Fréttablaðið - 11.03.2003, Side 16
16 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR
LORD OF THE RINGS kl. 4/ 4 í lúxusSPY KIDS 2 kl. 1.40, 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK kl. 8 í Lúxus
GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.10
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 4
THE RING kl. 5.45, 8 og 10.20
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.30 b.i.16.ára
kl. 7.15CATCH ME IF YOU CAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 10THE RING
kl. 5.40STELLA Í FRAMBOÐI
kl. 5.50, 8 og 10LILJA 4-EVER
MAN WITHOUT A PASTkl. 6, 8 og 10
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Fréttiraf fólki
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.30 b.i.12
CATCH ME IF YOU CAN kl. 8
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
The Charlatans:
Ný smáskífa
í sumar
TÓNLIST Breska rokksveitin The
Charlatans hefur tilkynnt um útgáfu
nýrrar smáskífu í sumar. Sveitin
vinnur nú að nýrri breiðskífu en ætl-
ar ekki að flýta sér um of. Smáskífan
er því það eina sem aðdáendur fá að
heyra frá sveitinni í sumar. Ekki er
búist við nýju breiðskífunni fyrr en á
næsta ári.
Liðsmenn sveitarinnar eru nú
heima hjá Íslandsvininum Tim
Burgess í Los Angeles að leggja drög
að nýju plötunni. Á heimasíðu sveit-
arinnar hefur verið tilkynnt að fjög-
ur lög séu tilbúin. Þau heita „Try Aga-
in Today“, „Wave the World Good-
bye“, „Feel the Pressure“ og „See
How Clear It Is“. ■
Leikkonurnar Renée Zellwegerog Catherine Zeta-Jones fengu
báðar verðlaun fyrir leik sinn í
„Chicago“ á verðlaunum samtaka
kvikmyndaleik-
ara er haldin
voru í Los Angel-
es á sunnudag.
Leikarahópurinn
í „Chicago“ var
einnig valinn sá
best samansetti.
Leikarinn Daniel
Day-Lewis var
valinn besti karlleikarinn í aðal-
hlutverki. Christopher Walken
fékk verðlaunin fyrir aukahlut-
verk sitt í myndinni „Catch Me if
You Can“. Verðlaunin þykja gefa
góða vísbendingu um hverjir taki
með sér Óskarsverðlaunastyttur
á sunnudagskvöldið 23. mars.
Meira um Catherine Zetu-Jo-nes því hún hefur pantað
sjúkrabíl á Óskarsverðlauna-
kvöldið ef svo færi að hún myndi
missa legvatnið á
hátíðinni. Hún á
von á sínu öðru
barni með eigin-
manninum Mich-
ael Douglas
tveimur vikum
eftir verðlauna-
hátíðina. Hún er
staðráðin í því að
vera á staðnum þar sem hún er
tilnefnd fyrir leik sinn í
„Chicago“. Búið er að skipa henni
í sæti eins nálægt útgönguleið-
inni og hægt var.
■ MYNDLIST
MYNDASÖGUR Það má líklegast telja
starfandi myndasöguhöfunda hér
á landi á fingrum annarar handar.
Færri hafa svo stigið skrefið til
fulls og gefið út bækur. Bjarni
Hinriksson hefur gert myndasög-
ur frá því að hann var í mennta-
skóla en aldrei gefið út bók. Sögur
hans hafa þó ratað inn í safnrit og
tímarit víðs vegar um heim auk
þess sem hann var einn af um-
sjónamönnum „Gisp“, sem kom út
með óreglulegu millibili um tíma-
bil. Hann hefur líka haldið fyrir-
lestur í Listaháskólanum um gerð
myndasagna.
Bjarni hefur á 15 árum náð að
skapa sér afar sérstakan stíl í
myndasögugerð þar sem leikur að
orðum og merkingu þeirra er jafn
mikilvægur og myndirnar sjálfar.
Sögur hans eru á tímabili súrreal-
ískar og geta seint flokkast undir
léttmeti.
„Þetta er kannski eins og ljóða-
bók,“ útskýrir Bjarni. „Ég geri
mér fulla grein fyrir því að það sé
ekkert auðvelt að setja sig inn í
þennan heim án þess að gefa sér
tíma. Ég geri þetta ekki meðvitað,
þetta er bara afleiðing af því
hvernig sögur ég er að segja. Mað-
ur getur ráðið hversu aðgengilegir
hlutirnir eru en maður verður
samt að leyfa sögunni að taka völd-
in. Hér á Íslandi er ekki kominn
neinn útgáfufarvegur sem höfund-
ur getur reynt að stilla sér inn á.
Það gefur visst frelsi. Ég veit að
það er hvort eð er alltaf erfitt að
koma íslenskum myndasögum að.
Þess vegna fæst ég bara við það
sem ég er að gera. Ef ég væri að
mála þá væri ég ekki endilega að
hugsa um hvort ég væri að mála
létt eða auðvelt málverk, ég væri
bara að mála.“
Tvær sögupersónur koma oft
við sögu í smásögum Bjarna. Þær
heita Tinna og Tobbi, tilvitnun í
persónur Hergé, og fljúga þær í
gegnum sögusviðin á bókarvængj-
um. Bjarni segir þau vera mislukk-
aða höfunda sem ekki hafa komist
eins langt og þeir vildu. „Þeir eru
að berjast við að finna rétta tóninn
í sinni sköpun og koma henni á
framfæri. Í einni sögunni gera orð-
in uppreisn gegn höfundunum. Þá
er það svipað þema. Vangaveltur
um höfundinn, verkið og hvað höf-
undurinn á mikið í verkinu,“ segir
Bjarni og játar að skilja eftir
ómeðvitað hluta af sér í persónum
sínum sem svo öðlast sitt eigið líf.
Bókin fæst í verslunum Hag-
kaups, stærri bókabúðum og
myndasöguverslun Nexus.
biggi@frettabladid.is
Ljóð í myndarömmum
Út er komin myndasögubókin „Stafrænar fjaðrir“ eftir Bjarna Hinriksson. Hún
inniheldur safn smásagna sem fjalla margar um samband höfundarins við skáld-
sagnapersónur sínar og lesanda.
CHICAGO kl. 8
NÝJA TÆKNIHREINSUNIN ehf.
Sími 897 3634 dgunnarsson@simnet.is
Fyrirtæki, stofnanir og heimili.
Hreinsum gardínur, rimla-, strimla-
viðar- og plíseraðar auk sólarfilmu.
BJARNI HINRIKSSON
Vonast til að útgáfa sín verði hvatning fyrir aðra myndasöguhöfunda að ríða á vaðið.
„Þegar ég sé aðra gefa út, alveg sama þó stíllinn höfði kannski ekki til mín, finnst mér
það jákvætt,“ segir Bjarni. „Ég vona bara að þetta hafi sömu áhrif á aðra. Að minnsta
kosti fyrir aðra að sjá það er hægt að senda frá sér bók eða blað sem er á svipuðu stigi
og það sem maður er að sjá erlendis.“
KÁRI STEFÁNSSON
Er á meðal sögupersóna í bók Bjarna.
TÓNLIST Meg White, trommuleikari
The White Stripes, braut á sér
handlegginn er hún datt á skautum
í New York fyrir tveimur vikum.
Þetta þýðir að rokkdúettinn neyðist
til þess að fresta kynningarherferð
sinni fyrir væntanlega breiðskífu
þeirra „Elephant“ um nokkrar vik-
ur.
Búist er við því að hún verði
komin með kjuðana í hendurnar í
byrjun næsta mánaðar. Hún tví-
brotnaði á vinstri handlegg og er
nú í gifsi. Sveitin átti að leika á tón-
leikahátíðinni South by Southwest,
þar sem Singapore Sling og Ensími
eru núna, en varð að hætta við
framkomu sína þar. Breiðskífan
„Elephant“ kemur í búðir þann 31.
mars næstkomandi. Útgáfu plöt-
unnar var flýtt vegna þess að plat-
an er nú fáanleg í heild sinni á Net-
inu. ■
TIM BURGESS
Virðist hafa komist í plötugírinn eftir Ís-
landsdvölina.
THE WHITE STRIPES
Það er heldur lágt risið á þessum dúett í
dag, enda trommarinn með vinstri hand-
legginn í gifsi.
The White Stripes:
Trommuhnáta hand-
leggsbrýtur sig
■ FÓLK
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
I/
B
IL
LI
S i l fursmíð i • í s lenska v í rav i rk ið
Byrjendanámskeið (10 st.) fös. 14. mars kl. 17.30–22
og lau. 15. mars. kl. 9–12.30 Framhaldsnámskeið (10 st.) fau. 15.
mars kl. 15–18 og sun. 16. mars kl. 10–14.
Leiðbeinendur: Davíð Jóhannesson og Karl Davíðsson gullsmiðir. Verð:
16.000 kr. (efnisgjald innifalið). Kennt er í Fjölbrautaskólanum í Ármúla.
Skráning í síma 581 4914
virka daga kl. 9–12 og á
vefnum www.framvegis.is