Fréttablaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 18
MYNDLIST „Ég er í skýjunum. Borg- arráð var mjög þakklátt fyrir þetta samstarf og samþykkti allt sem lagt var til. Engin spurning, þetta breytir menningarlandslag- inu og styrkir miðborgina til mik- illa muna,“ segir Stefán Jón Haf- stein, formaður menningarmála- nefndar Reykjavíkurborgar. Borgarráð staðfesti samning við Pétur Arason kaupmann þess efnis að veita almenningi aðgang að miklu safni samtímalistaverka, innlendra og erlendra, í eigu Pét- urs og konu hans Rögnu Róberts- dóttur listakonu. Safnið, sem er alls um 500 fermetrar, er til húsa að Laugavegi 37, skammt frá Ný- listasafninu. Borgin ábyrgist 14 milljónir króna á ári til að tryggja rekstur safnsins. „Okkar framlag er í raun aðeins jafngildi húsa- leigu. Pétur á mikinn heiður skil- inn fyrir að bæta menningarlíf okkar með þessum hætti.“ Pétur segist hafa safnað lista- verkum í um fimmtíu ár. Áhuginn hafi meðal annars vaknað vegna þess að margir kunningja hans frá því í æsku hafi orðið listamenn. „Ég var með sýningarsal í þessu húsi sem hét Önnur hæð í ein sex til sjö ár. Þar sýndu ein- göngu erlendir listamenn. Mikið af verkum safnsins er eftir þá. Svo náttúrulega þekkja þeir mann og sá þekkir annan og eitt leiðir af öðru.“ Safnið telur um 400 verk alls, 250 þeirra eru eftir erlenda lista- menn en 150 eftir íslenska. „Ég veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja,“ segir Pétur aðspurður um þá þekktustu í hópi höfunda. „Dieter Roth, Donald Judd, Lawrence Weiner og Richard Long eru náttúrulega fræg nöfn. Meðal íslenskra listamenn eru til dæmis Hreinn Friðfinnsson, Sig- urður Guðmundsson, Kristján Guðmundsson, Jón Óskar og fleiri.“ Stefán Jón segir tilfinnanlega hafa vantað safn um alþjóðlega samtímalist á Íslandi. „Pétur hef- ur gott auga fyrir upprennandi listamönnum og mörg þeirra verka sem hann hefur fest sér hafa margfaldast í verði. En mest er þó um vert að Pétur hefur víð- tæk erlend sambönd og hefur gengist undir að standa fyrir komu þekktra listamanna á al- þjóðlegan mælikvarða til Reykja- víkur. Það mun ekki síst verða til að koma okkur betur á kortið,“ segir Stefán Jón Hafstein. jakob@frettabladid.is 18 22. janúar 2003 MIÐVIKUDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? Ari Gísli Bragason fornbókasali. „Ég er með Landnemann mikla eftir Viðar Hreinsson á náttborðinu þessa dagana. Hún leggst mjög vel í mig.“ Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 90 kr/stk STABILO SWING áherslupenni Verð 70 kt/stk Ljósritunarpappír 400 kr/pakkningin Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum.Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í 10-25-50 og 100 stk einingum NOVUS B 425 4ra gata, gatar 25 síður. Verð 2.925 kr TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Ljósritunarglærur, 100 stk í pakka. Verð 1.599 kr/pk Bleksprautu 50 stk í pakka 2.990 kr/pk STABILO BOSS Verð 78 kr/stk 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 MEST SELDU BÆKURNAR HJÁ AMAZON.COM J. K. Rowling HARRY POTTER AND THE... Michael Cunningham THE HOURS John Grisham THE KING OF TORTS Alice Sebold THE LOVELY BONES Bill Phillips BODY FOR LIFE SUCCESS ... Jorge Cruise 8 MINUTES IN THE ... John Hastings CHANGE ONE Robert Jordan CROSSROADS OF TWILIGHT William Gibson PATTERN RECOGNITION Michael Savage THE SAVAGE NATION STEFÁN JÓN HAFSTEIN OG PÉTUR ARASON: Þarna staddir í nýju listasafni sem mun, ef að líkum lætur, koma Reykjavíkurborg betur á listakortið en verið hefur. Listin styrkir miðborgina Kaupmaður við Laugaveg semur við borgina um að opna nýtt samtímalistasafn í Reykjavík. LEIKLIST Möguleikhúsið er að leggja land undir fót með Völuspá eftir Þórarin Eldjárn eina ferðina enn og er ferðinni heitið til Færeyja að þessu sinni. Völuspá var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík árið 2000 og hefur síðan verið sýnd víða um land, auk þess sem farið hefur ver- ið í leikferðir til Rússlands, Sví- þjóðar, Kanada og Finnlands. Sýn- ingar á verkinu eru orðnar 110 tals- ins og gefst Færeyingum kostur að berja það augum dagana 22.-24. janúar. Heimsókn Möguleikhússins til Færeyja er styrkt af Norrænu leiklistar- og dansnefndinni. Verkið byggir á hinni fornu Völuspá og veitir áhorfendum sýn inn í hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Þar segir frá fróðleiks- fýsn Óðins, græðgi í skáldamjöð- inn, forvitni hans um nútíð og fram- tíð, Fenrisúlfi, Baldri, Loka og hröfnunum Hugin og Munin auk fjölda annarra persóna. Daninn Peter Holst leikstýrir sýningunni en hann rekur sitt eigið leikhús, Det lille Turnéteater, í Dan- mörku. Guðni Franzson stýrði tón- listinni í verkinu og leikmynd og búninga hannaði Anette Weren- skiold frá Noregi. ■ VÖLUSPÁ Pétur Eggerz, sem leikur öll hlutverkin í Völuspá, á sviði ásamt Stefáni Erni Arnarsyni selló- leikara. Möguleikhúsið: Sýnir Völuspá í Færeyjum FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HEILDARÚTGÁFA Bókaútgáfan Ormstunga hefur sótt um styrk til sveitarfélagsins Árborgar til að gefa út heildarsafn ritverka Guðmundar Steinssonar. Guð- mundur var Eyrbekkingur og þekktastur fyrir leikritin Stund- arfrið og Sólarferð, sem bæði voru sýnd í Þjóðleikhúsinu við gríðarlegar vinsældir. „Guðmundur skrifaði þó miklu meira. Í þessu heildar- safni sem við hyggjumst gefa út í aprílmánuði næstkomandi verða rúmlega 20 leikrit og þar af mörg sem aldrei hafa verið gefin út. Auk þess skrifaði Guð- mundur eina skáldsögu, Maríu- myndina,“ segir Gísli Már Gísla- son, útgefandi í Ormstungu, sem fékk Jón Viðar Jónsson leiklist- argagnrýnanda til að skrifa inn- gang að verkinu og hefur hann lokið því verki: „Jón Viðar hefur legið yfir þessu í marga mánuði og hefur skilað gagnmerkum inngangi þar sem hann gerir grein fyrir verkum Guðmund- ar,“ segir útgefandinn. Guðmundur Steinsson lést fyrir nokkrum árum en það var eiginkona hans, Kristbjörg Kjeld leikkona, sem átti hug- myndina að útgáfunni. Í bókinni verða myndir úr öllum leikritum Guðmundar sem sett hafa verið á svið auk mynda úr einkalífi hans. ■ Bókaútgáfan Ormstunga: Vill styrk fyrir Guðmund

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.