Fréttablaðið - 04.03.2003, Page 23

Fréttablaðið - 04.03.2003, Page 23
SKÁK Íslandsmóti skákfélaga lauk um helgina. Skákfélagið Hrókur- inn varði Íslandsmeistaratitil sinn með góðum sigri í 1. deild. Forysta Hróksins var nokkuð örugg fyrir síðustu umferð og sigurinn nánast formsatriði. Hrókurinn hlaut 43,5 vinning af 56 en næstu sveitir voru undir 40 vinningum. Hrókurinn fagnaði þreföldum sigri því einnig unnust sigrar í 2. og 3. deild. Í 2. deild leiddi b-sveit Hróksins lengst af og fyrir síðustu umferð hafði sveitin 5,5 vinnings forskot. Mesta spennan var þó í 3. deild þar sem c-sveit Hróksins og sveit Selfyssinga voru efstar og jafnar fyrir síðustu umferð. Úr- slitin réðust ekki fyrr en í síðustu skákum beggja klúbba. Selfoss vann 5 fyrstu skákirnar sínar á meðan Hrókurinn missti hálfan vinning. Selfyssingar töpuðu hins vegar lokaskákinni og Hrókurinn tryggði sér sigurinn á lokasprett- inum með 27 vinningum gegn 26,5. Loks ber að minnast á öruggan sigur Hauka í 4. deild. Sigur þeirra var aldrei í hættu og var fyllilega verðskuldaður. ■ Íslandsmótið í skák: Hrókurinn fagnar þreföldum sigri GARY KASPAROV OG TOMAS ORAL Oral tilheyrir hinni feikisterku útlendinga- hersveit Hróksins og sýndi snilldartakta. Íslandsmót Skákfélaga, 7. umferð Tomas Oral - Þorvaldur Logason Hvítur á leik Þessi staða kom upp í síðustu um- ferð á Íslandsmóti Skákfélaga. Tomas Oral teflir fyrir Íslands- meistaralið Hróksins og gaf tón- inn í síðustu umferð með þessari stuttu og snotru skák. 10. Re5!! Glæsilegur leikur. Stillir hvítu mönnunum upp í gaffal fyrir svartan en raunin er að svartur getur hvorugan manninn tekið. Taki hann riddarann er drottning- in af og taki hann biskupinn fær hvítur mátsókn eftir 11. Dh5+ 10...Ke7 Betri varnartilraun var að leika 10...h5 en þá hafði Oral í hyggju 11. Df3 Bg7 12. Bh4 og hvítur stendur mun betur. 11. Dh5 De8 Svartur verður að koma í veg fyrir Df7 en nú kemur önnur bomba. 12. Bxf6+ Eftir þennan leik eru svörtum allar bjargir bannaðar og mát eða liðstap fylgir í nokkrum leikjum. 12...Kxf6 13. Rg4+ Ke7 14. Dg5 Kf7 15. Re5# Mát í 15. leikjum er ekki algengt og vekur alltaf athygli! Taflfélagið Hrókurinn er áblússandi siglingu undir for- sæti Hrafns Jökulssonar, sem hefur fengið Eddu útgáfu og miðlun og Kaupþing til að styðja við bakið á líflegu starfi félagsins. Stórmóti Hróksins, þar sem gamla kempan Viktor Kortsnoj var meðal þátttak- enda, lauk með pompi og prakt og var verðlaunaafhending á fimmtudaginn. Hrafn hélt við það tækifæri líflega tölu og gat þess meðal annars að eftir að Kaupþing gerðist styrktaraðili Hróksins hafi legið beinast við að fá forstjóra þess, Sigurð Ein- arsson, til þess að ganga í félag- ið. Hrafn sagðist gera ráð fyrir að félagsgjöld Sigurðar yrðu tí- und af launum, þannig að fjár- hagsáhyggjur munu vart angra félagið á næstunni. FRÉTTIR AF FÓLKI 23ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2003 Tölvunámskeið fyrir eldri borgara Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Námsflokkar Reykjavíkur standa fyrir tölvunámskeiðum fyrir eldri borgara sem haldin eru í tölvustofum grunnskóla. Umsjónarmenn námskeiðanna eru tölvukennarar í skólunum en nemendur leiðbeina eldri borgurum á tölvurnar. Þessir nemendur hafa góða þekkingu á tölvum og eru tilbúnir að miðla af þeirri þekkingu sinni. Námskeiðið er ætlað byrjendum og eru tvenns konar námskeið í boði: • Notkun á interneti og tölvupósti • Notkun á word og excel Kennslutími: Þetta eru 12 kennslustunda námskeið sem standa yfir í 5 vikur. Skólar sem bjóða upp á námskeið vor 2003: Árbæjarskóli Rofabæ 34 Ártúnsskóli Árkvörn 6 Fellaskóli Norðurfelli 17-19 Hólabrekkuskóli Suðurhólum 10 Langholtsskóli Holtavegi 23 Réttarholtsskóli Réttarholtsvegi Kostnaður: 4.500 kr. fyrir 5 skipti. Skráning: Hjá Námsflokkum Reykjavíkur, sími 551 2992. Búnaðarbankinn styrkir þetta námskeið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.