Fréttablaðið - 29.10.2002, Síða 21

Fréttablaðið - 29.10.2002, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 29. október 2002 and Björk of course...: Allra síðasta sýning LEIKHÚS Fimmtudagskvöldið 31. októnber verður aukasýning og jafnframt allra síðasta sýning á leikriti Þorvaldar Þorsteinsson- ar, And Björk, of course á Nýja sviði Borgarleikhússins. Bene- dikt Erlingsson stýrir leikhópn- um á Nýja sviðinu, en leikendur eru Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Halldóra Geirharðs- dóttir, Harpa Arnardóttir, Marta Nordal, Sóley Elíasdóttir og Þór Tulinius.  FÓLK Söngkonan Alicia Keys hefur ákveðið að reyna að fóta sig á leik- listarbrautinni. Hún hefur tekið að sér hlutverk í kvikmynd sem Disney Film ætlar að framleiða. Myndin hefur ekki enn hlotið nafn en henni hefur verið lýst sem „táradal“. Búist er við því að tök- ur hefjist næsta sumar. Alicia sækir ekki leikhæfileik- ana langt því móðir hennar er leikkona. Sjálf hefur Alicia stund- að leiklist lengur en tónlist. Aðdáendur hennar óttast að þetta hliðarspor verði til þess að fresta útgáfu nýs efnis frá söng- konunni hæfileikaríku. Hún hefur þó unnið að nýju efni frá því að hún gaf út síðustu plötu og segist eiga lagasafn á að að minnsta kosti tvær plötur nú þegar. Vonandi heldur hún sig svo við tónlistina.  Alicia Keys: Stefnir á hvíta tjaldið ALICIA KEYS Ætlar sér ekki bara í kvik- myndirnar því hún er líka búin að koma upp sinni eigin fatalínu. KVIKMYNDIR Woody Allen gerði ekki mikið úr hæfileikum sínum sem leikara eða leikstjóra í ræðu sem hann hélt í Róm í gær. Þar var hann að kynna nýjustu mynd sína, Hollywood Ending. „Ef ég ætti að nota þrjú orð til að lýsa sjálfum mér yrðu það orðin: „Gjörsamlega mislukkaður listamaður,“ sagði Allen. Hann gerði líka lítið úr hæfi- leikum sínum sem klarinettuleik- ara og sagði að enginn myndi koma á tónleikana hans nema vegna þess að hann er frægur fyrir. Leikstjóranum varð tíðrætt um kvikmyndagerð í Hollywood sem hann sagði standa þeirri evrópsku langt að baki. „Ég er hrifinn af mönnum eins og Pedro Almodovar, en Hollywood er staður þar sem menn eyða stjarnfræðilegum upp- hæðum í að gera lélegar kvik- myndir.“ Woody Allen hefur unnið til þriggja Óskarsverðlauna fyrir myndir sínar og var nýlega sæmd- ur Prince of Austurias-verðlaun- unum sem eru einskonar spænsk útgáfa af Nóbelnum.  Woody Allen: Gjörsamlega mislukkaður WOODY ALLEN Fjallar gjarnan um miðaldurskrísur í verkum sínum. Miðað við ummæli hans í Róm er hann ekkert að skána af sinni þótt kominn sé fast að sjötugu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.