Fréttablaðið - 16.11.2002, Side 30

Fréttablaðið - 16.11.2002, Side 30
30 16. nóvember 2002 LAUGARDAGUR ÓKEYPIS Haustveðrið. Svalar stillur ogfegurð þegar við gerum eng- ar kröfur um veður. Hver dagur eins og bónus; viðbót við annað gott þegar við helst vildum það betra. En á haustin gerum við ekki kröfur. Þökkum fyrir hvern dag sem er ekki brjálað veður. Því meira verður þakklætið þeg- ar birtan bætist við. Birta sem lætur ekki sjá sig á öðrum árs- tímum. Jafnvel hvítt verður gult. Og gult grænt. Bláminn aldrei bjartari. Njótum fegurðar hausts- ins sem farið er að teygja sig inn í veturinn. Það er ókeypis. FÓLK Í FRÉTTUM Einhverju sinni var ég staddur ákvikmyndahátíð í São Paulo í Brasilíu. Yfir kvöldverðinum á hótelinu varð ég var við að það er alltaf maður þarna sem vill mikið tala við mig. Ég hélt fyrst að hann væri kannski samkynhneigður og væri bara að reyna við mig. Hon- um var svo mikið niðri fyrir. Þetta nálgaðist að vera áreiti og þegar við komum úr matnum, án þess að maðurinn hefði nokkurn tíman sagt orð við mig, gekk ég bara að honum og sagði „áttu eitthvað van- talað við mig vinur?“ Hann jánkaði því, þannig að ég bauð honum drykk á hótelbarnum. Þetta var rússneskur kvikmynda- framleiðandi og hann mátti vart mæla fyrir æsingi en það kom í ljós að hann hafði verið flotafor- ingi í Rauða hernum og hafði verið fyrir utan Faxaflóa og miðað kjarnorkusprengjum á tvö skot- mörk stanslaust í þrjú ár. Annað á Reykjavíkurflugvelli og hitt á Keflavíkurflugvelli. Hann var bú- inn að halda í gikkinn mörgum sinnum og hafði aldrei séð Íslend- ing sem hann ætlaði þarna að fara að strauja út af kortinu. Ég tók þessu náttúrlega eins og hverju öðru fyllerísrugli og sagði honum að þetta gæti nú aldrei staðist, að menn færu að skjóta inn í miðja íbúðabyggð. „Jú, jú. Ég get meira að segja sannað það,“ sagði hann og upphóf þessa fögru söng- rödd í kósakkastíl og söng Svífur yfir Esjunni alveg villulaust og þá var mér nú brugðið. Skýringuna fékk ég á næstu kvikmyndahátíð sem var á Hawaii. Þá hitti ég amerískan hermann sem hafði unnið á radarstöðinni. Hann sagði mér að kafbátarnir hefðu alltaf legið undir íslensku fiskibát- unum og ef þeir reyndu að hlusta á eitthvað annað en það sem var í gangi í bátunum sjálfum voru þeir strax spottaðir á radarnum. Þannig að þeir kunnu Óskalög sjómanna og sjúklinga utan að. Þessi maður vildi ekki rengja Rússann.  Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri, segir sögu af ósýnilegri ógn á Faxaflóanum og skorar á félaga sinn Einar Kárason, rithöfund, að segja næstu sögu. Sagan Ósýnileg ógn á Faxaflóanum Það er ekki laust við að Fram-sóknarmenn í Norðvestur- kjördæmi hafi verið kátir und- anfarna daga. Hart er barist um efsta sætið á listanum og önnur örugg þingsæti á kjördæmis- þingi um helgina og allra tíð- inda von. Nú þykjast menn hins vegar sjá að sama hvernig fer um helgina geti eftirmálin aldrei orðið jafn harkaleg og eftir prófkjör Sjálfstæðismanna um síðustu helgi. Enda var það svo að einn þingmanna Fram- sóknar ljómaði allur þegar hann ræddi málið við blaðamann en beit í vörina og leit undan þegar hann var beðinn um að spá fyrir um úrslitin. JARÐARFARIR 14.00 Hólmfríður Magnúsdóttir, Borg- arbraut 22, Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju. 14.00 Jón Ólafsson frá Hamri í Ham- arsfirði, Hátúni 17, Eskifirði, verð- ur jarðsunginn frá Djúpavogs- kirkju. Jarðsett verður í Her- mannastekkum í Hamarsfirði. 14.00 Óskar Björgvinsson, ljósmyndari, Vestmannaeyjum, verður jarð- sunginn frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum. 14.00 Valgerður Haraldsdóttir, Brunn- um 3, Patreksfirði, verður jarð- sungin frá Patreksfjarðarkirkju. 14.00 Guðjón Helgason, fyrrverandi bóndi á Rauðaskriðum, Fljótshlíð, verður jarðsunginn frá Hlíðar- endakirkju. ANDLÁT Arngrímur Guðjónsson lést á hjúkrun- arheimilinu Sólvangi 13. nóvember. Fanney Einarsdóttir Long, kjólameist- ari, Miðleiti 5, lést 13. nóvember. TÍMAMÓT MEÐ SÚRMJÓLKINNI Vegna mikilla sviptinga í íslensku fjármála- lífi skal tekið fram að enn er Esjan óseld. Leiðrétting VIÐ PERLUNA Myndverkið við Perluna er eftir Þorbjörgu Pálsdóttur myndhöggvara. FRÉTTAB LAÐ IÐ /B ILLI Hallgerður Thorlacius. Odd Nerdrum og er norskur. Hu Jinato. 1. 2. 3. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 Hvað er grænt og segir„Bebe?“ Svar: Grænt Bebe Hvað er rautt og segir „Bebe?“ Svar: Grænt Bebe í rauðum náttfötum. FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON „Hann var búinn að halda í gikkinn mörg- um sinnum og hafði aldrei séð Íslending sem hann ætlaði þarna að fara að strauja út af kortinu.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI REIÐNÁMSKEIÐ Síðustu námskeið hefjast 19. nóvember. Barnahópar og fullorðins, byrjendur og lengra komnir. Uppl. og skráning 575 1566 Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal. TÓNLIST Rödd Guy Berryman, bassaleikara Coldplay, hljómaði afar rám í gegnum símann þegar hann kynnti sig fyrir blaðamanni í gær. Það kom svo sem ekkert á óvart þar sem sveitin hafði kvöld- ið áður unnið verðlaunin sem besta breska hljómsveitin á evr- ópsku MTV-verðlaunahátíðinni. Það er því auðvelt að ímynda sér að hann hafi tekið þátt í skralli lengst fram á nótt umkringdur öll- um hinum stjörnunum á strætum Barcelona. Það virðist þó sem Berryman hafi verið nokkuð ró- legur þetta kvöld og satt best að segja hljómaði hann ekkert sér- staklega sáttur við úrslit kvölds- ins. „Ég býst við því að það hafi verið betra að vinna þetta en ekki neitt,“ sagði hann með sérstak- lega rólegum tón. „Við hefðum helst viljað fá verðlaunin fyrir bestu breiðskífuna en miðað við þær plötur sem voru þar áttum við ekki möguleika á því. Svona verðlaun skipta okkur ekki mestu máli, það gera plöturnar okkar. En samt, ef við hefðum ekki unnið neitt hefði okkur örugglega liðið eins og það væri verið að skilja okkur út undan.“ Berryman viðurkennir að hon- um finnist svona uppákomur fremur undarlegar. Heimsfrægt fólk, blaða- og markaðsmenn í hvaða átt sem menn horfa. Þegar reynt er að toga upp úr honum villtar sögur af gleðskap fræga fólksins er hann snöggur að vatns- þynna þær. „Ef ég á að vera alveg heiðarlegur er ekket glys bak- sviðs og allt frekar leiðinlegt. Við fórum beint upp í rútu og keyrð- um til Madrid,“ segir hann og hlær. Sveitin hefur verið á tónleika- ferðalagi um heiminn frá því að verðlaunabreiðskífa þeirra „A Rush of Blood to the Head“ kom út um miðjan ágúst. Þeir hafa eytt mestum tíma sínum í Bandaríkj- unum og eru ein af fáum breskum sveitum sem á miklum vinsæld- um að fagna þar í landi. Hann tel- ur vaxandi vinsældir Coldplay þar í landi byggja á afar einfaldri staðreynd. „Ég held að margar sveitir geri sér ekki grein fyrir því hvað Bandaríkin eru stór og hvað þarf að eyða miklum tíma í að ferðast og spila. Ég held að okkur gangi vel af því að við höf- um lagt mikið á okkur og reynt að spila á sem flestum stöðum.“ Hann viðurkennir að liðsmenn séu byrjaðir að þreytast á heims- hornaþeytingnum og bíður spenntur eftir því að koma hingað til lands. Ekki bara vegna þess að tónleikarnir hér eru síðustu tón- leikar ársins, heldur vegna þess að hér ætla liðsmenn að eyða þremur dögum í að ná aftur and- anum. „Okkur langaði svo til að spila sérstaka jólatónleika á Íslandi. Heldur þú að það verði ekki ör- ugglega snjór þarna í desember?“ spyr hann og verður að teljast nokkuð bjartsýnn. „Ég býst samt við að við reynum að framkalla einhvern jólablæ á tónleikana. Við höfum áður leikið lagið „Have Yo- urself a Merry Little Christmas“ á tónleikum.“ Sviðshlutir sveitarinnar hafa vaxið í samræmi við vinsældir og segir Berryman sveitina nú styðj- ast við risasjónvarpsskjái og auk- ið ljósakerfi. Það ættu því að vera þó nokkrar líkur á því að tónleika- gestir Laugardalshallarinnar fái að sjá framan í hann í þetta skipti. Það er að segja ef hann greiðir hárið frá augunum. Írska rokksveitin Ash hitar upp. Miðsalan hefst á mánudag kl. 10 í verslunum Skífunnar. Það kostar 4.400 kr. í stæði en 5.400 í stúku. biggi@frettabladid.is COLDPLAY Voru verðlaunaðir á evrópsku MTV-verðlaunahátíðinni á fimmtudag sem besta breska hljómsveitin. Guy Berryman bassaleikara (annar frá hægri) finnst leiðinlegt að vera baksviðs á slíkum athöfnum. Jólaævintýri á Íslandi Coldplay er á leiðinni aftur til landsins til þess að halda hér tónleika 19. desember. Guy Berryman bassaleikari var enn hálfvankaður eftir evrópsku MTV- verðlaunin þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.