Fréttablaðið - 22.01.2003, Síða 8
8 22. janúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kjör öryrkja
Ein úr átakshópi öryrkja skrifar:
Öryrkjar þurfa að fá svör fráframbjóðendum um hver og
hvaða flokkur ætlar að taka á mál-
efnum öryrkja. Á ég þá ekki við
einhver loforð sem síðan verða
svikin að loknum kosningum. Það
sem brennur á öryrkjum er hvaða
kjör þeir hafa. Ekki einhverjar
upphæðir sem eiga eftir að rýrna
við skatta, hærra lyfjaverð
o.s.frv. Öryrkjar þurfa að fá ein-
hverjar leiðréttingar sem halda
en verða ekki teknar strax til baka
aftur.
Hækkun skattleysismarka og
120 þúsund krónur skattfrjálst á
mánuði er sanngjörn krafa. Í ljósi
þess að íslenska þjóðin er talin ein
sú ríkasta í heimi skýtur skökku
við að fólk standi í biðröð hjá
hjálparstofnunum og að forseti
lýðveldisins tali um fátækt í
nýársávarpi til þjóðarinnar. ■
Fyrir nokkrum árum ákvað ég aðhætta að halda með íslenska
landsliðinu í fótbolta. Það tókst ekki
í fyrstu tilraun. Þótt ég vissi betur
gat ég ekki annað
en verið svekktur
út í dómarann; velt
fyrir hvað hefði
gerst ef boltinn
hefði farið af slánni
í markið í stað þess
að fara upp í stúku;
reiknað út mögu-
leika liðsins ef allur
leikurinn hefði ver-
ið eins og bestu
kaflar hans – sjö mínútur undir lok
fyrri hálfleiks og frá því korter var
liðið af seinni hálfleik og fram und-
ir annað mark andstæðingana ell-
efu mínútum síðar. Í næsta leik
gekk mér betur. Mér fannst ís-
lenska liðið ekki eiga skilið betri úr-
slit; til þess var það ekki nógu gott í
fótbolta né lagði það sig nógu mikið
fram. Það var eins og þessir ellefu
menn væru að bíða eftir því að
lukkan snerist sér í hag. Samt vita
allir að lukkan kemur ekki til þeir-
ra sem bíða. Hún er eins og fólk er
flest; eltir sigurvegarana.
Eftir nokkra leiki var ég alveg
laus við að halda með íslenska
landsliðinu. Ég var frjáls maður.
Ekki bara gagnvart landsleikjum í
fótbolta heldur gagnvart flestu sem
íslenskt er. Ég hætti að skammast
mín fyrir innlenda dagskrárgerð í
sjónvarpinu; fannst fólkið sem söng
íslenska lagið í Söngvakeppni Evr-
ópu ekki lengur á mínum vegum;
hafði ekki nokkra skoðun á svan-
skjólnum hennar Bjarkar og var al-
veg sama þótt enginn skildi ís-
lenska ráðherra þegar þeir reyndu
að halda ræður á ensku. Vissi sem
var að framlag þeirra til alþjóðlegr-
ar umræðu mátti missa sín. Og
kærði mig kollóttan um það.
Stundum grunar mig að þótt líf
mitt sé í betra jafnvægi eftir að ég
losnaði við verstu annmarka þjóð-
erniskenndarinnar þá missi ég
jafnframt af fáum en eldheitum
sigurstundum þjóðarinnar. Fjórða
sætið í heimsmeistarakeppninni í
handbolta – svo dæmi sé tekið. Þeir
sem ekki halda með landsliðinu
geta ekki heldur leyft sér að keyra
niður Laugaveginn syngjandi þjóð-
sönginn og með þjóðfánann blakt-
andi út um gluggann ef liðið vinnur
mót. Eða lendir í einhverju sæti
sem skilgreina má sem sigursæti. Í
stað taumlauss fagnaðar verð ég að
láta mér lynda að samgleðjast
hljóðlega þeim sem stóðu sig vel;
mönnunum í liðinu, þjálfaranum,
lækninum og sjúkraþjálfaranum –
Björk og Björgólfsfeðgum.
En þótt ég keyri ekki niður
Laugaveginn í sigurvímu þá finnst
mér ég vera skár settur í dag. Fyr-
ir litla þjóð með mikla drauma
verða vonbrigðin alltaf meiri og
sigrarnir færri. Að meðaltali líður
mér því betur eftir að ég hætti að
halda með íslenska landsliðinu. ■
Ég var frjáls
maður. Ekki
bara gagnvart
landsleikjum í
fótbolta heldur
gagnvart flestu
sem íslenskt
er.
Kostir þess að halda ekki með landsliðinu
skrifar um þjóðerniskennd og handbolta.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
TILBOÐ – TILBOÐ
Alþrif á fólksbílum kr. 3.600 stgr.
Smiðjuvegur 5
(grá gata)
S. 551 7740
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988
STÓRÚTSALA
Útsaumspakkningar
Prjónagarn • Föndurvörur
Mikið úrval!
Alltaf eitthvað nýtt!
BRETLAND Bresk dagblöð eru
ófeimin við að leggja upp í her-
ferðir gegn því sem þeim líkar
ekki. Nýjasta dæmið um þetta er
herferð Daily Mirror gegn stríði í
Írak.
Forsíða blaðsins var lögð undir
herferðina og lesendur hvattir til
að skrifa undir yfirlýsingu þess
efnis að þeir séu andvígir sér-
hverri þeirri innrás í Írak sem
ekki nyti fyllsta stuðnings Sam-
einuðu þjóðanna.
Meðal eldri herferða sem
bresk blöð hafa lagt í má nefna
nafnabirtingu News of the World
á dæmdum barnaníðingum og
baráttu The Guardian fyrir því að
konungsveldið verði afnumið,
barátta sem þýðir reyndar að
stjórnendur blaðsins hafa gerst
sekir um landráð samkvæmt
breskum lögum. ■
FORSÍÐA DAILY MIRROR
„Þú ert ekki valdalaus. Þú hefur rödd. Ekk-
ert stríð.“
Daily Mirror:
Í herferð gegn stríði
Ég var svo lánsöm á haustdög-um að vera send á vegum bisk-
upsstofu og lúterska heimssam-
bandsins á ráðstefnu í Riga í Lett-
landi. Ráðstefnan var á vegum
lúterska heimssambandsins og
bar yfirskriftina „að vera boðandi
samfélag“. Það var gott tækifæri
að vera send á ráðstefnu sem
þessa og fá að heyra og kynnast
fulltrúum frá 23 ólíkum lútersk-
um kirkjum í Evrópu.
Á leiðinni til Riga var ég að
skoða þarlend dagblöð og þar kom
fram að þrjú þúsund konur frá
Eystrasaltslöndunum leiddust eða
neyddust út í klámiðnaðinn á ári
hverju. Ég hugsaði með mér að
það yrði fróðlegt að ræða þessa
hörmulegu stöðu kvenna við
starfssystur mínar frá Eystra-
saltslöndunum á ráðstefnunni
sem átti að byrja daginn eftir, mér
þótti að sjálfsögðu forvitnilegt að
vita hvernig þær töluðu inn í þess-
ar aðstæður. Síðan var ráðstefnan
sett.
Í ljós kom að það voru aðeins
þrír kvenprestar á staðnum, frá
Íslandi, Hollandi og Finnlandi.
Aðrir fulltrúar voru karlkyns fyr-
ir utan nokkrar ungar konur sem
lögðu stund á guðfræði við Há-
skólann í Riga. Eftir nokkra eftir-
grennslan komst ég að raun um að
það voru aðeins þrír starfandi
kvenprestar í landinu og þeim var
ekki boðið að sitja þessa ráð-
stefnu. En hver er ástæða þess að
það eru svona fáar konur starf-
andi innan lútersku kirkjunnar í
Lettlandi, sem er samt stærsta
kirkjudeildin í landinu? Þegar ég
fór að spyrjast fyrir fékk ég að
heyra hinn sára sannleika.
Árið 1961 var fyrsta konan í
Lettlandi vígð, en það var 13 árum
áður en fyrsta konan var vígð á Ís-
landi. Fyrir rúmum tíu árum
ákvað yfirstjórn kirkjunnar, með
nýjan erkibiskup í fararbroddi, að
hætta að vígja konur til prests-
þjónustu. Sú ákvörðun gekk í
gegn og nú eru aðeins þrjár konur
að störfum. Ég heyrði að mörgum
þeirra sem voru starfandi hefðu
verið búnar svo erfiðar aðstæður
að þær hrökkluðust úr prestsemb-
ættum.
Á vegum kirkjunnar er svo
rekinn prestaskóli sem aðeins
karlmenn geta gengið í. Ég er af
þeirri kynslóð kvenna í presta-
stétt sem þykir það sjálfsögð
mannréttindi að geta þegið vígslu
og fengið að starfa innan lútersku
kirkjunnar á Íslandi. Ég hef aldrei
upplifað það að fólk hafi ekki get-
að þegið þjónustu mína af því að
ég er kona. Ég hafði aldrei upplif-
að svona kvenfyrirlitningu.
Skyndilega var ég komin á þessa
ráðstefnu í umhverfi þar sem
ríkti hræðilegt ójafnrétti og það
var sár reynsla. Þá varð mér það
ljóst með áþreifanlegum hætti
hversu mikilvægt það er að konur
komist til áhrifa og valda. Hvort
sem það er í kirkjupólitík eða
annarri pólitík. Helmingur ís-
lensku þjóðarinnar er kvenkyns
og það er sjálfsagt í lýðræðisþjóð-
félagi að það séu aðrir en mið-
aldra karlmenn með grátt í vöng-
um sem stjórna því samfélagi sem
við lifum í.
Þá kom upp í huga mér frásögn
af þeldökkum dreng sem fluttist
með foreldrum sínum til Íslands
fyrir nokkuð mörgum árum þegar
ekki var mikið um innflytjendur á
Íslandi. Hann var í leikskóla með
íslenskum börnum og eftir nokkra
veru í leikskólanum varð hann
dapur og undi sér illa. Það var
fenginn túlkur á staðinn til að
komast að því hvers vegna dreng-
urinn var svona óhamingjusamur
í skólaumhverfi sínu. Í ljós kom
að drengurinn varð skyndilega
svo þreyttur á því að sjá aðeins
hvít börn og hvítar konur alla
daga. Að sjálfsögðu var það erfitt,
hann kom úr umhverfi þar sem
allir voru dökkir á hörund og hann
fann ekki til samkenndar með
neinum í umhverfi sínu.
Á þessari stundu er ég afar
þakklát þeim konum í okkar sam-
félagi sem setja orku sína og
metnað í að komast til áhrifa og
valda og ég lít á það sem sjálf-
sagða skyldu mína að styðja slíkar
konur. Af því að allt í einu getur
sjálfsögð þróun til jafnréttis snú-
ist í höndum okkar. Ég held að við
getum alveg séð merki þess í okk-
ar samfélagi. Kannski verðum við
konur að átta okkur á því að það
þýðir ekkert að bíða eftir því að
við finnum okkur „kallaðar“ til að
hafa áhrif og völd, heldur verðum
við að kasta okkur til sunds í þágu
jafnréttis komandi kynslóðum til
góða. ■
miðborgarprestur
skrifar um konur
og völd.
JÓNA HRÖNN
BOLLADÓTTIR
Um daginn
og veginn
Konur og völd
Ísraelar:
Eyðilögðu
búðir Palest-
ínumanna
NABLUS, ÍSRAEL, AP Ísraelar eyði-
lögðu 62 verslanir Palestínu-
manna í þorpinu Nazlat Issa á
Vesturbakkanum. 300 hermenn
sáu til þess að sjö jarðýtur gætu
athafnað sig og jafnað við jörðu
hluta af verslunarhverfi þorpsins.
Ísraelsk stjórnvöld segja að
búðirnar hafi verið byggðar í
heimildarleysi. Talsmaður her-
stjórnarinnar á Vesturbakkanum
segir að það hafi tekið tíu ár að
ljúka málinu fyrir dómstólum og
búðareigendur hafi fengið frest
til að fjarlægja vörur sínar. Bæj-
arstjóri þorpsins segir aðgerðirn-
ar hluta af hernaði Ísraela gegn
efnahag Palestínumanna. ■
BÚLGARIR FÁ UMHVERFISSTYRK
Evrópusambandið hefur styrkt
búlgörsk stjórnvöld um 240 millj-
ónir evra til að vinna gegn mengun
frá iðnaði í ám landsins og loft-
mengun í höfuðborginni Sofíu.
Styrkurinn er hluti af áætlun ESB
um að vinna að umhverfisvernd í
þeim ríkjum sem stefna að aðild.
OLÍA RÆÐUR FERÐINNI Jörg
Haider, fyrrum formaður austur-
ríska Frelsisflokksins, hefur gagn-
rýnt Bandaríkjamenn og Breta
harkalega fyrir fyrirsjáanlega her-
ferð þeirra gegn Írak og segir olíu-
auð Íraks skipta mestu í þeim efn-
um en ekki frelsi og lýðræði.
Haider sótti Írak heim á síðasta ári
og ræddi þá annað hvort við
Saddam Hussein eða tvífara hans.
ARFTAKA GRÓU LEITAÐ Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefur ein-
skorðað leit sína að eftirmanni Gro
Harlem Brundtland, yfirmanns
stofnunarinnar, við fimm einstak-
linga. Pasoal Mocumbi, forsætis-
ráðherra Mósambík, Belginn Peter
Piot, og Suður-Kóreubúinn Jong-
wook Lee koma helst til greina.
EVRÓPA