Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.10.2002, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 29.10.2002, Qupperneq 22
22 29. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR HRÓSIÐ ... fá þeir félagar í Samsoni ehf. Það er ýmislegt sem menn geta gert við rúma tólf milljarða annað en að kaupa banka á Íslandi. Í litlu samfélagi vekur slíkt ávallt athygli og umræðu sem menn geta alveg verið án. Þeir Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson ákváðu hins vegar að setja mark sitt af alvöru á íslenskt fjármálalíf. Ferill þeirra til þessa bendir ekki til annars en að þeir séu hreinrækt- aðir kaupsýslumenn sem vinni verk sín af alúð og djörfung. Með þessu skrefi hefur fjölbreytni við- skiptalífsins aukist sem eftir öllum lögmálum ætti að leiða til þess að viðskiptalífið verði heilbrigðara. Undanhald annarlegra sjónarmiða í viðskiptum er fagnaðarefni fyrir framtíð samfélagsins.  Gömul svín og ný Einar Örn Benediktsson er orðinn fertugur, en finnst hann ekki deg- inum eldri en átján. Smekkleysa á líka stórafmæli í ár og Einar leggur sitt í púkkið til að minnast tímamótanna. Hann er ánægður með frammistöðu Sykurmolanna í Popppunktinum. „Ég skipulegg ekkert, það gefur ekki góða raun,“ segir Einar Örn Benediktsson, Sykurmoli með meiru, sem er fertugur í dag. „Ef eitthvað bregður út af þá verð ég svo óhamingjusamur. Þetta er ekki hjátrú, ég sé bara enga ástæðu til að vera að spenna mig upp núna frekar en á öðrum af- mælisdögum. Ef ég get átt dag- inn með konunni minni og börn- um verð ég alveg ferlega kátur. Ég vona að dagurinn endist sem lengst og að þau verði ánægð með að eiga svona gamlan karl. Svo á ég örugglega eftir að tár- ast á viðkvæmum augnablikum, til dæmis þegar ég fæ elskuleg símtöl og hugsanir frá vinum og vandamönnum um allan heim.“ Einar segist hafa átt mörg góð afmæli en minnist þess sér- staklega þegar hann varð þrítug- ur á strönd í Kaliforníu. „Ég fékk Madonnubókina Sex í afmælis- gjöf og á hana enn. Einhvern- tíma þegar ég átti afmæli fór ég og sótti ferlega góðar snittur hjá strákunum á Jómfrúnni og var með 40 stiga hita þegar ég kom heim. Mér skilst ég hafi bara ruglað.“ Einar Örn er að vinna að plötu sem hefur verið í undir- búningi í rúmlega ár. „Ég hef verið að henda mér til hans Bibba í Curver niðri í stúdíói Rusl og er með hugmyndir að lögum sem við erum að vinna. Nei, ekki fyrir jólamarkaðinn, við stefnum að því að eiga gleði- leg jól. En páskaplata kæmi al- veg til greina.“ Smekkleysa heldur upp á 15 ára afmæli sitt í ár, árið sem hún er 16 ára. „Hátíðin er haldin und- ir yfirskriftinni Alltaf sama svínið,“ segir Einar. „Við ætluð- um að gefa Smekkleysuverð- launin, en það fórst fyrir. En eitt- hvað kemur út á geisladiskum til hátíðabrigða, gömul svín og ný. Það er enn í gangi gamla mottó- ið: Heimsyfirráð eða dauði.“ En af hverju gátu Sykurmol- arnir ekkert í Popppunktinum? „Hvað meinarðu?“ spyr Einar, ofboðslega hneykslaður á spurn- ingunni. „Þetta var algjör sigur, sigur andans yfir efninu. Það er alveg á tæru. Fólk hefur verið að hnýta í okkur fyrir að vita ekki að Svala Björgvins er fædd 1925 en ekki 18. En við stóðum okkur rosalega vel,“ segir sá fertugi og snýr sér að því að plana ekkert fyrir afmælisdaginn. edda@frettabladid.is FÓLK Í FRÉTTUM AFMÆLI Þorbjörn Jensson, fyrrverandilandsliðsþjálfari í handbolta, starfar nú með ungu fólki hjá Fjölsmiðjunni í Kópavogi. Hann segist hafa mjög gaman af því að vinna með ungu fólki enda hafi hann lengi verið búinn að vera í þeim geira í gegnum íþróttirnar. Segist hann njóta þess sérstak- lega mikið núna þegar það gangi svona vel. Eftir að Þorbjörn hætti sem landsliðsþjálfari hóf hann fljót- lega störf hjá Fjölsmiðjunni. Ætli hann sakni ekkert þjálfarstarfs- ins? „Fyrst þegar ég fór úr þessu var ég að mörgu leyti mjög feginn að losna, enda var ég búinn að vera lengi í þessu. Þegar frá líður hefur samt meiri og meiri áhugi kviknað. Maður er farinn að fylgj- ast meira með þessu og almennt með íþróttum.“ Aðspurður segist Þorbjörn hins vegar ekki enn vera orðinn nógu hungraður til að fara aftur út í þjálfunina. Helsta áhugamál Þorbjörns er útivera og er eiginkonan hans dugleg að fara með honum. „Ég hef gífurlegan áhuga fyrir úti- veru. Ég ferðast mjög mikið og er mikið í útilegum. Ég svaf úti í fellihýsinu núna um síðustu helgi og þá endaði ég útlegurnar því ég er búinn að vera nánast hverja einustu helgi í útilegu frá því í vor. Ég er bæði að veiða og svo hef ég verið í skotveiði í haust, þannig að ég hef mjög mörg áhugamál og er ekki uppiskroppa með þau.“  Þorbjörn Jensson, fyrrum landsliðsþjálfari í handbolta, starfar nú með ungu fólki hjá Fjölsmiðjunni í Kópavogi. PersónanEkki uppiskroppa með áhugamál Hallgrímur Jónsson, yfirflug-stjóri Flugleiða, sem hingað til hefur verið talinn efstur á óskalista samgöngu- ráðuneytis- ins yfir inn- lenda full- trúa í nýja rannsóknarnefnd samgönguráð- herra vegna Skerjafjarðarslyss- ins, þykir nú varla koma til greina í nefndina. Ástæðan er, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins, sú að Hallgrímur þykir of tengdur málsaðilum. Tengslin eru annars vegar fólgin í því að Hallgrímur er starfandi próf- dómari fyrir Flugmálastjórn inn- an Flugleiða. Hins vegar skrifaði Hallgrímur, ásamt mörgum öðr- um í flugheiminum, undir stuðn- ingsyfirlýsingu í fyrrahaust við þáverandi formann rannsóknar- nefndar flugslysa, Skúla Jón Sig- urðarson, sem sæta hafði mátt harðri gagnrýni vegna rannsókn- arinnar á Skerjafjarðarslysinu. JARÐARFARIR 14.00 Sveinn H. Klemenzson, Tjarnar- bakka, Bessastaðahreppi, verður jarðsunginn frá Bessastaðakirkju. 15.00 Helgi Jónsson, Eiðismýri 22, Sel- tjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 15.00 Ingibjörg Pétursdóttir, Efstalandi 6, verður jarðsungin frá Bústaða- kirkju. AFMÆLI Guðjón Guðmundsson alþingismaður er sextugur. Einar Örn Benediktsson er fertugur. Þorsteinn Pálsson sendiherra er 55 ára. Einar Már Sigurðarson er 51 árs. FÓLK Í FRÉTTUM TÍMAMÓT EINAR ÖRN BENEDIKTSSON Veit ekki nema hann tárist á viðkvæmum augnablikum í dag. Almennum flokksmönnum íFramsóknarflokknum í Reykjavík hefur verið boðið að tjá skoðun sína á því hvaða að- ferðum eigi að beita við val á frambjóðendum fyrir næstu Al- þingiskosningar. Flokksmenn geta valið um að hringja í for- menn Framsóknarfélaganna, senda þeim bréf eða tölvuskeyti. Sumum flokksmönnum mun lítið til þessarar óformlegu, óbind- andi og óvísindalegu skoðana- könnunar koma. Sérstaklega þykir hún vandræðaleg þar sem fundarstjóri neitaði að láta greiða atkvæði um ályktun um leiðir til vals á framboðslista á óvenju fjölmennum aðalfundi fyrr í þessum mánuði. Kunnugir telja sumir að mæt-ingin á kjördæmisráðsþingi Samfylkingar í norðvesturkjör- dæmi kunni að hafa ráðið úrslit- um um það að ákveðið var að stilla upp á lista en efna ekki til flokksvals eins og flokksforyst- an hafði lagt áherslu á. Þeir full- trúar á þinginu sem eiga rætur að rekja í Alþýðubandalagið mættu nær allir. Sömu sögu var víst ekki að segja af krötunum sem hafa löngum verið taldir hallari undir prófkjör. Nokkur hluti þeirra mun hafa haldið sig heima og segja sumir að það hafi ráðið úrslitum. Uppsetningu LeikfélagsReykjavíkur á Sölumanni deyr eftir Arthur Miller var vel tekið þegar hún var frumsýnd á föstudagskvöld. Áhorfendur fögnuðu sýningunni í leikslok og virtist samdóma álit manna að Pétur Einarsson hefði farið á kostum í hlutverki Willys Lom- ans. Það vakti þó nokkra athygli að mikið var um auð sæti, sér- staklega í ljósi þess að auglýst hafði verið að uppselt væri á sýninguna. Skýringin þá vænt- anlega sú að margir boðsgestir hafi látið sig vanta. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Að gefnu tilefni skal tekið fram að Árni Mathiesen er fyrsti dýralæknirinn í ráð- herrastóli sem dæmdur er fyrir meiðyrði. Leiðrétting Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað • Þínar tölur eru alltaf í pottinum • Frír útdráttur fjórum sinnum á ári – gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker • Þú styrkir gott málefni ÞORBJÖRN JENSSON Þorbjörn, sem verður fimmtugur á næsta ári, segist ekki vera á leiðinni aftur í hand- boltann alveg strax. Lögfræðingur nokkur var aðbíða í langri biðröð þegar sá sem stóð fyrir aftan hann fór allt í einu að nudda á honum axlirnar. „Hvurn andsk... ertu að gera, maður?“ hvæsti lögfræðingurinn á manninn. „Ég er nuddari,“ sagði maður- inn. „Og datt í hug að létta þér biðina með því að nudda þig svo- lítið.“ „Ég er lögfræðingur en stilli mig algerlega um að þjarma að manninum sem stendur fyrir framan mig.“  FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Jón Örn Marinósson var að flet-ta í kvæðakveri Hallgríms Pét- urssonar á dögunum og rakst þar á Heilræðavísur sem hann segist ekki hafa séð þar áður. Að hans sögn kvað annar tveggja manna sem sáust ræða saman í Stjórnar- ráðshúsinu vísurnar. Fyrsta vísan er svohljóðandi: Ungum er það allra best að óttast stjórnarherra, Þeim mun velferð veitast mest Og virðing aldrei þverra. Og síðasta vísan er eftirfarandi: Víst ávallt þeim vana halt: Vinna, þegja, læðast; umfram allt þó ætíð skalt elska mig og hræðast. FÓLK Í FRÉTTUM Í Hrísey Herðubreið Siv Friðleifsdóttir 1. 2. 3. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.