Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 23
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
FRÉTTIR AF FÓLKI
23ÞRIÐJUDAGUR 11 . mars 2003
UPPISTAND Bullukollagengið sem
kennir sig við Jackass, og hefur
slegið í gegn í samnefndum sjón-
varpsþáttum og kvikmynd sem
ganga út á hvers kyns líkams-
meiðingar og fíflagang, er vænt-
anlegt til landsins. Hópurinn
verður með tvær ólíkar sýningar
í Háskólabíói föstudaginn 11. apr-
íl og laugardaginn 12. apríl. Fyrri
sýningin er bönnuð börnum innan
16 ára og viðkvæmu fólki er ráð-
lagt að láta það eiga sig að koma
en seinni sýningin er öllu mildari
og leyfð öllum aldurshópum.
Miðasala á báðar sýningarnar
hefst í Háskólabíói á sunnudag-
inn.
Það mun sjálfsagt ganga á
ýmsu á sviðinu í apríl og aðstand-
endur sýningarinnar eru í óða önn
að verða sér úti um alla þá sviðs-
muni sem Jackass-liðið þarf á að
halda á meðan á skemmtuninni
stendur. Meðal þess sem Steve-O
og félagar vilja hafa við hendina
eru einn 12 feta stigi, einn lítri af
Jose Cuervo Tekíla, svitalykt-
areyðir í brúsa, átta ljósaperur,
fimm pör af latexhönskum og er
sérstaklega tekið fram að það
mega ekki vera uppþvottavett-
lingar, ein fullhlaðin heftibyssa
og einn oddhvass steikarhnífur.
Þeir félagar gerðu allt vitlaust
í Dublin á dögunum og því verður
viðbúnaður yfirvalda vart minni
þegar þeir koma hingað en þegar
Falun Gong liðar heiðruðu land-
ann með nærveru sinni í fyrra. ■
Á sólríkum sumardegi fór Stein-
unn að heimsækja ömmu sína á
Hrafnistu. Þegar hún kemur að
húsinu sér hún ákaflega glaðleg-
an gamlan mann sem situr fyrir
utan og ruggar sér í stól sínum.
„Góðan daginn,“ segir hún og
spyr: „Hvernig stendur á því að
þú ert svona ánægður með lífið
og tilveruna?“
„Tja,“ segir gamli maðurinn. „Ég
reyki þrjá sígarettupakka á degi
hverjum og drekk 11 viskíflöskur
yfir vikuna.“
„Vá,“ segir Steinunn. „Og hvað
ertu eiginlega gamall?“
„Þrjátíu og tveggja.“
Kvikmyndagagnrýnandinnsnaggaralegi Hugleikur
Dagsson fór oft mikinn í bíóum-
fjöllun sinni í hinum rómuðu út-
varpsþáttum sem kenndir voru
við Tvíhöfða. Tvíhöfðinn er sem
kunnugt er
klofinn og
talar nú
tveimur
tungum. Sig-
urjón Kjart-
ansson er
kominn með
nýjan þátt
ásamt Dr.
Gunna, sem
nefnist
Zombie, en
Jón Gnarr
mun brátt
láta að sér
kveða á
nýrri út-
varpsstöð.
Hugleikur
gerir ráð
fyrir að
mæta áfram
til Sigurjóns og spjalla um kvik-
myndir en vill þó ekki snúa alveg
bakinu við hinum Tvíhöfðanum
sínum og hefur boðið Jóni Gnarr
krafta sína og þá ef til vill frekar
sem „sjálfstæður myndlistarmað-
ur.“
Maddömunni, vefriti ungraFramsóknarmanna er annt
um að stjórnsýslu landsins verði
dreift um landið en safnist ekki
öll fyrir í Reykjavík eins og gerst
hefur. Nú leggur hún til að stór
hluti af starfsemi Landhelgis-
gæslunnar verði flutt út á land.
Það sé ekkert því til fyrirstöðu að
flytja skrifstofuhaldið til Akur-
eyrar, stjórnstöðina til Keflavík-
ur, heimahöfn varðskipa til Ísa-
fjarðar eða Vestmannaeyja, sjó-
mælingahluta til Hornafjarðar
eða Seyðisfjarðar og minni þyrlu
gæslunnar og flugvélina til Akur-
eyrar eða Egilsstaða. Eina sem
þurfi að vera eftir sé stóra þyrl-
an nærri helsta hátæknisjúkra-
húsi landsins sem staðsett er í
Reykjavík.
Nær 50 manns voru mættir áfyrstu árshátíð netmiðlanna
sem var haldin í Árbyrgi á Hótel
Íslandi um síðustu helgi,
nokkrum árum eftir að netmiðl-
arnir risu hvað hæst. Fjölmenn-
ustu sveitirnar komu frá Vísi.is,
Mbl.is, og Femin.is en þar var
einnig að finna fulltrúa nokkurra
annarra netmiðla, svo sem Dokt-
or.is, Teljari.is og Djamm.is.
Einn af hápunktum kvöldsinsvar uppboð á kynlífsdúkkunni
Nancy sem hafði verið útréttuð
sem hjúkka. Hvort sem það er til
marks um efnahaginn á netmiðl-
unum eða eitthvað annað fékkst
ekki hærra boð í dúkkuna en svo
að hún ku hafa verið seld fyrir
talsvert innan við kostnaðarverð.
Klæðnaður dúkkunnar þótti þó
vel við hæfi þegar leið á kvöldið
og hersingin hélt upp á Broadway
þar sem læknar og hjúkrunar-
fræðingar voru að djamma.
JACKASS
Brjálæðingarnir í innkaupakerrunni stefna að því að gera allt brjálað í Háskólabíói í næsta
mánuði.
Undarlegir sviðsmunir:
Heftibyssa, áfengi
og átta ljósaperur
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Djúpa
laugin er grunn.
Leiðrétting