Fréttablaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 2
2 22. janúar 2003 MIÐVIKUDAGUR INNLENT Páll Magnússon er upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar sem var að opna Íslendingabók á Netinu. Þar geta menn dundað sér við að rekja skyldleika sinn við aðra Íslendinga. Við Kári erum skyldir í sjöunda lið. Sameig- inlegir forfeður okkar heita Guðmundur Þorvarðsson og Sesselja Eyjólfsdóttir frá Ögri við Ísafjarðardjúp. SPURNING DAGSINS Páll, hvernig eruð þið Kári skyldir? ÍRAKSDEILAN Bretland og Bandarík- in munu beita öllum tiltækum ráð- um til að eyða hættunni sem stafar af Saddam Hussein, sagði Tony Blair á fundi með formönn- um þingnefnda breska þingsins. Hann sagði engar leiðir útilokaðar við að tryggja að markmiðin um kjarnorkuvopnalaust Írak næðist. Aðspurður um hvort kæmi til greina að hóta notkun kjarnorku- vopna vildi hann ekki útiloka það. Blair sagði æskilegt að örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna sam- þykkti nýja ályktun sem heimilaði innrás í Írak en væri ekki for- senda frekari aðgerða. Franskir, þýskir, rússneskir og kínverskir ráðamenn vilja fara hægar og gefa eftirlitsmönnum betri tíma til að vinna verk sitt. Dominique de Villepin, utanríkis- ráðherra Frakklands, sagði í gær enga réttlætingu fyrir stríði komna fram og útilokaði ekki að Frakkland beitti neitunarvaldi sínu í öryggisráðinu. „Hversu mikinn tíma þurfum við til að sjá að hann er ekki að afvopnast?“ spurði George W. Bush af því tilefni og ítrekaði að tíminn væri senn á þrotum. „Þetta er eins og að horfa á end- ursýningu lélegrar kvikmyndar. Hann er að tefja. Hann er að blekkja. Hann er að biðja um meiri frest. Eitt er víst, hann er ekki að afvopnast,“ sagði Bush um Saddam Hussein. ■ Frakkar og Þjóðverjar hvetja til varkárni: Öllum ráðum beitt gegn Írak TONY BLAIR Sagði að öllum tiltækum og nauðsynleg- um ráðum yrði beitt til að draga úr hætt- unni sem stafar af Írak. AP /M YN D Kastaði í ráðherra: Dýrkeypt eggjakast KAUPMANNAHÖFN 19 ára Dani hefur verið dæmdur í tveggja vikna fangelsi fyrir að kasta eggi í höf- uð Anders Fogh Rasmussen for- sætisráðherra. Maðurinn kastaði eggi í Fogh Rasmussen þegar forsætisráð- herrann var að yfirgefa athvarf fyrir heimilislausa í Kaupmanna- höfn á síðasta ári. Upphaflega var hann dæmdur til greiðslu 3.000 danskra króna í sekt. Saksóknarar áfrýjuðu dómnum og kröfðust þyngri refsingar. Ekki er ljóst hvort Fogh Rasmussen hafi farið fram á það, en sjálfur gerði hann síðar grín að eggjakastinu. ■ Brottför Vilhjálms Egils- sonar af Alþingi: Fær ekki biðlaun STJÓRNMÁL Vilhjálmur Egilsson, sem sagði af sér þingmennsku um miðjan janúar, fær ekki greidd bið- laun. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis gera menn þar á bæ ráð fyrir að laun Vilhjálms í nýju starfi hjá Al- þjóða gjaldeyris- sjóðnum séu hærri en sem nemur þingfararkaupinu. Sjálfur mun Vil- hjálmur að minnsta kosti ekki hafa óskað eftir greiðslu biðlauna. Í lögum sem samþykkt voru árið 1999 segir að biðlaun séu ekki greidd fari menn í hærra launað starf. Sé launin lægri í nýja starfinu er greiddur mis- munur þeirra og þingfararkaups. Eftir 7% hækkun þingfararkaups- ins um áramótin er það nú tæpar 370 þúsund krónur á mánuði. Alþingismenn sem setið hafa á þingi lengur en tíu ár eiga rétt á sex mánaða biðlaunum. Þeir sem skemur hafa setið eiga rétt á þriggja mánaða launum. Þegar er ljóst að nokkrir núverandi þing- manna munu eiga tilkall til slíkra launa þar sem þeir ætla ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Það sama gildir um aðra sem kunna að falla út af þingi eftir kosningar í vor. ■ Misræmi í skráningu símanúmera: Bond og bin Laden í Noregi OSLÓ, AP Í símaskrám í Noregi má meðal annars finna Andrés Önd, Osama bin Laden og James Bond en ef ekkja vill skrá númer sitt undir nafni látins eiginmanns er það ekki leyfilegt. Þetta kom í ljós þegar kona á níræðisaldri hafði samband við dagblaðið Verdens gang og kvartaði yfir því að ósk hennar um að fá að nota nafn eig- inmannsins skyldi vera hafnað af útgefanda símaskrárinnar. Talsmenn útgefenda gáfu þá skýringu að manneskjan sem borgaði fyrir símaþjónustuna yrði að vera skráð fyrir númerinu. Þegar blaðið fór að athuga málið kom upp úr dúrnum að í símaskrám landsins má finna nöfn á borð við James Bond, Superman og Harry Potter svo dæmi séu tekin. Þar má einnig finna Osama nokkurn bin Laden sem skráður er til heimilis í Fjarskanistan. Gaf útgefandinn þá skýringu að allt væru þetta farsímanúmer þar sem notkunin væri greidd fyrirfram og margir þeirra sem notfærðu sér slíka þjónustu væru skráðir undir fölsku nafni. ■ VILHJÁLMUR EGILSSON Fær hærri laun en sem nemur þing- fararkaupi í nýju starfi og fær því engin biðlaun. Nýir þingmenn á Alþingi: Adolf í stað Vilhjálms ALÞINGI Adolf H. Berndsen tók í gær sæti á Alþingi í stað Vilhjálms Egilssonar, sem afsalaði sér þing- mennsku 16. janú- ar 2003. Adolf tók fyrst sæti sem varamaður á Al- þingi í febrúar 2001. Adolf tók ein- nig sæti Vilhjálms Egilssonar í sjáv- arútvegsnefnd og efnahags- og við- skiptanefnd. Adolf verður einnig varamaður í Ís- landsdeild þing- m a n n a n e f n d a r EFTA. Einar K. Guð- finnsson var kjörinn formaður efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis í stað Vilhjálms Egilssonar og Árni Ragnar Árnason var kjör- inn formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis í stað Einars K. Guðfinns- sonar. Þá tók Björgvin G. Sigurðsson í gær sæti sem varamaður á Alþingi í stað Margrétar Frímannsdóttur. Björgvin hefur fjórum sinnum tek- ið sæti á Alþingi, fyrst sem vara- maður í nóvember 1999. ■ LÁNSÁBYRGÐ SAMÞYKKT Bæjar- stjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að veita Lands- virkjun lánsábyrgð vegna fram- kvæmda við Kárahnjúkavirkjun. Tillaga um að veita ábyrgðina var samþykkt með tíu atkvæðum gegn einu, en það var fulltrúi Vinstri grænna sem greiddi at- kvæði gegn tillögunni. Akureyr- arbær á 5% eignarhlut í Lands- virkjun. HVALVEIÐAR „Það er bara ein sam- þykkt til í Alþingi og hún er sú að hefja veiðar eins fljótt og unnt er,“ segir Guðjón Arnar Kristjáns- son, þingmaður Frjálslynda flokksins. Hann telur að Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hafi farið út fyrir það umboð sem Alþingi fól honum þegar hann gekkst inn á skilmála sem settir voru fyrir inngöngu Íslands í Al- þjóðahvalveiðráðið í október í fyrra. Þar er skýrt kveðið á um að Ísland muni ekki hefja hvalveiðar í atvinnuskyni fyrr en árið 2006. „Hefur Alþingi gefið honum það umboð að fresta atvinnuveið- um fram til 2006 og jafnvel lengur ef þörf þykir? Ég veit ekki til þess. Ráðherra bara skrifaði und- ir samninginn og tilkynnti hér í pontu á Alþingi,“ segir Guðjón Arnar og bætir við að þess vegna haldi hann til streitu frumvarpi sínu um að hefja skuli hið fyrsta hvalveiðar hér við land. „Ég er hins vegar mjög óhress með alla málsmeðferð. Málið hef- ur tvisvar verið sett á dagskrá en ekki fengist rætt,“ segir Guðjón Arnar. ■ Margrét Frímannsdóttir: Frá störfum í bili vegna veikinda STJÓRNMÁL Margrét Frímannsdótt- ir alþingismaður gekkst á föstu- dag undir velheppnaða aðgerð vegna krabba- meins í brjósti. Að því er segir í tilkynningu frá Össuri Skarphéð- inssyni, formanni Samfylkingarinn- ar, fór Margrét heim af Landspít- alanum í gær. Taka á ákvörðun um frekari meðferð á næstu dögum. Margrét verður af ofangreind- um ástæðum frá störfum um óákveðinn tíma. Hún er þó sögð munu leiða lista Samfylkingarinn- ar í Suðurkjördæmi í alþingis- kosningum í vor eins stofnað hafi verið til. Margrét er varaformað- ur Samfylkingarinnar. ■ ADOLF H. BERNDSEN tók í gær sæti Vil- hjálms Egilssonar, sem afsalaði sér þingmennsku fyrir viku og hélt til Washington. MARGRÉT FRÍ- MANNSDÓTTIR Velheppnuð aðgerð vegna brjóstakrabba. GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON Vill ræða hvalveiðar strax og segir sjávarútvegsráðherra ekki hafa haft leyfi Alþingis til að fresta hvalveiðum í atvinnuskyni. Umboð sjávarútvegsráðherra til að fresta hvalveiðum í atvinnuskyni Alþingi heimilaði ekki frestun KÖNNUN Rúmlega 88% lands- manna eru fylgjandi því að Ís- lendingar hefji hvalveiðar en tæp- lega 12% eru andvíg samkvæmt niðurstöðum könnunar Frétta- blaðsins. Í október fengu Íslendingar aftur aðild að Alþjóðahvalveiði- ráðinu og þá skuldbatt þjóðin sig til að hefja ekki hvalveiðar í at- vinnuskyni fyrr en árið 2006. Að- ildin opnaði hins vegar fyrir þann möguleika að hefja hvalveiðar í vísindaskyni. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að niðurstaðan sýni að Íslendingar séu í nánari snertingu við náttúruna en þeir umhverfissinnar úti í heimi sem sífellt séu að mótmæla hvalveið- um. Stjórnvöld hafi samt verið á eilífu undanhaldi, eins og skuld- bindingin til að hefja hvalveiðar ekki fyrr en árið 2006 sýni. Hann segir að nú sé vitað með nokkurri vissu hversu stór hvalastofninn sé og að það sé nóg af hval á Íslands- miðum. Árið 1986 til 1989 hafi veiðar í vísindaskyni verið stund- aðar því áhöld hafi verið uppi um það hversu stór hvalastofninn væri. Hörður Sigurbjarnarson, fram- kvæmdastjóri Norður-Siglingar á Húsavík, segir að ef stjórnvöld myndu heimila hvalveiðar myndi það hafa mjög slæm áhrif á ferða- þjónustu í landinu. Hvalaskoðun sé langöflugasta afþreyingin sem seld sé í íslenskri ferðaþjónustu. Á síðasta ári hafi ríflega 60 þús- und ferðamenn farið í hvalaskoð- un af þeim 150 þúsund sem komið hafi til landsins yfir sumartím- ann. „Ég tel það alveg víst að það myndi rústa minni atvinnustarf- semi ef hvalveiðar yrðu leyfðar fyrir Norðurlandi,“ segir Hörður. „Ég held að fólk átti sig kannski ekki alveg á því hvaða áhrif það myndi hafa ef við myndum hefja hvalveiðar í andstöðu við okkar viðskiptaþjóðir. Veltan í kringum hvalaskoðun hérlendis er um 800 til 1.300 milljónir króna á ári. Að- alsýningarhvalurinn hér fyrir norðan er hrefnan, sem hefur aldrei verið nein efnahagsleg stærð í íslensku þjóðlífi, nema þá helst á Brjánslæk. Ef hún yrði veidd hér myndi það eyðileggja okkar starfsemi.“ Í könnun Fréttablaðsins sögð- ust tæplega 10% aðspurða vera óákveðin eða neituðu að svara spurningunni, en spurt var: Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) því að Ís- lendingar hefji hvalveiðar? Alls voru 600 manns spurðir og skipt- ust þeir jafnt milli kynja og hlut- fallslega á milli kjördæma eftir áætluðum fjölda kjósenda í al- þingiskosningunum í vor. trausti@frettabladid.is HVALBÁTARNIR Í REYKJAVÍK Í október fengu Íslendingar aftur aðild að Alþjóðahvalveiðiráðinu og þá skuldbatt þjóðin sig til að hefja ekki hvalveiðar í atvinnuskyni fyrr en árið 2006. Aðildin opnaði hins vegar fyrir þann möguleika að hefja hvalveiðar í vísindaskyni. Um 90% vilja hefja hvalveiðar Forstjóri Hvals hf. segir Íslendinga vera í nánari snertingu við náttúr- una en umhverfissinnar úti í heimi. Hvalaskoðun veltir um 800 til 1.300 milljónum króna. Ísland er skuldbundið til að hefja ekki hvalveiðar í at- vinnuskyni fyrr en árið 2006.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.