Fréttablaðið - 04.03.2003, Side 24

Fréttablaðið - 04.03.2003, Side 24
Ísérlegri rannsókn á því hve mikiðtraust Íslendingar bera til stofn- ana kom í ljós á dögunum að karlar treysta Alþingi á meðan konur leggja traust sitt á kirkjuna. Þegar illt er í efni og fokið í flest skjól er hefð fyrir því að treysta á guð og lukkuna. Allt útlit er fyrir að íslensk kvenþjóð meti nú stöðuna svo. Það er kannski orðið tímabært að leggja allt sitt traust á æðri máttarvöld þegar óæðri máttarvöld um allar trissur eru ekki traustsins verð. AÐSTANDENDUR íslenskrar nátt- úru leggja traust sitt á almættið – enda vafasöm aðgerð framundan. Æxli verður komið fyrir en ekki fjarlægt. Æðakerfi verður stíflað en ekki hreinsað og víst að sjúklingur- inn verður aldrei samur og mun mara í hálfu kafi um ókomna tíð. Ekkert hrjáir okkur krúttverja þó nema kannski oggulítið atvinnuleysi sem vart er orð á gerandi enda verður nóg að gera í malbikinu í sumar. BOLLUÁTIÐ er að baki og í dag er saltað kjet og baunir í matinn hjá öll- um. Stóru áhyggjurnar eru kólester- ól, kolvetni, kaloríur og kosningar að vori. Tilboðsborðið er einfalt og tí- unda maí verður boðið upp á tvo að- alrétti og nokkra ofurlitla aukabita fyrir grænmetisætur og sérvitringa. Kosningavélarnar eru að hefja sig til flugs. Sumir eru á breiðþotum en aðrir á kústskafti. Eldsneytið er fok- dýrt. Kosningasjóðirnir eru enn sem fyrr leyndarmál, enda óviðeigandi að spyrja hvaðan peningarnir koma þegar farið er á fjörur við kjósendur. SÖLUMENN standa í röðum með til- boð sem kjósendur geta ekki hafnað. Tortryggnir vilja þó vita hvaðan fjár- magnið kemur sem heldur flokksvél- inni á útsýnisflugi, en öðrum er nokk sama. Hætt er við að baráttan snúist upp í verðlaunahátíð auglýsingastof- anna – færni þeirra og getu til að selja ímyndina, útlitið og traustið. Eina sýnilega fjármagnið í kosninga- baráttunni er tekið úr vösum kjós- enda. Skrautsýningin er að hefjast og heppilegt að treysta á guð og lukkuna og vona að sameiginlega buddan verði ekki orðin of létt að kosningum loknum og að kjósendur fái í þetta sinn að kíkja ofan í flokks- buddurnar og sjá hverjir leggja þar krónur í púkk. ■ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur Nýr og betri Berlingo á Atvinnubíladögum Brimborgar B r i m b o r g R e y k j a v í k s í m i 5 1 5 7 0 0 0 • B r i m b o r g A k u r e y r i s í m i 4 6 2 2 7 0 0 • b r i m b o r g . i s Ein létt sendiferð og næstum heilt tonn Frakkarnir eru erfiðir. Þeir sturta tómötunum á þinghúströppurnar ef því er að skipta. Stundum agúrkum. Þegar Citroën Berlingo er annarsvegar þá heimta þeir ekki bara gæði með munaðinum heldur styrkleika á við stærri sendibíla. Þeir eru flottir Frakkarnir - auðvitað fengu þeir það sem engin annar býður: Berlingo með 800 kílóa burðargetu - bara 200 kíló í tonnið! Vertu klókur; fáðu mikið fyrir miklu minna, kauptu Berlingo sem lofar góðu - komdu í Brimborg. Við hjá Brimborg lofum þér: • Berlingo á mjög góðu verði (aðeins kr. 1.220 þús. án vsk) • Stærra hleðslurými en í sambærilegum sendibílum (3m3) • Meiri burðargetu en í sambærilegum sendibílum (800 kg) • Traustri og skjótri þjónustu • Lægri tíðni bilana en víðast hvar þekkist • Hliðarhurðum á báðum hliðum með lokunarvörn • Topplúgu fyrir lengri hluti • Fjarstýrðri samlæsingu • Breiðum og þægilegum sætum með langri setu • Fjarstýringu á hljómtæki við stýrið • Skrifborði ef þú fellir bakið á framsætinu og plássi fyrir ostinn Misstu ekki af tækifærunum á Atvinnubíla- dögum Brimborgar. Frábær tilboð. Allar gerðir fjármögnunarleiða. Komdu í heitt kaffi. Horfðu nú í nýja átt og farðu með meira í einni ferð á Citroën Berlingo Hjá Frökkunum er munaður staðalbúnaður. Loksins þekkja þeir líka orðið gæði. Í 5 ár hefur Citroën táknað bæði gæði og munað. Ástæðan er róttæk gæðastefna sem mótuð var árið 1996 og litu fyrstu afurðir hennar dagsins ljós árið 1998. Árangurinn er 54 prósent söluaukning á heimsvísu hjá þessum franska framleiðanda. Við hjá Brimborg höfum sannreynt gæði Citroën á 3ja ár. B R IM B O R G / G C I I C E LA N D - G C I E R H LU TI A F G R E Y G LO B A L G R O U P Rekstrarleiga m.v. mánaðarlegar greiðslur í 36 mánuði og er háð breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra. • Mjög hagstæðri rekstrarleigu kr. 28.062 m.vsk. á mánuði í 3ár Innifalið smur- og þjónustuskoðanir. Guð og lukkan

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.