Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. mars 2003
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
n
m
0
8
7
5
7
/ sia
.is
HART BARIST
Það var hart barist í Laugardalshöll um helgina þegar Íslendingar tóku á móti Dönum í
alls átta hnefaleikabardögum. Eftir að kýlt hafði verið á báða bóga í nokkrar klukkustundir
varð niðurstaðan jafntefli, 4:4. Þetta var fyrsta viðurkennda hnefaleikakeppnin hér á landi
síðan 1956 og mætti fjöldi fólks til að fylgjast með viðburðinum.
15.00 Stöð 2
Trans World Sport. Íþróttir um allan
heim.
18.00 Sýn
Sportið með Olís.
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Farið er yfir
leiki síðustu umferðar og spáð í spil-
in fyrir þá næstu.
19.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Bein útsending
frá leik Inter Milan og Newcastle
United.
21.40 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Útsending frá
leik Arsenal og Roma.
23.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
0.30 Sýn
Mótor (e). Þáttur um mótorsport.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
KÖRFUBOLTI Michael Jordan skor-
aði 39 stig þegar Washington Wiz-
ards tapaði fyrir New York
Knicks með 97 stigum gegn 96 í
NBA-deildinni í körfubolta í
fyrrakvöld.
Þetta var að öllum líkindum
síðasti leikur kappans í Madison
Square Garden, heimavelli
Knicks, en hann ætlar að leggja
skóna á hilluna eftir leiktíðina.
Tracy McGrady átti stórleik
fyrir Orlando Magic sem vann
Denver Nuggets 111:98. Hann
skoraði 43 stig þrátt fyrir að hvíla
í síðasta leikhluta. ■
Enska bikarkeppnin:
Watford mætir
Southampton
FÓTBOLTI Watford leikur gegn Sout-
hampton í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar 13. apríl. Í hin-
um undanúrslitaleiknum leikur
Sheffield United við Arsenal eða
Chelsea. Lundúnafélögin gerðu
jafntefli á laugardag og þurfa að
leika að nýju 25. mars. Arsene
Wenger lýsti því yfir eftir leikinn
gegn Chelsea að tími væri kominn
til að hætta aukaleikjum eftir
jafntefli á seinni stigum bikar-
keppninnar. Arsenal hefur þegar
þéttskipaða dagskrá heima fyrir
og í Evrópu og á t.d. mikilvægan
leik gegn Everton tveimur dögum
fyrir leikinn gegn Chelsea. ■
JORDAN
Michael Jordan, leikmaður Wizards, tek-
ur skot á körfuna yfir Othella Harr-
ington, leikmann New York Knicks.
Stórleikur Jordan dugði Wizards ekki til.
Michael Jordan:
Skoraði 39 stig
gegn Knicks
AP
/M
YN
D
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M