Fréttablaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 4
4 22. janúar 2003 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ætlar þú að fylgjast með HM í
handbolta?
Spurning dagsins í dag:
Spilarðu í happdrætti, spilakössum,
lottói eða getraunum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
36%Nei
64%
MIKILL ÁHUGI
Mikill meirihluti
gesta á frett.is
ætlar að fylgjast
með strákunum
okkar á Heims-
meistaramótinu í
handbolta.
Já
Sjávarútvegsráðuneytið vill ekki samstarf við Norðmenn um fiskveiðar:
Óháðar stofnanir mega spá í málin
STJÓRNMÁL Ármann Kr. Ólafsson,
aðstoðarmaður Árna Mathiesen
sjávarútvegsráðherra, segir ut-
anríkisráðuneytið hafa sagt
sjávarútvegsráðuneytinu frá
áhuga Norðmanna á samstarfi
um mótun fiskveiðistefnu.
„Árni tók hins vegar ekki
undir málið,“ segir Ármann.
Hann upplýsir jafnframt að ekki
hafi verið leitað til sjávarút-
vegsráðuneytisins um styrk til
handa Háskóla Íslands til þátt-
töku í verkefninu.
Að sögn Ármanns virtist í
gær af fréttum, sem byggðar
voru á starfsmanni norsku utan-
ríkismálastofnunarinnar, sem
samstarfið væri milli fulltrúa
stjórnvalda þjóðanna. Það væri
hins vegar ekki rétt enda varla
grundvöllur fyrir slíku á þessu
stigi.
„Á meðan við erum með
samninga þjóðanna um síld,
loðnu og kolmunna í uppnámi
finnst mér ekki líklegt að við
förum að stjórna fiskveiðum
sameiginlega með Norðmönn-
um. Ég sé hins vegar ekkert að
því að óháðar stofnanir velti
þessum málum fyrir sér,“ segir
Ármann. ■
Unga konan enn ekki fundin:
Vinir kalla eftir hjálp á Netinu
LEIT Guðrún Björg Svanbjörnsdóttir,
31 árs, sem fór úr landi til Kaup-
mannahafnar 29. desember síðast-
liðinn, hefur enn ekki komið í leit-
irnar. Peningaúttekt með banka-
korti Guðrúnar 16. janúar úr hrað-
banka í miðbæ Kaupmannahafnar
er ein af vísbendingum sem borist
hafa um ferðir hennar. Sama dag
segja vitni að Guðrún hafi sést á
járnbrautarstöð í Malmö. Jónas
Hallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
segir engar nýjar upplýsingar hafa
borist um ferðir Guðrúnar.
Vinir Guðrúnar sendu frá sér
tölvupóst í fyrradag þar sem óskað
er eftir aðstoð við leitina. Í bréfinu
er fólk hvatt til að áframsenda
tölvupóstinn sem víðast og sérstak-
lega ef tengsl eru í Svíþjóð og Dan-
mörku. Þá segir að Guðrún hafi frá
14 ára aldri þjáðst af alvarlegu lyst-
arstoli. Óttast sé að hún fari nú
huldu höfði til þess eins að svelta
sig. Hver dagur skiptir því miklu
máli.
Guðrún hefur margsinnis verið
lögð inn í baráttunni við lystarstol. Í
september 2002 var gripið til þess
ráðs að svipta hana sjálfræði. Sætti
hún meðferð þar til henni var leyft
að heimsækja vini og kunningja í
Reykjavík fyrir hátíðarnar. Guðrún
sneri ekki aftur til Akureyrar eins
og um var samið heldur notaði tæki-
færið og fór úr landi. ■
Ráðuneytið vísaði
aðeins á skólann
Utanríkisráðherra fól ekki Háskóla Íslands að móta fiskveiðistefnu með
Norðmönnum. Ráðuneytið styrkir Háskólann um 500 þúsund krónur.
Sjávarútvegsráðherra var sagt frá áhuga Norðmanna í september.
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra segir samstarf
Alþjóðamálastofnunar Háskóla
Íslands við norska stofnun um
mótun hugsanlegrar sameigin-
legrar fiskveiðistefnu þjóðanna
ekki vera á vegum utanríkisráðu-
neytisins.
Halldór segir upphaf málsins
mega rekja til ræðu sinnar í
Berlín í mars í fyrra. „Ræðan var
um vandkvæði sem væru fyrir Ís-
land að gangast undir sameigin-
lega sjávarútvegsstefnu Evrópu-
sambandsins. Einnig um hugsan-
legar lausnir ef til þess kæmi að
Ísland sækti um aðild,“ segir
hann.
Að sögn Halldórs vakti ræða
hans í Berlín allmikla athygli:
„Norska utanríkispólitíska stofn-
unin, sem er sjálfstæð stofnun,
ákvað að fara út í rannsóknir á
þessu sviði. Stofnunin byggði það
meðal annars á samtölum við
ýmsa aðila sem töldu að í þessari
ræðu minni hefðu komið fram
mjög áhugaverðar hugmyndir.“
Halldór segir norsku stofnun-
ina hafa leitað til ráðuneytis hans
um þátttöku í verkefninu. Utan-
ríkisráðuneytið hafi hins vegar
talið eðlilegra að Norðmennirnir
leituðu samtarfs við einhvern
utanaðkomandi aðila hérlendis.
„Þá var leitað upplýsinga hjá
okkur um það hvort einhver slík
stofnun væri til og við bentum á
Háskólann. Háskólinn fékk áhuga
á málinu og leitaði eftir fjárstuðn-
ingi hjá utanríkisráðuneytinu. Við
sögðumst vera tilbúnir að styrkja
þá með 500 þúsund króna fram-
lagi. Eftir því sem ég best veit eru
samtöl fram undan milli Alþjóða-
stofnunar Háskólans og þessarar
norsku stofnunar um málið,“ seg-
ir Halldór.
Vegna fréttar Ríkisútvarpsins í
gær um að Árni Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra hafi ekki vitað af
þessu norsk-íslenska samstarfi
segist Halldór sjálfur hafa heyrt
um áhuga Norðmanna á slíku
samstarfi í september í fyrra:
„Ég upplýsti sjávarútvegsráð-
herra um þetta í sama mánuði og
sagði honum að við teldum ekki
mögulegt af hálfu utanríkisráðu-
neytisins að taka beinan þátt í
verkefninu. Það er hins vegar
besta mál að stofnanir fari ofan í
saumana á þessu máli og leggi á
það sjálfstætt mat. Ég tel að það
þjóni hagsmunum Íslands að
sjálfstæðir aðilar stundi rann-
sóknir á málum sem skipta fram-
tíðarhagsmuni okkar miklu,“ seg-
ir utanríkisráðherra.
gar@frettabladid.is
Æfur ökumaður:
Árás með
sveðju
WASHINGTON, AP Bandarískur karl-
maður á sextugsaldri banaði manni
með sveðju eftir að bílar þeirra rák-
ust saman á bílastæði. Að sögn vitna
rakst bíll árásarmannsins utan í
sportbíl fórnarlambsins og rauk sá
fyrrnefndi þá út úr bílnum og réðst
á hinn ökumanninn. Höfuð manns-
ins, andlit og háls voru afar illa út-
leikin enda hafði árásarmaðurinn
ekki sparað höggin.
Farið var með hinn grunaða á
sjúkrahús þegar uppgötvaðist að
hann hefði reynt að fyrirfara sér
með því að drekka illgresiseyði
áður en lögreglan kom á vettvang.
Hann var útskrifaður skömmu
seinna. Fórnarlambið var 52 ára
gamall fasteignasali sem eitt sinn
hafði selt hinum grunaða fasteign
en ekki er enn vitað hvort það
tengdist árásinni. ■
Guðrún Gísladóttir:
Nýir kafarar
á leiðinni
BJÖRGUN Ásgeir Logi Ásgeirsson,
sem stjórnar björgunaraðgerðum
vegna Guðrúnar Gísladóttur KE,
segir að gengið hafi verið frá
samningum við nýtt köfunarfyrir-
tæki í stað fyrirtækisins sem
gekk úr skaftinu.
Að sögn Ásgeirs tóku starfs-
menn fyrra fyrirtækisins saman
föggur sínar fyrir helgi. „Nýju
kafararnir eru á leiðinni. Þeir
þurfa einhvern tíma í að koma sér
fyrir. Þeir eru með meiri búnað en
hitt fyrirtækið. Það kannski leysir
þau tæknilegu vandamál sem við
höfum átt við að eiga.“ ■
JÖRÐIN SKELFUR Tveir jarð-
skjálftar, 5,6 og 4,8 gráður á
Richter-kvarða, skóku Gvatemala
með þeim afleiðingum að raf-
magns- og símasambandslaust
varð víða í landinu. Ekki hefur
verið tilkynnt um slys á fólki eða
alvarlegt tjón en skjálftarnir
vöktu þó mikla skelfingu meðal
landsmanna.
RÚTUR REKAST Á Tuttugu og tveir
fórust þegar tvær rútur rákust á
á þjóðvegi í norðvesturhluta
Brasilíu. Önnur rútan fór yfir á
öfugan vegarhelming og lenti
beint framan á hinni. Níu manns
lifðu slysið af en fólkið liggur nú
allt þungt haldið á sjúkrahúsi.
Talsmaður lögreglu segir að slys-
ið megi rekja til tæknilegra eða
mannlegra mistaka.
LÖGREGLUMENN MYRTIR Upp-
reisnarmenn í Kólombíu veittu
lögreglumönnum fyrirsát á þjóð-
vegi í norðurhluta landsins. Til
skotbardaga kom og féllu sex lög-
reglumenn í valinn auk bílstjór-
ans. Á sveitavegi skammt frá
tóku uppreisnarmenn á sama
tíma tíu almenna borgara í gísl-
ingu.
Á LEIÐ ÚR LANDI
Myndin var tekin af Guðrúnu Björgu á
Keflavíkurflugvelli daginn sem hún fór til
Kaupmannahafnar. Vinir hennar kalla nú
eftir hjálp við leitina með samþykki fjöl-
skyldu Guðrúnar og lögregluyfirvalda.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
„Ég tel að það þjóni hagsmunum Íslands að sjálfstæðir aðilar stundi rannsóknir á málum
sem skipta framtíðarhagsmuni okkar miklu,“ segir utanríkisráðherra um fyrirhugaðar sam-
eiginlegar athuganir Háskóla Íslands og norskrar stofnunar á stefnu þjóðanna í fiskveiði-
málum gagnvart Evrópusambandinu.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 79.41 0.25%
Sterlingspund 127.48 -0.05%
Dönsk króna 11.37 0.17%
Evra 84.59 0.19%
Gengisvístala krónu 123,89 0,12%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 330
Velta 9.889 m
ICEX-15 1.343 0,23%
Mestu viðskipti
Grandi hf. 132.000.000
Kaupþing banki hf. 80.306.400
Íslandsbanki hf. 53.042.619
Mesta hækkun
Marel hf. 2,86%
Búnaðarbanki Íslands hf. 2,11%
Olíuverslun Íslands hf. 2,05%
Mesta lækkun
Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf.-7,14%
Íslenskir aðalverktakar hf. -4,29%
Líf hf. -2,65%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8529,9 -0,7%
Nasdaq*: 1374,9 -0,1%
FTSE: 3736,7 -1,1%
DAX: 2886,6 -0,2%
Nikkei: 8708,6 1,8%
S&P*: 896,7 -0,6%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON
„Á meðan við erum með samn-
inga þjóðanna um síld, loðnu og
kolmunna í uppnámi sé ég ekki
að við förum að stjórna fiskveið-
um sameiginlega með Norð-
mönnum,“ segir aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra.
SUÐUR-AMERÍKA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ráðist á nuddstofu:
Sjö myrtir
HÖFÐABORG, AP Hópur manna réðst
inn á nuddstofu fyrir samkyn-
hneigða karlmenn í Höfðaborg í
gær, myrti sjö karlmenn og særði
þrjá alvarlega. Fórnarlömbin voru
bundin og skotin í höfuðið af stuttu
færi auk þess sem þau voru skorin á
háls. Hinir særðu voru einnig skotn-
ir í höfuðið og eru tveir í lífshættu.
Nágrannar nuddstofunnar
hringdu á lögreglu þegar þeir
heyrðu skothvelli og sáu eitt fórnar-
lambanna koma hlaupandi út úr
húsinu með skotsár á höfði og hálsi.
Að sögn talsmanns lögreglunnar
var aðkoman hryllileg. Enn er á
huldu hverjir standa á bak við
morðin og ekki er vitað hvort hinir
látnu voru viðskiptavinir eða starfs-
menn nuddstofunnar. ■
Ljósmyndarinn í Mjódd
er fluttur að Langarima 21
(áður Ljósmyndastofan Grafarvogi )
• Fermingarmyndatökur
• Fjölskylduljósmyndir
• Brúðkaupsmyndir
Nokkrir tímar lausir.
Sími 557 9550 • GSM 694 5595