Fréttablaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 14
14 29. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
KLÁM Elísabet Ólafsdóttir, blaða-
maður og nemi, var í fylgdarhópi
Ron Jeremy, klámmyndaleikar-
ans, sem kom hingað til lands um
síðustu helgi. Hún segir leikar-
ann hafa verið kurteisan í fyrstu
en síðan hafi annað komið í ljós.
„Hann er bara gamall dónakarl
sem kann sig ekki. Íslenskar
konur vilja ekki láta klípa í rass-
inn á sér, toga niður um sig nær-
buxurnar eða sleikja á sér háls-
inn,“ segir Elísabet. Hún telur
ekkert því til fyrirstöðu að klám-
myndaleikarar komi til landsins,
frekar en aðrir. Henni þykir þó
fyndið hvernig íslenska þjóðin
hafi brugðist við. „Þetta sýnir
hvað þeir sem stóðu að heimsókn
hans eru góðir markaðsmenn.
Þeir fengu þjóðina til að standa á
öndinni.“ Elísabet telur ekki að
klámiðnaðurinn hér á landi sé
meiri nú en áður. Eina breyting-
in sé að fólk viðurkenni að það
horfi á klám. Aðspurð um hvort
hún telji klámið hafa áhrif á
ungu kynslóðina, klæðaburð sem
dæmi, sagði Elísabet. „Það er
ekki bara klámið. MTV-kynslóð-
in er öll berrössuð. Það er fullt af
stelpum sem klæða sig niður en
horfa ekki á klám og myndu
aldrei hafa gaman af því.“
Þórhallur Heimisson, prestur
í Hafnarfjarðarkirkju, telur ekki
af hinu góða að blása út heim-
sóknir klámmyndastjarna. Hann
segir að rannsóknir hafi sýnt að
klám og ofbeldi fari oft saman og
þá sérstaklega hjá ungum strák-
um. „Þeir taka myndunum oft
sem hinum stóra sannleika og
fara kannski í framhaldinu að
beita niðurlægingum gagnvart
stelpum,“ segir Þórhallur. Hann
segir einnig hætt við því að
stelpur sem horfi á myndirnar
líti þannig á að svona eigi þetta
að vera og beygi sig fyrir því.
Þórhallur telur að ákveðinn
spenningur hafi orðið í kringum
klámiðnaðinn á Norðurlöndun-
um um 1970. „Í dag er þetta frek-
ar orðið þannig að fólk hristir
höfuðið yfir því. Við erum kanns-
ki að ganga í gegnum það sem
gerðist í Evrópu fyrir 30 árum
og ég hugsa að þetta sé ákveðið
tímabil sem gengur yfir.“
Þórhallur telur að efla þurfi
umræðuna um klámiðnaðinn,
eins og var gert í sambandi við
eiturlyfjavandann. „Það þarf að
vera umræða um hvað ást og
kynlíf getur gefið krökkunum á
jákvæðum nótum. Ekki á rit-
skoðunarnótum.“
kristjan@frettabladid.is
ÞÓRHALLUR HEIMISSON
Prestur í Hafnarfjarðarkirkju segist þekkja til dæma þar sem klámsíður á Netinu hafi
haft slæm áhrif hjá hjónum. „Það er oft dropinn sem fyllir mælinn,“ segir presturinn.
Í kjölfar heimsóknar klámmyndastjörnunnar Ron Jeremy hingað
til lands hafa vaknað upp spurningar hvort klámmyndaiðnaðurinn
sé að tröllríða landanum.
Fyrstu viðbrögð við Sigur Rós-ar plötunni virðast afar góð.
135 manns lögðu leið sína í Skíf-
una eftir mið-
nætti á sunnu-
dagskvöld til þess
að tryggja sér
eintak. Þetta er
besta „miðnæt-
uropnun“ Skíf-
unnar frá upp-
hafi. „( )“ seldist
afar vel í gær. Til
viðmiðunnar má nefna að aðeins
um 50 eintök fóru af nýju Cold-
play plötunni þegar opnað var
sérstaklega á miðnætti til þess að
selja hana.
Leikkonan Alyssa Milano, úr„Charmed“ þáttunum, og
Nsync söngvarinn Justin Tim-
berlake eru par.
Þau eru víst svo
voðalega ástfang-
in að þau íhuga
þessa dagana
hvort þau eigi að
ganga í það heila-
ga. Átta ára ald-
ursmunur er á
milli þeirra og er
Milano líklega ekki jafn hörð á
reglunum í ástarlífinu eins og
Britney Spears.
Pilturinn þarf líka á einhverj-um ástríkum að halda. Nú
keppast breska og bandaríska
pressan um að skjóta á Justin
Timberlake þar sem fyrsta
sólósmáskífa hans náði ekki topp-
sæti sölulistans á fyrstu vikunni.
Það er ekkert grín að vera sykur-
poppari og fara ekki alla leið upp
á topp. Það þykir víst lítið afrek
að fara beint í annað sætið.
...og ekki bætir það ímynd JustinTimberlake í augum smástúlkn-
anna að hann er nýbúinn að við-
urkenna að hann hafi prufað að
reykja kannabis. Þetta segist
hann hafa gert eftir að popparinn
Nelly bauð honum „eina feita“
eftir að upptökum á dúett þeirra
lauk.
Leikarinn Ewan McGregor hef-ur sæst við æskuvin sinn og
leikstjórann Danny Boyle. Nú eru
þeir aftur orðnir svo miklir
perluvinir að talið
er að McGregor
sér reiðubúinn til
þess að taka aftur
að sér hlutverk
Renton’s í fram-
haldsmynd Train-
spotting. Myndin
verður gerð eftir
bókinni „Porno“
sem fjallar um allar sömu per-
sónur og fyrri myndin en gerist
tíu árum seinna. Allur leikara-
hópurinn úr fyrri myndinni er í
viðræðum við framleiðendur sem
eru bjartsýnir á að samningar
gangi upp.
Það hefur vakið þó nokkra at-hygli að einn meðlimur kvið-
dómsins í máli leikkonunnar
Winonu Ryder er fyrrum kvik-
myndaframleiðandi. Hann hefur
FRÉTTIR AF FÓLKI
Stóri sannleikurinn
er ekki í klámmyndum
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4
MR. DEEDS kl. 5.50, 8 og 10.10
BEND IT LIKE BECKHAM kl. 5.45
Sýnd kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10
Sýnd kl. 8 og 10.30
kl. 8FÁLKAR
kl. 10THE GURU
MAÐUR EINS OG ÉG kl. 6
THE BOURNE IDENTITY kl. 10.20Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 VIT429
YA YA SISTERHOOD 5.45, 8 og 10.15 VIT455 HAFIÐ kl. 4 og 6
VIT
433
SIGNS kl. 8 VIT427
MAX KLEEBLE´S.. kl. 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.15 VIT427
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15 VIT 448
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 VIT 451
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 VIT 445
kl. 7MÖHÖGULEIKAR
kl. 4.50, 8 og 10.15HAFIÐ
kl. 5.45 og 8YA YA SISTERHOOD
KVIKMYND
Leikstjóri Sam Mendes, hand-rit David Self, aðalhlutverk
Tom Hanks, Paul Newman, Jude
Law, Stanley Tucci – með þessi
spil á hendi á að vera hægt að
taka alslemm í grandi, en út-
koman er í besta falli eitt lauf.
Þetta er glæsileg mynd að öllu
leyti og ekkert hefur verið til
sparað í kunnáttu, hæfileikum
og peningum við gerð hennar,
en það vantar í hana sálina;
maður skilur ekki afhverju það
er verið að segja manni þessa
sögu né afhverju maður ætti að
hafa áhuga á sögupersónunum.
Tom Hanks leikur leigumorð-
ingja og Paul Newman er mafíu-
foringi og nokkurs konar upp-
eldisfaðir hans. Ártalið er 1931
og sviðsmyndin er ótrúlega
glæsileg, fornbílar í hundraða-
vís og þúsundir statista í fyrsta
flokks búningum. Tom Hanks er
álíka trúverðugur í hlutverki
leigumorðingjans eins og
Woody Allen væri í hlutverki
James Bond, og Paul Newman
er ekki á tjaldinu nema sosum
tíu mínútur. Jude Law reynir að
æsa sig upp að þykjast vera
stórhættulegur geðsjúklingur.
Tja, hvað á maður að segja?
Þráinn Bertelsson
THE ROAD TO PERDITION:
Aðalhlutverk: Tom Hanks,
Paul Newman, Jude Law, Stanley Tucci,
Jennifer Jason Leigh
Handrit: David Self
Leikstjórn: Sam Mendes
Leiðin til
glötunar
meira að segja,
tæknilega, verið
yfirmaður
leikkonunnar þar
sem hann fram-
leiddi myndina
„Bram Stoker’s
Dracula“. Hvor-
ugur lögmaður-
inn í málinu sá ástæðu til þess að
setja út á setu hans í kviðdómn-
um. Hvort þau þekkist eitthvað
persónulega hefur ekki komið
fram.
Jennifer Lopez segist aldrei hafaverið í „raunverulegu hjóna-
bandi“. Hún gifti sig fyrst 1997
fyrirsætunni Ojani Noa og skildi
við hann ári síðar. Þá hófst frægt
ástarsamband hennar og Puff
Daddy. Svo kynntist hún dansar-
anum Cris Judd sem hún giftist
jafn hratt og hún skildi við hann.
Nú segir hún að hugsanlegt sé að
Ben Affleck sé „hinn eini rétti“ og
talað er um að parið ætli að binda
hnútinn næsta Valintínusardag.
ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
Hún segir að fyrsti dagurinn í fylgd klám-
myndaleikarans hafi verið frábær en síð-
an hafi allt breyst. Henni fannst sem hann
liti á stúlkur sem leikara í klámmynd.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI