Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 4
4 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR ÍRAKSDEILAN ÍRAKSDEILAN KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Er framboð á háskólanámi á Íslandi nægilegt, of mikið eða of lítið ? Spurning dagsins í dag: Eiga kaup á vændi að vera refsiverð? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 23,5% 33,8%Of mikið Of lítið 42,7% NÆGILEGT FRMBOÐ Rúm 42% telja að framboð á háskólanámi sé nægilegt. Nægilegt Mörkinni 6 • Sími: 588-2061 • sala@bodeind.is Kr. 194.900,- BOÐEIND w w w . b o d e i n d . i s Antec PlusView1000AMG stór turn m/glugga. Sannkalla› flaggskip me› miklu afli og öllu flví besta í aukabúna›i. Intel P-4 2,53GHz örgjörvi • 512Mb DDR minni 60Gb ATA 133 har›ur diskur • DVD geisladrif Geislaskrifari • Asus V9280TD AGP8X, DDR 128MB, nVidia Geforce4 skjákort • USB kortalesari • Hátalarar • ViewSonic P90F skjár 1600x1200@ 87 ára ábyrg ð SH S 29 19 -2 00 3 Hugbúna›ur og leikir: Asus DVDXP hugbúna›ur fyrir DVD, MediaShow, Morrowind, Black Thorn, Worms Blast, VR Aquarium, Demo Showcase, PcCillin vírusvörn, PC Prope, 2ja ára ábyrg› af heildarpakka en skjár me› 3ja ára ábyrg›. Entrprise P4-2,53GHz Sjónvarpsáhorf: Ýtir undir árásarhneigð NEW YORK, AP Ofbeldi í sjónvarpi get- ur haft afdrifarík áhrif á unga áhorfendur og meðal annars ýtt undir árásarhneigð síðar á lífsleið- inni. Þetta eru niðurstöður fágætrar rannsóknar þar sem fylgst var með sjónvarpsáhorfi 329 barna á aldrin- um sex til níu ára og breytingum á hegðun þeirra fram á fullorðinsár. Í rannsókninni, sem framkvæmd var í Michigan-háskóla í Bandaríkj- unum, var sýnt fram á að börn sem horfðu á ofbeldi í sjónvarpi væru líklegri til þess að beita maka sína ofbeldi og komast í kast við lögin síðar á ævinni. Athygli vakti að þessara áhrifa skyldi gæta hjá kon- um jafnt sem körlum. ■ VIÐSKIPTI Íslandsbanki og fyrir- tæki tengd þeim voru fyrirferðar- mikil í hópi þeirra sem keyptu bréf ríkisins sem seld voru í Bún- aðarbankanum á föstudag. Ís- landsbanki og fjárfestingarfélag- ið Straumur keyptu hluti í útboð- inu. Auk þess keyptu lífeyrissjóð- ir sem eiga stóra eignarhluti í Ís- landsbanka bréf í útboðinu. Ís- landsbankamenn segja ekki ástæðu til að lesa mikla merkingu út úr þessum kaupum. Fyrir eiga félög tengd eignar- haldsfélaginu Gildingu stóran hlut í bankanum. Íslandsbanki sýndi á sínum tíma áhuga á að kaupa Bún- aðarbankann, en var hafnað á grundvelli samkeppnissjónarmiða. Fjármálamarkaður er í örri þróun og telja kunnugir að möguleikar kynnu að opnast á sameiningu fjármálafyrirtækja, þar með talið Íslandsbanka og Búnaðarbanka. Eignarhlutur Íslandsbanka- blokkarinnar er of lítill til að hafa áhrif á rekstur bankans. Náist samkomulag við Gildingarhópinn gæti það tryggt stjórnarsæti. S- hópurinn mun á næstunni kaupa ríflega 45 prósenta hlut í bankan- um. Ákvörðun um sameiningu við aðra fjármálastofnun krefst 2/3 hluta atkvæða hluthafa. ■ MIKILL ÁHUGI Mikil eftirspurn var eftir bréfum Búnaðarbanka á föstudag. Meðal þeirra sem keyptu í bankanum voru Íslandsbanki og tengd félög. Útboð bréfa Búnaðarbanka: Íslandsbanki keypti hluti UMFERÐ Þrettán ára drengur lét líf- ið í hörðum árekstri vestan Voga- afleggjara á Reykjanesbraut á sunnudagskvöld. Slysið er fyrsta banaslysið hérlendis síðan 13. október í fyrra. Síðan eru liðnir 147 dagar. Fólksbíll sem drengurinn var farþegi í skall framan á leigubíl sem kom úr gagnstæðri átt. Drengurinn var látinn við komu á sjúkrahús. Nítján ára ökumaður fólksbílsins er alvarlega slasaður en leigubílstjórinn slapp án mik- illa meiðsla. Talið er að ökumaður fólksbíls- ins hafi misst bílinn yfir á rangan vegarhelming. Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarráði lauk á sunnudags- kvöld þriðja lengsta tímabili án banaslysa frá því hægri umferð var tekinn upp árið 1968. Það ár liðu 173 dagar – frá 10. apríl og 30. september – á milli banaslysa. Síðasta banaslys ársins 1996 varð 20. október. Næsta banaslys þar á eftir varð ekki fyrr en 31. mars árið eftir. Á milli voru 162 dagar. Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, segist vonsvikinn að löngu tímabili án banaslysa sé lokið: „En við lítum fram á veginn og vonum að við séum ekki að fá á okkur hrinu eins og stundum ger- ist. Ég heiti á alla ökumenn og vegfarendur að leggja sitt af mörkum.“ ■ SKILTI UMFERÐARRÁÐS VIÐ SANDSKEIÐ Þriðja lengsta tímabilinu án banaslysa frá árinu 1968 lauk á sunnudag. 147 dagar voru liðnir frá síðasta banaslysinu, sem varð þegar karlmaður lést á Skeiðavegi 13. október í fyrra. Þrettán ára lést í hörðum árekstri á Reykjanesbraut- inni: Fyrsta banaslysið í nær fimm mánuði Leitin að bin Laden: Netið þrengist ISLAMABAD, AP Pakistanskir leyni- þjónustumenn segja að netið sé að þrengjast utan um Osama bin Laden, stofnanda al Kaída-hryðju- verkahreyfingarinnar. Þeir stað- festu á blaðamannafundi í höfuð- stöðvum pakistönsku leyniþjónust- unnar að Khalid Shaikh Mo- hammed, háttsettur foringi í hreyf- ingunni, hefði sagt þeim frá fundi sínum með bin Laden í desember. „Við virðumst vera aðeins nokkrum klukkustundum á eftir honum,“ sagði talsmaður leyniþjón- ustunnar. ■ 200.000 Serbar: Geta ekki snúið aftur KOSOVO, AP Þeim 200.000 Serbum sem flýðu Kosovo eftir stríðið 1999 er ekki óhætt að snúa aftur, að því er fram kemur í skýrslu sérstakrar nefndar Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna og Öryggis- og samvinnu- stofnunar Evrópu. Skýrsluhöfundar segja að þó réttur minnihlutahópa hafi auk- ist á vissum sviðum sé það enn svo að samfélög minnihlutahópa sæti árásum og ógnunum af hálfu Kosovo-Albana. Öfgamenn af albönskum uppruna hafa hefnt sín á serbneskum íbúum fyrir ofríki sem þeir sættu af hálfu stjórnvalda í Belgrad. ■ Gengið lækkar skuldir: Lækka um þrettán milljarða UPPGJÖR Landsvirkjun hagnaðist um 5,7 milljarða á síðasta ári. Afkomu- batinn er 7,5 milljarðar frá árinu á undan. Helsta skýring afkomu- batans er breyting á gengi krónunn- ar. Skuldir félagsins lækkuðu úr 94 milljörðum í 81 milljarð milli ára. Skuldir Landsvirkjunar eru að stærstum hluta í erlendum gjald- miðlum. Raunverulegur afkomubati fyrirtækisins á milli ára er um 400 milljónir. Rekstrartekjur Lands- virkjunar jukust um rúm fjögur prósent, en rekstargjöldin hækkuðu um rúm þrjú prósent. ■ KÖNNUN Atburðir og fréttir síð- ustu viku höfðu engin áhrif á til- trú nærri helmings kjósenda á Davíð Oddssyni forsætisráð- herra. Þær urðu hins vegar til þess að 38% aðspurðra í skoðana- könnun Fréttablaðsins segjast hafa minni tiltrú á forsætisráð- herra en áður. 11% segjast hafa meiri tiltrú á honum en áður. Mikill munur er á því hvaða áhrif atburðir síðustu viku hafa á aðspurða eftir því hvaða flokka þeir styðja. Davíð hefur löngum verið dáður innan Sjálfstæðis- flokksins. Eftir síðustu viku segja þó 30% stuðningsmanna Sjálfstæð- isflokksins að tiltrú þeirra á for- manni flokksins hafi aukist. Níu prósent segja hana hafa minnkað en rúmur meirihluti, 59% segja til- trú sína á forsætisráðherra hvorki hafa aukist né minnkað. 61% allra þeirra sem segja tiltrú sína á Davíð hafa aukist kemur úr röðum stuðn- ingsmanna Sjálfstæðisflokks. Þessu er öðruvísi farið í öðrum flokkum. Rúmlega þriðji hver stuðningsmaður Framsóknar- flokks, 35%, segir tiltrú sína á for- sætisráðherra hafa minnkað meðan aðeins fimm prósent segja hana hafa aukist. 59% stuðningsmanna Vinstri grænna segja tiltrú sína á forsætisráðherra hafa minnkað, fjögur prósent segja hana hafa auk- ist. Nær tveir af hverjum þremur stuðningsmönnum Samfylkingar, 65%, segja að tiltrú sín á forsætis- ráðherra hafi minnkað, einungis þrjú prósent segja hana hafa auk- ist. Ef litið er til næstu þingkosn- inga kann það að hafa mest áhrif hvað þeim þykir sem ekki hafa gert upp hug sinn um hvað þeir kjósa. Sjö prósent þeirra segjast hafa meiri tiltrú á Davíð en áður, 56% segja hana ekki hafa breyst. 31% þeirra segir tiltrú sína á forsætis- ráðherra hafa minnkað í kjölfar at- burða síðustu viku. Hringt var í 600 einstaklinga, jafnt skipt eftir kynjum og hlut- fallslega eftir landshlutum. Spurt var: Hafa atburðir og fréttir liðinn- ar viku dregið úr eða aukið tiltrú þína á Davíð Oddssyni? 3,9% að- spurðra neituðu að svara. Einnig var spurt um breytta tiltrú á Baugi vegna sömu atburða. Niðurstöður þeirrar könnunar verða birtar á morgun. ■ Tiltrú á Davíð minnkaði DAVÍÐ ODDSSON Rúmlega þriðji hver svarandi í skoðanakönnun blaðsins segir að tiltrú sín á forsætisráð- herra hafi minnkað eftir atburði síðusut viku. 38% segja að tiltrú þeirra á forsætisráðherra hafi minnkað í kjölfar frétta og atburða síðustu viku. Ellefu prósent segja hana hafa aukist. Hvorki né Aukið 4 38 48 11 0 5 10 15 20 25 30 35 40 45 50 Svara ekki Minnkað ARABABANDALAGIÐ TIL BAGDAD Arababandalagið hyggst senda háttsetta sendinefnd til Bagdad, höfuðborgar Íraks, fyrir lok vik- unnar, í von um að finna megi leiðir til að komast hjá stríði. Auk aðalritara Arababandalagsins fara fimm utanríkisráðherrar arabaríkja til Bagdad. SEGJA NEI Rússar og Frakkar munu greiða atkvæði gegn nú- verandi tillögu Breta og Banda- ríkjamanna. Bretar og Banda- ríkjamenn hafa sagt möguleika á að breyta tillögunni að einhverju leyti. NIÐURSTÖÐUR Hafa atburðir og fréttir liðinnar viku dreg- ið úr eða aukið tiltrú þína á Davíð Odds- syni?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.