópusambandsins og
hann geti einnig átt sæti í alþjóða-
stofnunum á borð við Sameinuðu
þjóðirnar.
Lagt er til að íbúar aðildarríkj-
anna fái tvöfaldan ríkisborgara-
rétt. Annars vegar verði þeir rík-
isborgarar Evrópusambandsins,
hins vegar ríkisborgarar hver í
sínu landi.
Einnig er lagt til að stofnað
verði formlega nýtt bandalag,
sem gæti heitið Evrópusamband-
ið, Evrópubandalagið, Bandaríki
Evrópu eða Sameinuð Evrópa.
Drögin kynnti Ciscard d’Esta-
ing, fyrrverandi forseti Frakk-
lands. Hann er í forsæti 105
manna þings, sem fékk það verk-
efni að leggja drög að framtíðar-
skipulagi Evrópusambandsins.
Hugmyndin er sú að einfalda
til muna stjórnskipulag Evrópu-
sambandsins, sem nú er skipt upp
í nokkrar „stoðir“. Ciscard d’Esta-
ing sagði í gær að mikilvægt væri
að stjórnskipulagið væri einfalt
og öllum auðskiljanlegt.
Efnisgrind að stjórnarskrá Evrópusambandsins kynnt:
Ríki geti sagt sig úr
Evrópusambandinu
TEKIÐ Á MÓTI FORSETA TYRKLANDS
Meðan Ciscard d’Estaing var í Brussel að
kynna drög að stjórnarskrá Evrópusam-
bandsins voru leiðtogar Evrópusam-
bandsríkjanna í Kaupmannahöfn að taka
á móti leiðtogum þeirra ríkja, sem sótt
hafa um aðild.
AP
/M
YN
D
BRUNAVARNIR Loks verður sett upp
súla í Slökkvistöðinni við Skóg-
arhlíð svo slökkviliðsmenn geti
rennt sér niður í útköllum og fyr-
ir bragðið verið sneggri á bruna-
stað: „Þetta verður súla eins og í
bíómyndunum og væntanlega til
bóta,“ segir Björn Gíslason
framkvæmdastjóri yfir eignum
Slökkviliðsins.
Samþykkt hefur verið að
hefja byggingu 460 fermetra
húsnæðis ofan á bílageymslu
Slökkviliðsins þaðan sem bruna-
bílarnir aka út í útköllum. Bíl-
arnir verða áfram á fyrstu hæð-
inni en nýja hæðin er hugsuð
sem aðstaða fyrir slökkviliðs-
menn í viðbragðsstöðu. Gat verð-
ur í gólfi á milli hæða og þar
verður súlan sett upp:
„Nei, ég veit ekki til þess að
þessar súlur séu af einhverri staðl-
aðri gerð. Þetta verður bara venju-
leg súla sem slökkviliðsmennirnir
geta rennt sér niður um,“ segir
Björn Gíslason en almenn ánægja
mun vera hjá slökkviliðsmönnum
vegna þessa.
Nýjungar í brunavörnum:
Súla í Slökkvistöðina
SLÖKKVISTÖÐIN
Bílarnir á neðri hæð, slökkviliðsmenn í nýbyggingu þar fyrir ofan og súlan á milli.
STJÓRNMÁL Eftir deilur undanfarið
um hvernig skuli velja frambjóð-
endur á lista Samfylkingarinnar í
norðvesturkjördæmi var ákveðið
á kjördæmisþingi
að viðhafa uppstill-
ingu. Óánægja er
þó meðal sumra
sem vildu að efnt
yrði til prófkjörs.
„Ég er ósáttur,“
segir Gísli S. Ein-
arsson, þingmaður,
sem hafði lagt áher-
slu á að efnt yrði til prófkjörs eða
flokksvals. „Það var ekki vilji fyr-
ir því hjá meirihlutanum á fundin-
um að ná neinu samkomulagi.“
Hann segist þó ekki vera búinn að
stimpla sig út úr pólitíkinni. „Ég
vil vita hvað uppstillingarnefnd er
að hugsa áður en ég fer í fýlu eða
eitthvert annað.“
Yfirgnæfandi meirihluti
stjórnar kjördæmisráðs lagði til
að stillt yrði upp á listann. Minni-
hluti stjórnar lagði til að farið yrði
í prófkjör. Þriðja tillagan kom
fram um að efnt yrði til flokksvals
þar sem allir félagar hefðu at-
kvæðisrétt. Á endanum var kosið
á milli þess að hafa uppstillingu og
flokksval. Niðurstaðan var sú að
uppstilling var samþykkt með 43
atkvæðum gegn 37. Viðmælandi
blaðsins sagði líklegt að atkvæði
fólks af Norðurlandi vestra hefði
ráðið úrslitum. Það hefði nær ein-
róma viljað uppstillingu. Þar
spruttu deilur eftir prófkjör fyrir
fjórum árum þar sem Kristján
Möller bar sigurorð af Önnu Krist-
ínu Gunnarsdóttur.
Nokkuð hefur verið deilt um
það í flokknum undanfarið hvora
leiðina skyldi farið. Það hefur
meðal annars leitt til þess að síðar
var tekin ákvörðun um hvernig
skyldi valið á lista heldur en í öðr-
um kjördæmum Samfylkingar.
Þar hefur flokksval eða prófkjör
alls staðar orðið ofan á.
Jóhann Ársælsson, þingmaður,
var hlynntur uppstillingu. Hann
kveðst ósmeykur við prófkjör,
enda hafði hann Gísla undir fyrir
fjórum árum. „Ég taldi að hags-
munum okkar í kjördæminu væri
betur borgið ef menn hefðu heild-
arsýn.“ Auðveldara væri að taka
tillit til ýmissa þátta við uppstill-
ingu en í prófkjöri.
Védís Jóhanna Geirsdóttir, for-
maður kjördæmisráðs, vildi ekk-
ert tjá sig um stöðuna. Innan-
flokks mál ætti að leysa innan-
flokks.
brynjolfur@frettabladid.is
Uppstilling valin
á átakafundi
Naumur meirihluti á kjördæmisþingi Samfylkingar í norðvesturkjör-
dæmi kaus uppstillingu á lista frekar en flokksval. Óánægður en ekki á
útleið, segir Gísli S. Einarsson. Uppstilling gefur betri heildarsýn segir
Jóhann Ársælsson.
ALÞINGI
Deilt hefur verið um það hvernig Samfylkingin í norðvesturkjördæmi velji fulltrúa sína til
setu á Alþingi. Uppstilling var ákveðin á kjördæmisþingi. Óljóst er hvort það hafi slæm
langtímaáhrif.
Ég vil vita
hvað uppstill-
ingarnefnd er
að hugsa áður
en ég fer í fýlu
eða eitthvert
annað.
Austurrískur ferðamaður
í Tyrklandi:
Grýttur
vegna klæða-
burðar
ISTANBÚL, AP Ungur Austurríkis-
maður var greinilega ekki klædd-
ur að sið innfæddra þegar hann
hugðist heimsækja föður sinn, sem
býr í Tyrklandi. Hann var svart-
klæddur frá hvirfli til ilja þegar
hann kom til þorpsins Edremit, þar
sem um 30 þúsund manns búa.
Hann var þess utan með stóra
eyrnarlokka og silfurhringi auk
þess að hafa litað hár sitt rautt.
Þorpsbúar sögðust hafa talið að
þarna væri djöflatrúarmaður á
ferðinni. Þeir fylltust jafnt ótta sem
reiði og tóku að grýta manninn.
Lögreglan kom honum þó til bjarg-
ar áður en hann meiddist illa.
UM 270 ÞORSKÍGILDISTONN TIL
EYJA Útgerðarfélagið Bergur-
Huginn ehf. gekk í gærmorgun
frá kaupum á bátnum Gissuri
Hvíta, HU-35 en með honum fylg-
ja aflaheimildir upp á 270
þorskígildistonn. Seljandi er
Særún ehf. í Blönduósi.
KÍNVERJAR VILJA RÁÐGJÖF Kín-
verjar hafa lýst áhuga á að fá ís-
lendinga til að veita ráðgjöf varð-
andi hitaveitu í Ólympíuþorpinu í
Peking. Ólympíuleikarnir verða
haldnir þar eftir sex ár. Árni Þór
Sigurðsson, forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur, hitti staðgengil borg-
arstjórans í Peking á fundi í gær
og þar voru þessi mál rædd. RÚV
TUGUR ÓBYGGÐAMÁLA ÞING-
FESTUR Í héraðsdómi Suðurlands
verður í vikunni þingfestur hátt í
tugur mála, sem öll tengjast úr-
skurði óbyggðanefndar í uppsveit-
um Árnessýslu. Talið er að það líði
að minnsta kosti ár þangað til hér-
aðsdómur kemst að niðurstöðu,
verði málunum vísað til Hæsta-
réttar má búast við að sá mála-
rekstur taki ár til viðbótar. RÚV
RÍKISÚTVARPIÐ
Fréttastjóri óskast - mikið framboð.
Ríkissjónvarpið:
Sjö vilja
frétta-
stjórann
FRÉTTIR Sjö umsóknir bárust um
stöðu fréttastjóra Ríkissjónvarps-
ins en umsóknarfrestur rann út um
liðna helgi. Þeir sem sóttu, eru:
Elín Hirst, 42 ára menntuð í
blaðamennsku, fjölmiðlun og hag-
fræði frá háskólum í Bandaríkjun-
um og Noregi. Þá hefur Elín nýver-
ið lokið MA - námi í sagnfræði frá
Háskóla Íslands.
G. Pétur Matthíasson, 42 ára
menntaður í blaðamennsku, bók-
menntum og dönsku frá bandarísk-
um háskólum og Háskóla Íslands.
Hjálmar Blöndal Guðjónsson, 26
ára stúdent frá Menntaskólanum í
Hamrahlíð og stundar nú nám í lög-
fræði við Viðskiptaháskólann í Bif-
röst.
Logi Bergmann Eiðsson, 36 ára
og hefur lagt stund á nám í stjórn-
mála - og fjölmiðlafræði við Há-
skóla Íslands.
Páll Benediktsson, 49 ára með
BS - gráðu í landafræði frá Háskóla
Íslands. Auk þess hefur hann sótt
blaðamennskunámskeið í Árósum.
Sigríður Árnadóttir, 42 ára með
háskólagráðu í meinatækni frá
Tækniskóla Íslands auk þess próf í
frönsku frá háskólanum í Nice.
Valgerður Anna Jóhannsdóttir,
42 ára með BA - gráðu í stjórnmála-
fræði frá Hásóla Íslands og
mastersspróf í fjölmiðlafræði frá
City University í London.
Útvarpsstjóri skipar í stöðu
fréttastjóra að fenginni umsögn út-
varpsráðs.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Gripu Rússar til réttra aðgerða
í gíslamálinu í Moskvu?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu á skíði í vetur?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
35,5%
42,1%Já
RÉTT HJÁ RÚSSUM
Næstum helmingur
lesenda á frett.is telur
að rússnesk yfirvöld
hafi gripið til réttra að-
gerða í gíslamálinu í
Moskvu.
Nei
22,4%Veit ekki