Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2003, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 04.03.2003, Qupperneq 22
22 4. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR 41 ÁRS „Þetta er lygimál og della, óhróður sem óvildarmenn eru að dreifa um mig. Alveg er með ólíkindum hvað fólki dettur í hug. Ég er 29 ára og hef verið um nokkra hríð,“ segir Árni Snævarr fréttamaður en samkvæmt áreið- anlegum heimildum Fréttablaðs- ins er Árni 41 árs í dag. Árni segist ekki hafa hugsað sér að gera neitt sérstakt í tilefni dagsins en hélt hraustlega upp á þetta sama 29 ára afmæli fyrir réttu ári með veislu á efri hæð veitingastaðarins Astró. Þangað kom góður hópur manna og fagn- aði með afmælisbarninu. Menn skemmtu sér vel þó að allt hafi farið í handaskolum í tengslum við fyrirhugaðan heiðursgest. „Já, það er þannig að ég hafði alltaf stefnt að því, þegar ég héldi upp á 29 ára stórafmælið, að bjóða til eina fræga mannin- um sem er fæddur þennan dag. Nefnilega sjálfum Burt Reyn- olds. Ég var meira að segja búinn að færa þetta í tal við Friðrik Er- lingsson rithöfund, sem einmitt á afmæli þennan sama dag. Við erum í 4. mars félaginu. En síðan komst ég að því mér til mikillar skelfingar að þetta er tóm vit- leysa í mér. Burt er fæddur á ein- hverjum allt öðrum degi. Sem von var olli þetta mér miklum vonbrigðum og hóf ákafa leit að einhverjum öðrum frægum sem á þennan sama afmælisdag. Eini árangurinn af þeirri leit var Chastity Bono, lesbísk dóttir Cher og Sonny heitins Bono. Hún mun vera fædd þennan dag. Af einhverjum ástæðum fannst mér ekki heppilegt að bjóða henni til veislu.“ Árni fékk margar góðar gjaf- ir. „Meðal annars línuskauta frá vinnufélögum mínum. Ég fór með þá út í bíl en þá var honum stolið. Þjófurinn náðist skömmu síðar, en á þeim tíma hafði hann selt línuskautana og fengið sér morfín. Ég hef síðan verið að leita eiturlyfjasala á línuskautum til að endurheimta afmælisgjöf- ina en ekki haft erindi sem erf- iði.“ jakob@frettabladid.is AFMÆLI SKÁKMAÐUR Hrafn Jökulsson seg- ist hafa lært mannganginn þegar hann var um sex ára gamall. Hann hefur á síðustu árum komið sér í þá stöðu að verða einn helsti hrók- ur skáklistarinnar á Íslandi. Hann er forseti Hróksins, skákfélagsins sem varði Íslandsmeistaratitil sinn um helgina. Hann gerir þó lít- ið úr sínum eigin hæfileikum á skákborðinu. „Skákhæfileikar mínir hafa aldrei verið stórbrotnir,“ viður- kennir hann með spaklegum róm. „Skáklistin og allur hennar dular- fulli heimur hefur þó alltaf heillað mig. Mér verður alltaf betur og betur ljóst hversu lítið ég kann því lengur sem ég starfa með Hróknum. Sérstaklega þegar ég kynnist því hvernig helstu skák- meistarar heims vinna, nálgast og hugsa skákina. Þeir eru nánast í annarri vídd en við hinir.“ Hrafn segir að nýta megi skák- ina til margra góðra hluta. Það finni hann á barnastarfi félagsins. „Það er alveg óhætt að tala um skákæði hjá ungu kynslóðinni. Það fer heldur ekkert framhjá foreldrunum þegar krakkarnir leggja tölvurnar til hliðar og heimta að fá að tefla.“ Iðulega er Hrafn titlaður blaðamaður. Hann segir þó að skrif sín síðustu ár hafi nær ein- göngu verið í mótstímaritum og á vefsíðu Hróksins. „Það má nú segja að blaðamaðurinn sé kom- inn í gott og tímabært frí. Það er alltaf gott að skipta svolítið um þann heim og hugarheim sem maður hrærist í.“ Hrafn er þriggja barna faðir. Elsti sonur hans, Þorsteinn Máni, verður 19 ára gamall á morgun. „Hann er einn af helstu máttar- stólpum Hróksins. „Svo á ég son á sjöunda ári sem heitir Örnólfur. Hann er mjög áhugasamur skák- maður. Dóttir mín, Þórhildur, er að verða fjögurra ára og sýnir manntaflinu mikinn áhuga, þó að hún eigi nú eftir að læra að tefla,“ segir Hrafn og greinilegt er að krókurinn beygist snemma, eða er hann kannski beygður? ■ Hrafn Jökulsson blaðamaður er einnig forseti skákfélagsins Hróksins, sem tryggði sér Íslandsmeistaratitil skák- félaga um helgina. Persónan Blaðamaðurinn kominn í frí ÁRNI SNÆVARR Stóð lengi í þeirri meiningu að hann ætti sama afmælisdag og Burt Reynolds, en það reyndist á misskilningi byggt. MEÐ SÚRMJÓLKINNI HRAFN JÖKULSSON Lærði mannganginn sex ára og er nú einn helsti hrókur skáklistar á Íslandi. Að gefnu tilefni skal tekið fram að forsæt- isráðherra vill ekki bónusgreiðslur. Leiðrétting Guðmundur lá banaleguna ogbenti konu sinni að koma: „Mín hinsta ósk er... og ég vona að þú forsmáir hana ekki... en, sem sagt, eftir að ég hef skilið við... þá vil ég að þú giftist honum Magn- úsi.“ Guðmunda: „En... ég hélt þú hataðir Magnús?“ Guðmundur: „Það passar.“ Árni Snævarr fréttamaður er samkvæmt áreiðanlegum heimildum 41 árs í dag. Hann heldur því hins vegar staðfastlega fram að hann sé 29 ára, allt annað sé della sem óvildarmenn eru að dreifa. Lýsir eftir eiturlyfja- sala á línuskautum TÍMAMÓT HRÓSIÐ Khalid Shaikh Mohammed. Suðurgötu 10. Hrókurinn. 1. 2. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 3. Skráningarsími 561 8585 Yogaspuni Gauja litla 8 vikna aðhald í World Class, aðeins 14.500 kr. www.gauilitli.is Ný námskeið hefjast 10. mars JARÐARFARIR 13.30 Magnús Ólafsson, verkfræðingur, Álfheimum 22, verður jarðsung- inn frá Bústaðakirkju. 13.30 Guðni Gíslason, Granaskjóli, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. AFMÆLI Árni Snævarr fréttamaður og Friðrik Er- lingsson rithöfundur eru báðir 41 árs. ... fær Kristján Pálsson fyrir að láta ekki höfnunartilfinningu ná tökum á sér. Kristján fékk ekki tækifæri til þess að kanna stuðn- ing sinn í prófkjöri. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hafnaði beiðni hans um að fá að bjóða fram DD lista. Kristján lætur það ekki á sig fá og fer samt fram. LANDSSAMBAND SENDIBIF- REIÐASTJÓRA gaf út veglegt af- mælistímarit í tilefni 50 ára af- mælis síns nú í þessum mánuði. Í ritinu kennir ýmissa grasa, meðal annars er þar könnun sem lýtur að því að finna hver hinn dæmigerði sendibílstjóri er. 33% félagsmanna voru spurðir spjörunum úr og niður- staðan er sú að dæmigerður sendibílstjóri er að nálgast fimmtugt, fjölskyldumaður, er utan af landi, áhugamaður um íþróttir, hefur stundað sjó- mennsku eða verið iðnaðarmað- ur, hefur gaman að ferðalögum og ... haldinn vægri bíladellu! FRÉTTIR AF FÓLKI Ath! Gestabókin á heimasíðunni er komin í lag! Opnum aftur með fullri reisn Grensásvegi 7 • Sími: 517 3540 Opið alla daga frá kl. 21 – Lokað mánudaga FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.